Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.12.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Þorláksmessa opið 11-20, Aðfangadagur 10-13. * Undirföt * Náttföt * Náttkjólar jólagjafir Glæsilegar Þú pantar og sækir vöruna í verslun, fallega innpakkaða og tilbúna undir jólatréð. Vefverslun selena.is * Sloppar * Gjafabréf Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umhverfisráðuneytið leggur áherslu á það í úrskurði að óheim- ilt sé að hindra för manna um fornar þjóðleiðir. Það eigi ekki einungis við um umferð gangandi fólks heldur ekki síður ríðandi umferð enda hafi þjóðleiðir ekki síst verið nýttar fyrir fólk ríðandi á hestum. Vakin er athygli á því ákvæði náttúruverndarlaga að hafa skuli hlið þegar girða þurfi yfir forna þjóðleið eða skipulagða göngu-, hjólreiða- og reiðstíga. Hestamenn í Kjós, Mosfellsbæ og Reykjavík hafa lengið unnið að því að opna gömlu þjóðleiðina meðfram Esjuhlíðum á Kjalarnesi, gamla Kjalnesingaveginn. Var þetta alfaraleið og notuð sem reið- leið fram yfir 1970. Einn landeigandi á móti Leiðin var opnuð aftur með við- höfn á höfuðdaginn 29. ágúst 2019. Það var gert með samþykki flestra landeigenda við þjóðleiðina og í samráði við Reykjavíkurborg sem fer með skipulagsmálin á Kjalarnesi. Einn af fimm eig- endum Króks, meirihlutaeigandi jarðarinnar, var þó andsnúinn málinu og girti land sitt með vold- ugri girðingu, án hliðs, í stað þeirrar gömlu sem var að mestu fallin. Verða hestamenn því að taka á sig krók og ríða meðfram Vesturlandsvegi þennan spöl. Mikil umferð og hröð er um Vesturlandsveg og þykir hesta- mönnum það öryggismál að losna þaðan og fá að nota gamla reiðveg- inn aftur. Svo háttar raunar til nú að verið er að tvöfalda Vestur- landsveg og leiðin sem hestamenn hafa notað fer undir þá fram- kvæmd. Gert að taka nýja ákvörðun Vegna hindrunarinnar á landi Króks sendi Óðinn Elísson, formað- ur hestamannafélagsins Adams í Kjós, kæru til Umhverfisstofnunar í nóvember á síðasta ári og krafð- ist þess að því yrði beint til meiri- hlutaeiganda jarðarinnar að hann myndi setja hlið á girðinguna. Var krafan meðal annars rökstudd með því að náttúruverndarlög tryggðu hestamönnum umferðarrétt eftir reiðveginum. Umhverfisstofnun hafnaði kröf- unni. Byggði afstöðu sína meðal annars á upplýsingum sem fram komu í umsögn byggingarfulltrú- ans í Reykjavík um að ekki væri til deiliskipulag fyrir svæðið og því væri þetta ófrágengið skipulags- mál. Einnig að óvissa væri um stað- setningu hinnar fornu þjóðleiðar. Umhverfisráðuneytið felldi ákvörðun Umhverfisstofnunar úr gildi með nýlegum úrskurði og lagði fyrir stofnunina að taka mál Óðins að nýju til efnismeðferðar. Vísaði ráðuneytið til ákvæða nátt- úruverndarlaga um að óheimilt sé að hindra för fólks um fornar þjóð- leiðir, eins og fram kemur hér í upphafi, og setja eigi hlið ef nauð- synlegt reynist að girða yfir slíkar leiðir. Taldi ráðuneytið að skort hefði á það í úrskurði Umhverfis- stofnunar að meta hvort um forna þjóðleið væri að ræða og ef svo væri, hvort umrædd girðing fæli í sér ólögmæta hindrun. Gæti haft þýðingu víðar Sigurbjörn Magnússon, lögmað- ur Óðins, segir um framhald máls- ins að nú þurfi Umhverfisstofnun að staðsetja leiðina. Það ætti að vera auðvelt enda viðurkennt að þarna liggi forn þjóðleið. Þá sé ekki annað að gera en að fallast á kröfu Óðins um að landeigand- anum verði gert að setja hlið á girðinguna og opna leiðina um land sitt. Sigurbjörn telur að í ljósi þess að nú liggi fyrir túlkun umhverf- isráðuneytisins á ákvæðum nátt- úruverndarlaga um frjálsa för fólks um fornar þjóðleiðir geti niðurstaða þessa máls haft þýð- ingu víðar. Að minnsta kosti sé ástæða til að binda vonir við að svo verði. Kjalnesingavegur verði opnaður - Umhverfisráðuneytið telur óheimilt að hindra för manna um fornar þjóðleiðir - Sett verði hlið þegar girða þarf fyrir - Ákvörðun Umhverfisstofnunar um krókinn hjá Króki á Kjalarnesi ógilt Þjóðleið í Esjuhlíðum Hættusvæði við Krók Arnarhamar Rétt Esjuhof Krókur E S J A K J A L A R N E S Núv. reiðleið Núv. reiðleið - hættuleg svæði Jarðarmörk Núv. þjóðleið Áning Breikkun Vesturlandsvegar og nýr aðkomuvegur. skv. deiliekipulagi Jarðamörk Breikkun Vesturlands egarNúv. reiðleið Núv. þjóðleið Núv. reiðleið, hættusvæði Áning Vestu rland svegu r Morgunblaðið/Ernir Útreiðartúr Fornar þjóðleiðir eru mikið notaðar af hestamönnum enda eru þær margar markaðar af hófum hesta í gegnum aldirnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.