Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 40
40 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
Skiltagerð og merkingar
Inni og úti merkingar, spjöld og skilti. Kíktu á
heimasíðuna okkar og skoðaðu þjónustuna
sem er í boði.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|xprent@xprent.is
SANDBLÁSTURSFILMUR
BÍLAMERKINGAR
SKILTAGERÐ
KYNNINGARSVÆÐI
www.xprent.is
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
S. 555 3100 · donna.is
Honeywell
gæða lofthreinsitæki
Góð jólagjöf
Verð kr.
39.420
handapabba ogmömmu
og afa og ömmu
Flokkarnir þrír
sem mynda
heimastjórnina í
Færeyjum, Sam-
bandsflokkurinn,
Fólkaflokkurinn
og Miðflokk-
urinn, ætla að
funda um fram-
hald stjórnarsam-
starfsins eftir jól,
en það er nú í
uppnámi vegna óvæntra vendinga
sem urðu til þess að tvö frumvörp
um aukin réttindi samkynhneigðra
var samþykkt á færeyska Lög-
þinginu.
Miðflokkurinn, sem telst til kristi-
legra demókrataflokka, lagðist
þvert gegn málinu, en frumvörpin
tvö voru samþykkt með 17 atkvæð-
um annars vegar og 18 atkvæðum
hins vegar gegn 13. Segir miðstjórn
flokksins að hinir flokkarnir tveir
hafi brotið stjórnarsáttmálann með
samþykki sínu, en Bárður á Steig
Nielsen, lögmaður Færeyja og leið-
togi Sambandsflokksins, gaf út fyrir
atkvæðagreiðsluna að þingmenn
flokksins gengu óbundnir til hennar,
þar sem honum mislíkaði tilraunir
tveggja ráðherra Fólkaflokksins til
að hafa áhrif á þingmannaskipan
þingsins fyrir atkvæðagreiðsluna.
FÆREYJAR
Líf heimastjórn-
arinnar á bláþræði
Bárður á Steig
Nielsen
Forsvarsmenn McDonald’s ham-
borgarakeðjunnar í Japan til-
kynntu í gær að þeir myndu neyð-
ast til þess að skammta franskar
kartöflur til viðskiptavina sinna,
þar sem flóð í Vancouver, þar sem
kartöflurnar eru ræktaðar, auk
þrenginga í birgðakeðjum heimsins
vegna heimsfaraldursins hefði
valdið skorti á frönskum.
Munu viðskiptavinir hamborg-
ararisans einungis fá lítinn skammt
af frönskum með borgurum sínum
fram til föstudagsins í næstu viku.
Sagði fyrirtækið að skömmtunin
myndi einnig ná til jóladags, og að
henni væri ætlað að tryggja að allir
sem vildu gætu enn þá fengið
franskar með matnum sínum.
JAPAN
Skammta fransk-
arnar á McDonald’s
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Stjórnvöld í Frakklandi hófu í gær
bólusetningar á börnum á aldrinum
5-11 ára, en tilfellum kórónuveirunn-
ar hefur fjölgað þar mjög ört á und-
anförnum dögum vegna Ómíkron-af-
brigðisins. Á sama tíma veitti breska
lyfjaeftirlitið heimild fyrir bólusetn-
ingu barna á sama aldri með bóluefni
Pfizer og BioNTech.
Smitum vegna Ómíkron-tilfellis-
ins fjölgar enn ört um allan heim, en
frumniðurstöður rannsóknar í Skot-
landi benda til að afbrigðið hafi væg-
ari einkenni en Delta-afbrigðið.
Sögðu talsmenn rannsóknarinnar þó
að hættan væri sú að margfalt fleiri
myndu smitast af Ómíkron, sem aft-
ur gæti leitt til fleiri dauðsfalla ef
sjúkrahús yrðu yfirfull.
Olivier Veran, heilbrigðisráðherra
Frakka, sagði að tilfellum þar í landi
gæti fjölgað upp í 100.000 manns á
dag um áramótin, en undanfarnar
vikur hefur meðaltalið verið um
54.000 smit á dag. „Það er eitt víst.
Ómíkron er mjög smitandi, það mun
dreifa sér, og engu ríki verður hlíft
við því,“ sagði Veran.
Í Bretlandi greindust 106.122 til-
felli á undanförnum sólarhring í gær,
og hafa þau aldrei verið fleiri. Bresk
stjórnvöld, sem ákváðu að grípa ekki
til samkomutakmarkanna fyrir jólin,
lýstu því yfir í gær að þau hygðust
festa kaup á 4,25 milljónum
skammta af kórónuveirulyfjunum
ritonavir og molnupiravir, sem veitt
hafa von um að hægt verði að sinna
sjúklingum í auknu mæli heima fyr-
ir. Þá ætla Bretar um leið stytta ein-
angrunartíma fólks úr tíu dögum
niður í sjö daga, ef það reynist nei-
kvætt að þeim tíma liðnum.
Stjórnvöld í Finnlandi hyggjast
sömuleiðis hefja bólusetningu barna
fljótlega, en þau ákváðu í fyrradag
að barir yrðu að loka kl. níu á að-
fangadag til að stemma stigu við
Ómíkron-afbrigðinu.
Skellt í lás vegna 52 smita
Stjórnvöld í Kína ákváðu hins veg-
ar að setja útgöngubann á borgina
Xi’an í norðurhluta landsins, eftir að
52 smit greindust þar í gær. 13 millj-
ónir búa í borginni, og munu þeir frá
og með deginum í dag þurfa að dvelj-
ast heima við, nema til að kaupa
nauðsynjar annan hvern dag, eða í
neyðartilvikum.
Fylgst er grannt með allri umferð
til og frá borginni, og munu allar
verslanir sem ekki bjóða nauðsynja-
vöru þurfa að loka dyrum sínum.
Kínverjar hafa sett stranga reglu
um að útrýma öllum smitum í land-
inu í aðdraganda Vetrarólympíuleik-
anna í Peking, sem eiga að fara fram
í febrúar.
Hefja bólusetningu barna
- Frakkar bólusetja börn frá fimm ára aldri - Bretar og Finnar veita leyfi fyrir
bólusetningum barna - Kínverjar setja útgöngubann vegna 52 tilfella í Xi’an
AFP
Covid Frakkar hafa nú byrjað að
bólusetja börn á aldrinum 5-11 ára.
Björgunarfólk sést hér leita að
fólki eftir að aurskriða féll á jaði-
námu í norðurhluta Búrma, sem
einnig er þekkt sem Mjanmar.
Óttast var að á bilinu 70-100
manns væri saknað eftir aurskrið-
una.
Um tvö hundruð manns tóku
þátt í leitinni, og notuðu sumir
báta til þess að leita að líkum í
nærliggjandi stöðuvatni.
Staðfest var að einn maður
hefði fundist látinn, og 25 aðrir
voru sendir á sjúkrahús vegna
áverka sinna. Aurskriðan átti sér
stað um fjögurleytið um nóttina
að staðartíma.
Fjöldi fólks ferst á hverju ári í
Búrma í námavinnslu, en landið
treystir mjög á innflutt vinnuafl
til að grafa eftir jaði.
Umfangsmikil leit að eftirlifendum í jaðinámu í norðurhluta Búrma
Fjölda sakn-
að eftir aur-
skriðu
AFP
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER
NÆSTA
VERKSTÆÐI?