Morgunblaðið - 20.12.2021, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021
Hátíð Þess var minnst við aðventustund í Bústaðakirkju í Reykjavík í gær að fimmtíu ár eru um þessar mundir liðin frá vígslu hennar. Tónlistarmenn komu fram í kirkjunni við þetta tilefni, Eliza
Reid forsetafrú flutti ávarp og fleira mætti nefna. Þá tendraði séra Eva Björk Valdimarsdóttir, prestur við kirkjuna, englakerti aðventukransins, það fjórða og síðasta sem kveikt er á fyrir jólin.
Óttar Geirsson
Hin jákvæða hlið
bindindis er mikið í
umræðunni um þessar
mundir. Æ fleiri koma
fram í dagsljósið sem
hafna nauðsyn áfengis
í sínum lífsstíl. Í gegn-
um flestar frásagn-
irnar kemur fram léttir
gagnvart því að þurfa
ekki að velta fyrir sér
næstu neyslu. Allur
tíminn sem sparast
sem nýttur er í að gera það sem við
óskum okkur. Bindindisforvarnir
eru ekki tilviljun eða sú jákvæða um-
ræða sem þar er haldið á lofti. Það
er gott að tala minna um hryllinginn
og ósköpin sem fylgja neyslu áfengis
og annarra vímuefna. Samt þarf að
hugsa til þeirra áhættuþátta sem
gætu komið upp þegar valið er.
Þessa daga er mikið rætt um glaðn-
ing sem hinir og þessir eiga skilið en
auðvitað eiga allir skilið jólaglaðn-
ing. Gleði og kærleikur á að skína í
gegnum allt á jólunum. Það er
ástæða til að fagna þeirri öldu ein-
staklinga sem velja sér í auknum
mæli heilbrigða lífshætti. Best af
öllu er að gleðjast sem lítið barn,
jólabarn. Það finna þeir sem draga
úr áfengisneyslu hvað svefninn verð-
ur betri og lífsgleðin eykst.
Hvít jól er átak í desember þar
sem fjölskyldan, félagar og vinir
hvetja þá sem nota áfengi til að
draga úr neyslunni og
sleppa henni yfir há-
tíðina, sérstaklega
innan um börn. Börn
eiga skilið að alast upp
í öruggu vímu-
efnalausu umhverfi
við ást og kærleika.
Því miður er hörð
samkeppni um tíma
okkar og neysluvenjur
þar sem áfengisiðn-
aðurinn beitir sér-
staklega ógeðfelldum
aðferðum til að sann-
færa fjöldann um að áfengi sé nauð-
syn eða eðlilegur hluti daglegs lífs.
Það er mikilvægt að við leggjumst á
árarnar og fjölgum sendiherrum
sem sannarlega ætla að beita sér
fyrir hagsmunum barnanna, skrif-
um undir á www.hvítjól.is
Eftir Aðalstein
Gunnarsson
» Það er mikilvægt að
við fjölgum sendi-
herrum sem ætla að
beita sér fyrir hags-
munum barnanna með
vímuefnalausu um-
hverfi, skrifum undir á
www.hvítjól.is.
Aðalsteinn
Gunnarsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
IOGT á Íslandi.
iogt@iogt.is
Bindindi er
jákvæð afurð heil-
brigðra lífsháttaÉg flutti í Fossvog-
inn þegar ég sjö ára
gömul og var þá verið
að vinna að síðasta
byggingarhluta Borg-
arspítalans en þeirri
vinnu lauk 1978. Eftir
það hefur litlu verið
bætt við spítalann fyrir
utan nokkur smáhýsi
austan við hann. Þessi
spítali sinnti öllum
landsmönnum eins og
Landspítalinn. Vil þó halda því til
haga að byggt hefur verið við Land-
spítalann, s.s. barnasjúkrahúsið,
þann hluta sem hýsir nýja mötu-
neytið, rannsóknarstofur, geisla-
meðferðardeildir og fleiri deildir og
rými sem eru þó ekki sjúkrarými.
Landspítalinn hefur verið í stækk-
un og betrumbótum undanfarin ár
og enn erum við ekki komin upp úr
jörðinni. Í júlí á þessu ári var frétt
um að kostnaður við framkvæmdir
hefði aukist um 16 milljarða og enn
er bara hola þarna.
Á árunum 1971-1978 voru margir
spítalar og sjúkrahús starfandi um
allt land. Fjórðungssjúkrahús voru á
Ísafirði, Neskaupstað og Akranesi,
Sjúkrahús á Suðurnesjum, á Ak-
ureyri og í Stykkishólmi. St. Jós-
efsspítalinn í Hafnarfirði, Vífils-
staðaspítali, Kristnesspítali og allar
heilbrigðisstofnanir á landinu sem
ég hef ekki talið upp. Nokkrum af
þeim spítölum/sjúkrahúsum sem ég
hef talið upp hefur verið lokað eða
starfsemi breytt, er ekki lengur spít-
ali eða sjúkrahús, í staðinn komin
þar önnur starfsemi, s.s. öldr-
unarstofnun, enda þurfum við fleiri
öldrunarrými. Þeir spítalar eða
sjúkrahús sem eru enn
starfandi á lands-
byggðinni eru með
skertari starfsemi en
þeir voru með á ár-
unum 1971-1978 nema
sjúkrahúsið á Ak-
ureyri.
Mörgum sjúkrarým-
um á spítölunum hefur
einnig verið breytt í
skrifstofuhúsnæði og
spurningin er hvort
það sé ekki orðið allt of
mikið af millistjórn-
endum og of lítið af
sjúkrarýmum. Auðvitað hafa orðið
breytingar, eins og t.d. sængurlega
sængurkvenna, sem var um fimm
sólarhringar árið 1978 en er í dag
oftast innan við sólarhringur, eins er
með minni aðgerðir o.s.frv. Þó verð-
ur að taka fram að við erum með
tæplega sjö gjörgæslurými á hverja
hundrað þúsund íbúa, hinar nor-
rænu þjóðirnar eru með 20 gjör-
gæslurými á hverja hundrað þúsund
íbúa og Þýskaland með um 40 gjör-
gæslurými á hverja hundrað þúsund
íbúa enda gátu þeir veitt Ítölum að-
stoð í upphafi fyrstu Covid-bylgju.
Svo erum við hissa að gjörgæslan sé
að fara á hliðina þegar einn eða tveir
covid-sjúklingar leggjast inn á gjör-
gæslu!
Hvað er búið að byggja í staðinn
fyrir þær stofnanir sem hefur verið
lokað eða starfsemin verið skert eða
breytt? Það er ekki mikið um nýjar
heilbrigðisstofnanir. Er kominn tími
á að byrja að byggja nýjan spítala,
ríkisspítala, samhliða stækkuninni á
Landspítalanum? Já, ekki spurning.
Ríkisspítalinn gæti verið þar sem
nægt landrými er fyrir hendi, eins
og t.d. við Keldnaholt. Fá teikningar
og skipulag að vel skipulögðum og
starfandi spítala á Norðurlöndunum,
því við þurfum ekki að finna upp
hjólið. Ráða síðan reyndan forstjóra
sem þorir og veit hvernig á að reka
spítala sem er sjúklingavænn. Einn-
ig þarf að gera samninga við einka-
reknar stofnanir þar sem peningur
fylgir sjúklingum og ef sjúklingur
vill greiða meira þá er það hans val.
Enda myndi það stytta biðlista á rík-
isreknum heilbrigðisstofnunum.
Willum Þór, ég treysti þér í þetta
verkefni og hef trú á að þú munir
taka til og bæta heilbrigðiskerfið
okkar.
Fyrsta janúar árið 1978 voru
landsmenn tæplega 223.000 og
fyrsta janúar í ár voru landsmenn
368.792, að auki hefur ferðamönnum
fjölgað gríðarlega síðustu ár. Hætt-
um að slökkva elda og hefjum fyr-
irbyggjandi vinnu. Þegar Landspít-
alinn við Hringbraut verður tilbúinn
er ljóst að hann mun ekki ná að
sinna þeim verkefnum sem þarf að
sinna. Þess vegna þarf að hefja
byggingu nýs spítala strax og semja
við einkareknar heilbrigðisþjón-
ustur. Nóg er búið að tala og tími
framkvæmda er löngu kominn: Will-
um Þór, boltinn er hjá þér.
Eftir Þórhöllu
Arnardóttur » Við þurfum að
byggja annan nýjan
spítala, taka til og bæta
heilbrigðiskerfið okkar
og Willum Þór, ég
treysti þér í það verk-
efni.
Þórhalla
Arnardóttir
Höfundur er viðskiptavinur
heilbrigðiskerfis Íslands.
Byggjum nýjan ríkisspítala!