Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsráð Kópavogs samþykkti
þann 18. október sl. að kynna
vinnslutillögu að breyttu deiliskipu-
lagi fyrir nyrsta hluta Kársnessins,
þ.e. svæði fyrir ofan Kópavogshöfn.
Mikil uppbygging íbúðabyggðar hef-
ur staðið yfir á Kársnesi undanfarið.
Í vinnslutillögunni, sem unnin er
af Atelier arkitektum, er gert ráð
fyrir að núverandi atvinnuhúsnæði á
lóðunum víki og íbúðarhús rísi í þess
stað. Skipulagssvæðið afmarkast af
Þinghólsbraut og lóðamörkum Þing-
hólsbrautar 73 og 75 í austri, fyrir-
hugaðri nýrri vegtengingu milli
Borgarholtsbrautar og Bakkabraut-
ar í norðri og fyrirhugaðs nýs
hafnarkants til vesturs og suðurs.
Gert er ráð fyrir að heildarfjöldi
íbúða á reitnum verði að hámarki
160, á 2-5 hæðum þar sem 5. hæðin
verður inndregin. Minnstu íbúðirnar
verða stúdíóíbúðir og þær stærstu
fimm herbergja. Þá er gert ráð fyrir
0,75-1 bílastæði pr. íbúð og að u.þ.b.
90% þeirra verði í innbyggðum og
niðurgröfnum bílageymslum. Fyrir-
hugað er að heildarbyggingarmagn á
svæðinu verði 26.675 fermetrar ofan-
og neðanjarðar.
Byggðin mun stallast mikið í hæð-
um vegna landhalla frá Þingholts-
braut að ströndinni. Því muni mynd-
ast skjólgóðir og sólríkir inngarðar
sem opnist til suðurs.
Byggingar í slæmu ástandi
Fram kemur í greinargerð með
skipulagstillögunni að á reitnum
standi í dag iðnaðarbyggingar, sem
reistar voru á árunum 1950-1988, alls
tæpir fimm þúsund fermetrar. Þær
séu margar í slæmu ástandi og falli
ekki vel að landi eða við núverandi
íbúðabyggð. Fyrirtækið Íslenskt
sjávarfang (Bakkabraut 2) er með
starfsemi í stærstu byggingunum og
einnig er Hjálparsveit skáta í Kópa-
vogi (Bakkabraut 4) með aðstöðu við
höfnina. Áformað er að hjálpar-
sveitin verði áfram með bátaskýli við
höfnina, að hámarki 240 fm.
Fram kemur í greinargerðinni að
vinnslutillagan sé í samræmi við
stefnu um þéttingu byggðar og upp-
býggingu íbúða á Kársnesinu sam-
kvæmt aðalskipulagi Kópavogs 2019-
2040 og sé í samræmi við þá upp-
byggingu sem þegar hafi átt sér stað
norðar á svæðinu. Með tillögunni
fjölgi íbúðum á svæðinu sem stuðli að
betri nýtingu innviða.
Staðsetningin sé útjaðri uppbygg-
ingasvæðisins og tengist vel helstu
hjóla- og gönguleiðum auk þess sem
almenningssamgöngur verði mjög
góðar með tilkomu borgarlínu og
nýrrar brúar yfir Fossvoginn.
Kynningarfundi streymt
Kynning á tillögunni hófst þann 5.
nóvember á www.kopavogur.is og
skal ábendingum og athugasemdum
skila skriflega til skipulagsdeildar
eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 21.
janúar 2022. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillögurnar. Opnu húsi/
kynningarfundi sem átti að vera 18.
nóvember var frestað vegna heims-
faraldursins. Rafrænn kynning-
arfundur verður haldinn 30. nóvem-
ber. Fundurinn hefst kl. 17 og er
streymt frá vefsíðu Kópavogsbæjar.
Myndir/Atelier arkitektar
Kársnes í framtíðinni Hugmyndir arkitektanna um útlit nýrra íbúðarhúsa á reitnum við Kópavogshöfn. Þetta verða eflaust eftirsóttar íbúðir í nálægð við sjóinn og skjólgóða og sólríka inngarða.
Ný íbúðabyggð við Kópavogshöfn
Kársnes í dag Á svæðinu nokkrar gamlar iðnaðarbyggingar, sem eru farnar
að láta verulega á sjá margar hverjar. Þær munu víkja fyrir íbúðarhúsum.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu hef-
ur verið aflýst formlegri tendrun á
Hamborgarjólatrénu við Gömlu
höfnina, en búið var að skipu-
leggja fjölbreytta samkomu á Mið-
bakka á morgun, laugardag. Þetta
er annað árið í röð sem þessi sam-
koma fellur niður vegna heimsfar-
aldursins.
Tréð verður sett upp í vikunni,
það skreytt jólaljósum og þau síð-
an tendruð „í kyrrþey“.
Hamborgarjólatréð hefur verið
sett upp við höfnina árlega síðan
1965. Þetta hefur verið samstarfs-
verkefni Faxaflóahafna, Eimskips
og þýsk-íslensku vinafélaganna í
Hamburg og Köln. Undanfarin ár
hefur staðið yfir mikil uppbygging
við Austurhöfnina og því hafa
fyrirtæki þar gengið til þessa sam-
starfs. Af því tilefni var stefnt að
því að vera með óvenjuveglega
dagskrá í ár en af því getur ekki
orðið. Var það mat aðstandenda að
ekki væri hægt að tryggja viðeig-
andi öryggi meðan á viðburðinum
stæði og fjöldinn sem myndi sækja
dagskrá í Listasafni Reykjavíkur
yrði umfram það sem samkomu-
takmarkanir leyfa. Því hefur verið
ákveðið að aflýsa viðburðinum
þetta árið.
Faxaflóahafnir ásamt fyrir-
tækjum í Austurhöfn stefna að því
að halda þennan jólaviðburð árið
2022 með pompi og prakt.
Faxaflóahafnir munu hins vegar
verða með viðburði á Grandanum
þrjár helgar í desember. Verið er
að leggja lokahönd á dagskrána.
sisi@mbl.is
Jólaljósin verða
kveikt í „kyrrþey“
- Samkomu aflýst vegna faraldursins
Morgunblaðið/Golli
Miðbakkinn Fámennt verður við
tendrun jólaljósanna að þessu sinni.