Morgunblaðið - 20.12.2021, Side 24

Morgunblaðið - 20.12.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2021 Þú finnur fallegar og vandaðar jólagjafir hjá Eirvík Suðurlandsbraut 20 / Reykjavík / Sími 588 0200 / eirvik.is 30 ÁRA Bragi er úr Garði á Suð- urnesjum en býr á Hvolsvelli. Hann er matreiðslumaður að mennt og sér um mötuneytið fyrir sveitarfélagið Rang- árþing eystra. Í því felst að elda ofan í alla á leikskólanum, grunnskólanum, dvalarheimilinu og hreppsskrifstofunni. Bragi er í söngnámi og er í Karlakór Rangæinga. Hann er formaður næstu þorrablótsnefndar í sveitarfélaginu. „Þetta er svona það sem ég hef tíma til að gera, á meðan maður er með fullt heimili af börnum.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Braga er El- ín Björk Sigurjónsdóttir, f. 1994, vinnur á leikskólanum á Hvolsvelli. Börn þeirra eru Lilja Kristín, f. 2017, Gissur Hans Wium, f. 2018, og Sólborg Sara, f. 2021. Foreldrar Braga eru Hans Wium Bragason, f. 1961, fv. sjómaður en vinnur nú hjá byggingaverktaka, og Sigurborg Sólmundardóttir, f. 1959, en hún sá um félagsstarf eldri borgara í Garði. Þau eru búsett í Garði. Bragi Þór Hansson vík. Jafnframt voru lögin gefin út á geisladiski. Snorri Pétur sonur hans setti texta við lögin, fyrir utan eitt laganna sem Eggert hafði sjálfur samið texta við á sínum tíma. Í danslagakeppni SKT skyldu vera danslög eins og rúmba, vals, samba klúbbs templara. Nótur þessar týndust, en lögin voru áfram í minni Eggerts. Um síðustu jól söng hann þessi lög fyrir Lilju dóttur sína sem útsetti þau og fékk til liðs við sig tónlistarfólk og flutti þau sl. haust á tónleikum í Fríkirkjunni í Reykja- E ggert Thorberg Kjart- ansson fæddist 20. desember 1931 í Fremri-Langey á Breiðafirði og ólst þar upp. Hann lauk námi í múraraiðn 1960 og hefur stundað þá iðn meiri- hluta ævinnar. Þá hefur hann alla tíð sinnt hlunnindabúskap í Fremri- Langey, æðarvarpi og öðru því sem tilheyrir eyjunum á Breiðafirði. Eggert hefur síðustu áratugina unnið við ættfræðivinnslu, mest í samvinnu við Þorstein Jónsson, út- gefanda hjá Sögusteini, en einnig hjá öðrum útgefendum. Meðal rita sem hann hefur unnið að eru Mann- talið 1910, sem Ættfræðifélagið gaf út, íbúa- og bændatal í Miklaholts-, Eyja- og Kolbeinsstaðhreppum, Reykjavíkurbækurnar með íbúa- og götulýsingum og Skipsstjórn- armenn. Einnig má nefna óútgefnar bækur eins og Dalamenn, nýja út- gáfu, og íbúa- og bændatal Stað- arsveitar. Eggert hefur í mörg ár unnið að ritun ættar sinnar, Hösk- uldseyjarættar, og vonandi kemur sú bók út fyrr en seinna. „Konan mín ber ábyrgð á því að ég fékk áhuga á ættfræði, en hún byrjaði löngu á undan mér.“ Múraraiðn sína stundaði hann mest í Reykjavík, en þar sem hann sinnti hlunnindanýtingu í Fremri- Langey á Breiðafirði kom það fyrir að hann tók að sér múrverk á bæj- um í sinni gömlu heimabyggð, Klofningshreppi og nærliggjandi hreppum sem nú heita Dalabyggð. Það var siður víða fram á fyrri hluta síðustu aldar að menn kvödd- ust með söng. Þegar leiðir skildi á krossgötum þótti eðlilegt að taka lagið. Söngur er manninum eðl- islægur, hann býr í náttúrunni, fuglasöngnum, vindinum og brim- inu. Einkum eftir að Ríkisútvarpið hóf göngu sína kynntust menn rödduðum söng og reyndu að líkja eftir. Það var Eggerti Thorberg og systkinum hans eðlilegt að syngja saman þegar haldin voru manna- mót. Þegar Eggert var rúmlega tví- tugur sendi hann inn lög á nótum í danslagakeppni SKT, Skemmti- og foxtrott. Jazzaðdáandinn Eggert Thorberg vildi fá swing í útsetning- arnar fyrir tónleikana og því voru fengnir kunnir jazzspilarar til að að- stoða við flutning laganna. Eggert hlustar mikið á tónlist. „Ég missi ekki af jazz þegar hann er í boði.“ Eggert Thorberg Kjartansson múrari, ættfræðingur og hlunnindabóndi – 90 ára Fjölskyldan Eggert og Hólmfríður með börnunum, f.v. Eggert, Gísli Karel, Kjartan, Snorri Pétur og Lilja. Söngurinn býr í náttúrunni Lagahöfundur Eggert ásamt tónlistarfólkinu á tónleikunum í Fríkirkjunni. Ættfræðingur Eggert Thorberg. Til hamingju með daginn Hvolsvöllur Sólborg Sara Bragadóttir fædd- ist 12. maí 2021 kl. 12.09 í Reykjavík. Hún vó 3.534 g og var 47,5 cm löng. Foreldrar henn- ar eru Bragi Þór Hansson og Elín Björk Sig- urjónsdóttir. Nýr borgari 21. mars - 19. apríl , Hrútur Mundu að láta athafnir fylgja orð- um þínum svo að þú fáir ekki þá einkunn að þig sé lítið sem ekkert að marka. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú þarft að taka á honum stóra þín- um í dag því náinn vinur mun aldeilis reyna á þolrifin í þér. Varastu að láta til- finningarnar hlaupa með þig í gönur. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú hefur þörf fyrir að ræða áhyggjur þínar við einhvern en skalt var- ast að gera það við hvern sem er. Horfstu í augu við staðreyndir. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú veltir fyrir þér lífinu og tilver- unni þessa dagana. Lífið gæti verið auð- veldara ef álit vissrar manneskju myndi ekki skipta þig máli. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur alveg burði til þess að ráða fram úr erfiðu dæmi, sem þér verður falið í dag. Haltu stillingu innan um vinnufélag- ana. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú þarft áreiðanlega að kyngja ýmsu til þess að halda friðinn á vinnu- staðnum. Líttu á björtu hliðarnar og þá sérðu að margt er í góðu lagi. 23. sept. - 22. okt. k Vog Um sinn skaltu varast að beina at- hyglinni að þér, nema þú sért með það á tæru hvernig þú ætlar að taka á hlut- unum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú hefur byrinn með þér til að klára þau verkefni sem setið hafa á hakanum. Festa þín gerir það að verkum að enginn reynir að andmæla þér. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Vertu opinn gagnvart nýj- ungum en mundu samt að ekki er allt gull sem glóir. Þótt verkefnin hlaðist upp máttu ekki vanrækja sjálfan þig. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Af hverju gerir þú það sem þú gerir? Fólk veltir því fyrir sér og þú líka. Leitaðu eftir hverju tækifæri til að gjalda góðmennsku sem þér hefur verið sýnd. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Láttu aðra um að finna lausn á sínum málum. Viljir þú fara þínu fram gætir þú átt von á umtalsverðri andstöðu. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú ert undir miklu álagi og þarft nauðsynlega að draga úr því, því annars áttu á hættu að það komi fram í líkam- legum kvillum. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.