Morgunblaðið - 20.12.2021, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021
Sigurður Már Jónsson blaða-
maður skrifar um ágæta bók
Ásgeirs Jónssonar, Eyjuna hans
Ingólfs, í pistli á mbl.is. Þar víkur
hann að deilunum um bókina, eða
öllu heldur ásök-
ununum sem fram
hafa komið, og seg-
ir meðal annars:
„En þó að deilan sé
áhugaverð um
margt þá getur
verið erfitt að sjá
að hún komi bók
Ásgeirs mikið við
enda vigta umkvörtunarefni
Bergsveins [Birgissonar] ekki
þungt í heildarumfjöllun bókar
Ásgeirs. Sem meðal annars fjallar
um efnahagslega þætti landnáms-
ins sem gæti legið nærri þekking-
arsviði höfundarins sem segist
nálgast ritun bókarinnar sem leik-
maður.
- - -
Ef svo er, þá er hann enginn
venjulegur leikmaður með
sína djúpu sýn á hagsögu þjóð-
arinnar og glöggur greinandi eins
og hann hefur sýnt í gegnum tíð-
ina. Í raun er bara gleðiefni að
vera með seðlabankastjóra sem er
jafn áhugasamur um sögu og
menningu þjóðarinnar og Ásgeir
augljóslega er.
- - -
Engin ástæða er til að efast um
heilindi hans þó að siðanefnd
HÍ hafi ákveðið að taka málið að
sér. Hvort hún hafi einhverja lög-
sögu eða í raun einhverja aðkomu
að þessu er mér til efs. Nefndar-
menn hafa þó að öllum líkindum
ekki getað hugsað sér að sleppa
svona áhugaverðri deilu þó aug-
ljóslega sé hér um frumhlaup
Bergsveins að ræða.“
- - -
Þetta er ekki ósennileg kenning
hjá Sigurði Má, en það veit
ekki á gott um niðurstöðuna ef að
siðanefndarmenn ofmeta lögsögu
sína svo mjög.
Er nefndinni ekkert
óviðkomandi?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Gert er ráð fyrir að rekstur bæjar-
sjóðs Fjallabyggðar á næsta ári
verði 48 millj. kr. í plús. Fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði er raunar
búist við að útkoman verði jákvæð
um 264,3 millj. kr. Þetta kom fram í
bæjarstjórn í sl. viku. Skatttekjur
næsta árs eru áætlaðar 1.542 millj.
kr., heildartekjur 3.432 millj. kr. og
rekstrargjöld, utan afskrifta og fjár-
magnsliða, má ætla að verði 3.167
millj. kr.
Heildareignir Fjallabyggðar eru
áætlaðar 6,1 ma. kr., eigið fé er um 4
milljarðar og eiginfjárhlutfall er
65%. Vaxtaberandi skuldir eru 300
millj.kr. og lækka lítið eitt milli ára.
Veltufé frá rekstri er áætlað 372
millj. kr. Það er er 10,8% af rekstr-
artekjum sveitarfélagsins, sem ekki
þarf að slá ný lán vegna verkefna
sem fram undan eru.
Framkvæmdaáætlun gerir ráð
fyrir að Fjallabyggð muni á næsta
ári fjárfesta fyrir 617 millj. kr. Þar
má nefna endurbætur í íþróttamið-
stöðvum á Siglufirði og Ólafsfirði og
reist sé nýtt aðstöðuhús á tjaldsvæði
á síðarnefnda staðnum. Áfram verð-
ur unnið að gatnagerð og malbikun
og á Siglufirði verður farið í um-
hverfisbætur við höfnina. sbs@mbl.is
Miklar fjárfestingar í Fjallabyggð
- Fjárhagsáætlun samþykkt - Sterkt
sveitarfélag - Endurbætt íþróttahús
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjallabyggð Ólafsfjörður, önnur
tveggja byggða í sveitarfélaginu.
Margir hafa á síðustu dögum mætt í
Hamrahlíð við Vesturlandsveg,
skóginn í hlíðum Úlfarsfells, og sótt
sér þar jólatré. Vel hefur viðrað til
skógarferða og verður alveg til jóla,
skv. veðurspá.
„Furan er vinsæl svo fínum drátt-
um þar fækkar,“ segir Björn
Traustason, formaður Skógrækt-
arfélags Mosfellsbæjar, sem var í
Hamrahlíð um helgina. „Af greni-
trjám höfum við nóg hér í skóginum
sem er víðfeðmur og stór. Hins veg-
ar höfum við verið á þönum að fella
og sækja furutré og koma með til
sölu hér. Þau höfum við sótt í aðra
skógarreiti okkar hér í bænum.“
Í jólatrjáasölu á Íslandi er oft boð-
ið upp á erlenda vöru, en þó vaxandi
mæli innlenda. Kemur þar til að
mikið hefur verið gróðursett á síð-
ustu árum og tré mörg komin í þá
stærð að hæfa í stofum landsins.
„Við heyrum á fjölskyldum að því
fylgi gleði að sækja sér tré hingað.
Meðal margra er ferð Hamrahlíð
fastur liður í undirbúningi jólanna,
en hér er opið fram fram á síðdegi á
Þorláksmessu,“ segir Björn.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skógur Björn Traustason með fallegt barrtré sem verður mikil stofuprýði.
Furunum fækkar
- Jólaskógur í Hamrahlíð er vinsæll