Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 48
48 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 DÚKA KRINGLAN – DÚKA SMÁRALIND – DUKA.IS 20% afsláttur af völdum vörumerkjum KLIPPAN WESCO OXO ROBERT WELCH RIG-TIG TILBOÐ Nýja ríkisstjórnin í Þýskalandi, sem jafnaðarmenn leiða, hyggst lögleiða notkun kannabiss. Kemur þetta fram í stjórnarsáttmálanum sem birtur var á miðvikudaginn. Áður var búið að gera vörslu neyslu- skammta af efninu refsilausa og heimila notkun þess í lækninga- skyni. Kannabis verður eingöngu selt í verslunum með sérleyfi til að tryggja hreinleika efnisins og salan bundin við 18 ára og eldri. Salan verður skattlögð og er búist að hún geti fært ríkinu allt að einn milljarð evra í árlegar tekjur. Stjórnin segir þó að ekki sé mark- miðið að græða á lögleiðingunni. Settar verða reglur sem takmarka auglýsingar og kynningar á kanna- bis, tóbaki og áfengi. Þá verður fræðsla aukin um skaðsemi vímu- efni. Stéttarfélög lögreglumanna hafa lýst sig andvíga þessum áformum. Mörg ríki heims hafa á undan- förnum árum gert neyslu kannabiss refsilausa eða heimilað hana í lækn- ingaskyni. Aðeins Úrugvæ og Kan- ada hafa hins vegar fellt niður allar takmarkanir á neyslu. Bæði ríkin hafa þó sett reglur sem setja því skorður hve mikið af efninu fólk get- ur keypt sér. Í Hollandi er sala og neysla kannabiss að nokkru frjáls, en þar er hún bundin við leyfis- skylda neyslustaði. Í Lúxemborg stendur til að leyfa fólki að neyta kannabiss á heimilum sínum. Til stendur að Ítalir fái að greiða atkvæði um það hvort leyft verður að hafa kannabis í fórum sín- um og rækta það heima hjá sér. Þá er lögleiðing kannabiss til umfjöll- unar í báðum deildum Bandaríkja- þings. AFP Þýskaland Nýja ríkisstjórnin kynnir stjórnarsáttmálann. Kannabis lögleitt í Þýskalandi - Skatttekjur allt að milljarður evra Danski herinn staðfesti í gær- morgun að skip- verjar á dönsku herskipi í Gíneu- flóa hefðu fellt fjóra sjóræningja í skotbardaga skammt undan ströndum Níger- íu. „Engir dansk- ir hermenn særðust, en fimm sjó- ræningar urðu fyrir skoti. Fjórir þeirra létust, einn særðist,“ sagði herinn í fréttatilkynningu. Atvikið varð á miðvikudaginn þegar skip- verjar dönsku freigátunnar Esbern Snare, sem hefur verið við eftirlit á svæðinu síðan snemma í þessum mánuði, gerðu tilraun til að komast um borð í skip sjóræningja. Til skotbardaga kom þegar ræningj- arnir hindruðu það. Ræningjaskip- ið sökk í kjölfar bardagans en átta ræningjar voru handteknir. Eftir er að ákveða hvert farið verður með þá. GÍNEUFLÓI Danir fella 4 sjóræn- ingja í skotbardaga Esbern Snare Hershöfðingi frá Sameinuðu arab- ísku furstadæm- unum, Ahmed Nasser Al Raisi, hefur verið kjör- inn forseti al- þjóðalögregl- unnar Interpol. Furstadæmið hefur veitt stofn- uninni, sem að- setur hefur í Lyon í Frakklandi, ríf- legan fjárhagsstuðning. Þótt embættið sé aðallega virðingar- staða hafa ýmsir lýst áhyggjum af því að þetta veiki trúverðugleika Interpol. Eitt furstadæmanna, Abu Dabi, hefur verið sakað um að mis- nota eftirlýsingakerfi Interpol til að hafa hendur í hári stjórnarand- stæðinga á flótta. Dagleg stjórn Interpol er í hönd- um framkvæmdastjórans, Jürgen Stock, sem endurráðinn var í starf- ið til fimm ára 2019. INTERPOL Áhyggjur af nýjum forseta samtakanna Ahmed Nasser Al Raisi Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Sænskir þingmenn ganga á ný til at- kvæðagreiðslu á mánudaginn um það hvort Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar eftir allt sem á undan er gengið, sem verður önnur atkvæðagreiðslan um málið á innan við viku. Tilbúnir að verja stjórnina Þetta tilkynnti Andreas Norlén þingforseti á blaðamannafundi í gær og tók við sama tækifæri fram, að sér þætti ákaflega leitt hvernig málin hefðu þróast, en sænskir fjölmiðlar lýstu miðvikudeginum sem hreinni martröð og dró stjórnmálaskýrandi sænska ríkisútvarpsins SVT ekki úr þeim lýsingum þegar hann sagði í við- tali í gær, að tala mætti um undarleg- asta dag í sögu sænskra stjórnmála. Andersson kveðst reiðubúin að leiða stjórn, sem Jafnaðarmanna- flokkurinn sitji einn í, þótt slík staða þyki í meira lagi tæp. Hafa Græningj- ar, Vinstriflokkur og Miðflokkur þó látið í veðri vaka að þeir séu tilbúnir að verja slíka stjórn falli með hlutleysi sínu og gæti þannig komið til þess að Andersson setjist á ný í forsætisráð- herrastólinn eftir helgina með minnsta mun, sem völ er á við at- kvæðagreiðsluna, í stjórnarandstöðu sitja 174 þingmenn sænska þingsins, en Jafnaðarmannaflokkur Anders- sons og þeir flokkar sem lýsa sig vilj- uga til stuðnings við hann eru 175. „Margir eru ringlaðir“ Álitsgjafar, sem SVT ræddi við í gær, sögðu atburðarásina í sænskum stjórnmálum hæglega geta dregið úr trú almennings á stjórnmálin og lýð- ræðið. Tommy Möller, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Stokkhólmi, sagði allt sænska stjórn- kerfið eiga á hættu að bíða álits- hnekki þegar málefni æðstu stjórnar landsins tækju svo furðulega og óvænta stefnu. Undir þetta tók Jenny Madestam, dósent í sömu fræðigrein við Háskóla sænska hersins, Försvarshögskolan. „Margir eru ringlaðir og skyldi engan undra. Hver segir hvað? Hver lofar hverju? Hver er argur út í hvern og svo framvegis,“ sagði hún við ríkisút- varpið og bætti því við að væri það eitthvað, sem kjósendur hefðu hreint ofnæmi fyrir, væri það þegar stjórn- málamenn bentu hver á annan. „Það verður mjög erfitt fyrir kjós- endur að krefjast ábyrgðar þegar flokkarnir halda því fram að vanda- málin séu ekki þeirra, heldur afleiðing gjörða annarra flokka eða ríkis- stjórna,“ sagði Möller enn fremur. Á tæpasta vað eftir helgi - Ný atkvæðagreiðsla um forsætisráðherraembætti Svíþjóðar gæti staðið með einu atkvæði - Skýrandi talaði um undarlegasta dag í sögu sænskra stjórnmála AFP Já ráðherra? Eftir helgi gengur þingið til atkvæða á nýjan leik. Leiðtogar Breta og Frakka, Boris Johnson og Emmanuel Macron, hétu því í gær að láta til skarar skríða gegn glæpagengjum sem standa fyrir ólöglegum siglingum flóttafólks yfir Ermarsund. Að minnsta kosti 27 flóttamenn drukknuðu úti fyrir strönd Calais í Frakkland á miðvikudaginn þegar yfirfullum báti þeirra hvolfdi. Um 50 manns voru um borð og er nokk- urra enn saknað. Fólkið var að reyna að komast yfir Ermarsund til Bretlands. Talið er að báturinn hafi rekist á stærra skip. Fjórir menn sem eru grunaðir um að tengjast slysinu hafa verið handteknir af frönsku lögreglunni. Tæplega 26 þúsund manns hafa farið yfir sund- ið á þessu ári, þrisvar sinnum fleiri en allt árið í fyrra. Á þriðja tug flóttamanna drukknaði í Ermarsundi Vilja upp- ræta glæpa- gengin AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.