Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
ingatæknisvið háskólans er til húsa.
Jón Atli reiknar með að makaskiptin
verði á sléttu. Ákveðin hagræðing
fáist með því að flytja starfsemina á
einn stað og fermetrum í umsjá skól-
ans fækki.
Félagsstofnun stúdenta mun nota
sinn hluta eignarinnar fyrir stúd-
entaíbúðir.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er mikið gleðiefni fyrir Há-
skóla Íslands. Við sjáum mikil tæki-
færi til að efla starfið, til dæmis að
samþætta þá starfsemi sem þangað
flyst við önnur fræðasvið Háskól-
ans,“ segir Jón Atli Benediktsson,
rektor Háskóla Íslands, um kaup
ríkisins á Hótel Sögu fyrir mennta-
vísindasvið háskólans, upplýsinga-
tæknisvið og ýmsa aðra starfsemi.
Skrifað var undir samning um
kaup ríkisins fyrir hönd Háskóla Ís-
lands og Félagsstofnunar stúdenta á
Hótel Sögu við Hagatorg af Bænda-
samtökum Íslands fyrr í vikunni.
Samningurinn var staðfestur með
samþykkt fjáraukalaga þar sem
veitt var heimild til viðskiptanna.
Ríkið kaupir 73% húseignarinnar
og Félagsstofnun stúdenta 27%.
Heildarkaupverðið er um það bil 4,9
milljarðar króna, samkvæmt heim-
ildum blaðsins. Auk þess þurfa
kaupendur að leggja í verulegan
kostnað við viðgerðir á þaki hússins
og efstu hæð og endurbætur til að
laga það að nýrri starfsemi. Áætlað
er að kaupverð og endurbætur á
eignarhluta Háskólans verði alls um
6,5 milljarðar þegar upp er staðið
eftir tvö til tvö og hálft ár.
Makaskipti við ríkið
Háskólinn greiðir sinn hluta af
kaupverðinu með makaskiptum við
ríkið. Lætur á móti byggingar fyrr-
verandi Kennaraháskóla Íslands við
Stakkahlíð og húsnæði við Skipholt
og hús við Neshaga þar sem upplýs-
Staðan var snúin
Fyrsti hluti hússins verður af-
hentur kaupendum um miðjan jan-
úar en Bændasamtökin fá tækifæri
til að losa út þá húsmuni sem ekki
fylgja með í kaupunum þannig að
eignin verður afhent í áföngum fram
á vor.
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir að
staðan hafi verið snúin. Veðkröfur
séu á húsinu, frá viðskiptabank-
anum, Reykjavíkurborg og Orku-
veitu Reykjavíkur, og auk þess
lausaskuldir. Verið sé að semja um
greiðslu skuldanna. Fleira sé óupp-
gert, meðal annars skipti á rekstrar-
Tækifæri til að efla starfið
- Ríkið og Félagsstofnun stúdenta kaupa Hótel Sögu af Bændasamtökunum fyrir um 4,9 milljarða
- Menntavísindasvið og upplýsingatæknisvið Háskóla Íslands flytja starfsemi sína í húsið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hótel Saga Bændahöllin var byggð af samtökum bænda og þar var rekið eitt besta hótel landsins frá 1962 til þess
að rekstri var hætt fyrir ári. Samningaviðræður um sölu hótelsins hafa staðið lengi yfir en er nú lokið.
Jón Atli
Benediktsson
Gunnar
Þorgeirsson
félagi hótelsins, Hótel Sögu ehf.,
sem er í gjaldþrotaskiptum en
Bændahöllin ehf., sem einnig er
dótturfélag Bændasamtakanna og
heldur á húseigninni, eigi kröfur á
rekstrarfélagið. Segist Gunnar ekki
geta tjáð sig um það á þessari
stundu hvaða áhrif salan hafi á fjár-
hag Bændasamtakanna.
Samtökin og tengdar stofnanir
eru með skrifstofur á 3. hæð hót-
elbyggingarinnar. Spurður um
framtíðina segir Gunnar að fyrirheit
séu um áframhaldandi leigu hús-
næðisins til eins árs svo andrými
gefist til að huga að næstu skrefum.
Hugsa vel um bygginguna
Nýstofnað fasteignafélag háskól-
ans mun standa straum af viðhaldi
og endurbótum á þeim hluta eign-
arinnar sem tilheyra mun háskól-
anum. Jón Atli segir að háskólinn
hafi haldið sínum byggingum vel við.
Hann tekur jafnframt fram að lögð
verði áhersla á að hlúa að bygging-
unni þannig að hún njóti sín vel sem
og ýmislegt sem þar er innanstokks
og hafi sögulegt gildi.
Vel kæstri skötu voru gerð góð skil
í mötuneyti ÚA á Akureyri í gær og
forskot tekið á sæluna, en sjávar-
fang þetta er víða á borðum í dag.
Sigurður Már Harðarson mat-
reiðslumeistari sauð skötu og hafði
með gulrætur, rófur, kartöflur,
brætt smjör, rúgbrauð og hamsa-
tólg. Saltfiskur var einnig í boði,
því skata er sannarlega ekki allra.
„Skatan er ómissandi svona rétt
fyrir jól. Svo er líka skemmtilegt að
elda hana, meðal annars af því að
allir hafa sterkar skoðanir á bæði
lykt og bragði,“ segir Sigurður.
Að vera með skötu á borðum á
Þorláksmessu eða dagana þar á
undan hefur trúarlega merkingu úr
kaþólskum sið. Fyrr á öldum var
gjarnan fastað fyrir jól. Neyslu á
góðgæti átti að halda í lágmarki,
sérstaklega á degi heilags Þorláks,
23. desember. Þar sem mismunandi
var og er hvað fiskaðist best á
hverjum stað urðu hefðir ólíkar. Á
Vestfjarðamiðum veiddist skata
yfirleitt vel á haustdögum og því er
venjan að vestan, þótt hún hafi fyr-
ir margt löngu náð til landsins alls.
Gjarnan eru haldnar skötuveislur
á þessum degi, til dæmis af íþrótta-
félögum og björgunarsveitum, og
þá í fjáröflunarskyni. Allt slíkt er
hófstemmdara nú, vegna sóttvarna.
Þó er skata á borðum í dag á veit-
ingahúsum, sem þá hafa verið hólf-
uð niður, til að draga úr hættu á
kórónuveirusmitum. sbs@mbl.is
Allir hafa sterkar
skoðanir á skötunni
Ljósmynd/Karl Eskil Pálsson
Fiskur Skatan féll í kramið hjá fólki í ÚA, en saltfiskur var einnig á borðum svo allir færu saddir og sælir frá borði.
- Víða er veisla að vestfirskum sið