Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 71

Morgunblaðið - 26.11.2021, Qupperneq 71
ÍÞRÓTTIR 71 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021 Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmað- urinn ungi, skor- aði sitt fyrsta mark í Evrópu- keppni í gær- kvöld. FC Köben- havn tryggði sér þá sæti í 16-liða úrslitum Sam- bandsdeildar Evrópu með því að sigra Lincoln Red Imps 4:0 á Gíbraltar í næstsíð- ustu umferð riðlakeppninnar. Ísak kom danska liðinu á bragðið með marki strax á 5. mínútu eftir að annar ungur Skagamaður, Há- kon Arnar Haraldsson, átti skot sem markvörður Lincoln varði. Ísak var ekki hættur því hann lagði upp tvö mörk fyrir Köbenhavn í síð- ari hálfleiknum. Með sigrinum hef- ur danska liðið þegar tryggt sér efsta sætið í sínum riðli. _ Tottenham tapaði óvænt fyrir Mura í Slóveníu, 2:1, en heimamenn skoruðu úr vítaspyrnu í uppbótar- tíma eftir að Harry Kane jafnaði fyrir enska liðið. Tottenham, sem missti Ryan Sessegnon af velli með rautt spjald á 32. mínútu, þarf að vinna efsta liðið, Rennes frá Frakk- landi, til geta komist áfram og ekki er einu sinni öruggt að það dugi til. Ísak var í aðalhlutverki á Gíbraltar Ísak Bergmann Jóhannesson „Það halda margir að ég hafi byrj- að að æfa íþróttir strax eftir slysið en það var alls ekki þannig,“ sagði Arna Sigríður Albertsdóttir, hjól- reiðakona ársins 2021 og ólympíu- fari, í Dagmálum, frétta- og menn- ingarlífsþætti Morgunblaðsins. Arna Sigríður, sem er 31 árs gömul, lenti í alvarlegu skíðaslysi 30. desember árið 2006 með þeim afleiðingum að hún braut þrjá hryggjarliði og hlaut mænuskaða með þeim afleiðingum að hún er lömuð fyrir neðan brjóstkassa. Árið 2011 keypti hún sitt fyrsta handahjól og varð hún fyrst Íslend- inga til þess að keppa á HM í hjól- reiðum í Notwil í Sviss árið 2015. Þá tók hún þátt í Ólympíumóti fatl- aðra í Tókýó í sumar og varð fyrsta íslenska konan til þess að keppa í hjólreiðum á Ólympíumóti. „Ég var á mjög erfiðum stað í mörg ár. Að hafa komist upp úr því og öðlast ákveðið sjálfstæði var því ákveðinn sigur fyrir mig. Ég hefði til dæmis aldrei trúað því að ég myndi vera að deila minni sögu með öðrum í von um að veita þeim inn- blástur. Ég held að íþróttirnar hafi breytt öllu fyrir mig því eftir að ég byrjaði að æfa aftur þá fór ég að sjá einhvern árangur í fyrsta sinn eftir slysið. Ég setti mér markmið, náði þeim og áttaði mig á því ég gat ennþá bætt mig í fullt af hlutum,“ sagði Arna Sigríður. Íþróttirnar breyttu öllu fyrir mig Ljósmynd/ÍF Tókýó Arna Sigríður á fleygiferð á Ólympíumótinu í sumar. Einn Hollendingurinn spilar í Pól- landi, annar í Portúgal og einn með Fraport Skyliners frá Frankfurt í Þýskalandi. Liðinu sem Jón Axel Guðmundsson lék með í fyrra. Sá heitir Matt Haarms og er 221 cm á hæð. Hefur hann því nokkra senti- metra á Tryggva Snæ Hlinason og Ragnar Nathanaelsson. Sé Haarms sterkur leikmaður ætti Tryggvi að hafa nóg að gera í leiknum. Haarms er 24 ára og lék með Purdue og BYU í háskólakörfuboltanum. Segja má að enginn í hollenska hópnum spili með liði sem er jafn hátt skrifað og Valencia sem Martin Hermannsson leikur með. Fljótt á litið virðist enginn Hollendingur spila í Euroleague á þessu tímabili. Þar er heldur enginn Íslendingur í vetur og fyrir vikið getur Martin verið með landsliðinu. Hafa margoft mæst Karlalandslið Íslands og Hollands hafa mæst glettilega oft á körfu- boltavellinum eða tuttugu og tvisvar sinnum. Fyrsti leikurinn gegn Hol- landi fór fram undir lok árs árið 1981. Ísland lék fjóra leiki við Holland á milli jóla og nýárs árið 1981 í Kefla- vík, á Akranesi, á Selfossi og í Reykjavík. Hollendingar unnu þá alla en engan með meira en tíu stiga mun. Íslendingar endurguldu heim- sóknina í apríl 1982 og voru þá spil- aðir fjórir leiki í Hollandi. Unnu Hol- lendingar þrjá þeirra en Ísland vann einn. Ísland hefur alls unnið sjö leiki af tuttugu og tveimur gegn Hollandi. Íslendingar hafa sótt í sig veðrið á þessari öld og þá hefur hlutfallið verið mun betra en það var á síðustu öld. Ísland hefur mætt Hollandi eftir að núverandi þjálfari, Craig Ped- ersen, tók við liðinu. Var það í ágúst árið 2015 en þá voru bæði liðin að undirbúa sig fyrir lokakeppni EM.. Þá mættust liðin þrívegis. Íslannd vann stórsigur, 80:55, í Þorlákshöfn en Holland hafði betur 73:65 í Höll- inni. Liðin mættust einnig á móti í Eistlandi og þá vann Ísland naum- lega, 67:65. Lentu illa í Jóni Arnóri Ísland vann Holland í mótsleik í Smáranum í undankeppni EM í ágúst 2009 eða í miðri Icesave- deilunni. Hollendingar voru þá með tvo NBA-leikmenn í sínu liði en Ís- land vann óvæntan sigur 87:75. Jón Arnór Stefánsson átti þá stór- leik og skoraði 15 stig í fyrsta leik- hluta. Páll Axel Vilbergsson og Logi Gunnarsson voru einnig heitir fyrir utan þriggja stiga línuna í leiknum í Smáranum. Forvitnilegur fyrsti leikur - Holland og Ísland eigast við í Almere í kvöld - Mættust síðast 2015 Morgunblaðið/Eva Björk Hollendingar Ægir Þór Steinarsson í leik gegn Hollendingum fyrir sex ár- um. Hann er í íslenska liðinu sem mætir þeim í Almere í kvöld. KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Ísland mætir Hollandi í Almere í kvöld og hefst þá undankeppni HM karla í körfuknattleik en lokakeppn- in verður haldin árið 2023 í Japan, Indeónesíu og Filippseyjum. Leik- urinn gæti reynst mikilvægur en Rússland og Ítalía eru fyrir fram tal- in sterkari lið en þessi fjögur eru saman í B-riðli. Þegar upp verður staðið munu þrjú þessara liða fara áfram á næsta stig undankeppn- innar. Þótt erfitt sé að spá í spilin fyrir fram þá gætu viðureignir Ís- lendinga og Hollendinga skipt miklu máli. Lið Hollands vann sig inn í loka- keppni EM 2021 en lokakeppninni var frestað vegna heimsfaraldursins og mun fara fram árið 2022. Með það sem viðmið er hægt að segja að hol- lenska liðið standi framar um þessar mundir. Ísland komst á EM 2015 og 2017 sem kunnugt er. Nú hefur fyr- irkomulaginu verið breytt þannig að EM fer fram á fjögurra ára fresti. Holland komst ekki inn á EM 2017 en var á EM 2015 og þá stóð liðið sig mjög vel. Þá var liðið á EM í fyrsta skipti frá 1989. Holland er með ítalskan landsliðs- þjálfara, Maurizio Buscaglia. Hann tók við hollenska liðinu árið 2019 en stýrir einnig Hapoel Holon í Ísrael. Hefur hann þjálfað frá árinu 2015, mest á Ítalíu. 221 cm hár miðherji Átta leikmenn í hollenska hópnum spila í sameiginlegri deild bestu liða Hollands og Belgíu en í þeirri deild spilar Elvar Már Friðriksson. Þrír í hollenska liðinu leika á Spáni og eru allir hjá liðum í b-deildinni eins og Ægir Þór Steinarsson. Einn þeirra leikur með Girona, liðinu sem Kári Jónsson spilaði með í fyrra. KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Dalhús: Fjölnir – Sindri ............................ 18 Borgarnes: Skallagrímur – Álftanes .. 19.15 Vallaskóli: Selfoss – Hamar................. 19.15 Ásvellir: Haukar – ÍA................................ 20 1. deild kvenna: Kennaraháskóli: Ármann – Stjarnan . 19.15 Akranes: Aþena/UMFK – Snæfell ..... 19.30 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla, Grill 66-deildin: Höllin Ak.: Þór – Vængir Júpíters...... 19.30 Víkin: Berserkir – Hörður........................ 20 Dalhús: Fjölnir – Selfoss U ................. 20.15 Í KVÖLD! Olísdeild karla Selfoss – Grótta .................................... 32:23 Staðan: Haukar 10 7 2 1 301:264 16 Valur 9 6 2 1 261:228 14 ÍBV 9 7 0 2 275:257 14 FH 9 6 1 2 253:227 13 Stjarnan 9 6 0 3 268:262 12 Afturelding 9 4 2 3 263:251 10 Fram 8 4 0 4 222:224 8 Selfoss 9 4 0 5 233:230 8 KA 9 3 0 6 248:269 6 Grótta 8 2 1 5 204:219 5 HK 8 0 0 8 198:229 0 Víkingur 9 0 0 9 192:258 0 Þýskaland Melsungen – RN Löwen...................... 25:24 - Elvar Örn Jónsson skoraði 4 mörk fyrir Melsungen en Arnar Freyr Arnarsson og Alexander Petersson skoruðu ekki. - Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyr- ir Löwen. Erlangen – Stuttgart .......................... 27:32 - Viggó Kristjánsson skoraði 7 mörk fyrir Stuttgart og Andri Már Rúnarsson 5. Balingen – Göppingen ........................ 26:30 - Daníel Þór Ingason skoraði 3 mörk fyrir Balingen. Oddur Gretarsson lék ekki með Balingen og Janus Daði Smárason ekki með Göppingen. Meistaradeild karla Dinamo Búkarest – Flensburg .......... 20:28 - Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad. Sviss Zürich – Kadetten ............................... 33:33 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. Umspil U18 kvenna Leikið í Serbíu: Serbía – Ísland...................................... 31:20 Slóvenía – Slóvakía............................... 26:23 _ Lokastaðan: Spánn 6, Ísland 4, Slóvenía 2, Slóvakía 0. Intersport Cup Alþjóðlegt mót kvenna í Noregi: Noregur – Holland .............................. 36:21 - Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. E(;R&:=/D Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, sendi í gær frá sér yfirlýsingu í kjölfarið á máli Eiðs Smára Guð- johnsens sem var sagt upp störf- um sem aðstoðarþjálfara karla- landsliðs Íslands. Vanda hefur ekki viljað ræða málið við fjöl- miðla en yfirlýsing hennar er svo- hjóðandi: „Líkt og fram hefur komið þá tóku stjórn KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen sameiginlega ákvörð- un um starfslok hans sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla. Í kjölfarið hafa fjölmiðlar leitað svara um málið. Af sjálfsagðri virðingu við einkalíf Eiðs Smára þá höfum við, ég sem formaður KSÍ, stjórn og starfsfólk KSÍ, farið þá leið að tjá okkur ekki í smáatriðum um til- drög starfsloka hans. Við viljum ekki og getum ekki rætt hans per- sónulegu mál í fjölmiðlum. Þar þarf hann að stjórna ferðinni sjálf- ur. Ákvörðun sem þessi er alltaf þungbær, á sér langan aðdrag- anda og er ekki tekin nema að vel ígrunduðu máli. Aftur óskum við Eiði velfarnaðar og þökkum hon- um góð störf. Stjórn KSÍ hefur þegar rætt og mun ræða áfram hvort ástæða sé til þess að hætta að veita hóf- lega áfengi að verkefnum lokn- um. Nú tekur við vinna við leit að nýjum aðstoðarþjálfara þar sem þjálfari liðsins, Arnar Þór Við- arsson, mun að sjálfsögðu ráða ferðinni. Vonandi gengur sú leit hratt og örugglega fyrir sig og við finnum réttan aðila í starfið við hlið Arnars til að leiða áfram- haldandi uppbyggingu á þessu unga og spennandi landsliði.“ Viljum ekki ræða persónuleg mál - Þungbær ákvörðun, segir Vanda - Umræður um veitingu áfengis hjá KSÍ Vanda Sigurgeirsdóttir Eiður Smári Guðjohnsen
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.