Bændablaðið - 26.08.2021, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
31Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
rannsóknar, u.þ.b. 60 frumtamn
ingartryppi verði magaspegluð
fljótlega eftir að þau koma á hús
í byrjun október 2021. Átta vikum
eftir fyrstu magaspeglun verður hún
endurtekin og niðurstöður bornar
saman. Einnig er stefnt að því að
magaspegla um 200 reiðhross.
„Já, markmið þeirrar rannsóknar
er að skoða tíðni magasára í́ hross
um á́ Íslandi með skipulögðum
hætti. Þetta væri fyrsta rannsókn
sinnar tegundar hér á landi en sams
konar rannsóknir hafa verið gerðar
víða erlendis sem hafa sýnt fram á
að magasár finnst í öðrum hrossa
kynjum. Þar sem íslenski hesturinn
er frjáls úti í haga þegar hann er
ekki í notkun höfum við sérstöðu
þegar kemur að þessari rannsókn.
Þannig getum við fengið innsýn í
sjúkdóminn, meðal annars vitneskju
um hvernig okkar hættir við að
halda hross á húsi geta haft áhrif á
hann,“ segir Úndína.
Magasár algeng hjá hestum
– En er eitthvað vitað í dag um
magasár í hrossum, af hverju þau
koma og hversu algeng eða óalgeng
þau eru?
„Magasár er algengasti sjúk
dómur sem finnst í maga hrossa.
Um hugtakið magasár var fyrst
skrifað árið 1999. Í dag er heilmik
ið vitað og sjúkdómurinn er meira
rannsakaður.
Magasári er hægt að skipta upp
í tvo flokka, allt eftir staðsetningu.
Hvíti hlutinn er efri hlutinn af
maganum sem er ekki með kirtla
(nonglandular), þessi hluti magans
er mjög viðkvæmur fyrir magasári
en samkvæmt rannsóknum finnast
80% af sárum í hvíta hluta magans.
Milli hvíta og rauða hluta mag
ans kemur svæði sem heitir „Margo
plicatus“ þar getur magasár líka oft
myndast. Svo er rauði hluti magans
með kirtla (glandular) sem seytir
vökva sem ver slímhúðina, þar finn
ast 20% af magasárum.
Það eru ýmsir áhættuþættir sem
spila inn í þetta og þar er fóðrun
efst á lista, þjálfun/vinnuálag og
stjórnun (management).“
Af hverju magasár?
– Það er komið að grundvallar
spurningunni til Úndínu, af hverju
fá hestar magasár?
„Já, þú segir nokkuð. Hestar,
asnar og múldýr eru einu dýra
tegundin sem framleiðir stöðugt
magasýru í maganum, ólíkt okkur
mannfólki og öðrum dýrum þar sem
magasýrumyndun örvast t.d. þegar
við finnum lykt af mat, hugsum um
mat og þegar við byrjum að borða.
Magasár í hrossum myndast út af
ertingu frá magasýrum. Það mynd
ast ójafnvægi í hlutverki magaslím
himnunnar.
Munnvatn hrossa inniheldur basa
(bikarbonat) en basinn er það eina
sem vegur upp á móti magasýrunni
og viðheldur þar með jafnvægi á
sýrustigi magans. Þegar hrossið
tyggur myndast munnvatn. Því́
meira gróffóður, því meiri munn
vatnsmyndun. Þar sem hross á húsi
hafa ekki frjálsan aðgang að fóðri
og eru fastandi í lengri tíma en æski
legt er, þá kemur þetta ójafnvægi
fram milli sýru og basa sem eykur
hættuna á að hrossið fái magasár.
Of mikil sýra ertir slímhúðina í
maganum og eyðileggur þar með
vörn hennar og þá myndast sár, þetta
er stutta og einfalda svarið,“ segir
Úndína og hlær.
Danskur dýralæknir aðstoðar
Úndína segist sjálf vera að fjárfesta
í magaspeglunartæki sem er sérstak
lega fyrir hesta og hún mun nota í
rannsókn sinni. Nanna Luthersson,
sem er danskur dýralæknir, ætlar
að leiða rannsókn ina með henni en
Nanna hefur 15 ára reynslu í þessu
fagi.
„Til þess að rannsóknin geti orðið
að veruleika þurfum við að fá aðgang
að hrossum. Við erum að leita að
200 reiðhestum sem verða skimaðir
fyrir magasári og svo þurfum við
60 tryppi sem eru að koma í frum
tamningu í byrjun október 2021. Ég
vona að hestamenn taki beiðni minni
vel um að fá hesta til rannsóknar
eigendum þeirra að kostnaðarlausu
en eigendurnir þurfa að skrifa undir
sérstakt leyfisbréf áður en rannsókn
in hefst,“ segir Úndína.
Tvær vísindagreinar skrifaðar
Eins og áður segir þá hefst rann
sóknin hjá Úndínu í október í haust
en þar sem þetta er vísindarannsókn,
þá þarf rannsóknin að fara í gegnum
ákveðna verkferla og stefnt er að
því að skrifa tvær vísindagreinar
sem verða svo gefnar út í ritrýndum
fagritum dýralækna.
„Eftir minni bestu vitund tekur
þetta ferli um tvö ár í heildina þar
til niðurstöðurnar eru birtar. Ég mun
vera með fræðslu og ræða um rann
sóknina og niðurstöður hennar eftir
að þessu lýkur, en ég má ekki gefa út
neinar handbærar tölur fyrr en eftir
að greinarnar eru birtar.“
Hestar helsta áhugamálið
Úndína er að lokum spurð út í helstu
áhugamál hennar þegar hún er ekki
að huga um námið eða um magasár
í hestum.
„Það er bara eitt svar við þessari
spurningu, hestamennskan á hjarta
mitt og er mitt helsta áhugamál. Ég
viðurkenni það vel, að búa erlend
is í rúm fimm ár setti strik í það
áhugamál og það var rosalega erfitt
í byrjun þegar ég flutti út því hesta
mennskan er svo stór partur af mér.
En þá deyr maður ekki ráðalaus,
þetta var bara tímabundið ástand,
ég þurfti að finna mér eitthvað að
gera á milli skólans og lærdómsins.
Ég hef rosalegan áhuga á að
prjóna, hekla og er núna farin að
hnýta verk (macramé), þetta er
ákveðin þerapía fyrir mig og bjarg
aði mér alveg. Síðan þetta klassíska,
að ég hef gaman af því að vera úti
í náttúrunni og þrífst best þar eins
og sönn sveitatútta.“
Skírð í höfuðið á ömmu sinni
Það er ekki hægt að ljúka viðtalinu
án þess að spyrja Úndínu út í nafnið
hennar, sem er óneitanlega mjög
sérstakt.
„Ha, ha, þú ert ekki sá fyrsti og
örugglega ekki sá síðasti að velta
þessu nafni fyrir þér. Uppruni þessa
nafns er þýskt og er skrifað Undine
á þýsku. Merking nafnsins er vatna
dís, svo þetta passar vel við mig sem
vatnsbera.
Ég skrifaði nafnaritgerð í MS
og komst að því að árið 1811 var
skrifuð rómantísk skáldsaga um
vatnadísina Undine, sem giftist
riddaranum Huldebrand til að
öðlast sál. Ég fann þessa bók á
bókasafninu í Kópavogi og byrj
aði að lesa hana, en það fauk fljótt í
mig. Undine var þar lýst sem skap
stórri frekju sem átti allt of vel við
mig á þeim tíma og ég þurfti að
kyngja þeim stóra bita.
Ég er skírð í höfuðið á ömmu
minni heitinni, Úndínu Gísladóttur,
en hún var fædd og uppalin í
Hrísey. Nafnið kom í ættina þegar
langamma mín var ólétt af ömmu
minni. Langalangamma mín bjó með
langömmu minni og langafa og þótti
hún frekar ráðrík. Hún biður ófríska
dóttur sína um að skíra ófædda dóttur
sína í höfuðið á vinkonu sinni sem
bjó í Svarfaðardalnum og bar nafnið
Úndína, en hún dó ung. Við erum
fjórar Úndínur núlifandi en nafnið
finnst einnig sem millinafn,“ sagði
Úndína að lokum. /MHH
Úndína og folaldið Kormákur frá Eystri-Þurá, sem er hestur úr hennar eigin
ræktun.
Úndína segir það hafa verið skrautlegt ferðalag að bera nafn sitt. Vegna eineltis sem hún lenti í grunnskóla fékk
hún ógeð á nafninu og ætlaði að breyta nafninu sínu í Þórunn Ýr, en í dag hún þakklát fyrir að bera svona sérstakt
nafn, því það gleymir því enginn.
Úndína með systkinum sínum, Andra og Helgu, á góðri stundu.