Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 46

Morgunblaðið - 23.12.2021, Page 46
46 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2021 Hinn 24. janúar næstkomandi verða liðnir 24 mánuðir frá því að Kvikmyndaskóli Íslands lagði inn um- sókn til mennta- og menningarmálaráðu- neytisins um háskóla- viðurkenningu á fræða- sviði lista, fyrir fjórar grunnnámsdiplómur. Afgreiðsla slíkrar um- sóknar lýtur einföldum lagaskilyrðum um að skipa skuli dóm- nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að veita umsögn um skólann. Á þess- um tæpu tveimur árum hefur ráðu- neytinu ekki tekist að uppfylla þetta skilyrði. Kvikmyndaskóli Íslands verður 30 ára á næsta ári. Frá árinu 2010 hefur stúdentspróf verið inntökuskilyrði í skólann. Frá árinu 2011 hefur Kvik- myndaskólinn verið í alþjóða- samtökum kvikmyndaháskóla, Cilect, og frá 2015 hafa allar einingar skól- ans verið metnar af Menntamálastofnun sem einingar sem meta má í háskólanámi. Þessi umsókn Kvikmynda- skóla Íslands á því langa forsögu og ætti ekki að hafa komið neinum á óvart. Þrautaganga Þess verður hins veg- ar að geta að það hefur lengst af ekki verið sér- stakt markmið Kvik- myndaskólans að verða sjálfstæður háskóli. Skólinn hefur hins vegar viljað tryggja nemendum rétta viðurkenningu á námi sínu og greiða leið til BA-gráðu. Frá árinu 2010 hefur verið reynt að fá íslenska háskóla til að viðurkenna einingar Kvikmyndaskólans og bjóða upp á viðbótarár til BA-gráðu. Listaháskól- inn hefur aldrei léð máls á neinu sam- starfi þrátt fyrir reglubundnar beiðn- ir. Hugvísindasvið Háskóla Íslands hefur hins vegar alla tíð sýnt málinu áhuga og ítrekað gefið yfirlýsingar um að tengja námið við viðbótarár í kvikmyndafræði sem aukagrein til BA-gráðu. Um margra ára skeið hef- ur verið reynt að koma þessari náms- leið á en alltaf hafa fundist á því fyr- irstöður. Á fundi með rektorum HÍ og KVÍ í janúar árið 2020 kom fram að áfram væri fullur vilji á samstarfi, en þar sem Háskóli Íslands hefði ekki viðurkenningu á fræðasviði lista yrði Kvikmyndaskólinn að öðlast slíka við- urkenningu. Þá yrði hægt að koma skjótt á formlegu sambandi. Í sama mánuði lagði Kvikmyndaskólinn inn umsókn sína og óskaði eftir skipan þriggja manna sérfræðingaráðs til að veita umsögn um skólann. Það sem síðan hefur tekið við verður ekki kall- að öðru nafni en stjórnsýslulegt kaos þar sem allt virðist gert til að afgreiða ekki umsóknina. Stóra samhengið Stjórnvöld hafa sett sér það mark- mið að efla skapandi greinar til að skjóta fleiri stoðum undir efnahags- lífið. Það er skynsamleg stefna, ekki síst vegna þess að við erum nú í miðri risavaxinni iðnbyltingu sem hefur áhrif á flesta kima atvinnulífsins. Sterkar vísbendingar eru um að menntun í hugvísindum og listum sé verðmæt hæfni til að fást við nýja og krefjandi tíma. Algjört lykilatriði til að ná hér ár- angri er að menntakerfið spili með. Menntakerfinu á Íslandi er 100% mið- stýrt af ríkisvaldinu. Enginn skóli eða námsleið getur starfað án formlegrar viðurkenningar frá stjórnvöldum. Þetta leggur mikla ábyrgð á hendur „kerfinu“ um gagnsæi, sveigjanleika og jafnræði. Í dag sinna líklega um 200 ríkisstarfsmenn, þar af tveir ráð- herrar, stjórnsýslu um 80 framhalds- skóla og sjö háskóla í landinu. Ætli stjórnvöld sér að efla skap- andi greinar liggur beint við að efla listnám. Í dag eru yfir 40 listnáms- brautir á framhaldsskólastigi og þeim hefur farið fjölgandi. Á sama tíma hefur listnám á háskólastigi dregist saman síðasta áratug. Það er greini- legur flöskuháls í flæði nemenda í listnámi af framhaldsskólastigi yfir á háskólastig. Með starfrækslu náms- leiðar í kvikmyndagerð í samvinnu KVÍ og HÍ eykst nemendafjöldi í list- námi á háskólastigi um 30% og það án þess að leggja þurfi til aukið fjár- magn. Kerfið er lifandi fólk Ráðlegging mín til nýrra ráðherra menntamála er að gleyma ekki að skólakerfið er fullt af lifandi fólki. Á síðustu 10 árum hafa 500 venjulegir íslenskir stúdentar útskrifast frá Kvikmyndaskóla Íslands. Að ríkið sinni ekki því lögbundna hlutverki að tryggja að nám þeirra sé rétt metið er lítilsvirðing við líf og framtíðar- áform þessara nemenda. Það er líka óskynsamlegt gagnvart hagsmunum samfélagsins. Sýnið nú að þið ráðið við kerfið. Að þykjast ekki ráða við kerfið Eftir Böðvar Bjarka Pétursson Böðvar Bjarki Pétursson » Það er greinilegur flöskuháls í flæði nemenda í listnámi af framhaldsskólastigi yfir á háskólastig. Höfundur er formaður stjórnar Kvik- myndaskóla Íslands. Forstjóri Lands- virkjunar, Hörður Arn- arson, ritar grein í Morgunblaðið 21.12. 2021 með fyrirsöginni „Raunsæ mynd af orkuþörf“. Fullyrðing forstjór- ans um „að staðan í vatnsbúskap Lands- virkjunar er þröng um þessar mundir vegna lítils innrennslis til miðlunarlóna“ er mikilvæg og réttlætir nánari skoðun. Þess vegna er við hæfi að varpa fram nokkrum athugasemdum við grein- ina þó ekki væri nema til hátíða- brigða. Það er mikilvægt að skilja alvöru málsins sem fyrst til að geta und- irbúið ráðstafanir og komið í veg fyrir vatnsþurrð næsta vor. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Miðlunarlón Landsvirkjunar Í meðfylgjandi töflu eru sýndar upplýsingar um miðlunarlón Lands- virkjunar, stærð þeirra í gígalítrum (GL) og í gígavattstundum (GWh). Hlutverk langtíma- miðlana er að geyma vatn milli árstíða en skammtímamiðlanir eru nauðsynlegar til að geta hagrætt rekstri vatnsaflsvirkj- ana frá klukkutíma til klukkutíma og frá degi til dags. Stærstu miðlanirnar eru Hálslón og Þórisvatn. Hálslón er langtímamiðlun og jafn- framt inntakslón Kárahnjúkavirkj- unar. Langstærsti hluti innrennslis kemur undan Brúarjökli í austur- hluta Vatnajökuls. Lónið stendur á gömlum berggrunni og hefur þést í botni af ærnum jökulframburði frá því söfnun á vatni í lónið hófst í sept- ember 2006. Leki er því óverulegur. Þórisvatn er einnig langtíma- miðlun sem fæðir sex stórvirkjanir í Tungnaá og neðri Þjórsá af miðluðu vatni þegar ómiðlað rennsli hefur ekki undan. Lónið liggur á hraun- asvæði, er lekt og með bakkageymslu sem lekur í við hástöðu lónsins og til baka við lágstöðu. Innrennsli miðlunarlóna Utanaðkomandi aðili þarf að geta sér til um innrennsli vatnsmiðlana út frá miðlunarstöðu. Einungis starfs- menn Landsvirkjunar hafa mögu- leika á að fá upplýsingar innan frá, en þeir hafa beinan aðgang að rennslismælingum. Ekki hef ég tekið eftir litlu inn- rennsli upp á síðkastið til annarra vatnsmiðlana en Þórisvatns, en ég get mér til um að sæmilegt aðrennsli sé bæði inn í Blöndulón og Hálslón. Ef það er rétt þá gætir nokkurrar furðu að rennsli á vatnasviði Þór- isvatns skuli vera í lágmarki, en vatnasvið þess er staðsett nokkurn veginn á beinni línu milli vatnasviða Blöndulóns og Hálslóns og öll vatna- sviðin eru á miðhálendi Íslands. Ef innrennsli Þórisvatns hefur minnkað, þá er ekki sýnileg önnur lausn til að auka það aftur en Norð- lingaölduveita, sem er komin í vernd- arflokk Rammaáætlunar. Sögur hafa gengið um að inn- rennsli Krókslóns ofan Sigölduvirkj- unar hafi brugðist upp á síðkastið og þá vegna lítils rennslis í Tungnaá, af hvers völdum það svo sem er. Að sögn hefur þurft að hleypa vatni framhjá Vatnsfellsvirkjun til Króks- lóns til að bæta þar um, en þá er það sóun á vatnsforða Þórisvatns. Aðrir þættir Nokkur atriði til viðbótar, sem nefnd hafa verið og gætu skýrt erf- iðan og óljósan rekstur raforkukerf- isins á komandi vetri, eru: . Bilun í einni vél Búrfellsvirkjunar, sem reyndar ætti að teljast lít- ilvægt eftir nýlega 100 MW stækk- un Búrfellsvirkjunar. . Nokkrar bilanir í jarðvarmavirkj- unum, sem vissulega hefur sitt að segja enda grunnafl í kerfinu. . Uppsetningu á nýrri 30 MW véla- samstæðu í Reykjanesvirkjun mun ekki ljúka fyrr en í fyrsta lagi árið 2022. Að óbreyttu verður ekki hægt að gangsetja þá vél án þess að til komi annaðhvort nýr raf- orkumarkaður á Reykjanesi eða Suðurnesjalína 2, sem gerir þá kleift að flytja næga raforku frá Suðurnesjum til notkunar í öðrum landshlutum. Staðreyndin er sú að stóriðjuframkvæmdir í Helguvík, sem misheppnuðust á sínum tíma, hefðu létt álagi á Suðurnesjalínu 1, en hún er aðeins liðlega 25 ára gömul og langt frá því að vera hrörnuð efnislega. . Bilun í vélasamstæðu Lagarfoss- virkjunar, sem er utan áhrifasvæð- is Landsvirkjunar, en samt á veg- um ríkisins gegnum RARIK/- Orkusöluna. Orkuspáin Í grein forstjóra Landsvirkjunar fer hann inn á vafasamar brautir með því að beina athygli að frávikskost- inum „Grænni framtíð“ í skýrslu Orkuspárnefndar um raforkuspá 2021-2060. Forstjórinn kynnir síðan aukna orkuþörf grænnar framtíðar með afl- þörf (MW) en ekki orkuþörf (GWh/ ári) og þá með vísun í aðferðir Sam- orku. Á fundi hjá Samorku í nóv- ember nefndi ég þessi vandræði og var mér tjáð að Samorka gerði þetta vegna þess að þá héldu þeir að fólk mundi skilja betur það sem um var rætt. Var ég því ósammála. Í fyrsta lagi er svonefnd Græn framtíð fráviksspá til upplýsinga en alls ekki til notkunar í þannig umfjöll- un sem forstjórinn er að viðra í grein sinni. Og í öðru lagi er það að vinna með aflþörf (MW) í þessari greiningu misskilningur og ekki um annað að ræða en að nota orkuþörf (GWh/ári). Raforkuspáin er leiðbeining rík- isstjórnarinnar og á að fara eftir henni. Annað veldur ruglingi. Ef menn eru óánægðir með spána þá verður bara Orkustofnun að endur- skoða hana og gefa út nýja spá. Forstjórinn fjallar um öryggi raf- orkukerfisins og gagnslausa skýrslu frá 2020 um raforkuöryggi. Það mál verður þó í biðstöðu þar til og ef Landsneti tekst einhvern tíma að koma fram með hugmyndir að raf- orkumarkaði, en tillögur þar um hafa ennþá ekki birst, þó þeir hafi haft 17 ár til þess arna. Eftir Skúla Jóhannsson »Mikilvægt er að skilja alvöru málsins sem fyrst til að geta undirbúið ráðstafanir og afstýrt vatnsþurrð næsta vor. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Um grein forstjóra Landsvirkjunar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.