Morgunblaðið - 26.11.2021, Síða 54
54
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
20%
afsláttur
frá föstudegi og út mánudag
í verslun og vefverslun
með kóðanum:
kósý
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is
Black Friday tilboð
Ný náttföt, náttkjólar og sloppar
frá LINGADORE beint á
BLACK FRIDAY TILBOÐ
Verð
13.300 kr.
TILBOÐ
10.640 kr.
Verð
10.800 kr.
TILBOÐ
8.640 kr.
Verð
10.400 kr.
TILBOÐ
8.320 kr.
Verð
13.800 kr.
TILBOÐ
11.040 kr.
Fyrrverandi sjáv-
arútvegsráðherra Ís-
lands, en nú tals-
maður norsku
sjókvíaeldisrisanna
sem eiga laxeldið í
fjörðunum okkar að
miklum meirihluta, fór
ansi frjálslega með
sannleikann í grein
sem birtist hér í
Morgunblaðinu á
mánudaginn. Baráttan gegn lofts-
lagsbreytingum af mannavöldum
og hungri í heiminum er svo sann-
arlega meðal allra mikilvægustu
mála samtímans. Sjókvíaeldi á laxi
leikur þó ekki jákvætt hlutverk í
þeim efnum eins og Einar K. Guð-
finnsson hélt fram í sinni grein.
Þvert á móti er sjókvíaeldi birting-
armynd framleiðsluaðferða sem
mannkyn þarf að breyta svo ekki
fari illa.
Ódýr næringarefni notuð
í lúxusframleiðslu
Til að framleiða eina máltíð af
eldislaxi þarf prótín og næring-
arefni sem myndu annars duga í
þrjár til fjórar máltíðir fyrir fólk. Í
laxeldi er sem sagt verið að búa til
lúxusmatvöru úr fæðuflokkum sem
væri annars hægt að nýta til að
seðja hungraðan heim. Undanfarin
misseri hafa Reuters, The Guardi-
an og fleiri fréttamiðlar til dæmis
birt fréttaskýringar um að eft-
irspurn fiskeldisfyrirtækja eftir
fiskimjöli sé svo mikil að stór hluti
afla við Vestur-Afríku fari í
bræðslu og sé svo seldur úr landi í
stað þess að næra
heimafólk.
Laxeldi er bara um
þrjú prósent af því
fiskeldi sem stundað
er í heiminum. Lang-
stærsti hluti þess er
eldi á fisktegundum
sem lifa á fæðu sem
ekki myndi nýtast til
manneldis, ólíkt því
sem á við um afurð-
irnar sem notaðar eru
til að framleiða fóður
fyrir eldislaxinn. Auk
fiskolíu og mjöls er notað mikið af
sojabaunum í fóður fyrir eldislax-
inn. Þessar baunir eru að stórum
hluta ræktaðar á ökrum sem hafa
verið ruddir í Amazon-frumskóg-
inum. Hugsið ykkur þetta ferli:
Sojabaunir ræktaðar í Suður-
Ameríku eru fluttar til Norður-
Evrópu þar sem þeim er sturtað í
sjó í þau tvö ár sem laxinn er alinn
í netapokunum. Að þeim tíma lokn-
um er laxinum slátrað og flogið
með hann á markað í Bandaríkj-
unum eða Evrópu. Það er ekkert
umhverfisvænt við þetta.
Fimm sinnum stærra
kolefnisfótspor
Einar K. lét í grein sinni mikið
með útreikninga á kolefnisfótspori
sjókvíaeldisins, en nefndi þó ekki
að þær tölur hans komu úr skýrslu
sem Landssamband fiskeldisstöðva
keypti af íslensku fyrirtæki sem
hafði aldrei áður rannsakað þessa
hlið laxeldis. Í skýrslunni er því
haldið fram að kolefnisfótspor sjó-
kvíaeldislax sé álíka og af veiðum á
villtum þorski. Þetta er alrangt,
eins og hefur reyndar verið bent á
áður og Einari á að vera kunnugt
um.
Samkvæmt rannsókn hins virta
norska rannsóknarfyrirtækis SIN-
TEF, sem hefur unnið sömu út-
reikninga um árabil, er kolefn-
isfótspor sjókvíaeldislaxins fimm
sinnum stærra en af veiðum á
þorski, og rúmlega tvöfalt stærra
en kom fram í þeim tölum sem
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra
Íslands flaggaði í hlutverki sínu
fyrir hina norsku eigendur sjókvía-
eldisfyrirtækjanna.
Í tölum SINTEF kemur fram að
kolefnisfótspor sjókvíaeldislax hef-
ur farið mjög vaxandi á und-
anförnum árum. Helstu ástæður
eru þessar:
. Vaxandi fiskidauði í sjókvíaeldinu
og viðvarandi lúsafár hefur haft í
för með sér meiri umferð brunn-
báta og annarra þjónustuskipa í
kringum sjókvíarnar.
. Þessi aukni fiskidauði hefur síðan
leitt af sér mun verri fóðurnýt-
ingu. Með öðrum orðum: reikna
þarf fóðrun þess fisks sem
drepst með í þeim hluta fram-
leiðslunnar sem fer til neytenda.
. Miklu hærra hlutfall fóðursins
kemur úr plönturíkinu en áður.
Þetta eru fyrst og fremst soja-
baunir sem eru ræktaðar á gríð-
arlegu landflæmi fjarri þeim
stöðum þar sem laxinn er alinn.
Þessi mikla landnotkun og langar
flutningsleiðir fóðurs vega mjög
þungt þegar kemur að losun
gróðurhúsalofttegunda.
Staðan er því nú sú að norskur
sjókvíaeldislax er með 25 prósent
hærra kolefnisfótspor en kjúkling-
ur ræktaður í Evrópu. Og ekki er
Ísland nær mörkuðum en Noregur
og hið skelfilega háa hlutfall eldia-
lax sem drepst í kvíunum er síst
lægra hér en þar.
Sjókvíaeldi er úrelt tækni
Hér eru ótalin skaðleg áhrif sjó-
kvíaeldis á umhverfið vegna meng-
unar og lífríkið vegna sníkjudýra
og erfðablöndunar. Neytendur nú-
tímans gera í vaxandi mæli kröfur
um að matvælaframleiðsla sé
mannúðleg og skaði ekki náttúr-
una. Sjókvíaeldi uppfyllir hvorugt
þeirra skilyrða. Það lætur umhverf-
ið og villta laxinn niðurgreiða sína
skaðlegu tækni.
Þetta getur ekki gengið svona
áfram. Neytendur munu hafna
þessari vöru. Af þeim sökum sagði
Atle Eide, fyrrverandi stjórn-
arformaður SalMar, móðurfélags
Arnarlax, nýlega að dagar opins
sjókvíaeldis væru taldir. Spáði
hann því að opnar kvíar yrðu farn-
ar úr sjó 2030.
Hér á landi er raunveruleg hætta
á að við sitjum uppi með úrelta og
skaðlega tækni miklu lengur ef
menn eins og Einar K. Guðfinnsson
fá að ráða för. Það má ekki gerast.
Opnar sjókvíar eru úrelt tækni
Eftir Ingólf
Ásgeirsson » Til að framleiða eina
máltíð af eldislaxi
þarf prótín og næring-
arefni sem myndu ann-
ars duga í þrjár til fjór-
ar máltíðir fyrir fólk.
Ingólfur Ásgeirsson
Höfundur er einn af stofnendum
Íslenska náttúruverndarsjóðsins,
The Icelandic Wildlife Fund.
ingo@starir.is
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl.
8-18.
Atvinna