Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Jörmundur Sjálfvinda frá YRSA Reykjavík mbandsúr fyrir herramenn Verð kr. 43.900 Sími 551 8588 • skartgripirogur.is Kringlunni og Smáralind Bankastræti 12, sími 551 4007 skartgripirogur.is Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is ERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ég er mjög upp með mér að bókin hafi verið þýdd á íslensku, en við vitum auðvitað að þjóð ykkar er ein mesta bókaþjóð veraldar,“ segir Max Hastings, einn þekktasti sagnfræðingur Bretlands, en bók hans um síðari heimsstyrjöld frá 2011, All Hell Let Loose, hefur nú verið þýdd á íslensku undir heitinu Vítislogar – heim- ur í stríði 1939-1945. Hastings segir að hann hafi með bók sinni viljað brjóta niður nokkrar lífseigar mýtur hjá bresku þjóðinni um styrj- öldina. „Kynslóð föður míns tók upp mjög þjóðernis- sinnaða sýn á stríðið og um leið söguna. Faðir minn trúði því einlæglega að Bretar hefðu unnið styrjöld- ina, á meðan Bandaríkja- menn sáu um tyggigúmmíið og hver veit hvað Rússarnir voru að gera,“ segir Hast- ings. Hann segist trúa því að sín kynslóð sagn- fræðinga sé að reyna að komast frá þeirri sýn á styrjöldina og horfa jafnframt á hana með al- þjóðlegri og mannúðlegri augum. „Hitt sem skiptir máli er að svokölluð hernaðarsaga var eitt sinn bara um hvaða herdeild fór í þessa átt og hvaða herdeild fór í hina áttina og svo fram- vegis.“ Hastings segir sína kynslóð sagnfræðinga frekar reyna að horfa á stríð sem mannlega reynslu. „Eitt af því sem þarf að huga að er að hermenn eru ekki þeir sem verða verst úti í styrjöldum. Í nánast hverju einasta stríði deyja mun fleiri óbreyttir borgarar en hermenn,“ segir Hastings og bætir við að hann hafi reynt í síðustu bókum sínum, og þá sérstaklega í Vít- islogum, að sýna stríðið frá fleiri sjónarhornum en annars hefur verið fjallað um. Hastings nefnir sem dæmi styrjöldina í Kína. „Bretar verða steinhissa þegar þú segir þeim að 15 milljónir Kínverja hafi farist í síðari heimsstyrjöld. Flestir [á Vesturlöndum] trúa því varla, þeir vita varla að Kína var þátttak- andi í styrjöldinni.“ Út frá sjónarhóli fórnarlamba Hastings segir að hann hafi líka reynt að skoða styrjöldina frá sjónarhóli fórnarlamba hennar, sérstaklega kvenna. „Þegar ég var ungur maður skildi ég ekki það sem ég skil mjög vel nú, og það er að ein af skelfingum þess að vera hersetinn í styrjöld er að konur eru þá algjörlega á valdi manna á táningsaldri, sem eru með byssur, og þá sérstaklega kynferð- islega.“ Hastings segir að skoða þurfi stöðuna þegar Evrópa var hersetin í styrjöldinni út frá því að ekki sé minnst á hersetu Japana í Asíu, þar sem hræðilegir hlutir hafi komið fyrir milljónir kvenna, sem hafi verið þagað yfir í mörg ár. „Ef þú skoðar þá sagnfræði sem kom út um stríðið á fyrstu árunum eftir það snerust þær allar um D-dag og „orrustuna um Gúlpann“, orrustuna um Midway og svo framvegis. Auðvitað munu allar sögubækur um stríðið þurfa að nefna þessa hluti, en ég hef meiri áhuga á stríðinu sem mannlegri reynslu.“ Talið berst að Helförinni gegn gyðingum, sem Hastings segir að hafi brenglað sýn margra á styrjöldina. „Mikið af fólki trúir því að heimsstyrjöldin hafi verið háð vegna gyð- inga í Evrópu, og það var alls ekki raunin. Hel- förin var ólýsanlegur glæpur, einn af stærstu glæpum veraldarsögunnar, sem nasistarnir frömdu. En á sinn hátt hafði hún ekkert að gera með framvindu síðari heimsstyrjaldar. Hún snerist í huga flestra þátttökuríkjanna um vald, hvernig ætti að auka það eða hemja vald ann- arra ríkja. Vesturveldin hugsuðu til dæmis ekk- ert um gyðinga fyrr en að styrjöld lokinni.“ Hastings bendir á að fæstir, jafnvel þeir sem best voru að sér, hafi árið 1945 haft hugmynd um það hversu umfangsmikil Helförin var. Það hafi tekið 20-30 ár fyrir fólk að átta sig á því. Hann bætir við að hann telji að umfjöllun um Helförina ætti ekki að vera á stríðsminjasöfn- um. „Ég tel að hver einasta stórþjóð ætti að hafa sitt eigið Helfararsafn til þess að fræða næstu kynslóðir um þann hrylling sem nasist- arnir frömdu gegn gyðingum. En ég tel mik- ilvægt um leið að aðgreina Helförina frá styrj- öldinni.“ Matur skipti einna mestu máli Í bók sinni vísar Hastings til frásagna fjöl- margra sem myndu teljast til „venjulegs fólks“ fremur en þjóðarleiðtoga og hershöfðingja. Að- spurður hvort ekki hafi verið mikið verk að finna þær heimildir segist Hastings hafa búið að því að hafa skrifað bækur um styrjöldina um nokkurt skeið. „Ég hef tileinkað stóran hluta af lífi mínu því að skrifa um styrjöldina, og var því kunnugur heimildunum,“ segir Hastings. Hann þakkar einnig aðstoðarfólki sínu, sem hafi veitt ómet- anlega aðstoð við að finna og þýða frásagnir fólks, til dæmis á Ítalíu og í Rússlandi, um upp- lifun fólks þar af styrjöldinni, sem venjulega hafi verið vanrækt í breskri sagnaritun. Hann segir að ein helstu mistök sagnfræð- inga 21. aldarinnar sé að reyna að ýta sínum gildum á þær frábrugðnu aðstæður sem ríktu á þeirri 20. „Og það sem ég reyni að gera í öllum mínum bókum er að loka augunum og hugsa hvernig leit þetta út fyrir þeim sem voru uppi þá. Og þá kemur til dæmis í ljós að eitt það mik- ilvægasta voru matvælin.“ Hastings segir að enn komi út urmull bóka um Spitfire-vélar og önnur hergögn, en á sama tíma hafi aðgangur að mat ráðið einna mestu um lífskjör fólks í styrjöldinni. „Flestir voru hungraðir að einhverju leyti, spurningin var bara hversu mikið.“ Hastings nefnir sem dæmi að Bretar hafi kvartað mjög undan skömmt- unarkerfinu en á sama tíma hefðu þeir ekki þurft að þola sömu raunir og til dæmis íbúar Leníngrad, sem neyddust í umsátri Þjóðverja til að leggja sér mannakjöt til munns í stórum stíl. Hastings segir að lýðræðisríkin hefðu frek- ar gefist upp í styrjöldinni en að láta almenning í löndum sínum þola slíkar raunir. „Við megum vera þakklát Stalín; einungis skrímsli eins og hann hefði getað fengið þjóð sína til að færa þessar ólýsanlegu fórnir.“ Hast- ings segir að Bretar hefðu aldrei getað barist líkt og Rússar ef innrás Þjóðverja þangað hefði tekist. Hann nefnir sem dæmið umsátrið um Möltu á Miðjarðarhafi árið 1942, þar sem Bret- ar hefðu líklega þurft að gefast upp ef skip með vistum hefði ekki náð í gegnum hafnbann öxul- veldanna í ágústmánuði. Hastings segir Rússa ótrúlega harðgera þjóð, og hann skilji vel þá afstöðu þeirra til „Föðurlandsstríðsins mikla“ að Vesturveldin kunni enn ekki að meta framlag Rússa til styrj- aldarinnar. Hann hafi því reynt sitt besta til að draga fram þær fórnir sem Rússar færðu. Brjáluð ákvörðun í desember 1941 Aðspurður hvort öxulveldin hefðu getað unn- ið styrjöldina segir Hastings ljóst að örlög styrjaldarinnar hafi verið ráðin þann dag sem Hitler ákvað að segja þeim stríð á hendur, ein- faldlega vegna framleiðslugetu Bandaríkjanna, sem hafi náð að framleiða hergögn í svo miklum mæli að jafnvel sagnfræðingar eins og hann, sem hafi skoðað stríðið í áratugi, verði undr- andi þegar þeir kynni sér tölurnar. „Ein áhugaverðasta spurningin um „gagn- sögu“ er hvað ef Hitler hefði ekki lýst yfir stríði á hendur Bandaríkjunum 11. desember 1941, fjórum dögum eftir árás Japana á Pearl Har- bor. Það er áhugaverð spurning, því Banda- ríkjamenn voru helteknir af því að berjast við Japana, ekki Þjóðverja.“ Hastings segir að í fyrri bókum sínum hafi hann skrifað um að bandarískir hermenn í Evr- ópu hafi oft ekki skilið hvers vegna þeir voru að berjast við Þjóðverjana. „Hitler hafði, að ég tel, pólitískt ekki val um annað en að styðja Japani og lýsa yfir stríði, en það var brjáluð ákvörðun, því hefði hann ekki gert það hefði Roosevelt lík- lega lent í vandræðum með að fá samþykki fyr- ir stríðsyfirlýsingu í gegnum Bandaríkjaþing.“ Sér samlíkingu við árið 1914 – Hvað geta kynslóðir 21. aldar lært af heimsstyrjöldinni? „Ég held að það sé helst að vera hrædd. Allar stórstyrjaldir í heimi nú- tímans munu líklega verða enn verri en sú frá 1939-1945 vegna tilvistar kjarnorkuvopna.“ Hastings segir að leiðtogar dagsins í dag þurfi að sýna bæði þolinmæði og hugrekki við ákvarðanatöku. „Ég er að skrifa bók um Kúbu- deiluna og á þeim tíma voru allir mjög meðvit- aðir alla daga um hættuna af heimsendi. Nú tala allir um loftslagsbreytingar og hryðju- verkavá, en láta eins og kjarnorkuvopn séu ekki lengur til.“ Hastings segist sjá meiri samlíkingu milli ástandsins í dag og ársins 1914, þegar fyrri heimsstyrjöld braust út, en 1939. „Ekki af því að ég telji að heimsstyrjöld sé óumflýjanleg, heldur af því að ég tel raunverulega hættu á að hún gæti hafist vegna þess að einhver misreikni sig.“ Hastings nefnir þar Kínverja og Rússa, þar sem Kínverjar gætu til dæmis talið að með nýrri eldflaugatækni gætu þeir hertekið Taívan án þess að Bandaríkin gætu komið í veg fyrir það, sem væri sama niðurstaða og hershöfð- ingjar Þýskalands komust að varðandi Belgíu árið 1914. „Alveg eins og Pútín er fífldjarfur ævintýramaður sem gæti misreiknað sig.“ „En stóra lexían af öllum þessum styrjöldum er að við verðum að vera hrædd. Ég meina ekki að við eigum að skjálfa á beinunum alla daga, heldur á óttinn að vera hluti af varfærni. Við þurfum að vera meðvituð um hvaða skelfilegu afleiðingar sumar ákvarðanir leiðtoga okkar geta haft. Það er því mjög ógnvænlegt að sjá menn eins og Xi Jinping eða Pútín gera hluti sem augljóslega gætu endað í hörmungum,“ segir Hastings að lokum. Horft á mannlega þætti stríðsins - Max Hastings ræðir um bók sína um seinni heimsstyrjöld sem nýlega kom út í íslenskri þýðingu - Reyndi að sýna stríðið frá fleiri sjónarhornum - Fórnir Rússa hafa verið vanmetnar í vestri Ljósmynd/Wikipedia Hryllingur stríðsins Rússnesk fjölskylda horfir á rústir heimilis síns í seinna stríði. Max Hastings Samskipti Íslands og Kína í áranna rás, samstarfsmöguleikar ríkjanna á ýmsum sviðum, loftslagsmál og mik- ilvægi alþjóðasamstarfs voru helstu umræðuefnin á fjarfundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkis- og þróunarsam- vinnuráðherra, með Wang Yi, utan- ríkisráðherra Kína, í gær. Um þessar mundir eru liðin 50 ár síðan löndin tóku upp formlegt stjórnmálasamband. Á fundi þeirra Þórdísar Kol- brúnar og Wang ræddu þau sam- skipti Íslands og Kína, þar með talið vaxandi tengsl ríkjanna síðastliðin ár í gegnum viðskipti og samvinnu á ýmsum sviðum, sem og tækifæri til áframhaldandi samstarfs, sér- staklega á sviði umhverfismála og endurnýjanlegrar orku. Ráðherrarnir ræddu einnig mögu- leika á beinu flugi milli landanna þegar aðstæður skapast til þess á ný. Um 100 þúsund kínverskir ferða- menn komu árlega til Íslands fyrir kórónuveirufaraldurinn. Mikilvægi alþjóðasamstarfs, innleiðing heims- markmiða Sameinuðu þjóðanna og virðing fyrir mannréttindum voru einnig til umfjöllunar. Þórdís Kolbrún segir ýmis tæki- færi liggja í aukinni samvinnu milli ríkjanna, ekki síst á sviði loftslags- aðgerða og endurnýjanlegrar orku. Ræddu samskipti ríkjanna - Utanríkisráðherrar Íslands og Kína á fjarfundi í gær Símafundur Utanríkisráðherrar Íslands og Kína á fundi í gær, þau Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Wang Yi, með fánana í bakgrunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.