Morgunblaðið - 26.11.2021, Side 44
Ljósmynd/Albert Kemp
Verðmæti Þorskur er verðmætasta
fisktegund okkar Íslendinga.
Útflutningstekjur af vöru- og þjón-
ustuviðskiptum voru rúmir 356
milljarðar króna á þriðja fjórðungi
þessa árs. Er það um 44% aukning í
krónum talið frá sama tímabili í
fyrra. Gengi krónunnar var að jafn-
aði um 7% sterkara á þriðja fjórð-
ungi í ár samanborið við sama tíma
í fyrra. Aukningin á útflutnings-
verðmætunum er því meiri í er-
lendri mynt eða sem nemur 54 pró-
sentum samkvæmt samantekt
Radarsins, fréttablaðs Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi.
Þar segir að hlutdeild sjávar- og
eldisafurða af útflutnings-
verðmætum minnki á milli ára
þrátt fyrir sömu eða hærri tekjur á
föstu verðlagi.
„Útflutningstekjur af sjávaraf-
urðum voru um 65 milljarðar króna
á þriðja ársfjórðungi og stóðu nán-
ast í stað á milli ára á föstu gengi.
Útflutningstekjur af eldisafurðum
voru rúmir 8 milljarðar króna og
jukust um 26% á milli ára á sama
kvarða. Hlutur sjávar- og eldis-
afurða í útflutningstekjum þjóðar-
búsins er þó töluvert lægri nú á
þriðja ársfjórðungi en hann var á
sama tímabili í fyrra, eða rúm 20%
á móti tæpu 31%.“
Með öðrum orðum eru tekjur
annarra útflutningsgreina að
aukast eftir efnahagsáföllin sem
fylgdu heimsfaraldri.
Útflutnings-
verðmætin
aukast enn
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Afurðaverð á markaði
24. nóv. 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 453,60
Þorskur, slægður 424,92
Ýsa, óslægð 402,51
Ýsa, slægð 404,06
Ufsi, óslægður 101,01
Ufsi, slægður 302,43
Gullkarfi 245,51
Blálanga, slægð 344,34
Langa, óslægð 290,59
Langa, slægð 318,22
Keila, óslægð 108,16
Keila, slægð 84,00
Steinbítur, óslægður 334,98
Steinbítur, slægður 509,97
Skötuselur, slægður 781,42
Grálúða, slægð 414,44
Skarkoli, slægður 552,05
Þykkvalúra, slægð 749,23
Langlúra, slægð 10,00
Skrápflúra, óslægð 19,00
Bleikja, flök 3.176,00
Gellur 1.670,60
Hlýri, óslægður 435,00
Hlýri, slægður 442,18
Lúða, slægð 561,24
Skata, slægð 10,00
Undirmálsýsa, óslægð 134,46
Undirmálsýsa, slægð 126,29
Undirmálsþorskur, óslægður 235,02
Undirmálsþorskur, slægður 237,97
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Gjöld vegna laxeldis í sjó hækka um
tæp 199% um áramótin. Þá fer gjald
á hvert kíló af slátruðum laxi úr 3,99
krónum í 11,92 krónur á kíló. Miðað
við útflutningstölur stefnir í nýtt
met í útfluttum eldislaxi og gæti út-
flutt magn endað í rúmlega 33 þús-
und tonnum. Miðað við 3,99 króna
gjald er laxeldið hugsanlega að skila
132 milljónum í Fiskeldissjóð vegna
slátraðs magns 2021. Þessi upphæð
gæti hins vegar farið að nálgast hálf-
an milljarð króna ef hægt er að gera
ráð fyrir að slátrað magn aukist í
takti við aukningu í útsetningu
seiða.
Árið 2019 samþykkti Alþingi lög
um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó
og fiskeldissjóð. Samkvæmt lögun-
um er gjald vegna laxeldis 3,5% þeg-
ar verð er 4,8 evrur á kílógramm eða
hærra, 2% þegar verð er 4,3 evrur á
kílógramm eða hærra en þó lægra
en 4,8 evrur á kílógramm og 0,5%
þegar verð er lægra en 4,3 evrur á
kílógramm. Gjaldheimtan tekur hins
vegar ekki að fullu gildi fyrr en 2026
þar sem innleiðingunni á inn-
heimtunni var dreift á sjö ár og var
álagningin aðeins einn sjöundi af
reiknistofni árið 2020 en tveir sjö-
undu á þessu ári.
Álagningin verður þrír sjöundu af
reiknistofni á næsta ári og hefur
Fiskistofa tilkynnt að hún muni
nema 11,92 krónum á hvert kíló af
slátruðum laxi en 5,96 krónum á
hvert kíló af slátruðum regnbogasil-
ungi og er það einnig gjald sem
varðar ófrjóan lax og lax sem er al-
inn í sjó með lokuðum eldisbúnaði.
Nýjungar
Hingað til hefur þó ekki verið
stundað eldi á ófrjóum laxi á Íslandi
og voru fyrstu ófrjóu laxaseiðin sett
í sjókvíar 16. október. Þetta stað-
festir Gísli Jónsson, sérgreinadýra-
læknir hjá Matvælastofnun, í tölvu-
pósti til blaðamanns. Hann segir
seiðin hafa verið frá fyrirtækinu Ri-
fósi hf. á Kópaskeri og sett í tvær
sjókvíar Fiskeldis Austfjarða við
Svarthamarsvík í Berufirði. „Þess-
um fiski verður svo ekki slátrað fyrr
en í lok árs 2023. Alls voru þetta um
170.000 seiði (170 g). Það verður
spennandi að fylgjast með því
hvernig þessi lax spjarar sig í áfram-
eldinu í samanburði við þann frjóa.“
En ófrjói laxinn er ekki eina nýj-
ungin þar sem fyrstu lífrænu laxa-
seiðin sem sett hafa verið í sjókvíar
til áframeldis hér við land voru flutt
í sjó frá Kópaskeri í sjókví við Svart-
hamarsvík í Berufirði 30. október.
„Þessum fiski verður einnig slátrað í
lok árs 2023. Alls voru þetta um
140.000 seiði (85 g).“
Vöxtur
Ekki hefur farið fram hjá mörg-
um sá mikli vöxtur sem orðið hefur í
fiskeldinu hér á landi á undanförn-
um árum og gera uppfærðar áætl-
anir Matvælastofnunar ráð fyrir að
þær 9,3 milljónir seiða sem sett voru
í sjókvíar 2018 skili um 43.500 tonn-
um af sláturlaxi á þessu ári. Á næsta
ári verða þau 10,8 milljónir seiða
sem sett voru í kvíar 2022 að um 50
þúsund tonnum af sláturlaxi. Má því
gera ráð fyrir að tekjur af gjaldi
vegna sjókvíaeldi aukist.
Þá er gert ráð fyrir að sama magn
verði klárt til slátrunar 2023 en þá
munu tekjur vegna gjaldsins áfram
hækka þar sem álagning verður orð-
in fjórir sjöunduhlutar af reikni-
stofni. Árið 2024 verða síðan seiði
sem voru útsett 2022 að sláturlaxi,
alls 55 þúsund tonnum. Það ár verð-
ur gjaldið orðið fimm sjöundu af
reiknistofni samhliða framleiðslu-
aukningu og spurning hvort gjald-
takan af sjókvíaeldi þá verði komin
nærri milljarði króna.
Tekjur af eldi hækka ört
- Gjald vegna laxeldis í sjókvíum gæti skilað um 130 milljónum vegna ársins 2021
- Gjaldið nærri þrefaldast um áramót - Um 12 krónur á kíló af slátruðum laxi
Útfluttur lax á árinu 2021
Þús. tonn
Gjaldtaka vegna
fiskeldis í sjó
Möguleg innheimta,
milljónir kr.6
5
4
3
2
1
0
132
453
2021 2022*
3,99 kr. 11,92 kr.
jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt.* nóv.* des.*
*Vaxi framleiðsla í takti við
aukningu í útsetningu seiða
Heimild: Fiskistofa
Álagning á kíló af slátr-
uðum laxi 2021 og 2022:
*Meðaltal fyrstu 9 mánuði
Heimild: Hagstofa Íslands
2,9
5,0
1,9
2,9 2,8
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kvíar Gjaldheimta vegna laxeldis í sjókvíum mun aukast á komandi árum.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Verkefnin hafa verið næg hjá Slippn-
um á Akureyri að undanförnu og er
gert ráð fyrir að það verði tilfellið
fam yfir áramót. Er nú unnið hörðum
höndum að endurnýjun vinnslubún-
aðar í ístogaranum Frosta ÞH-229
frá Grenivík, að því er fram kemur í
færslu á vef Slippsins á Akureyri.
Við viðlegukantinn má sjá frysti-
togarann Hrafn Sveinbjarnarson
GK-255 sem Þorbjörn hf gerir út frá
Grindavík. Nokkrar vikur eru frá því
að skipið kom til Akureyrar og er
ætlunin að aðstoða Kælismiðjuna
Frost við niðurrif á frystikerfinu í
skipinu, smíða nýtt frystivélarrými,
mála vinnsludekkið í skipinu ásamt
öðrum minni háttar viðhaldsverk-
efnum.
Skagstrendingurinn Arnar HU-1
sem FISK-Seafood ehf. gerir út er
einnig við viðlegukantinn en í honum
var skipt um allar legur í togspili,
skipið heilmálað og öxuldregið, upp-
tekt á skrúfuhaus ásamt breytingum
og smíði á nýjum búnaði fyrir
vinnsludekkið. Kælismiðjan Frost
hefur einnig unnið við breytingar á
frystikerfinu í skipinu og aðstoðaði
Slippurinn við að koma eldri búnaði
frá borði og smíða undirstöður fyrir
nýjan búnað.
Þá er Sighvatur Bjarnason VE-81
í dráttarbrautinni og er stefnt að því
að gera uppsjávarskipið, sem er í
eigu Vinnslustöðvarinnar hf. í Vest-
mannaeyjum, klárt fyrir loðnuvertíð-
ina.
Loðnuvertíðin lyftistöng
„Verkefnastaðan er góð en sökum
stærðar okkar við höfum þó yfirleitt
tök á því að bæta við okkur verk-
efnum, komi upp þannig aðstæður.
Við erum byrjaðir að fá inn bókanir
fyrir næsta ár enda erum við að upp-
lifa að afhendingartími á öllum að-
föngum er mun lengri áður og því er
mjög mikilvægt að skipuleggja verk-
efnin vel og huga snemma að við-
haldsmálum komandi mánaða. Við
hjá Slippnum höfum verið að und-
irbúa okkur fyrir að geta þjónustað
viðskiptavini okkar sem best, bæði
með aukinni verkþekkingu sem og
útvegun aðfanga í gegnum tengsl-
anet okkar innanlands sem og er-
lendis,“ segir Sveinbjörn Pálsson,
nýráðinn sviðsstjóri skipaþjónustu
Slippsins Akureyri, í færslunni.
„Útgerðir uppsjávarskipa eru nú í
óða önn að undirbúa stóra loðnu-
vertíð og erum við nú að aðstoða út-
gerðirnar við undirbúning skipa fyrir
hana. Þetta er gríðarleg lyftistöng
fyrir útgerðina sem og alla þá sem
starfa við að þjónusta sjávarútveg-
inn,“ segir hann.
Næg verkefni út árið
- Fjölbreytt dagskrá hefur verið hjá Slippnum á Akureyri
Athafnasvæði Frosti og Arnar við viðlegukantinn hjá Slippnum.