Morgunblaðið - 26.11.2021, Síða 66

Morgunblaðið - 26.11.2021, Síða 66
66 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 Guðrún Jóna Knútsdóttir Rúnars, Knúts og fjölskyldu og Aðalsteins og fjölskyldu er mikill og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Nú er komið að kveðjustund hjá minni kæru systur. Þessi stund er sár því við hefðum öll viljað hafa hana hjá okkur leng- ur. Ég er þakklát fyrir að hafa átt hana sem systur og fyrir þann tíma sem ég fékk með henni. Takk elsku systir fyrir allt. Minn- ing þín mun áfram lifa með okkur um ókomin ár. Þín systir, Sigrún Edda Knútsdóttir. Kær mágkona, Guðrún Jóna Knútsdóttir, er fallin frá. Í nokkrum orðum langar mig að minnast konu sem lét ekki mót- læti og veikindi slá sig út af lag- inu. Það var stutt síðan að ég sagði við konu mína og systur Jónu: „Mikið geislar af henni Jónu, hún ber sig svo vel, mynd- arleg og ávallt hugguleg til fara.“ Ég á því nokkuð erfitt með að sætta mig við að hún hafi yfirgef- ið þetta líf. Hún Jóna frænka eins og börn okkar Sigrúnar kölluðu hana fæddist fyrir 75 árum í Hafnar- firði og ólst þar upp. Hún átti ættir að rekja til Vestfjarða, ann- ars vegar til Hvallátra í Rauða- sandshreppi þar sem Látrabjarg skartar sínum stórfenglegu klettasyllum og móðir hennar fæddist og hins vegar til Dýra- fjarðar þar sem völundarsmiður- inn Knútur Kristjánsson, faðir hennar, sleit barnsskónum. Hún Jóna hafði að geyma kosti beggja foreldra sinna, eljusemi og dugnað. Hún bjó yfir sérstakri ró og jafnaðargeði föður síns. Það lýsti Jónu vel að hún lét ekkert stöðva sig sem hún ætlaði sér þrátt fyrir að hún var undirlögð iktsýki eða rheumatoid arthritis sem nefnist í daglegu tali liða- gigt. Liðagigt er einn af algeng- ustu liðabólgusjúkdómunum sem geta leikið manninn illa. Jóna greindist ung að árum með þenn- an sjúkdóm en þeim sem ekki til hennar þekktu hefðu ekki grunað að þar fór kona undirlögð gigt- arbólgum í höndum og fótum. Hún lét liðbólgur ekki á sig fá þótt Gullkistan, ferðahópur góðra félaga og samferðamanna, skipulegði ferðir um hálendi Ís- lands. Jóna var ávallt með í för. Hún lagði leið sína með hópnum í 20 ár eða frá árinu 2001 þegar við gengum um Stórurð og þaðan til Borgarfjarðar eystri. Hún gekk einnig um Látrabjarg og nær- sveitir og í Lónsöræfum lét hún engan bilbug á sér finna en átti nokkuð erfitt með að ganga niður brattar hlíðarnar. Það var þá sem við tveir, sá er þetta ritar og Ingvar, buðum henni far niður bratta skriðu til að létta á lúnum gigtarfótum. Hún þáði boðið og var tekin upp á buxnastrengnum áður en við létum skriðuna bera okkur á hlaupum niður bratta hlíðina með Jónu í lausu lofti á milli okkar. Hún gekk um Skaft- ártungur, inn í Reykjarfjörð að Drangajökli, sótti heiðarbýlin heim á Austurlandi með Páli Pálssyni frá Aðalbóli, gekk um Dalina fyrir vestan og sótti Hrís- ey heim svo eitthvað sé nefnt. Hún lét gigtina sem vind um eyru þjóta. Hún Jóna kunni að lifa lífinu, naut þess að ferðast og vera í góðra vina hópi. Hún var sér- fræðingur í brauðtertugerð og það var ósjaldan sem við Sigrún fengum að njóta þess munaðar að ferðast með henni og Rúnari eða fá þau í heimsókn. Jóna hafði blíða nærveru og verður hennar sárt saknað. Missir Sigrúnar systur hennar er mikill en þær voru mjög nánar, ræddu saman nær daglega allan ársins hring. Þá er missir bræðra hennar mik- ill en þau systkinin höfðu myndað með sér kærleiksríka vináttu. Mestur er þó missirinn hjá Rúnari og börnum þeirra, Knúti, Aðalsteini og fjölskyldum þeirra. Votta ég þeim öllum innilega samúð mína og megi minning um Jónu verða okkur ljós í skamm- deginu. Janus Guðlaugsson. Mín fyrsta minning um Jónu frænku mína er frá Látrum. Hulda systir mín kom oftast til okkar vestur á sumrin ásamt Knúti eiginmanni sínum og börn- unum Jónu og Gústa. Seinna bættust Kristján og Sigrún í hóp- inn. Það var mikil tilhlökkun að fá þau í heimsókn. Við Jóna náðum vel saman þrátt fyrir 5 ára ald- ursmun. Ég var mjög hreykin af þessari fallegu og fíngerðu frænku minni, sem var svo glað- lynd og skemmtileg. Nokkrum árum síðar var ég svo lánsöm að fá að búa á heimili fjölskyldunnar á Selvogsgötunni þegar ég var við sundnám í Sund- höll Hafnarfjarðar. Á heimilinu bjuggu þá líka amma og afi Jónu í föðurætt, Jóna og Kristján, ynd- islegar manneskjur. Þetta voru dýrðardagar fyrir mig. Jóna og vinkonur hennar skottuðust með mig um allan Hafnarfjörð og Kristján afi henn- ar ferðaðist með okkur í strætó til Reykjavíkur og kynnti okkur töfra höfuðborgarsvæðisins. Það var gott að umgangast Jónu, hún hafði góða nærveru, skipti aldrei skapi og leit alltaf björtum augum á tilveruna. Þannig var hún líka þegar aldur færðist yfir hana. Veikindi breyttu því ekki. Það er sárt að sjá eftir Jónu, þessari góðu konu, hún hafði svo margt að lifa fyrir. Kæri Rúnar, Knútur, Aðal- steinn og fjölskyldur, Ágúst, Kristján og Sigrún, við Hörður vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð. Jóna Margrét Kristjánsdóttir. Að kvöldi laugardagsins 13. nóvember sl. barst okkur sú harmafregn að góð vinkona okk- ar hún Jóna Knúts hefði orðið bráðkvödd á heimili sínu. Ekki grunaði okkur að kveðjustundin væri svona skammt undan. Jóna greindist ung að árum með liðagigt, sem hún barðist við mestan hluta ævi sinnar með bjartsýnina og æðruleysið að vopni. Hún lét sjúkdóminn aldrei stoppa sig og naut lífsins eins og kostur var. Vinir hennar og vandamenn vissu vel, að Jóna þjáðist oft illa af gigtinni skæðu. En hvorki kveinkaði hún sér né kvartaði. Hún hefði það bara gott og hélt áfram veginn með bros á vör. Að þessu leyti hefur hún reynst okkar fjölskyldu stórkost- leg fyrirmynd. Jóna giftist æskuástinni sinni, Rúnari Sigursteinssyni, ung að árum og eignuðust þau tvo mann- vænlega syni. Hún var einstak- lega kærleiksrík og umhyggju- söm og setti hag fjölskyldunnar ávallt í fyrsta sæti. Þegar barna- börnin bættust svo í hópinn fengu þau í ríku mæli að njóta ástar og umhyggju ömmu sinnar. Jóna var elst fjögurra samheld- inna systkina, og var hún elskuð og dáð af þeim öllum og þeirra fjölskyldum. Jóna og Rúnar höfðu unun af ferðalögum. Í gegnum tíðina höf- um við átt þess kost að ferðast með þeim bæði innanlands og ut- an. Í slíkum ferðum kynntumst við enn betur mannkostum Jónu. Hún var glaðlynd, hjálpleg og traustur félagi með einstaklega góða nærveru. Í ljósi þess að Jóna hefur nú kvatt okkur hinstu kveðju, þá erum við sérstaklega þakklát fyrir að hafa fengið að njóta samvista með þeim sóma- hjónum í Heimabæ í Látravík sl. haust. Þar á móðurfjölskylda Jónu sumarhús, og á fáum stöð- um unni hún sér betur. Okkur varð þar ljóst hversu líkamlegri heilsu Jónu hefði hrakað seinustu misserin. Við vottum Rúnari, Knúti, Að- alsteini og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Megi góðar minningar um einstaka konu lýsa og hugga í sorginni og veita birtu og gleði um ókomin ár. Sverrir og Ásbjörg. Ég fann vinkonu mína hjá sjúkraþjálfara og leitaði hana uppi eftir að hafa orðið starsýnt á að við áttum sama afmælisdag. Svona voru tilviljanirnar okkar Jónu. Þá kom í ljós að Jóna og Rúnar maður hennar höfðu verið nem- endur mínir í öldungadeild í jarð- fræði í Flensborg. Upp úr þessu spratt góð vinátta, sem hófst með því að við héldum saman upp á af- mælisdag okkar og fórum út að borða. Kynnin voru stutt og gefandi. Hún var mér eins og systir. Lág- vaxin, brosmild og björt yfirlit- um. Alltaf tilbúin að stjana við mig. Við töluðum saman daglega um allt og ekkert. Spiluðum sam- an og bökuðum sörur saman, svo eitthvað sé nefnt. Ferðuðumst saman vestur að Látrum og norð- ur í Fitjárdal. Hver á nú að „taka stökkið“ með mér í búðunum? Jóna var mikil húsmóðir og góð eiginkona. Ömmubörnin áttu hug hennar allan. Hennar er sárt saknað. Inni- legustu samúðarkveðjur til fjöl- skyldunnar. Sigríður Petra Friðriksdóttir (Sísí). Það var fyrir allmörgum árum að sex konur hittust á búta- saumsnámskeiði sem haldið var í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Konurnar þekktust sumar inn- byrðis og tvenn systrapör voru í hópnum. Annað þeirra voru þær Jóna sem við kveðjum nú og syst- ir hennar Sigrún sem sér á bak ástkærri systur sinni. Eftir námskeiðið ákváðu kon- urnar að mynda samveru utan um þetta áhugamál sitt og var hópnum gefið grínnafnið „Blauta höndin“, enda stóð til að vinna handverk. Ein úr hópnum féll frá fyrir aldur fram 2006 en við viss- um allar af alvarlegum veikind- um hennar, en andlát Jónu okkar bar snöggt að eftir skammvinn veikindi og kom okkur í opna skjöldu þó svo að hún hefði ekki verið heilsuhraust. Það er aðeins rúmur einn og hálfur mánuður síðan við vinkon- urnar fimm hittumst í okkar ár- legu dekurferð. En segja má að öðrum ólöstuðum að Jóna hafi lagt þunga á vogaskálarnar til að þessar ferðir væru mögulegar og jafn skemmtilegar og raun bar vitni. Jóna hélt til að mynda bók- hald um innkaup fyrir hópinn ár eftir ár því ekkert mátti skorta við veisluhöldin. Síðasta ferðin var eins og þær flestar farin í Stóra-Hof í Þjórsárdal fyrir til- stilli þeirra hjóna en Jóna kom ævinlega með ljúffengar flatkök- ur Rúnars í nesti fyrir hópinn og eru honum færðar þakkir fyrir allan baksturinn fyrir okkur í gegnum árin. Óhætt er að segja að við eigum allar skemmtilegar minningar frá gefandi samveru úr þessum ferð- um sem lifa í hugum okkar um ókomna tíð. Jóna var einstök gæðakona í alla staði, heil og sönn. Hláturmild og glaðsinna með eindæmum og átti auðvelt með að sýna öðrum áhuga og vel- vild. Það fór ekki á milli mála hve kært var með þeim systrum og viljum við hér votta Sigrúnu vin- konu okkar innilegustu samúð. Við kveðjum Jónu, þessa ljúfu yndislegu vinkonu okkar með þakklæti og biðjum henni allrar blessunar. Eiginmanni hennar Rúnari og sonum þeirra og fjöl- skyldum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Elín, Elsa og Gerða. ✝ Elín fæddist á fæðingardeild Landspítalans 30. desember 1958. Hún lést á Land- spítalanum, Hring- braut, 12. nóvem- ber 2021. Foreldrar henn- ar eru Selma K. Jónsdóttir, f. 11.1. 1938, og Albert Rúnar Ágústsson, f. 15.9. 1938, d. 2018. Bróðir hennar er Björn Rún- ar Albertsson, f. 21.5. 1962, 14.10. 2005, og Sindri Þór Sig- urðsson, f. 15.3. 2008. Jón Páll Arnarson, hann á tvo drengi, Helga Val Jónsson, f. 4.12. 2012, og Róbert Rúnar Jónsson, f. 15.4. 2016. Örn Ingi Arnarson, f. 30.4. 1992. Elín ólst upp í Reykjavík. Ár- ið 1980 flutti hún í Vogana. Fyrst um sinn starfaði hún í fiskvinnslu en síðan fór hún að vinna með börnum. Hún var dagmamma, síðar vann hún á leikskólanum en lengst af vann hún í Stóru-Vogaskóla og lauk hún starfsævinni þar. Elín var mikil handa- vinnukona. Útför hennar fer fram frá Kálfatjarnarkirkju í dag, 26. nóvember 2021, kl. 13. Hlekk á streymi má finna á: www.mbl.is/andlat kona hans er Sól- veig Einarsdóttir, f. 16.12. 1952. Eiga þau soninn Björn Björnsson, f. 31.8. 1988. Elín á þrjá drengi, þeir eru Sigurður Rúnar Arnarson,f. 6.12. 1978, sambýlingur hans er Harpa Ósk Sigurðardóttir, f. 6.12. 1976. Sigurður á tvo drengi úr fyrra sambandi, þeir eru Mikhael Máni Sigurðsson, f. Haustið 2012 fékk ég starf bókasafnsfræðings Stóru-Voga- skóla. Hafði verið atvinnulaus í ár svo það var átak að koma í vinnu úr bænum. Þarna kynntist ég frá- bæru fólki sem tók mér einstak- lega vel. Ella og Inger ásamt fleiri skólaliðum komu snemma til að opna fyrir krökkunum en við fengum okkur smá kaffi áður en vinnan hófst. Þannig hófust kynni okkar Ellu. Hún var alltaf með handavinnu sem var svo gaman að fylgjast með. Það var von á ömmudreng í byrjun desember og heimferðasettið sem hún prjónaði var gullfallegt eins og allt sem hún prjónaði eða heklaði. Þegar kaffistofan var stækkuð átti starfsfólk auðveldara með að velja sér sæti. Ég valdi sæti hjá henni og Inger og það varð að handavinnuhorninu. Við vorum alltaf með handvinnu eða skoðuð- um prjónauppskriftir sem við veltum fyrir okkur. Eftir því sem við töluðum meira saman og kynntumst betur þorðum við að bauna smá skotum á hvor aðra, smá stríðni, sem var nauðsynlegt að svara með öðru smá skoti. Þetta byrjaði varfærn- islega en vatt fljótlega upp á sig. Ella svaraði að bragði og spyr hvort ég geti tekið við því sem ég lét frá mér. Svo hlógum við báðar og mér fannst þetta verða upp- hafið að vináttu okkar. Tvær steingeitur í ham, bara skemmti- legt. Þótt auðsótt væri að fá frí á skólatíma var afleysing nauðsyn- leg. Ella vann fyrir mig nákvæm og vandvirk. Þegar ég lét af störf- um hvatti ég hana til að sækja um. Ég hélt áfram að koma á safnið og var yfirleitt marga klukkutíma því við þurftum að tala um svo margt Þegar hún varð sextug gáfum við Inger henni smápening með skilyrði um að við hittumst í bæn- um svo við gætum séð til að hún keypti garn af viti. Það gerðum við og áttum yndislegan ógleym- anlegan dag. Við heimsóttum næstum allar prjónabúðirnar í bænum og borðuðum að lokum saman. Ella keypti garn til að prjóna sjal sem ég var búin að prjóna en ætlaði að hjálpa þeim að byrja á. Við komum til hennar og þær byrjuðu á sjalinu en ég las fyrir þær uppskriftina svo prjóna- skapurinn gengi betur. Þetta gekk glimrandi vel en Ella náði ekki að klára sitt því hún var beð- in um að prjóna peysur og geymdi sitt sjal til betri tíma. Það stóð alltaf til að hjálpa henni af stað aftur og þótt við kæmum oft til hennar komst sjalið ekki að. Við þurftum að tala svo mikið. Ella hafði ákveðið að taka sér launa- laust leyfi í vetrarfríinu og var svo ánægð þegar hún sagði mér það. „Ég hef aldrei gert það áður,“ sagði hún spennt og bætti við að hún yrði sko heima og það væri tilvalið að við Inger kæmum til hennar. Það breyttist við skyndi- leg veikindi hennar. Ég náði að heimsækja hana á Landspítalann og eyða með henni smá tíma í lokin, sem ég er mjög þakklát fyrir. Mér finnst erfitt að hugsa til þess að heimsóknirnar til Ellu verða ekki fleiri og sakna ég hennar sárt. Sárastur er þó sökn- uður fjölskyldu hennar og sendi ég þeim öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Una. Elín starfaði við Stóru-Voga- skóla í rúm 20 ár við góðan orðstír og gekk ávallt vösk til sinna starfa, var samviskusöm og traust, hvort sem var í gang- avörslu, sem stuðningsfulltrúi eða starfsmaður á bókasafni, og alltaf var stutt í húmorinn. Elín fór að vinna á bókasafni skólans/sveitar- félagsins fyrir þremur árum. Þar var aldeilis rétt kona á réttum stað. Hún var fljót að tileinka sér vinnubrögðin, skráningu, plöstun og fleira og var bæði nákvæm og vandvirk. Ekki skemmdi fyrir að hún las mikið, alls konar bækur. Þegar nýjar bækur komu á safnið átti hún það til að taka þær frá, fyrir safngesti, sem henni fannst passa fyrir áhugasvið hvers og eins, hún hafði gott minni. Hún gerði sér einnig far um að fylgjast með lestraráhuga nemenda og ráðlagði þeim eftir getu. Á síðustu tveimur árum hafa nokkrir nem- endur á unglingastigi valið lopa- peysuprjón sem valgrein og hafa þá komið á safnið til að fá ráðgjöf og aðstoð. Þar komu þau ekki að tómum kofunum því Ella var mik- il handavinnukona. Starfsmenn skólans leituðu einnig til hennar og hún veitti fúslega ráð. Engan hefði órað fyrir því þeg- ar Ella fór í veikindaleyfi að um mánuði síðar bærist tilkynning um að hún væri látin. Starfsfólk Stóru-Vogaskóla þakkar fyrir þann tíma sem það fékk að starfa með yndislegri manneskju. Kæra fjölskylda, starfsfólk Stóru-Vogaskóla vottar ykkur sína dýpstu samúð. Fyrir hönd starfsfólks Stóru- Vogaskóla, Hilmar Egill Sveinbjörnsson skólastjóri. Elín Þóra Albertsdóttir Ég kynntist Þóru þegar Páll, maður- inn minn, byrjaði að tefla með samstúd- entum sínum í skákklúbbnum þeirra, MR-55. Félagarnir og konur þeirra var skemmtilegur og uppátækjasamur hópur. Teflt var á heimilum til skiptis og eftir- minnilegar árshátíðir haldnar. Sunnudagsgönguhópur varð til og Ferðaklúbburinn Draumsýn fyrir skíða- og aðrar ferðir innanlands og utan, líka nokkrar með skemmtiferðaskipum. Þetta voru ánægjulegar ferðir í góðum fé- lagsskap. Í ferðunum dreif líka ýmislegt misjafnt á dagana. Ég man eftir þremur handleggsbrot- um, en alvarlegast var þegar Þóra skaddaðist á hrygg í öldugangi á Breiðafirði. Sjálf datt ég á andlit- ið, berandi farangur og hlaut kinnbeinsbrot og myndarlegt glóðarauga. Við Mývatn daginn eftir sagði elskulegur ungur af- Þóra Davíðsdóttir ✝ Þóra Davíðs- dóttir fæddist 25. júlí 1932. Hún lést 27. október 2021. Þóra var jarð- sungin 15. nóv- ember 2021. greiðslumaður þeg- ar ég ætlaði að borga kaffið: Nei, nei, þú þarft ekkert að borga! Af útliti mínu áleit hann sennilega að ég væri í mjög slæmum fé- lagsskap! Í skíðaferð í hörkufrosti féll minn maður eitt sinn niður um ís á skíðun- um. Þá var gott að vera í hópi, því erfitt var að ná honum upp vegna skíðanna, fé- lagarnir lánuðu svo þurrar flíkur af sér og áfram var skíðað. Vondu veðrin eru ekki síst minnisstæð, eins og í skíðaferð minni með Ólafi og Þóru á Hellisheiði í brjáluðu veðri. Þá hélt ég að þessi litla og netta kona, hún Þóra, myndi fjúka og ég jafnvel farin að óttast að við yrðum úti þegar við rákumst á Litlu kaffistofuna í blindum byln- um. Svona var staðið fast við ákvörðunina um að láta veðrið aldrei hindra för. Árið 2006 geng- um við Páll með Ólafi og Þóru „Laugaveginn“ og lentum þá í snælduvitlausu veðri frá Hrafn- tinnuskeri niður að Álftavatni, enda varð ferðamaður úti sömu nótt á þeim slóðum. Gönguhópurinn gekk á flestöll fell og fjöll í nágrenni Reykjavík- ur. Ómetanlegt var að kynnast þannig landinu. Svo fækkaði í hópnum og að lokum vorum við hjónin ásamt Ólafi og Þóru orðin ein eftir. Þá var súkkulaðið henn- ar Þóru með leyniuppskriftinni ómissandi – kannski með rommd- reitli? Á þessum göngum kynntist ég Þóru betur. Hún var ráðagóð, afar vel lesin, margfróð og vissi skil á trjám og plöntum og þekkti alla fugla. Svo var hún líka hag- mælt. Hún þekkti til marga for- vitnilegra staða á Suðurnesjum og annars staðar, sem við skoðuðum. Í desembermánuði varð að venju að „heilagur Þorlákur var blótaður“ að hætti Þóru, en þá var skákklúbbsfélögunum boðið til hangikjötsveislu á heimili þeirra Ólafs. Líkt og einhver sagði: „Er skammdegisþunglyndið skellur á mér eins og alda og skammir frá konunni þolað ég lengur ei get. Það eitt er til ráða til Þóru og Ólafs að halda, Þorlák að blóta við ágætishangiket.“ Heimilin þeirra þrjú á Hraunbrautinni, Blásölum og Suðurlandsbraut voru menn- ingarheimili sem báru vott um myndarskap og smekkvísi. Mér þótti vænt um Þóru. Ég er þakklát fyrir samfylgdina og ógleymanlegar minningar frá ferðunum okkar. Við hjónin send- um Ólafi innilegar samúðarkveðj- ur. Þuríður Guðjónsdóttir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.