Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 STUÐIÐ ER Í VINNUNNI NÝR VIVARO-E Vivaro-e er einn fullkomnasti atvinnu– rafmagnsbílinn á markaðnum. Með honum velur þú að marka grænt fótspor með þínum atvinnurekstri. 100% RAFMAGN RAFHLAÐA, HLEÐSLA OG DRÆGNI Nú kemur ekkert í veg fyrir að það sé hægt að nota rafmagnsbíla í atvinnurekstri. Vivaro-e hefur svipaða burðagetu og vörurými og hefðbundinn sendibíll en er mikið hagkvæmari í rekstri. Mótor: 100 kW Rafhlaða: 50/75 kWh Drægni: 231/330 km. (WLTP) BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: 480 8080 BB, betri bílar Akureyri Njarðarnesi 12 Sími: 534 7200 Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 VIVARO-E VERÐ FRÁ AÐEINS: 5.290.000 KR. LANGTÍMALEIGA FRÁ: 129.600 KR. Á MÁNUÐI. SÖLUMENN Í SAMNINGSSTUÐI! TRYGGÐU ÞÉR BÍL FYRIR ÁRAMÓT TILBÚIN TIL AFHENDINGAR B irt m e ð fy rirv a ra u m m y n d - o g t e x ta b re n g l. B íll á m y n d e r m e ð a u k a b ú n a ð i. VIÐTAL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það er gott hljóðið í Ólafi Vigfússyni þegar blaðamaður nær í hann sím- leiðis. Hann hefur í tæpan aldar- fjórðung staðið vaktina í þjónustu við veiðimenn Íslands. Ásamt konu sinni rekur hann verslanirnar Veiði- hornið og Veiðimanninn. Og Ólafur hefur ástæðu til að gleðjast. Síðustu tvö ár hafa verið ævintýri líkust í rekstri fyrirtækisins, svo vitnað sé til lýsingar hans sjálfs. Kemur það til af því að Íslendingar hafa frá því að kórónuveiran lagðist yfir heiminn flykkst í ár og vötn, á sjó og upp til fjalla og á akra í veiðiskap af fjöl- breyttu tagi. Mikill og góður gangur „Árið í fyrra var algjört metár. Við sjáum ekki sömu veltu nú og þá, en það gengur allt glimrandi vel,“ segir Ólafur. En sjaldan er ein báran stök og nú hefur enn dregið til tíðinda hjá þeim hjónum. Þannig hafa þau efnt til samstarfs við einn öflugasta fram- leiðanda veiðivara í heiminum, bandaríska fyrirtækið Pure Fishing, en undir hatti þess eru nærri 20 fyrirtæki og vörumerki sem mörg hver eru mjög rótgróin hér á landi. „Þekktasta merkið er sennilega Abu. Vörur þeirra, m.a. spúnar, hafa verið í sölu hér svo áratugum skiptir. Ég man eftir þeim í Kaupfélaginu austur á Reyðarfirði þegar ég var barn og afar mínir notuðu þessar vörur á bryggjunni í gamla daga.“ En það eru fleiri merki sem veiði- menn kannast við. Hardy og Greys eru þar á meðal og Shakespeare, Fenwick, Berkley og Stren. „Hardy, sem sérhæfir sig í flugu- veiðivörum, verður 150 ára á næsta ári og við ætlum okkur að hefja vörur þess til vegs og virðingar á markaðnum. En svo eru þarna líka fyrirtæki á borð við Penn sem fram- leiðir einhver bestu sjóhjól sem hægt er að komast í,“ útskýrir Ólaf- ur og þeir sem hann þekkja vita að þar er ekki töluð vitleysan enda reyndur á því sviði eftir svaðilfarir um allan heim.Vörur frá mörgum þessara framleiðenda hafa verið í boði hér á landi síðustu ár og ára- tugi. Ólafur segir að markmiðið sé hins vegar að auka úrvalið. Undantekningarlaust fengið góðar viðtökur „Við höfðum strax samband við alla þá sem hafa verið með þessar vörur til sölu hringinn um landið og létum vita að þær yrðu áfram í boði af okkar hendi. Því var undantekn- ingarlaust vel tekið og við hyggj- umst þjónusta þessi fyrirtæki vel,“ segir Ólafur og bendir á að með þessum samningi verði aukinn þungi í heildsöluhluta starfseminn- ar. „Veiðimaðurinn á Krókhálsi verð- ur miðstöðin fyrir þessar vörur og þar verður mjög stór Abu-verslun.“ Aðspurður segir hann ekki ósenni- legt að með þessum breyttu áherslum muni velta fyrirtækisins aukast um 30% frá því sem nú er. Spurður út í hvernig markaðurinn skiptist upp eftir veiðimörkuðum segir Ólafur að holt og bolt megi segja að stangveiðin standi undir 70% af veltunni og skotveiðin 30%. „Við teljum að það séu á bilinu 80- 100 þúsund manns sem stundi stang- veiði hér á landi en að það séu um 15 þúsund sem séu í skotveiðinni. Þetta skarast að einhverju leyti en alls ekki öllu.“ Að því kemur í spjallinu að net- verslun fyrirtækisins berst í tal og þar segir Ólafur að ýmsu að hyggja. „Við erum t.d. með tvennar dyr inn í netverslunina. Þú getur farið beint inn í skotveiðina og þá er ekk- ert stangveiðitengt að þvælast fyrir og þeir sem vilja bara vera í stang- veiðinni geta farið beint inn um þær dyr án þess að skotveiðina beri nokk- uð fyrir augu.“ Fyrsta netverslunin 1999 Ólafur og María kona hans opnuðu fyrstu vefverslunina árið 1999 og mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. „Þá var þetta gjarnan þannig að menn komu með útprent af því sem þeir hugðust kaupa hjá okkur en höfðu rekist á í versluninni. Síðan þá hefur þetta þróast og það má segja að Íslendingar hafi lært að versla á netinu í faraldrinum. Nú treystir fólk þessu betur og áttar sig á að þetta virkar fullkomlega.“ Veiðihornið nær stórum samningi við Pure Fishing Morgunblaðið/Eggert Sala Ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um Veiðihornið fyrir skemmstu þegar Ólafur var að hafa til sendingar samkvæmt pöntunum gegnum netverslun fyrirtækisins. Nýi samningurinn mun ekki fækka pakkasendingunum. - Heildsöluhluti fyrirtækisins vex mjög að umfangi - Staðið vaktina í aldarfjórðung « Verðbólga í nóvembermánuði mælist 4,8% samkvæmt nýjum tölum Hagstof- unnar. Eykst hún úr 4,5% í okóber. Aukningin er þó minni en greiningarað- ilar höfðu gert ráð fyrir. Þannig taldi hagfræðideild Landsbankans að vísi- tala neysluverðs myndi hækka um 0,5% milli mánaða og að verðbólgan, mælt 12 mánuði aftur í tímann, myndi standa í 5% í þessum mánuði. Grein- ing Íslandsbanka gekk lengra og taldi að verðbólgan myndi mælast 5,1% á grundvelli þess að vísitalan myndi hækka um 0,6% milli mánaða.Sem fyrr er það húsnæðisliður vísitölunnar sem hefur mikil áhrif. Reiknuð húsaleiga hækkar um 1,1%. Sé húsnæðisliðurinn tekinn út úr mælingunni mælist vísital- an 3%. Verðbólgan eykst minna en gert var ráð fyrir 26. nóvember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.89 Sterlingspund 174.74 Kanadadalur 103.09 Dönsk króna 19.722 Norsk króna 14.629 Sænsk króna 14.393 Svissn. franki 139.9 Japanskt jen 1.1364 SDR 182.35 Evra 146.67 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.8208 « Útflutningur á vöru og þjónustu var 12,9 milljörðum meiri en innflutn- ingur á þriðja árs- fjórðungi ársins. Þetta bendir hag- fræðideild Lands- bankans á í nýrri hagsjá. Þar segir að útflutningur hafi numið 356,3 millj- örðum á fjórðungnum og hafi aukist um 108 milljarða miðað við sama fjórðung í fyrra. Innflutningur hafi hins vegar numið 343,3 milljörðum og hafi aukist um 82,9 milljarða frá fyrra ári.Með þessu hafi halli upp á 12,2 milljarða á þriðja fjórðungi 2020 snúist í hóflegan hagnað að þessu sinni. Viðsnúningurinn er jákvæður um 25 milljarða króna. Viðskiptahalli snýst í hóflegan afgang STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.