Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 22

Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Líklega hefur byggðasögu hvergi hér á landi verið sýnd jafn mikil ræktarsemi og í Skagafirði. Hafa þó víða um land mikil verk verið samin og gefin út á þessu sviði. Vitnis- burður um sérstöðu Skagfirðinga er ritröðin Byggðasaga Skagafjarðar sem nú á dögunum fyllti tíunda bind- ið sem er það síðasta. Útgefandinn, Sögufélag Skagfirðinga, er enginn nýgræðingur. Þetta elsta héraðs- sögufélag landsins hefur gefið út hartnær 100 rit um sögu Skagafjarðar, m.a. Skagfirskar æviskrár í 18 bindum og Skagfirð- ingabók sem orðin er sjö þúsund blaðsíður í 40 bindum. Stöndum á gömlum merg „Við stöndum á gömlum merg,“ segir Hjalti Pálsson, ritstjóri verks- ins, þegar hann er beðinn að skýra þessi miklu afköst og þennan mikla áhuga á sögu í héraðinu. Hann segir að löngu áður en Sögufélagið var stofnað 1937 hafi afkastamiklir fræðimenn fyrri hluta 19. aldar eins og Jón Espólín sýslumaður og Gísli Konráðsson sagnaritari plægt jarð- veginn, safnað efni, skráð og gefið út. Í kringum Espólín hafi orðið til nokkurs konar akademía í Skaga- firði. Svo mikill var áhugi sýslu- mannsins á sagnaritun að hann mátti eiginlega ekki vera að því að elta snærisþjófa og aðra smábrotamenn eins og starfsfélagar hans í öðrum sýslum vörðu ómældum tíma í. Arfur Espólíns og lærisveina hans hefur síðan verið dyggilega ávaxtað- ur í Skagafirði. Nefna má að á ár- unum 1949 til 1958 gaf Sögufélagið út ritverkið Jarða- og búendatal í Skagafirði 1781-1958. Þetta var brautryðjandaverk og einstakt í sinni röð. Enn hefur ekki verið gefið út í heilli sýslu ábúendatal sem nær svo langt aftur, en tímasetningin var miðuð við elstu manntalsbækur úr Skagafirði og verður ekki aftar kom- ist með samfellt ábúendatal. Hjalti segist hafa starfað við byggðasöguna í rúman aldarfjórð- ung, en áður var hann héraðs- skjalavörður Skagfirðinga. „Ég hóf störf 1. október 1995 og formálann að lokabindinu, 10. bindinu, skrifaði ég 1. október á þessu ári,“ segir hann. Hjalti er orðinn 74 ára gamall en hefur ekki í hyggju að setjast í helgan stein á þessum tímamótum. Hann langar til að vinna að fleiri verkum, koma áfram út Skagfirð- ingabók og kannski semja eitthvað sjálfur. Þarf að höfða til stórs hóps Hjalti segist snemma hafa gert sér grein fyrir því byggðasagan yrði að vera fjölbreytt að efni og höfða til stórs hóps. Þótt uppistaðan sé jarða- lýsingar, sem þurfa að vera þurrar og nákvæmar, fylgir öllum bindum byggðasögunnar fjölbreytt efni um mannlíf og menningu í héraðinu í tímans rás. Þar er að finna þjóðsögur og sagnir sem tengjast jörðunum og fólkinu sem þar hefur búið, drauga- sögur jafnvel, frásagnir af álaga- blettum og fornminjum, vísur og fleira smælki af slíku tagi. „Sagnfræði má ekki vera leiðin- leg,“ segir Hjalti og segir að frá upp- hafi hafi áherslan verið á að gera byggðasöguna í senn skemmtilega og hagnýta án þess að slá af kröfum um nákvæmni og fræðileg vinnu- brögð. Það eru ekki aðeins bændur, búa- lið og almennir lesendur í Skagafirði sem gagn hafa af byggðasögunni. Hún er handbók fyrir fjölmarga að- ila. Kemur ferðaþjónustunni t.d. vel og nýtist leiðsögumönnum sem fara um héraðið með ferðamenn. Hún nýtist einnig skipulagsyfirvöldum og sveitarstjórnum til að fá yfirsýn um héraðið og auðveldar skipulags- vinnu. Og byggðasöguna er líka að finna á skrifstofum allra fasteigna- sala í Skagafirði. Þeir þurfa að geta svarað fljótt og vel þegar spurt er um stærðir jarða, mannvirki, hlunn- indi og sögu. Þeir sem leita uppi gamlar húsa- tóttir og eyðibýli hafa líka mikið gagn af ritinu, því þar er að finna GPS-staðsetningartákn allra þekktra jarða sem eru aflagðar, um 400 fornbýla. Öflugur fjárhagsstuðningur Þótt Sögufélagið sé hinn formlegi útgefandi byggðasögunnar hefði þetta mikla verk verið óhugsandi án fjárhagslegs stuðnings öflugra aðila í Skagafirði. Að lokabindinu standa auk félagsins Akrahreppur, Bún- aðarsamband Skagfirðinga, Kaup- félag Skagfirðinga og Sveitarfélagið Skagafjörður. Nokkur fyrirtæki önnur og sjóðir hafa ennfremur veitt styrki. Auk Hjalta hefur allan tím- ann verið stöðugildi aðstoðarmanns við verkið og hafa þeir verið nokkrir sem þeim starfa hafa sinnt. Við 10. bindið störfuðu með honum Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson. Í lokabindinu er á tæplega fjögur hundruð síðum fjallað um Hofsós, Grafarós, Haga- nesvík, Drangey og Málmey. Sagt er frá jörðum þar, mannlífi, verslun og atvinnuháttum. Ljósmyndir eru rúmlega 420 auk korta og teikninga. Mannanafnaskrá fyrir öll tíu bindin er í vinnslu og verður hún gerð að- gengileg á heimasíðu Sögufélags Skagafjarðar á netinu í stað þess að prenta hana. Talið er að um 25 þús- und nöfn komi fyrir í bókunum svo skráin myndi fylla vænt bindi, en hagkvæmara þykir að hafa hana á netinu. Ekki numið staðar Í formála 10. bindisins segir Bjarni Maronsson, formaður útgáfu- stjórnarinnar, að með Byggðasögu Skagafjarðar hafi verið ofinn sá þráður á milli fortíðar og nútíðar í Skagafirði sem traustur muni reyn- ast þeim sem vit og vilja hafi til að nýta sér fróðleik og reynslu kynslóð- anna til að mæta viðfangsefnum líð- andi stundar. Og Bjarni gefur fyrirheit um að ekki verði látið staðar numið hér. „En þótt merkum áfanga sé náð nemur tíminn ekki staðar. Það er verðugt viðfangsefni og skylda núlif- andi og næstu kynslóða að skrá og varðveita atburði og sögu Skaga- fjarðar áfram og byggja svo ofan á þann grunn sem Byggðasaga Skaga- fjarðar og Saga Sauðárkróks eru Skagfirðingum,“ segir hann. Sagan má ekki vera leiðinleg - Tíunda bindið af Byggðasögu Skagafjarðar komið út - Yfirgripsmikið verk um allar bújarðir í héraðinu - Þjóðsögur og skemmtisögur í bland við jarðalýsingar - GPS-hnit allra eyðibýla fylgja Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson Ritstjórinn Hjalti Pálsson með handritið áður en það fór í prentun. Byggðasaga Skagafjarðar X. bindi. Fróðleikurinn í Byggðasögu Skagafjarðar er gjarnan kryddaður með margs konar smælki, þar á meðal gömlum og nýjum þjóðsögum og sögnum sem tengjast byggðunum. Í lokabindinu er þessa sögu að finna: „Sigursteinn Friðberg Guðlaugsson fluttist til Hofsóss á sjöunda áratug 20. aldar og gerðist verkamaður þar. Óhætt er að segja að á stundum hafi verið róstusamt í kringum manninn og fór hann að vinna í frystihúsinu á Hofsósi. Það gekk ekki allaf snurðulaust en verkstjóri var Þórður Kristjánsson. Þannig hagaði til að verkstjórakompa Þórðar var í einu horni vinnslusalarins svo að hann gat þaðan haft yfirsýn á vettvang gegnum glerrúður. Að því rak að upp rann síðasti vinnudagur Sigursteins Friðbergs í frystihúsinu. Hann kom inn í verkstjórakomp- una og áttu þeir Þórður orðaskipti sem lauk með því að verkstjóri taldi mælinn orðinn fullan, rak verkamanninn og sagði að hann skyldi aldrei koma þangað aftur. Sigursteinn varð ævareiður, æddi út úr kompunni og skildi eftir opnar dyrnar. Fólk í vinnslusalnum varð vitni að því þeg- ar Sigursteinn snerist skyndilega á hæli, aftur inn til Þórðar, barði hnefanum ofan í skrifborðið og æpti: „Ég skal hefna mín á þér þegar ég er dauður.“ Síðan liðu ár. Sigursteinn bjó á Hofsósi til æviloka og andaðist 20. október 1988, 74 ára gamall. Staðreynd er að næsta dag, 21. október, lést Þórður Kristjánsson, 62 ára að aldri.“ Undarleg tilviljun eða hvað? ÚR BYGGÐASÖGU SKAGAFJARÐAR Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 www.spennandi-fashion.is Opið: 23.des: 11-18 24.-27. des: Lokað GLEÐILEG JÓL KÆRU VIÐSKIPTAVINIR!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.