Morgunblaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 52
52 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
Fyrirsögnin hér er til-
vísun í texta Bubba
Morthens, Ástrós, sem
þau Bríet sungu á ný-
liðnu sumri. Það er átak-
anlegt að hlusta á þenn-
an söng, og lesa svo um
og sjá að rannsóknir
sýna fram á hækkaðar
tölur yfir ofbeldi gegn
konum í heiminum und-
anfarin misseri. Það hef-
ur aldrei verið mikil-
vægara en nú á tímum Covid-19 að
vekja athygli á því að ein af hlið-
arverkunum faraldursins er sú, að
konur eru berskjaldaðri en áður fyrir
ofbeldi á heimilum sínum. Heimilis-
ofbeldi er nú nefnt sem eitt af heims-
ins stærstu lýðheilsuvandamálum.
Birtingarmyndir þess eru margs kon-
ar og koma meðal annars fram í auk-
inni notkun þolenda á heilbrigðiskerf-
inu. Dagana 25. nóvember til 10.
desember munu Alþjóðasamtök So-
roptimista, ásamt fjölda annarra fé-
lagasamtaka, standa fyrir sextán daga
átaki á heimsvísu sem nefnist „Orange
the world“. Hjá okkur hefur það feng-
ið heitið „Roðagyllum heiminn“. Þessi
litur táknar fyrir okkur bjartari fram-
tíð án ofbeldis. Með þátttöku okkar
Soroptimista bendum við sérstaklega
á að stöðva verður stafrænt kynferð-
islegt ofbeldi eða ofbeldi á netinu. So-
roptimistar hafa hvatt opinberar
stofnanir og fyrirtæki til að lýsa upp
byggingar sínar. Einnig hefur utan-
ríkisráðherra Íslands, Guðlaugur Þór
Þórðarson, hvatt sendiráð Íslands á
erlendri grundu til að lýsa upp bygg-
ingar sínar meðan á átak-
inu stendur. Markmið
okkar er að „roðagylla Ís-
land“, og hvetjum við
fyrirtæki og stofnanir um
land allt til þátttöku með
því að lýsa upp byggingar
sínar í appelsínugulum lit.
Við hvetjum jafnframt
landsmenn alla til að veita
þessum málaflokki athygli
og styðja á sínum vett-
vangi. Soroptimistar eru
alþjóðleg samtök kvenna
sem hafa það að markmiði
að stuðla að jákvæðri
heimsmynd, þar sem samtakamáttur
kvenna nær fram því besta fyrir konur
sem völ er á. Samtökin vinna að bættri
stöðu kvenna, að mannréttindum öll-
um til handa, sem og jafnrétti, fram-
förum og friði, með alþjóðlega vináttu
og skilning að leiðarljósi. Soroptim-
istar stuðla að menntun kvenna og
stúlkna til forystu. Eitt helsta mark-
mið Soroptimista er að liðsinna konum
í baráttunni fyrir jafnrétti og frelsi frá
félagslegum, efnahagslegum og menn-
ingarlegum takmörkunum með því að
veita fræðslu og menntun. Soroptim-
istar móta, framkvæma og afla fjár-
magns til verkefna á hverju ári sem
hafa að markmiði að bæta efnahags-
lega stöðu kvenna og fjölga tækifærum
þeirra. Soroptimistar berjast gegn
hvers konar ofbeldi í garð kvenna og
stúlkna. Í heila öld hafa Soroptimistar
unnið sleitulaust að því að uppræta of-
beldi gegn konum og stúlkum og
tryggja aðkomu kvenna að viðleitni til
friðar. Í Alþjóðasamtökunum eru yfir
72.000 félagar í 121 landi. Soroptim-
istar eiga ráðgefandi fulltrúa hjá ýms-
um stofnunum Sameinuðu þjóðanna og
eiga einnig ráðgjafaraðild að efnahags-
og félagsmálaráði Sameinuðu þjóð-
anna (ECOSOC). Soroptimista-
samband Íslands er hluti af Evrópu-
sambandi Soroptimista. Íslenskir Sor-
optimistar eru um 600 talsins í nítján
klúbbum víðs vegar um land. Á loka-
degi átaksins 10. desember er Alþjóð-
legur dagur Soroptimista og mun for-
seti Soroptimista á Íslandi afhenda
styrk til tveggja verkefna Kvennaráð-
gjafarinnar og Sigurhæða, þessi verk-
efni fela í sér þjónustu við þolendur
kynbundins ofbeldis. Ofbeldi karla í
garð kvenna í nánum kynnum er sam-
félagslegt mein sem mikilvægt er að
uppræta. Í upphafi skyldi endinn
skoða! Á hvern hátt breytum við þess-
ari þróun? Hvað er það sem fær
mennska manneskju til að beita annan
einstakling ofbeldi? Allir þurfa að
skoða sig í þeim aðstæðum. Á hvern
hátt ölum við börnin okkar upp, hverju
hafa þau aðgang að? Soroptimistar
vilja skora á alla þá sem koma að upp-
eldi barna, ekki síst íslensk stjórnvöld,
að senda frá sér skýr skilaboð um að
samfélagið líði ekki kynbundið ofbeldi.
Einnig að komið verði í veg fyrir og
brugðist við kynbundnu ofbeldi sam-
kvæmt tillögum SÞ.
Segjum með Bríeti og Bubba:
Verndum börnin, rjúfum þessa hlekki!
Fyrsta höggið, fyrsta sjokkið,
fyrsta fyrirgefðu, aftur og aftur
Eftir Guðrúnu Láru
Magnúsdóttur »Heimilisofbeldi er
nú nefnt sem eitt
af heimsins stærstu
lýðheilsuvandamálum.
Guðrún Lára
Magnúsdóttir
Höfundur er forseti Soroptimista á Ís-
landi.
gudrunlara@mmedia.is
Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkj-
unar. Í umfjöllun í
Morgunblaðinu hinn
10.11. 2021 talar þú
um að Ísland gæti
orðið fyrsta ríkið í
heiminum til að verða
óháð jarðefnaelds-
neyti og það gæti
gerst með þriðja
orkuskiptaskrefinu
til viðbótar við raf-
væðingu og hitaveituvæðingu og
fælist meðal annars í orkuskiptum
og framleiðslu á rafeldsneyti og til
þess að það gæti orðið þyrfti að
auka orkuvinnslu í landinu.
Þessu er ég fullkomlega sam-
mála.
Það liggja fyrir staðreyndir um
að bíll sem fór ákveðna vegalengd
með díselolíu fór nærri helmingi
lengri vegalengd með sama magni
af vetni.
Við vitum báðir að orka er til
alls fyrst, sem þýðir að raforka er
eini orkugjafinn sem veldur engri
mengun.
Raforka hér á landi er svo til al-
farið framleidd með því að búa til
háa steinsteypuveggi fyrir uppi-
stöðulón og fá þannig mikla fall-
vatnshæð að hverflum virkjunar-
innar. Kem ég nú að að aðalefni
þessa pistils.
Mjög víða erlendis eru annars
konar vatnsvirkjanir sem nota
vatnsaflið úr hægrennandi ám til
að framleiða rafmagn, t.d. með
hjólum, spöðum og sniglum sem
snúast jafn hratt og
rennsli árinnar er.
Ég hef teiknað upp
hugmynd að virkjun á
raforkugjafa sem er
snigill innan í röri, t.d.
10-12 metra löngu, og
væri 50 cm í þvermáli.
Þetta rör væri sett
niður í ána á botnfest-
ingar sem setti rörið í
ákveðna hæð frá botni
og ákveðna dýpt frá
yfirborði árinnar.
Þarna væru um fjögur
tonn af vatni rennandi með sama
hraða og áin að rafal, sams konar
og er á vindmyllum. Svona virkjun
til framleiðslu á raforku hefur
marga kosti.
Í fyrsta lagi er hún ódýr í fram-
leiðslu; í öðru lagi er hún ekki
sjónmengandi (er niðri í vatni),
mengar ekkert og er stöðug í
framleiðslu (svo lengi sem áin
rennur).
Áhugavert væri að sjá viðbrögð
þín við hugleiðingum mínum á
þessum sama vettvangi.
Opið bréf til forstjóra
Landsvirkjunar
Eftir Hafstein
Sigurbjörnsson
Hafsteinn
Sigurbjörnsson
»Hugmynd að um-
hverfisvænni fram-
leiðslu raforku úr hægt
rennandi ám á Íslandi
eins og víða er gert um
allan heim.
Höfundur er pípulagningameistari
og eldri borgari.
hafsteinnsig@internet.is