Bændablaðið - 26.08.2021, Page 40

Bændablaðið - 26.08.2021, Page 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 40 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 LÍF&STARF Timbur í stoðir var sótt í Tunguskóg á Ísafirði. Margar hendur vinna létt verk eins og sjá má. Myndir / Ingrid Kuhlman Fornminjafélag Súgandafjarðar: Byggingu landnámsskála Hallvarðs súganda miðar vel Í sumar hefur verið unnið að byggingu landnámsskálans í botni Súgandafjarðar í þremur áföngum en um er að ræða verkefni á vegum Fornminjafélags Súgandafjarðar. Landnámsskálinn er tilgátuhús byggt á fornleifauppgreftri á Grélutóftum í Arnarfirði. Skálinn var teiknaður af arkitektastofunni Argos en hún teiknaði einnig skálann á Eiríksstöðum í Haukadal og í Brattahlíð á Grænlandi. Í maí fór góður flokkur áhugasamra norður í land, nánar tiltekið á Hraun, sem er yst á Skaga. Steinn bóndi og landeigandi á þessari miklu rekajörð tók á móti hópnum og leiðbeindi við val á góðum drumbum til að byggja grind í landnámsskála. Þessi heiðursmaður gaf sér tíma í miðjum sauðburði til að aðstoða við að sækja drumba og hlaða á kerrurnar. Drumbarnir voru fluttir á kerrum til Sauðárkróks og síðan með skipi til Ísafjarðar og þaðan yfir í Súgandafjörð. 200 klömbrur í skálanum „Í júní var svo haldið áfram að hlaða úr klömbru en Fornminjafélagið hefur fengið að stinga úr mýri sem landeigendur í Botni eiga og er skammt frá mógröf frá fyrri tíð. Í skálanum eru næstum 200 klömbrur í hverri umferð eða lagi. Lögin eru fimm og hver klambra vegur um 30 kíló. Veggirnir voru kláraðir í þessari umferð og allir nokkuð sáttir við að þessum kafla skuli vera lokið enda gríðarlega mikil vinna og erfiðasti hlutinn af öllu verkefninu,“ segir Eyþór Eðvarðsson, formaður Fornminjafélagsins, alsæll með verkefni sumarsins. Burðargrindin komin Í ágúst stóð Fornminjafélagið í samstarfi við Valdimar Elíasson smið fyrir námskeiði í að smíða burðargrind og þak á landnámsskál­ ann. Valdimar er reyndur smiður og smíðaði fyrir nokkrum árum vík­ ingaskipið Véstein. Burðargrindin er nú komin upp og búið að rífa stóran hluta rekaviðsins í rafta sem eiga að fara á þakið. Fleygur var rekinn í viðinn til að kljúfa hann og voru það oft mikil átök. Timbur í stoð­ ir var sótt í Tunguskóg á Ísafirði og aðstoðaði Sighvatur Dýri frá Höfða í Dýrafirði við að ná í tré en hann sér um að grisja skógræktina í Ísafjarðarbæ. En Sighvatur tók einnig þátt í að hlaða klömbru fyrsta árið. „Ef allt gengur eftir verður lögð lokahönd á þakið á næsta ári og byrjað að vinna inni í skálanum en það þarf að smíða hurð, rúmbálka, þil, hanna langeld og annað. Huga þarf að því að ljós komist inn í skálann og að loftræsting verði fullnægjandi fyrir opinn eld,“ bætir Eyþór við. /MHH Burðargrindin er nú komin upp og búið að rífa stóran hluta rekaviðsins í rafta sem eiga að fara á þakið. Loftmynd af skálanum. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri þegar undirritunin fór fram. Mynd / Aðsend Friðlandið í Flatey tvöföldað Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði nýlega auglýsingu um stækkun friðlandsins í Flatey en í Flatey hefur um langt skeið verið náið samspil manns og náttúru þar sem nýting náttúruauðlinda hefur farið fram með sjálfbærni að leiðarljósi. Þá er eyjan vinsæll ferðamannastaður. „Meginmarkmið friðlýsingar­ innar er að vernda sérstætt og fjöl­ breytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, einkum varpsvæði fágætra fuglategunda, s.s. þórshana, kríu og lunda. Friðlandið hefur hátt vísinda­ og fræðslugildi og er vel þekkt á meðal vísindamanna og fuglaáhuga­ fólks. Búsvæði og lífríki í fjörum og í sjó er afar fjölbreytt og mikilvægt fæðusvæði margra fuglategunda. Náttúrufegurð svæðisins er einnig mikil og þar finnst m.a. marhálmur sem er sjaldgæfur á landsvísu. Markmið með friðlýsingunni er einnig að tryggja rannsókn­ ir og vöktun á lífríki svæðisins, með áherslu á búsvæði og afkomu varpfugla og að tryggja fræðslu um fuglalífið í eynni og nágrenni,“ segir Guðmundur Ingi. Stærð friðlandsins tvöfölduð Með viðbótinni nú er stærð friðlandsins tvöfölduð, í 1,62 km2. Stækkunin er austan marka verndarsvæðis í byggð og nær til eyja, hólma og skerja suður af Flatey. Þar sem friðlandið nær í sjó fram tekur friðlýsingin til hafsbotns, lífríkis og vatnsbóls. Friðlandið er innan verndarsvæðis Breiðafjarðar sem er verndað með sér lögum. Perla Breiðafjarðar Og Guðmundur Ingi bætir við: „Flatey er óumdeilanlega perla Breiðafjarðar. Náttúran sjálf segir sína sögu um það hvað gerði eyna að ákjósanlegri miðstöð mannlífs við Breiðafjörð. Þar er merkileg saga búsetu þar sem samspil manns og náttúru var og er í jafnvægi. Líffræðileg fjölbreytni svæðisins er mikil enda fjölskrúðugt fuglalíf í eynni sem byggir afkomu sína á fjölbreyttu fæðuframboði á landi, í fjörum og í sjó. Það er því mikilvægt fyrir komandi kynslóðir, okkur sjálf og gesti okkar að tryggja verndun perlu eins og Flateyjar.“ /MHH Fjölbrautaskóli Suðurlands: 920 nemendur verða í dagskóla í vetur Mikil aðsókn er að Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi enda hófu 920 nám þar í síðustu viku, þar af 262 nýnemar. Þá eru 24 nemendur í kvöldskóla. Starfsmenn skólans eru um 130. „Veturinn leggst þokkalega í mig en auðvitað hefði ég viljað losna undan þessum stífa ramma sem þarf að hafa í huga varðandi sóttvarnir eins og staðan er á smitum þessar vikurnar. Við vorum að vona að við gætum lagt þessi mál að mestu að baki eftir að flestir höfðu fengið bólusetningu. Það verður að segjast eins og er að þetta eru ákveðin vonbrigði. En við gerum okkar besta, með samstilltu átaki getum við þetta. Það mikilvægasta er að nemendur geti stundað sitt nám og kennarar sinnt kennslunni sem mest á hefðbundinn hátt. Allt skólasamfélagið er á tánum um að láta hlutina ganga upp,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari. Hún segir mjög ánægjulegt hve mikil aðsókn er í verknám skólans enda séu allar deildir fullar þar. „Já, það er frábært enda hefur sú umræða, markaðssetning og fræðsla sem átt hefur sér stað undanfarin ár loks skilað sér. Við erum í raun komin út í öll horn í okkar góðu og vel búnu aðstöðu. Eitthvað sem hefur gerst fyrr en ég átti von á en er mjög gleðilegt engu að síður.“ /MHH Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands, er hæstánægð með góða aðsókn í skólann. Mynd / MHH

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.