Morgunblaðið - 23.12.2021, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021
Þeir eru til
sem horfa
bláeygir til
Brussel, en fer þó
fækkandi. Mikil
umskipti urðu þeg-
ar að Bretum tókst
með harðfylgi að tryggja
ákvörðun þjóðarinnar um út-
göngu. Sterk öfl gerðu allt sem
þau máttu og einnig það sem
þau máttu ekki til að eyðileggja
málið. Í þeim hópi voru þeir sem
urðu undir með ákvörðun þjóð-
arinnar. Þetta skynjaði hún og
sópaði svikahröppum úr hópi
þingheims út þegar tækifæri
gafst í óvæntum kosningum. Í
framhaldinu vöknuðu spurn-
ingar um hvort aðrar þjóðir
hugsuðu sér til hreyfings eða
yrðu skelkaðar þegar að
Breska, fyrrum heimsveldið,
slapp út við illan leik.
Margir gefa sér að brottför
Bretlands festi aðildarlöndin
sem eftir eru enn fastar í ólum
búrókrata í Brussel. Rökin eru
meðal annars þau, fyrst að
næstum tækist að eyðileggja
niðurstöðu þjóðaratkvæðis
Breta myndu aðrir ekki hafa afl.
Oft var á það bent að Bretar
hefðu ekki náð að sleppa úr
sambandinu hefði Tony Blair
tekist að kasta pundinu og
ganga undir ok evrunnar. Hvað
sem mönnum þykir um Gordon
Brown eftir ódrengilega fram-
göngu í fjármálakreppunni, þá
geta Bretar þakkað honum fyrir
að þumbast gegn tilraunum
Blairs í gjaldmiðilsmálum. Ekki
er ólíklegt að myntin geri litlum
og miðlungsstórum ríkjum sem
lítil áhrif hafa í ESB erfitt að
gæla í átt til fullveldis á ný. Og
eins er bent að á meðan Bretar
voru innan veggja höfðu slík
ríki styrk af þeim og voru því
skár haldin og gátu frekar stað-
ið gegn eða hægt á að týnast í
ofurríki sem stjórnað var í stóru
og smáu af liði sem enginn kaus.
Tíminn hefur tekið, svo sem
ætla mátti, að leiða hægt og bít-
andi fram svör við spurningum
sem vöknuðu við útgöngu
Breta. Allar hrakspár um óhjá-
kvæmilegt hrun Breta reyndust
óskhyggjan ein. Umboðslausu
valdakíkurnar í Brussel sussa á
ríkjasmælkið og einbeita sér að
því að gera ráðandi þjóðunum
þremur til hæfis. Dugi það ekki
er stóri boli sóttur í hundahúsið.
Evrópudómstóllinn er enginn
venjulegur dómstóll. Honum
eru sett markmið sem stangast
þvert á markmið þjóðanna á
þeim tíma sem þær seldu sig
undir sambandið, þegar látið
var að lítil eða engin breyting
yrði síðar í megin efnum. Það er
hins vegar enginn meining-
armunur hjá þeim andlitslausu í
Brussel og Evrópudómstólnum
í Lúxemborg. Þeir bera mikla
virðingu fyrir og skilja ríkulega
þörf fyrir fullveldi.
Þessi skilningur
var augljós af orð-
um Ursulu von der
Leyen er hún lagði
þunga áherslu á að
að styrkja yrði full-
veldi ESB. Í árdögum þess var
talað um samband fullvalda
þjóða. Á það hefur saxast og
bregður því engum í álfunni
þegar umboðslaus embætt-
ismaður talar þannig. Og ekki
er Evrópudómstóllinn í vafa um
að „fullveldið“ sem von der
Leyen talar um sé það eina sem
nær máli.
Pólland er fjölmennt land, og
landrými lítið minna en hjá
grannanum í vestri. Iðulega
hafa beinst ónot að Ungverja-
landi og „fullveldisbrölti“
þeirra. Þeir þar telja sig hafa
umboð þjóðar sinnar til að ráða
því sjálf hversu marga flótta-
menn þeir hýsa. En því segist
Brussel ráða. En nú hefur stóra
bola verið sigað á Pólland fyrir
að halda því fram að pólsk
stjórnarskrá bindi þá þjóð og þá
auðvitað yfirvöld þar. Stjórn-
arskráin geti ekki vikið fyrir
ESB-reglum. Von der Leyen
gerir ekkert með það. Gangi
sjálfsafgreiðsla dómstólsins eft-
ir, sem jafnan má gera ráð fyrir,
verða þungir skuldabaggar
hengdir um herðar Pólverja.
Kannanir sýna að meirihluti
Pólverja er enn fylgjandi aðild
að ESB. Valdsmenn í Brussel
veðja á það af miklu öryggi að
fjárhagur Póllands geri þeim
ekki kleift að standast þvinga-
nir af stærri gerðinni. Bruss-
elvaldið segist hafa „alvarlegar
áhyggjur af ákvörðunum
stjórnlagadómstóls Póllands og
geti ekki annað en efast um
sjálfstæði hans! Svona tala að-
eins þeir sem hafa mjög sér-
kennilega kímnigáfu, ekki síst
þegar horft er til þess að hinum
megin er hinn „sjálfstæði“ Evr-
ópudómstóll sem hefur bein fyr-
irmæli í sínum reglum um til
hvaða megin sjónarmiða hann
megi og skuli horfa.
Framkvæmdastjórn ESB
hefur þegar tekið af allan vafa
um að „sambandið muni nota
sitt ýtrasta vald til að tryggja
það meginlögmál að lög ESB
séu æðri lögum einstakra sam-
bandsríkja, enda sé sjálfur
grundvöllur sambandsins reist-
ur á því. Og sjálfsagt til þess að
skapa þægilegt andrúmsloft
hefur framkvæmdastjórnin „nú
ákveðið að greiða ekki út þá 48
milljarða evra úr bótasjóði sem
merktir eru Póllandi til upp-
byggingar eftir kórónuveiruá-
fallið, fyrr en greitt er úr fyrr-
nefndum ágreiningi.“ Sá litríki
hópur, sem beitt hefur fjár-
kúgun í smáu og stóru í gegnum
aldirnar, hefði ekki orðað þetta
mikið betur.
Fyrst kúga þeir Pól-
land. Svo Ungverja-
land. Fram nú allir í
röð}
Þeir munu til sem
ekki læra af þessu
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
U
pp er runnin stund ljóss og
friðar þar sem ástvinir koma
saman og njóta samvista yfir
jólin um heim allan. Þó svo að
þessi jól, líkt og þau síðustu,
litist af heimsfaraldri er ekkert því til fyr-
irstöðu að halda gleðileg jól og líta björtum
augum til framtíðar. Á árinu sem senn fer
að líða hefur Íslendingum tekist vel til að
lifa með veirunni og spyrna við fótum. Þann-
ig hefur til dæmis okkar frábæra skólafólki
farnast vel í að halda skólum opnum í sam-
félaginu, sviðlistir og önnur menning hefur
þrifist með ágætum, afkoma ríkisjóðs var
mun betri en búist var við, atvinnuleysi hef-
ur minnkað mikið og ferðaþjónustan hefur
tekið við sér miðað við fyrra ár.
Erlendir gestir líta enn hýru auga til Ís-
lands sem áfangastaðar en eins og sakir standa eru
ekki merki um að verið sé að fella niður flug frá því
sem plön gerðu ráð fyrir áður en þessi uppsveifla í far-
aldrinum byrjaði, þó svo að afbókanir í vélunum hafi
aukist. Útlit er fyrir að talsvert verði að gera um þessi
jól og áramót í móttöku erlendra ferðamanna. 46%
nýting er á hótelum á höfuðborgarsvæðinu miðað við
bókunarstöðu. Á sama tíma í fyrra var bókunarstaðan
3%. Talsverðar bókanir eru líka hjá afþreyingarfyr-
irtækjum á svæðinu. Þetta er til marks um hversu rík-
ur ferðavilji er fyrir hendi til þess að koma til Íslands
þrátt fyrir uppsveiflu í heimsfaraldrinum.
Þessar jákvæðu vísbendingar og fleiri til
gefa okkur fullt tilefni til þess að líta björt-
um augum til framtíðar. Við vitum nefni-
lega að faraldurinn mun ekki vara að eilífu,
það mun stytta upp um síðir. Þangað til
munum við halda áfram að styðja ferða-
þjónustuna eins og þurfa þykir. Þannig höf-
um strax hafist handa við að tryggja aukna
fjármuni í kynningu á Íslandi sem áfanga-
stað undir heitinu Saman í sókn sem Ís-
landsstofa heldur utan um og búa þannig í
haginn þegar að fólksflutningar hefjast að
nýju. Einnig hafa stjórnvöld greint frá áfor-
um um að verja milljarði í stuðning við veit-
ingahús. Þetta eru mikilvægar aðgerðir
sem munar um til lengri og skemmri tíma.
Það er engin spurning í huga mér að ferða-
þjónustan, og hennar öfluga fólk, verði
burðarársinn í viðspyrnu þjóðarbúsins. Enda hefur
ferðaþjónustan áður sýnt að hún geti skapað gríð-
arlegar gjaldeyristekjur fyrir landið á nokkuð skömm-
um tíma.
Það eru vonir mínar að allir okkar erlendu gestir
muni eiga gæðastundir hér á landi yfir þessi jól, ekki
síður en við sem hér búum. Ég sendi því öllum hlýjar
jólakveðjur, full tilhlökkunar og bjartsýni á að bók-
unarstaðan verði 100% jólin 2022.
Lilja
Alfreðsdóttir
Pistill
Það styttir upp um síðir
Höfundur er ferðamála-, viðskipta-
og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
B
úist er við því að á næstu
vikum muni vísindamenn
við Walter Reed-
rannsóknarstofnun
Bandaríkjahers (WRAIR) greina frá
nýju bóluefni, sem verji fólk fyrir öll-
um afbrigðum kórónuveirunnar, þar
á meðal Ómíkron-afbrigðinu en einn-
ig þeim afbrigðum, sem enn hafa
ekki komið fram. Það kynni ljóslega
að gerbreyta viðureigninni við veir-
una.
Rannsóknarstofnunin hefur
fengist við þróun bóluefnisins í hart-
nær tvö ár, en hún hófst um leið og
fyrsta raðgreining erfðaefnis veir-
unnar barst snemma árs 2020. Þar á
bæ var snemma ákveðið að vinna að
bóluefni, sem ekki myndi aðeins
duga gegn SARS-CoV-2-veirunni,
sem þá breiddist skjótt út, heldur öll-
um mögulegum afbrigðum hennar
og raunar öðrum kórónuveirum líka.
Bóluefnið, sem kennt er við hina
einkennandi brodda kórónu-
veirunnar og ferritín-nanóagnir
(SpFN), hafði áður gefið góða raun í
músum og öpum.
Fyrsta fasa tilrauna á mönnum
lauk fyrr í þessum mánuði og gafst
bóluefnið vel, bæði gagnvart Ómí-
kron-afbrigðinu og fyrri afbrigðum.
Að sögn dr. Kayvons Modjarrads,
forstjóra smitsjúkdómadeildar
WRAIR, verða lokaniðurstöður
gefnar út á næstu dögum.
Önnur gerð bóluefnis en áður
Bóluefnið er ólíkt fyrri bóluefn-
um að því leyti að það notar prótín,
sem líkist fótbolta með 24 hliðar að
lögun og getur því tengst broddum
allra afbrigða kórónuveirunnar.
Það er líka frábrugðið að því
leyti að það er ódýrt í framleiðslu,
það þarfnast ekki sérstakrar kæl-
ingar og aðeins þarf að bólusetja með
því einu sinni.
Tilraunir með bóluefnið á mönn-
um tóku lengri tíma en ætlað var, því
það þurfti að reyna á fólki, sem
hvorki hafði smitast né fengið bólu-
setningu áður. Góður gangur í bólu-
setningu vestra og mikil útbreiðsla
fyrri afbrigða töfðu það.
Dr. Modjarrad segir bólusetn-
ingu eina svarið. „Með Ómíkron er
veiran orðin óumflýjanleg. Það er
ekki hægt að forðast hana. Svo ég
held að fyrr en síðar verði öll heims-
byggðin annaðhvort bólusett eða
smituð,“ sagði hann í viðtali við De-
fense One, fjölmiðil Bandaríkjahers.
Eftir sem áður þarf bóluefnið að
fara í gegnum tilraunir í fasa 2 og 3
til þess að fá leyfi til notkunar.
Það verður að heita líklegt í ljósi
góðra niðurstaðna til þessa, þarf-
arinnar á heimsvísu og þess að uppi-
staðan ferretín, sem er járnríkt prót-
ín, hefur áður verið notuð í mönnum
án vandræða.
Fá Ómíkron-dauðsöll enn
Fyrsti Ómíkron-sjúklingurinn í
Bandaríkjunum lést í vikunni, en
hann var óbólusettur, hafði áður
veikst af Covid og átti við önnur mein
að stríða. Eftir því sem næst verður
komist á svipað við um flesta þá, sem
látist hafa með Ómíkron-smit til
þessa, 12 í Bretlandi og einn í Ísrael.
Velflestir, sem smitast af þessu
nýjasta bráðsmitandi afbrigði, finna
fyrir vægum ef nokkrum einkennum,
en þeir, sem veikjast svo að þeir
þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda,
eru mun skemur á sjúkrahúsi en
þeir, sem veiktust af Delta-
afbrigðinu. Vegna þess hve
bráðsmitandi Ómíkron er virð-
ist það vera á góðri leið með
að útrýma fyrri afbrigðum,
en í Bandaríkjunum er talið
að 71% nýrra smita sé af völd-
um Ómíkron.
Endalok plágunnar
mögulega í augsýn
Ómíkron-afbrigði kórónuveir-
unnar kom fyrst fram í nóv-
ember en hefur breiðst ákaflega
skjótt út. Í gær greindu Bretar
frá því að smit á dag hefðu í
fyrsta sinn farið yfir 100.000 en
í Danmörku hafa dagleg smit
verið meira en 13.000 tvo daga í
röð. Breskir faraldsfræðingar
létu í gær í ljós varlegar vonir
um að Ómíkron-bylgjan væri
farin að hægja á sér, enda
stærstur hluti þjóðarinnar með
mótefni.
Hvað sem líður smitum hafa
sjúkrahúsinnlagnir hins vegar
ekki aukist í sama mæli; í Bret-
landi jukust þær um 4% frá
fyrri viku en í Danmörku er ein-
um færra á sjúkrahúsi en í vik-
unni á undan. 8.008
Bretar eru nú á
sjúkrahúsi með Cov-
id en þeir voru tæp
40 þúsund í bylgj-
unni síðasta jan-
úar.
Ótrúlega ör
útbreiðsla
ÓMÍKRON-AFBRIGÐIÐ
Ljósmynd/Bandaríkjaher
Bóluefni Vísindamaður við smitsjúkdómadeild rannsóknarstofnunar
Bandaríkjahers (WRAIR) gaumgæfir prótínasýni kórónuveirunnar.