Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 16

Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 16 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Í Bændablaðinu hinn 22. júlí sl. birtist eftir mig grein undir fyrir­ sögninni „Að nefna snöru í hengds manns húsi“. Greinin fjallaði um þann látbragðsleik sem viðgengst í kringum „besta fiskveiðikerfi í heimi“ – íslenska fiskveiðistjórn­ unarkerfið. Frá því greinin birtist hef ég fengið fjölmörg símtöl og tölvupósta frá einstaklingum sem eru eða voru starfandi í sjávarútveginum, ásamt fólki sem þekkir til en hefur lítið eða ekkert komið þar nálægt. Ekki einn einasti stjórnmála­ maður eða starfsmaður innan stjórn­ sýslunnar hefur séð ástæðu til að hafa samband. Hvað þá forystu­ menn eða fulltrúar annarra samtaka í sjávarútvegi. Þá hafa fjölmiðlar, að undanskildum 200 Mílum Mbl.is, ekki raskað næturró minni. Þessi staðreynd er birtingarmynd þeirrar aðferðafræði sem notuð hefur verið hingað til þegar brottkast kemst í umræðuna: 1. Skjóta sendiboðann 2. Þegja þunnu hljóði 3. Loka augunum Hingað til hefur þetta gefist prýði­ lega. Brottkastið hverfur á svip­ stundu og leikritið heldur áfram eftir hlé. Það er vert að rifja upp tvö dæmi af mörgum, annað gamalt en hitt nýlegt. Árið 1989 fékki Kristinn Péturs­ son, fv. þingmaður og fisk verkandi, Skáís til að framkvæma skoðana­ könnun um þessi mál. Niður staðan var sláandi: u.þ.b. 53 þúsund tonn færu í hafið árlega, þ.a. 28 þúsund tonn af þorski. Kristinn fékk að sjálfsögðu bágt fyrir. Þáverandi for­ stjóri Hafrannsókna stofnunarinnar fullyrti að talan væri um 4 þúsund tonn – án þess að leggja fram nokkur einustu gögn því til stuðnings. Þá fékk Kristinn gusuna yfir sig frá stór­ útgerðinni um að vafasamar hvatir byggju að baki. Á árabilinu 2008­2016 komst frystitogarinn Kleifaberg í frétt­ irnar þegar sýnd voru í frétta­ skýringaþættinum Kveik fjögur myndskeið af brottkasti. Fiskistofa endaði með því að svipta skipið veiði­ leyfi í ársbyrjun 2019. Það stóð stutt. Sjávarútvegsráðuneytið ógilti svipt­ inguna. Glósurnar sem „uppljóstrar­ arnir“ fengu voru af sama meiði og Kristinn Pétursson fékk á sínum tíma. Nú er hins vegar komin upp gjörólík staða. Í þetta skipti heitir sendiboðinn Fiskistofa, opinber stjórnsýslustofnun. Miðað við við­ brögðin sem ég rek hér að framan er aðferðafræðin því orðin tvö síðari stigin, þegja og sjá ekki neitt. Sjálfur hef ég ekki leynt þeirri skoðun minni að vinnubrögð Fiskistofu séu, svo ekki sé fastara að orði kveðið, á dökkgráu svæði þar sem hún beitir drónum án þess að láta vita fyrirfram að slíkt eftirlit sé í gangi. Á sama tíma verður ekki fram hjá því litið að það myndefni sem stofnunin hefur undir höndum er þess eðlis að komið er að vatnaskil­ um. Það er einungis tímaspursmál hvenær fleiri en Fiskistofa fara að senda dróna á loft. Nú finnst sjálfsagt einhverjum liggja beinast við að stjórnvöld setji saman starfshóp þar sem hlutaðeig­ andi aðilar yrðu dregnir að borðinu og skikkaðir til að ræða málin af hrein­ skilni og leita allra leiða til að þessi ósómi heyri sögunni til. Ég er ekki viss um að það skili miklu. Eftir að Skáís gerði könnun­ ina 1989 voru þrjár nefndir skipaðar af þáverandi sjávarútvegsráðherra og niðurstaðan engin. Innantómt blað­ ur um „hert eftirlit“ og „lögreglu­ rannsóknir“. Ég ætla engu að síður að skora á sjávarútvegsráðherra að gera það eitt af sínum síðustu embættisverkum að stofna slíkan starfshóp. Það má lengi lifa í voninni. Ég fer ekki ofan af þeirri skoðun minni að stærstur hluti vandans liggur í fyrirkomulagi fiskveið­ anna: veiðirétti úthlutað í kílóum. Lái mönnum hver sem vill að þeir losi sig við kíló sem lítið fæst fyrir eða þeir eiga ekki veiðiheimildir fyrir. Eftir því sem veiðiheimildir eru skornar meira niður eykst vandinn. Óttinn við þá umræðu á sér þá birtingarmynd að stjórnvöld, jafnt sem hagsmunaaðilar, setja lepp fyrir augað sem ætti að fylgjast með þessu. Öðru máli gegnir þegar strand­ veiðar smábáta eiga í hlut. Þar er vakað yfir hverju einasta kílói sem þeir draga úr sjó og hverri einustu mínútu sem þeir eru við veiðar. Þar er smásjánni beitt af vísindalegri nákvæmni. Strandveiðar Strandveiðitímabili ársins 2021 lauk miðvikudaginn 18. ágúst sl. Öll fyrirheit um 48 daga til veiða fóru því fyrir ekki neitt. Til þess að svo hefði mátt vera þurfti að bæta við nokkur hundruð tonnum af þorski, einhverju sem engu skiptir í stofnstærðarmælingum né neinu öðru. Allt sem þurfti var pólitískur vilji. Fyrir stuttu kynnti Hafró niður­ stöður úr sínum stofnstærðar­ mælingum, m.a. þá niðurstöðu sína að vísitala þorsks hefði lækkað um heil 22% milli ára. Einhverjum kynni að koma til hugar að þessi mikla niðursveifla myndi ekki hvað síst endurspegl­ ast í aflabrögðum smábáta, þeirra sem nota handfæri, veigaminnsta veiðarfærið í atvinnuveiðum Íslendinga. Því er ekki að heilsa. Veiði strandveiðibáta jókst frá fyrra ári, þótt sú aukning sjáist ekki á öllum svæðum. En svo ég gerist spámaður í eigin föðurlandi um það sem þessi greinarstúfur fjallar, þá mun tilveran lítið breytast við þessar ábendingar. Leppurinn verður áfram fyrir öðru auganu og hinu troðið ofan í smásjána. Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda Laukar og hnúðar eru forða­ rætur sem safna í sig næringu og geyma hana yfir veturinn. Laukjurtir eru því vel undir það búnar að hefja vöxt snemma á vorin, jafnvel áður en snjóa leysir. Best er að setja haustlauka niður fyrir fyrstu frost, í september eða október, en ekkert mælir gegn því að setja þá niður síðar, eða svo lengi sem tíðin leyfir. Margar laukjurtir þurfa að standa í freðnum jarðvegi í nokkrar vikur til þess að undirbúa sig fyrir vöxt að vori. Laukar þrífast best á þurrum stað í vel framræstum og sendnum jarðvegi. Flestar tegundir kjósa skjól og birtu en hátíðarliljur þola nokkurn raka og skugga. Einföld þumalfingursregla segir að setja skuli laukana niður sem nemur tvö­ til þrefaldri hæð þeirra, og heldur dýpra í lausum jarðvegi. Hentugt bil á milli lauka er tvisvar sinnum þvermálið. Fallegast er að planta laukum þétt, milli 50 og 100 á fermetra, eða 10 til 15 saman í hnapp eftir stærð laukanna, þannig að þeir komi upp eins og stór blómvöndur. Best er að grafa holu í rétta dýpt með lítilli skóflu eða stinga fyrir laukunum með laukajárni og losa um jarðveginn. Gott er að setja mold sem blönduð er með lífrænum áburði, þangmjöli eða hænsnaskít í botninn og yfir laukana. Einnig má blanda eilitlu af tilbúnum áburði við moldina áður en hún er sett yfir þá. Þegar búið er að hylja laukana með góðri mold skal þjappa jarðveginn varlega og hylja hann með laufi eða trjákurli og vökva. Laukar fara vel í beðum innan um tré, runna og fjölæringa og sumir gefa beðunum lit snemma á vorin auk þess sem runnar veita laukstilkunum ágætan stuðning í hvassviðri. Einnig er fallegt að setja lágvaxna haustlauka í grasflötina og gaman að fylgjast með þeim á vorin þegar þeir koma upp og blómstra áður en grasið fer að vaxa. Þeir sem ekki hafa aðgang að garði geta sett haustlauka í ker eða potta með gati á botninum, og haft á svölum eða tröppum. Blanda þarf moldina í kerunum með sandi eða vikri og setja möl í botninn svo að hún verði ekki of blaut. Haustlaukar þurfa litla umhirðu eftir að þeir eru settir niður. Ef þeir blómstra illa er ástæðan líklega sú að þeir standa í bleytu eða skugga. Margar tegundir safna ekki nægum forða yfir sumarið til að blómstra árið eftir. Leggháar tegundir geta þurft stuðning eða uppbindingu. Laukjurtir þola illa köfnunarefnisríkan áburð þar sem hann eykur ofanjarðarvöxt á kostnað neðanjarðarhlutans. Kalí­ og fosfóráburður hentar laukum betur þar sem hann eykur blómgun og frostþol. Eftir blómgun á að klippa blómstöngulinn burt svo að plantan eyði ekki orku í að mynda fræ. Blöðin þurfa aftur á móti að sölna áður en þau eru klippt burt. Séu þau klippt of snemma nær laukurinn ekki að safna forða fyrir veturinn og blómgast ekki árið eftir. Mörgum finnst ljótt að sjá sölnuð blöð og er þeim oft bent á að klippa helminginn burt og binda blöðin saman með teygju en slíkt er ekki ráðlegt vegna þess að það skerðir mjög vöxt og eftirþroska laukanna. Einnig má setja lauka niður í þar til gerðar körfur og má þá taka þá upp og flytja annað eftir blómgun. /VH STEKKUR NYTJAR HAFSINS og smásjáin Strandveiðitímabili ársins 2021 lauk miðvikudaginn 18. ágúst sl. Öll fyrirheit um 48 daga til veiða fóru því fyrir ekki neitt. Til þess að svo hefði mátt vera þurfti að bæta við nokkur hundruð tonnum af þorski, einhverju sem engu skiptir í stofnstærðarmælingum né neinu öðru. Allt sem þurfti var pólitískur vilji. Arthur Bogason. Haustlaukar Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa stöðvað veiðar með trolli á stórum svæðum meðfram strönd landsins til að vernda þangskóga og að leyfa þeim að jafna sig eftir margra ára illa meðferð. Í dag hefur rúmlega 260 þús­ und ferkílómetra hafsvæði utan við Sussex verið friðað fyrir troll og snurvoðarveiðum. Vonast er til að með stöðvun veiðanna muni þang­ skógarnir og hrygningarstöðvar ýmissa lífvera og fisktegunda ná að jafna sig eftir áratuga slæma meðferð. Umhverfisverndarsinninn og fræðarinn David Attenborough hefur verið ötull stuðningsmaður verndaraðgerðanna og segir þær tímamótaskref í átt til verndunar hafsvæða umhverfis Bretlandseyjar. Lífríki þangskóganna er gríðar­ lega fjölbreytt og vistkerfi þeirra margbreytilegt þar sem innan um þangið eru uppeldisstöðvar margra nytjategunda, auk þess sem á botni þess lifa krossfiskar, ígulker og ótalinn fjöldi tegunda af smádýrum sem eru fæða fyrir stærri dýr. Auk þess bindur þang mikið magn koltvísýrings og því öflugur samherji í baráttunni gegn hlýnun jarðar. /VH Umhverfismál: Veiðar stöðvaðar til að vernda þangskóga Stöðva troll- og dragnótaveiðar til að vernda þangskóga. Mynd / hakaimagazine.com.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.