Bændablaðið - 26.08.2021, Page 45

Bændablaðið - 26.08.2021, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 45Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is VANTAR ÞIG LYFTARA? EIGUM TIL 1,8 OG 2,0 TONNA LYFTARA Á LAGER Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika. 1,8 tonna Lyftihæð 4800 mm 3 hjóla 2,0 tonna Lyftihæð 4800 mm 4 hjóla LESENDAGREINAR VG stendur með íslenskum landbúnaði Formaður Bændasamtakanna spurði áleitinna spurn- inga í leiðara sínum í síðasta Bændablaði. Hægt er að taka undir margt sem þar kom fram. Hann varpaði fram þeirri mikil- vægu spurningu hvort þingmenn ætli að standa með íslenskum landbúnaði að loknum kosningum með gjörðum en ekki bara orðum. Því er auðsvarað af minni hálfu. Já, Vinstrihreyfingin – grænt framboð stendur með íslenskum landbúnaði hér eftir sem hingað til. Undirrituð greiddi atkvæði gegn viðskiptasamningi Íslands við Evrópusambandið. Það gerðu fjórir aðrir, en öll áttu þau sameig- inlegt að vera félagar mínir í þing- flokki VG. Við vorum þá, líkt og svo oft áður, með rétta stefnu sem þótti óvinsæl. Síðar kom svo í ljós að flest það sem við vöruðum við raungerðist. Mikil ruðningsáhrif á innlendan búvörumarkað og erfið- leikar. Að sama skapi var það mikið ánægjuefni þegar sátt náðist um það í hittifyrra að takmarka verulega, og í raun koma í veg fyrir, að jarðir safnist í hendur fárra auðmanna, hverrar þjóðar sem þeir eru. Ég var framsögumaður máls um breytingu á ýmsum lögum sem vörðuðu fast- eignakaup en með þeim var stig- ið mikilvægt skref í því að bæta lagaumhverfi um viðskipti með jarðir. Við þurfum að halda áfram og gera enn betur og VG eru þau einu sem hingað til hafa látið verkin tala í þeim efnum. Næsta kjörtímabil skiptir miklu máli fyrir innlendan landbúnað Málefni landbúnaðar hafa verið mér hugleikin síðan ég settist á þing árið 2013. Það er ekki undarlegt þar sem að landbúnaður og sjáv- arútvegur eru grundvöllur byggðar í Norðausturkjördæmi. Stefna VG í landbúnaðarmálum er skýr, við teljum að í auknum mæli þurfi að horfa til þess að bæta afkomu bænda, efla innlenda framleiðslu í þágu fæðuöryggis og að landbún- aður sé stundaður með sjálfbærni að leiðarljósi. Þó að markmiðin séu skýr þá eru aðferðirnar sem beitt er þær sem skipta höfuðmáli. Það olli mér persónulega vonbrigðum að ekki næðist á kjörtímabilinu að færa afurðastöðvum bænda þau verkfæri sem til þarf til þess að vinna saman í meira mæli til að ná hagræðingu. Þannig er hægt að lækka fram- leiðslukostnað svo að hærri upphæð renni í vasa bænda. Þá blasir við að endurskoða þarf tollasamninginn við Evrópusambandið þar sem forsendur hans eru ekki til staðar í dag, ef þær voru nokkru sinni til staðar. Nýliðun í landbúnaði verð- ur, að ég hygg, mikilvægt mál á komandi árum. Sífellt fjármagns- frekara verður að stunda nútíma- búskap og afkoman þarf að vera þannig að hún fæli ekki ungt fólk frá sem hyggur á landbúnaðarstörf. Fjölbreytileikinn þarf að aukast til að breikka þann grunn sem búseta í dreifbýli hvílir á. Til þessa þarf að horfa í næstu búvörusamningum þannig að aukin tækifæri verði til nýsköpunar og fjölbreyttari atvinnu- starfsemi. Dæmi um þennan fjöl- breytileika hef ég m.a. orðið vör við í mínu kjördæmi en á ferð minni um Þingeyjarsýslurnar um daginn heimsótti ég Nýsköpun í Norðri á Laugum. Þar er lögð áhersla á að vinna sem mest úr hverjum lambskrokki og á nýstárlegan hátt. Meðal annars með það að mark- miði að veitingastaðir í nærsveitum geti nýtt sér afurðina sem nýjung á matseðli. Þar hefur fólk einnig ýmsar hugmyndir sem ég tel að eigi að horfa til þegar kemur að útfær- slu næstu búvörusamninga. Það er alveg ljóst að við þurfum að bregð- ast við breyttum tímum. Loftslagsmálin eru stærsta hagsmunamálið til lengri tíma Mikið hefur verið skrifað og rætt um loftslagsmál síðustu ár. Ég hef þá bjargföstu trú að með því að stefna að loftslagsvænni landbún- aði megi ná miklum árangri í sölu á afurðum. Það sem þarf að gerast næst í málum tengdum landbúnaði er að skapa tækifæri fyrir þá bændur sem vilja grípa til aðgerða í sínum búskap. Vísir að slíku verkefni er í fjármálaáætlun næstu ára; verkefn- inu loftslagsvænum landbúnaði. Það verkefni þarf að styrkja enn frekar svo að það mæti umfangi þeirra breytinga sem eru fram undan. Ég hitti sífellt fleiri bændur sem hafa áhuga á því að hefjast handa en þeim finnst fátt um svör hvar hagkvæm- ast sé að byrja. Er það með því að breyta beitarstýringu, bæta efnum út í fóðrið, byggja nýja hauggeymslu eða eitthvað allt annað? Það er hagur samfélagsins alls að við náum betri stjórn á losun gróðurhúsalofttegunda og ábyrgðin á losun vegna landnotkunar getur ekki verið færð á bændur dagsins í dag. Það er bæði óréttlátt og ólík- legt til árangurs. Verkefni næsta kjörtímabils eru fjölþætt og flókin, endurskoða þarf búvörusamninga og semja um nýjan samning. Ég mun ekki láta mitt eftir liggja í að standa með íslenskum bændum. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Höfundur er oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi Bókamarkaður í Bændahöllinni Bændasamtök Íslands bjóða til sölu og gefins fjölda bóka og rita sem tengjast landbúnaði. Um er að ræða stóran hluta af bókasafni samtakanna ásamt tímaritum og öðru útgefnu efni. Meðal þess sem er á boðstólum Búnaðarblaðið Freyr Handbók bænda Búnaðarritið Árbók landbúnaðarins Búfjárræktarbækur Garðyrkjubækur Skógræktarbækur Rit Fræðaþings landbúnaðarins Rit Ráðunautafundar Hestabækur, s.s. Ættbók íslenskra hrossa, Fákar á ferð, Járningar o.fl. Ýmis fræðslurit, s.s. um ræktun kartaflna, heyverkun, æðarvarp og dúntekju Búnaðarhagfræði Áburðarfræði Hrossaræktin Sauðfjárræktin Íslenski fjárhundurinn Búnaðarskýrslur Skírnir Rit Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal Samvinnan Náttúrufræðingurinn Eiðfaxi Ýmis fræðitímarit um landbúnað Landbúnaðarsaga Íslands Borgfirskar æviskrár Landsmarkaskrá … og margt fleira Bændasamtök Íslands . Bændahöllin . Hagatorgi Staður og stund Þriðjudaginn 31. ágúst frá kl. 10.00–17.00 – við aðalinngang Hótel Sögu. Fyrstir koma – fyrstir fá! Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Bændablaðið kemur næst út 9. september Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.