Morgunblaðið - 23.12.2021, Síða 35
FRÉTTIR 35Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
Í KVÖLD
Í BEINNI FRÁ ELDBORG HÖRPU KLUKKAN 22
SKANNAÐU KÓÐANN
WWW.BUBBI.IS
VELDU ÞÍNA LEIÐ TIL AÐ HORFA!
Óttar Snær Yngvason, BS-nemi á
þriðja ári í rafmagns- og tölvuverk-
fræði við rafmagns- og tölvuverk-
fræðideild Háskóla Íslands, hefur
hlotið styrk úr Minningarsjóði Þor-
valds Finnbogasonar stúdents. Frú
Vigdís Finnbogadóttir, systir Þor-
valds, afhenti styrkinn.
Sjóðurinn styrkir árlega efnilega
nema í verkfræði við Háskóla Ís-
lands til framhaldsnáms. Sá nem-
andi sem er með hæstu meðal-
einkunn eftir annað ár í grunnnámi
hlýtur styrkinn hverju sinni.
Óttar Snær lauk stúdentsprófi
frá MR árið 2019 og hóf nám við HÍ
sama ár.
Minningarsjóður Þorvalds Finn-
bogasonar var stofnaður af for-
eldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur
og Finnboga Rúti Þorvaldssyni, fv.
forseta verkfræðideildar HÍ, árið
1952, Árlega er veitt viðurkenning
úr sjóðnum til afburðanemanda í
verkfræði við Háskóla Íslands.
Styrktur af
minninga-
sjóði í HÍ
- Veitt úr minning-
arsjóði Þorvalds
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Viðurkenning Óttar Snær Ingvason
ásamt Vigdísi Finnbogadóttur.
Samfélagsstyrkjum að upphæð 15
milljónum króna hefur verið út-
hlutað úr Samfélagssjóði Lands-
bankans. Alls hlutu 32 verkefni
styrki að þessu sinni. Verkefnin
sem hlutu styrki eru fjölbreytt og
gagnast fólki á öllum aldri, víða um
land, segir í tilkynningu bankans.
Þrjú verkefni hlutu styrk að fjár-
hæð 1 milljón króna, tvö verkefni
hlutu 750.000 króna styrk, 15 verk-
efni fengu 500 þusund kr. hvert og
12 verkefni fengu 250.000 króna
styrk.
Rúmlega 300 umsóknir bárust
sjóðnum að þessu sinni. Samfélags-
styrkjum Landsbankans er ætlað að
styðja mannúðar- og líknarmál,
menntamál, rannsóknir og vísindi,
forvarna- og æskulýðsstarf, um-
hverfismál og verkefni á sviði
menningar og lista.
Dómnefnd samfélagsstyrkja var
skipuð þeim Ármanni Jakobssyni,
prófessor við Háskóla Íslands, Felix
Bergssyni leikara og Guðrúnu Agn-
arsdóttur lækni, en hún var
jafnframt formaður dómnefndar.
Hæstu styrkina, 1 milljón, fengu
List án landamæra, Björk Vilhelms-
dóttir og Birna Hallsdóttir.
Meðal annarra styrkþega má
nefna LungA, listahátíð ungs fólks,
Ásthildi Jónsdóttur, Chanel Björk
Sturludóttur, Elísabetu Ósk Vigfús-
dóttur, Ofbeldisforvarnaskólann,
Rósu Ómarsdóttur, Auði Þórhalls-
dóttur, Fæðingarheimili Reykjavík-
ur, Mnntunarsjóðs Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur, Stígamót,
Sorgarmiðstöð, Hjálparstarf kirkj-
unnar og Jón Gnarr.
15 milljónir í samfélagsstyrki
- Landsbankinn styrkir 32 verkefni úr samfélagssjóði
Skjámynd/Landsbankinn
Samfélagsstyrkir Úthlutun styrkja úr Samfélagssjóði Landsbankans fór
fram á netinu, en alls voru 32 verkefni styrkt. Sökum sóttvarnaráðstafana
þótti ekki ráðlegt að kalla styrkþega til fundar í bankanum.
Þótt engin sé kirkjan verður helgi-
hald í Grímsey um jólin, rétt eins og
í öðrum byggðum landsins. Messa
verður á 4. degi jóla, hinn 28. des-
ember, í félagsheimilinu Múla, sem
nú nýtist sem guðshús í stað Mið-
garðakirkju sem brann til kaldra
kola í september síðastliðnum.
Prestar Dalvíkurprestakalls, þeir
sr. Magnús G. Gunnarsson og sr.
Oddur Bjarni Þorkelsson, koma þá
út í eyju með flugvél, sem hefur um
tveggja stunda viðdvöl á flugvell-
inum. Á meðan verður messað og á
eftir er kaffisamsæti.
„Messuna má ekki vanta,“ segir
Alfreð Garðarsson, formaður sókn-
arnefndar. Um 30 manns verða í
Grímsey nú um jólin, en eitthvað er
um að eyjarfólk sé á fastalandinu
yfir hátíðir og dvelji hjá fjöl-
skyldum sínum þar.
Messa í Múla
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grímsey Þorpið á heimskautsbaugnum.