Morgunblaðið - 26.11.2021, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2021
augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vefverslun brynja.is
L
Opið virka
daga frá 9-18
lau frá 10-16
Lærisstandur
Verð 17.700
Tónlistarhátíðin Seigla heldur
áfram göngu sinni í kvöld með tón-
leikum sem bera heitið Ævintýri
síðsumars og fara fram í Kaldalóni
Í Hörpu kl. 20. Þeir hefjast með
tveimur tríóum fyrir óhefðbundna
hljóðfærasamsetningu, þ.e. klarí-
nettu, víólu og píanó en verk fyrir
þá samsetningu eru ekki algeng.
Kegelstatt tríó Mozarts virðist hafa
verið hið fyrsta, að því er segir í til-
kynningu og mun það hljóma í fyrri
hluta tónleikanna ásamt verki eftir
Schumann, Märchenerzählungen
sem var eitt af síðustu verkum tón-
skáldsins.
Eftir hlé mun píanóleikarinn
Ásta Dóra Finnsdóttir leika þrjár
rómönsur eftir Clöru Schumann.
Ásta Dóra mun svo enda tónleikana
á einleiksverki eftir Rachmaninoff:
Corelli-tilbrigðunum, Op. 42. „Það
hrífur hlustendur með sér í ótrú-
legt ferðalag gegnum 20 tilbrigði á
hinni aldagömlu foliu, laglínu frá
lokum 15. aldarinnar. Þetta stóra
einleiksverk krefst gríðarlegrar
tæknigetu á hljóðfærið en útgeislar
í senn svakalegri fegurð og eft-
irminnilegum laglínum,“ segir í til-
kynningu.
Auk Ástu Dóru, sem er aðeins 14
ára, koma fram Grímur Helgason
klarínettuleikari, Þórarinn Már
Baldursson víóluleikari og Guðrún
Dalía Salómonsdóttir píanóleikari.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hæfileikarík Ásta Dóra Finnsdóttir hefur hlotið fjölda verðlauna.
Ásta Dóra og tríó
koma fram í Seiglu
Með Gilitrutt og Búkollu
Hringavitleysa bbbnn
Eftir Sigurrós Jónu Oddsdóttur.
Bókabeitan 2021, 212 bls.
Stjúpsystkinin Fjóla og Lárus lenda aldeilis
bókstaflega í ævintýrum í fyrstu bók Sigur-
rósar Jónu Oddsdóttur, Hringavitleysu. Vett-
vangsferð með bekknum
á Þjóðminjasafnið verður
að mikilli svaðilför þegar
þau álpast yfir í heim
þjóðsagna og ævintýra
og neyðast til þess að
greiða úr hinum ýmsu
flækjum, finna Búkollu
og Hlina kóngsson og
kljást við Gilitrutt og
systur hennar Korku.
Hringavitleysa er saga
um vináttu. Fjólu og Lárusi líkaði vægast sagt
illa hvort við annað en læra að meta hvort ann-
að þegar þau þurfa að hjálpast að í ævintýra-
heiminum.
Sigurrós er fínn penni og textinn rennur vel
áfram. Söguþráðurinn er líflegur og fullur af
húmor en sagan skilur kannski ekki mikið eftir
sig að lestri loknum. Sigmundur B. Þorgeirs-
son sér um myndlýsingu en í myndum hans er
einnig að finna mikinn húmor og mikið líf.
Glettin en ósannfærandi
Drengurinn sem dó úr leiðindum bbmnn
Eftir Guðríði Baldvinsdóttur.
Sæmundur 2021, 171 bls.
Margir hafa áhyggjur af tölvuleikjafíkn og
yfirdrifinni snjallsímanotkun ungu kynslóð-
arinnar. Guðríður Bald-
vinsdóttir tekur þetta
málefni fyrir í bók sinni
Drengurinn sem dó úr
leiðindum sem fjallar ein-
mitt um dreng nokkurn
sem deyr úr leiðindum
þegar hann fær ekki að-
gang að tækjunum sín-
um.
Bókin byrjar nokkuð
skemmtilega, tónn
drengsins, sem sjálfur segir frá, er glettinn og
lýsingar hans á fjölskyldulífinu skemmtilegar.
Þegar hann deyr síðan úr leiðindum fær hann,
í fylgd stúlkunnar Stuttu Stínu, nokkurs konar
leiðbeinanda, að kynnast því hvernig það er að
ganga aftur. Hann lærir ýmislegt um lífið og
tilveruna á þessu draugaflakki sínu og boð-
skapur sögunnar er nokkuð skýr.
Það er því miður ýmislegt sem betur hefði
mátt útfæra í þessari bók. Klárir krakkar
munu reka augun í atriði sem hreinlega ganga
ekki upp sem er mikill ágalli auk þess sem
söguþráðurinn virðist oft á tíðum nokkuð til-
viljanakenndur og ósannfærandi.
Einhverfa, vinátta og spenna
Kennarinn sem kveikti í bbbbn
Eftir Bergrúnu Írisi Sævardóttur.
Bókabeitan 2021, 165 bls.
Þriðja bókin í hinni vinsælu kennaraseríu
Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur er komin út og
sú er ekki síðri en þær
sem á undan komu. Að
þessu sinni er það Fann-
ar sem segir söguna, en
tvær bekkjarsystur hans
höfðu verið sögumenn
hvor í sinni bókinni.
Fannar er einstaklega
gáfaður piltur en á stund-
um í erfiðleikum með
samskipti við jafnaldra
sína. Hann er persóna
sem auðvelt er að þykja vænt um þrátt fyrir að
hann sé alls ekki gallalaus, kannski einmitt
vegna þess hve óvenjulegur eða jafnvel ein-
stakur hann er. Höfundi tekst vel að fanga
hugarheim hans og er framsetningin á þessum
einstaklingi á einhverfurófinu afar sannfær-
andi, þótt aðrir geti sjálfsagt dæmt um það
betur en ég.
Söguþráðurinn er spennandi eins og aðdá-
endur kennarabókanna eiga við að búast auk
þess sem sagan hlýjar manni um hjartarætur.
Bergrún tekur yfirleitt fyrir einhver mikil-
væg málefni í hverri bók og í þetta sinn er það
einelti, einhverfa og mikilvægi umburðarlynd-
is. Hún myndlýsir bókina sjálf og leysir það
verkefni vel af hendi að vanda og tekst að
miðla öllum tilfinningaskalanum.
Skondinn hundur í rykfrakka
Spæjarahundurinn bbbnn
Eftir Guðjón Inga Eiríksson.
Hólar 2021, 159 bls.
Í bókinni Spæjara-
hundurinn byggir Guð-
jón Ingi upp nokkuð
skemmtilegan heim og
segir frá enn skemmti-
legri persónu. Spæjara-
hundurinn, sem er afar
stór og afar klókur og
klæðist rykfrakka, kem-
ur til Bjartabæjar í von
um að koma í veg fyrir
að alræmdir glæpamenn nái takmarki sínu.
Þar kynnist hann Laugu löggu og hundi gull-
smiðsins, Perlu, og með þeim tekst hin besta
vinátta.
Þótt hugmyndin að sögunni sé góð vantar þá
spennu í hana sem maður býst við af sögu af
leynilögregluhundi og ævintýrum hans. Sögu-
þrjáðurinn er tiltölulega einfaldur og vanda-
málin sem upp koma þegar fanga á hinar út-
sjónarsömu glæpaþríburasystur eru aðeins of
auðleyst. Það er synd því persóna á borð við
Spæjarahundinn á skilið mikið ævintýri.
Halldór Baldursson gæðir spæjarahundinn
lífi með skemmtilegum myndum og á hann
hrós skilið fyrir þær.
Ferðir um ævintýraheima
og lönd vináttunnar
Yfirlit yfir nýútkomnar
íslenskar barnabækur
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Spæjarahundur Halldór Baldursson glæðir spæjarahundinn lífi með skemmtilegum myndum.
76 MENNING