Morgunblaðið - 23.12.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 23.12.2021, Síða 6
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Inga Þóra Pálsdóttir Hólmfríður María Ragnhildardóttir Mönnunarvandi og plássleysi ríkir á Landspítalnum. Til skoðunar er að aðrar heilbrigðisstofnanir taki við sjúklingum frá spítalanum. Þetta segir forstjóri spítalans. Sóttvarna- læknir telur að spítalainnlögnum gæti fjölgað hratt nú á næstu dög- um. Smitsjúkdómadeildin sem var tek- in undir Covid-sjúklinga er ekki full. Þrátt fyrir það er staðan þung á Landspítalanum sökum almennra veikinda. Þetta segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, settur forstjóri Land- spítalans, í samtali við Morgunblaðið „Við erum með görgæsluna undir og smitsjúkdómadeildina sem er ekki alveg full eins og staðan er núna. En við erum með aðra starf- semi mjög þunga. Það eru almenn veikindi, bæði eru það flensan og flensulík öndunarfæraeinkenni sem hafa verið að láta á sig kræla og svo eru það bara almenn veikindi.“ Spurð hvort það séu óvenjulega margir að leggjast inn á spítalann vegna flensunnar eða annarra al- mennra veikinda gat Guðlaug ekki svarað því en bendir á að nú sé ein deild lokuð vegna Covid. Þá segir hún að spítalinn sé í samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir um að taka við sjúklingum frá þeim. Fjórtán bakverðir skráðu sig Landspítalinn sendi í fyrradag út ákall vegna hættu á vaxandi álagi hjá heilbrigðisstofnunum sökum mikillar fjölgunar Covid-smita í samfélaginu sem og hættu við auknum forföllum starfsfólks vegna smita og sóttkvíar. „Staðan á spítalanum og faraldr- inum er ískyggileg. Við erum að reyna að manna okkar einingar eins vel og við getum. Stóra málið hjá okkur er að við erum með töluvert að fólki í einangrun og smitgátt út af sýkingum. Miðað við Covid-spána verða 4.500 einstaklingar í göngu- deildinni um áramótin og það þarf að manna í kringum það. Við erum að reyna að leita allra leiða til að létta á álaginu á spítalnum,“ segir Guðlaug. Síðan ákallið var birt hafa 14 skráð sig í bakvarðasveitna. Þetta staðfesti Margrét Erlendsdóttir, upplýsinga- fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, við Morgunblaðið í gær. Í ákallinu kom fram að mest þörf væri fyrir sjúkraliða, hjúkrunar- fræðinga og lækna. Af þeim 14 sem höfðu í gær skráð sig voru tveir hjúkrunarfræðingar, fjórir sjúkralið- ar en enginn læknir. Þá skráðu sig tveir læknanemar og einn sjúkraliða- nemi. Fyrir höfðu alls 152 heilbrigðis- starfsmenn skráð sig í bakvarða- sveitina frá því að hún var end- urvakin í október síðastliðinn. Vonar að þriðji skammturinn komi í veg fyrir innlagnir Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segir að spítalainnlögnum gæti fjölgað hratt nú á næstu dögum í ljósi fjölda smita undanfarna daga. Hann bindur vonir við að þriðji skammturinn af bóluefni muni vernda gegn alvarlegum veikindum Covid-19. Í gær lágu tíu sjúklingar á Land- spítala vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu og tveir þeirra í önd- unarvél. Þrátt fyrir að smittíðni sé nú í hæstu hæðum hafa spítalainn- lagnir þó oft verið fleiri. Fór fjöldi innlagna til að mynda upp í 34 í ágúst en þá náði fjöldi greindra smita mest 154 á einum degi. Spurður hvernig hægt sé að út- skýra þetta ósamræmi, segir Þór- ólfur að búast megi við fjölgun inn- lagna á næstu dögum en yfirleitt hafi það tekið eina til tvær vikur fyrir innlagnir að endurspegla smittíðni í samfélaginu. Hann segir þróunina á Íslandi svipa til með þeirri sem sést hefur í Danmörku, að því undanskildu að mun fleiri hafa verið bólusettir með þriðja skammtinum hérlendis. Gæti það skipt sköpum. „Það er óskandi að þessi þriðji skammtur komi vel í veg fyrir spít- alainnlagnir. Það eru gögn sem benda til þess að þessi þriðji skammtur skipti mjög miklu máli varðandi veikindi en kannski ekki svo mikið til að koma í veg fyrir smit. Við erum búin að gefa um 150 þús- und manns örvunarskammt þannig það eru enn þá 140 þúsund sem hafa ekki fengið. Svo er náttúrulega hóp- ur sem hefur ekki viljað láta bólu- setja sig,“ sagði Þórólfur við mbl.is í gær. Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 15.00 í gær Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti 2.419 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 84 af þeim sem eru undir eftir- liti flokkast sem gulir 10 sjúklingar eru inniliggjandi á LSHmeð Covid-19 3 einstaklingar eru á gjörgæslu þar af tveir í öndunarvél Enginn flokkast sem rauður Meðalaldur inniliggjandi með Covid-19 er 64 ár 267 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 2.259 erumeð virkt smit og í einangrun 3.301 einstaklingar eru í sóttkví 300 250 200 150 100 50 0 Heimild: LSH og covid.is Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH Fjöldi innanlandssmita og innlagna á LSH með Covid-19 frá áramótum Staðfest smit 7 daga meðaltal Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSH með staðfest Covid-19 smit 206 286 10 154 ,,Staðan á spítalanum ískyggileg“ - Plássleysi á spítalanum þrátt fyrir fáar Covid-innlagnir - Almenn veikindi herja á spítalann - Þróun Covid-19 á Íslandi svipuð og í Danmörku - Helmingur bólusettra fengið örvunarskammt Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir Þórólfur Guðnason Samkvæmt tilmælum stjórn- valda eru fyrirtæki og stofn- anir hvött til að bjóða starfs- mönnum sínum upp á þann möguleika að vinna að heiman vegna fjölda Covid-19-smita. Vinnustaðir hafa tekið upp á því að skipta starfsfólki sínu upp í hópa eða hólf sem t.d. skipta með sér matartíma í há- degismat. Í forsætisráðuneyt- inu er starfsfólk hvatt til að vera í fjarvinnu næstu vikurnar. Í þeim tilvikum þar sem starfsfólk deilir skrifstofu skiptist það á að mæta á starfsstöð. Þá hefur einnig ver- ið gripið til þess að loka fyrir setu í mötuneyti ráðuneytisins og starfsfólk fengið þau til- mæli að fara ekki á milli bygg- inga nema brýna nauðsyn beri til. Fólk flykkist í fjarvinnu TILMÆLI STJÓRNVALDA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.