Morgunblaðið - 20.12.2021, Side 12

Morgunblaðið - 20.12.2021, Side 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf STUTT « Fjölmiðlar greindu frá því fyrr á árinu að verð á timbri væri í hæstu hæðum í Bandaríkjunum og var met slegið í vor þegar verðið á framvirkum samningum um kaup á staðlaðri ein- ingu af timbri fór upp í 1.711 dali, m.a. vegna skyndilegs kipps í bygginga- framkvæmdum. Timburverðið lækkaði hratt þegar leið á sumarið en hefur tekið að hækka á ný á undanförnum vikum og mánuðum. Núna kostar timbureining til af- hendingar í janúar 1.089 dali og er það tvöfalt hærra verð en greiða þurfti fyrir timbur um miðjan nóv- ember, að því er WSJ greinir frá. Hækkunin er m.a. rakin til flóða í Bresku-Kólumbíu sem hafa raskað timburframleiðslu á svæðinu auk þess sem aðilar í byggingageira virðast vera að sanka að sér birgðum til að verða örugglega ekki uppiskroppa með timbur á komandi mánuðum. ai@mbl.is Verð á timbri rýkur upp Svo virðist sem að nýr faraldur Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar muni ekki hafa sömu áhrif á hagkerfi þjóða og fyrri smitbylgjur. Wall Street Journal greinir frá þessu og bendir á að þar sem smit hafa bloss- að upp að undanförnu hafi kórón- uveiran ekki dregið úr neyslu né dregið úr fjölgun starfa. Aftur á móti gæti nýjasta afbrigði veirunnar vald- ið röskun á aðfanga- og vöruflutn- ingakeðjum og þannig átt þátt í að viðhalda háu verðbólgustigi í lengri tíma en ella. WSJ vitnar í Paul Ashworth, hag- fræðing hjá bresku hagrannsókna- stofunni Capital Economics, sem bendir á að strangar smitvarnaað- gerðir í byrjun kórónuveirufarald- ursins urðu til þess að mikill sam- dráttur varð í neyslu sem síðan hafði verðhjaðnandi áhrif. Nú séu stjórn- völd ekki eins viljug að beita harka- legum úrræðum: „Það gæti því orðið meiri röskun á framboðshliðinni en eftirspurnarhliðinni sem þýðir að í þetta skiptið eru áhrifin verðbólgu- hvetjandi,“ segir hann. Þetta kann að hafa áhrif á hvernig seðlabankar um allan heim reyna að hafa hemil á þeim verðbólgukipp sem núna á sér stað m.a. í Bandaríkj- unum og Evrópu, enda ekki sama þörf á að reyna að örva neyslu með lægri vöxtum. Í síðustu viku ákváðu bæði Englandsbanki, seðlabanki Evrópu og seðlabanki Bandaríkj- anna að hækka stýrivexti með það fyrir augum að slá á verðbólguna. WSJ bendir á að eftir því sem liðið hefur á faraldurinn hafi mátt greina að smitvarnaaðgerðum hefur verið stillt í hóf og þeim beitt með mark- vissari hætti. Samhliða því hafa bæði starfsmenn og vinnuveitendur aðlag- ast breyttum aðstæðum s.s. með fjarvinnu. Þýðir þetta að efnahags- leg áhrif nýrra smitbylgja og nýrra afbrigða kórónuveirunnar eru ekki þau sömu og í byrjun faraldursins, hvað þá þegar tekið er með í reikn- inginn að búið er að bólusetja þorra fullorðinna á Vesturlöndum. Að því sögðu má reikna með að Ómíkron-afbrigðið, bráðsmitandi sem það er, muni hafa neikvæð áhrif á hagvöxt. Þannig hefur hagrann- sóknastofan Pantheon Macroecono- mics spáð því að yfirvofandi bylgja nýrra smita í Bandaríkjunum muni valda því að á fysta ársfjórðungi komandi árs muni hagvöxtur þar í landi á ársgrundvelli mælast 3% í stað 5% eins og áður hafði verið reiknað með. ai@mbl.is AFP Breyting Viðskiptavinir skoða úrvalið í verslun í Texas. Neytendur og at- vinnulíf virðast hafa náð að aðlagast röskunum af völdum faraldursins. Ómíkron gæti ýtt undir verðbólgu - Hagkerfi bregðast öðruvísi við bylgjum VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Starfsemi eignaumsjónafélagsins GreenKey hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun árið 2014. Fyrirtækið sérhæfir sig í hvers kyns umsjón og umsýslu tengdri hótel- og gististað- arekstri auk þess að taka að sér um- sjón með íbúðum í skammtímaleigu. Hefur GreenKey einkum sinnt höf- uðborgarsvæðinu og Suðurlandinu en nýverið færði félagið út kvíarn- ar og hóf starf- semi á Norður- landi. Davíð Karl Wiium segir markaðinn eiga mikið inni og er t.d. til mikils að vinna fyrir sum- arhúsaeigendur að koma eignun- um í útleigu til hafa af þeim ein- hverjar tekjur. „En það er hægara sagt en gert fyrir einstaklinga að leigja út sumarbústað og getur kall- að á mikið umstang, skipulag og tíð samskipti við gesti. Þá þarf vita- skuld að þrífa og gera húsnæðið klárt á milli gesta og getur síminn hringt á öllum tímum sólarhrings- ins. Við leysum þennan vanda og er- um með ræstingafólk til taks á sum- arbústaðasvæðum, og með þjónustuver þar sem sérhæfðir starfsmenn svara í símann að degi sem nóttu.“ Davíð á og rekur GreenKey í fé- lagi við nafna sinn Davíð Vilmund- arson og Guðmund Árna Ólafsson. Spannar þjónustan allt frá því að halda utan um útleigu á sumarbú- stöðum útí á landi yfir í að halda ut- an um daglegan rekstur heilu hót- elanna í Reykjavík. Gestamóttakan orðin óþörf Nálgun GreenKey gengur út á að nýta sjálfvirkni og sjálfsafgreiðslu sem víðast með það fyrir augum að nýta betur tíma allra starfsmanna og um leið bæta þjónustuna við gesti. GreenKey getur tekið að sér allan rekstur og utanumhald, eða aðeins sinnt afmörkuðum þáttum sé þess óskað, og bendir Davíð á að í krafti stærðarhagkvæmninnar eigi GreenKey auðveldara með að leysa ýmsar þær áskoranir sem koma upp í daglegum rekstri stórra sem smárra hótel- og gistiheimila, s.s. vegna veikindaforfalla. „Ef við erum fengin til að taka að okkur rekstur hótels þá byrjar ferlið með heimsókn þar sem við förum í saumana á starfseminni og greinum í framhaldinu hvaða þjónustu þarf að veita og hverju má hugsanlega breyta til að bæta nýtingu og auka arðsemi,“ útskýrir hann. „Við sjáum líka um öll tæknimál, s.s. ef hótelið vantar vefsíðu, komum á tengingu við allar helstu hótelleitarvélar, og höldum utan um verðstýringu af mikilli nákvæmni.“ Lykilatriði, að sögn Davíðs, er að góð upplýsingagjöf eigi sér stað áð- ur en gesturinn kemur svo hann m.a. viti upp á hár hvernig hann inn- ritar sig sjálfur, og allt sé á hreinu varðandi hvers kyns viðbótarþjón- ustu eins og að fá aðstoð við að leigja bíl, panta borð á veitingastað eða bóka útsýnisferð. „Við vinnum eftir ákveðnum ferlum sem ganga út á það að ef vandamál kemur upp einu sinni þá endurtaki það sig ekki. Ef gestur reynist t.d. eiga í vanda með að finna sumarbústað sem hann tók á leigu þá er ekki nóg með að þjónustuverið hafi allar upplýsingar sem þarf til að leiðbeina honum á áfangastað heldur gætum við gripið til þess ráðs að senda upptökumann með dróna á staðinn til að gera myndband af öllu ferðalaginu frá rétta afleggjaranum, upp að bústað og inn á stofugólf, til að sýna þeim gestum sem á eftir koma.“ Gætu þurft að liðka fyrir veitingu leyfa Það gengur hægar en vonir stóðu til að kveða kórónuveiruna í kútinn og er ferðaþjónustan sú grein sem farið hefur hvað verst út úr faraldr- inum. Davíð segir þó flest benda til að erfiðasta skeiðið sé að baki, bók- unarstaðan í kerfum GreenKey sýni að viðsnúningurinn hefur verið framar björtustu vonum. Þess gæti verið skammt að bíða að ferðamenn taki aftur að streyma til landsins með tilheyrandi eftirspurn eftir hót- elherbergjum og Airbnb-íbúðum. Bendir Davíð á að ef stefnir í nýja uppsveiflu verði stjórnvöld að gæta þess að halda rétt á spilunum og hjálpa greininni að aðlagast aukinni eftirspurn. „Við sáum það í síðustu sprengingu í komum ferðamanna að leiga íbúða og herbergja í gegnum síður eins og Airbnb hjálpaði til við að bregðast við aukningunni, en nú er búið að setja þess háttar starf- semi þrengri skorður, svo að sækja þarf um rekstrarleyfi ef íbúð er leigð út í meira en 90 daga á ári. Einstaklingar reka sig á að það get- ur verið þrautinni þyngra að fá rekstraleyfi og eðlilegt að skoða hvort ekki megi veita aukið svig- rúm, sér í lagi ef ljóst þykir að álag- ið á hótelum er orðið mikið og há- annatími ferðaþjónustunnar tekinn að lengjast og teygja sig langt út fyrir sumarmánuðina.“ Sama vandamálið komi ekki upp oftar en einu sinni - GreenKey notar sjálfvirkni, sjálfsafgreiðslu og stærðarhag- kvæmni í hótel- og gististaðarekstri og við skammtímaleigu íbúða Gestir Ferðamenn í Bankastræti. GreenKey sér um að reka heilu hótelin. Morgunblaðið/Eggert Davíð Karl Wiium 20. desember 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.21 Sterlingspund 171.81 Kanadadalur 100.78 Dönsk króna 19.687 Norsk króna 14.384 Sænsk króna 14.248 Svissn. franki 140.65 Japanskt jen 1.1413 SDR 180.85 Evra 146.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.8556

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.