Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Það var á níunda áratug síðustu
aldar sem gamall frændi minn stóð
upp í pontu á fundi búnaðarfélaga á
Austurlandi og lagði til að bændur
myndu huga betur að vöruþróun
og framsetningu.
Hann ásamt öðrum góðum
mönnum sat í fyrstu stjórn samtaka
sauðfjárbænda undir formennsku
Jóhannesar á Höfðabrekku. Höfðu
þeir félagar miklar hugmyndir um
breytt viðhorf og framsýn bænda.
Þeir sögðu að horfa þyrfti meira til
þarfa neytandans og mæta þeim svo
vel yrði. Það er skemmst frá því að
segja að hann frændi minn ágætur
hrökklaðist niður úr téðri pontu og
lá við að hann yrði kaghýddur á
staðnum. Lokaorð umræðunnar var
frá ónefndum bónda sem faðir minn,
sem sat téðan fund, gleymir seint. Þau
voru þessi: ,,Held að þetta sé fullgott
í kjaftinn á fólki.“
Því miður var viðhorfið þannig þá.
Því miður var viðhorfið þannig ansi
lengi eftir það. Ekki af því bændur
vildu ekki gera betur. Heldur vegna
þess að þeim voru of þröngar skorður
settar og í stað þess að horfast í augu
við það, var þægilegra að láta eins og
menn vildu raunverulega hafa hlutina
svona. Svona var venjan að hafa þá.
Flokkurinn sem þeir kusu sagði þeim
að hafa þetta svona.
En nú er öldin sannarlega önnur.
Ekki bara í bókstaflegri merkingu. Nú
er nefnilega innan bændastéttarinnar
fjöldinn allur af gríðarlega flottu fólki
sem vill leggja sitt af mörkum til að
gera samfélagið okkar að merkilegri
matarkistu. Fólki sem er ekki tilbúið
að láta setja sér afarkosti þegar það
veit sjálft betur. Mikilvæg skref hafa
verið tekin í átt að betri framsetningu
og aukinni vöruþróun en betur má
ef duga skal og þar stendur ekki á
bændum.
Mikilvægi þess að tryggja bændum
sjálfbærni er margþætt. Þegar kemur
að dýravelferð, náttúruvernd,
vöruþróun og nýtingu er engum betur
treystandi til að vinna af heilindum en
bændunum sjálfum. Í fyrra var gerð
tilraun meðal bænda um heimaslátrun
sem sýndi gífurlega góða niðurstöðu.
Í ljós kom að slík slátrun var ekki bara
þrifalegri og mannúðlegri heldur kom
öll vinnsla miklu betur út. Kemur þá í
ljós að það er ekki svo galið að treysta
bændum. Þeir eru ekki molbúar með
sorgarneglur. Heldur fagfólk. Fagfólk
sem skilur hvað þarf að gera. En hvað
tók við?
Í framhaldi slíkra prófana var
náttúrlega réttast að búa til reglur.
Setja mörk. Hafa allan vara á.
Í þágu neytenda. En hvað gera
bitlausar stofnanir sem aldrei heyra
í mikilvægum mannauð sem bændur
eru? Þeir finna til ástæður til þess að
skapa íslenskum bændum það almesta
og flóknasta regluverk sem þekkist
í Evrópu og þótt víðar væri leitað.
Þetta, þrátt fyrir flotta niðurstöðu
úr öðrum tilraunum, og þrátt fyrir
miklu hreinni afurðir en þekkist í
heiminum, gerir það að verkum að
við munum aldrei una íslenskum
bændum samkeppnisstöðu.
Þá spyr maður sig, hverjir meta
hlutina? Það ku koma mörgum
undarlega fyrir sjónir að félagasamtök
og samtök algerlega óháð ríkisrekstri
fá að hafa skoðun á framleiðslu bænda.
En það er samt staðreynd. Samtök
verslunar og þjónustu og önnur samtök
fá að skipta sér af landbúnaðarstefnu
bænda og hafa úrslitavald. Þá skiptir
engu vitneskja ríkisstjórnar að það
hefur engin erlend vara verið ódýrari
en íslensk þegar í verslun er komið
nema þá í einstaka prósentum. Samt
treystum við á að SVÞ sé að passa
upp á neytandann. Ástæðan fyrir því
að Samtökum verslunar og þjónustu
er svo umhugað um afkomu íslensks
landbúnaðar er einföld. Þeir græða
meira á innfluttri vöru.
Sé bændum gerður sá möguleiki
að þreifa sig áfram í nafni nýsköpunar
og þróunar en engin spurning hver
útkoman yrði. Fólkið sem ræktar
landið, elur skepnunar og færir okkur
matinn gerir það af einskærri hugsjón.
Fólk sem lifir í takt við náttúruna og
skilur best hvað þarf að gera til að mæta
áskorunum á borð við loftslagsvanda
og breytt neyslumynstur. Sé því gert
kleift að slíta sig úr klöfum og kagstaur
Samtakanna, er engin spurning að
það verði neytendum raunverulega
til heilla.
Þá skal líka spurt. Hvers vegna fá
afurðastöðvar öll völd um kaupverð?
Hvers vegna fá afurðastöðvar að búa
til átta flokka inn til kaups en aðeins 2
flokka til sölu? Hver ætlar loksins að
svara því og hvernig verða þau svör?
Þegar öllu er á botninn hvolft,
þegar við spyrjum okkur hver hefur
raunverulega hagsmuni okkar, sem
samfélags og neytenda, að leiðarljósi.
Er það verslunin, er það pólitíkin eða
eru það bændurnir?
Sá sem trúir því og treystir að svarið
sé bændurnir mun uppskera mun betur
en við gerum í dag. Uppskeran verður
raunveruleg framtíðarsýn með dýra-
og náttúruvernd að leiðarljósi. Með
hag neytandans í forgrunni því það
er fólkið sem vill vera upplýst, gera
vel og fá heilnæma og góða vöru á
borðið. Hún verður líka ódýrari. Það
er staðreynd. Eina sem þarf er þor
til að standa með bændum og góðri
landbúnaðarstefnu óháð skoðunum
samtaka sem stjórna verði út í búð.
Óháð afurðastöðvum sem hafa fyrir
löngu tekið yfir valdi bænda til að gera
vel í skugga regluverks stjórnvalda
og stofnananna sem eru bitlausar
og engum til gagns. Stofnana sem
kosta ríkið hundruð milljóna á ári en
hafa aldrei beðið um eða kallað eftir
þekkingu þess mannauðs sem bændur
eru.
Regluverk til handa trausti
til bænda mun skila sér í bestum
hagnaði til neytenda, dýravelferðar
og kolefnisfótspors samfélagsins.
Hlustum á bændur. Treystum
þeim. Þannig sækjum við best fram
og gerum breytingar.
Til að það geti orðið þurfa bændur
að geta orðið samkeppnishæfir. Hlusta
þarf á þá og treysta þeirri þekkingu
sem þar er til staðar. Einföldum
regluverk og treystum fólkinu þegar
kemur að framleiðslu. Sjálfbærni felst
nefnilega líka í að gefa bændum frelsi
til að framleiða alla leið eftir bestu
mögulega þekkingu. Færum bændum
fleiri tækifæri til nýsköpunar og
athafna og tryggjum afkomu þeirra.
Flott landbúnaðarstefna er til lítils án
samráðs við bændur. Án þeirra erum
við matarlítil kista á betlimiða annarra
þjóða.
Hrafndís Bára Einarsdóttir.
Höfundur skipar annað sæti
Pírata í Norðausturkjördæmi
og er harðsvíraður bóndi
á hliðarkanti hjá öldruðum
föðurbróður.
Landbúnaðarháskóli Íslands setti
sér nýja stefnu til fimm ára í júní
2019 og skipti skólastarfinu upp í
þrjár fagdeildir, Ræktun & fæðu,
Náttúru & skóg og Skipulag &
hönnun.
Allar fagdeildir bjóða upp
á starfsmenntanám á fram-
haldsskólastigi, grunnnám (BSc)
og framhaldsnám (MSc og PhD). Í
stefnunni er lögð áhersla á að efla
nýsköpun, rannsóknir og kennslu á
öllum námsstigum, styrkja innviði,
fjölga nemendum og samstarfsver-
kefnum og auka kynningarstarf.
Sett voru fram mælanleg markmið,
aðgerðir og mælikvarðar fyrir hvern
undirkafla stefnunnar til ársins
2024. Nú þegar tímabilið er bráðum
hálfnað er rétt að fara yfir og meta
árangur síðustu missera.
Stöðug aukning verkefna
Rannsókna- og þróunarstarf skól-
ans hefur eflst mjög á undan-
förnum misserum. Fjöldi umsókna
í samkeppnissjóði hefur aukist og
þar með hefur umtalsverð aukning
orðið á umfangi fenginna samstarfs-
verkefna og styrkja. Nemendum
hefur fjölgað á öllum námsstigum
og í öllum fagdeildum skólans, og
er sérlega ánægjulegt að sjá hversu
jöfn aukningin er á öllum sviðum.
Með auknu fjármagni úr samkeppn-
issjóðum hefur verið unnt að ráða
nýja sérfræðinga og doktorsnem-
endur til starfa sem styður við aðra
framþróun í alþjóðlegu samstarfi,
rannsóknum, nýsköpun og kennslu,
samhliða því sem fjöldi birtinga í
ritrýnd tímarit og önnur miðlun
niðurstaðna eykst.
Innviðauppbygging á sviði rann-
sókna, kennslu og stoðþjónustu
hefur einnig gengið vel og verð-
ur sókninni haldið áfram á þeirri
braut, enda er það forsenda öflugs
rannsókna- og kennslustarfs að hafa
góða grunninnviði. Í nýjum lögum
um opinberan stuðning við nýsköp-
un er lögð áhersla á nýsköpun á
landsbyggðinni í sterkum tengsl-
um við háskólasamfélag, atvinnu-
líf og hagaðila og styður stefna
Landbúnaðarháskóla Íslands beint
við þau markmið stjórnvalda.
Skólinn leggur áherslu á að miðla
upplýsingum um þau verkefni sem
unnið er að hverju sinni og verður
hér að neðan stuttlega gerð grein
fyrir þremur af þeim fjölmörgu ver-
kefnum sem Landbúnaðarháskólinn
vinnur að.
Jarðræktarmiðstöð
Á undanförnum misserum hefur
orðið mikil endurnýjun á tækja búnaði
Jarðræktarmiðstöðvar Land bún aðar-
háskólans, m.a. með myndarlegum
styrkjum frá Innviðasjóði Rannís og
velunnurum skólans. Mikilvægt er
að hlúa vel að þessum grundvallar-
þætti í íslenskum landbúnaði, sem
er undirstaðan undir annað ræktun-
arstarf. Áfram verður unnið að upp-
byggingu á þessu sviði í samstarfi
við stjórnvöld og aðra hagaðila og
er undirbúningur að byggingu nýrrar
Jarðræktarmiðstöðvar kominn vel á
veg. Hér er grunnurinn lagður til
þess að hægt verði að efla tilraunir
og rannsóknastarf í kornrækt, úti-
ræktun grænmetis og ylrækt, og um
leið tryggja að tækifærin sem liggja
þar verði nýtt öllum til hagsbóta.
Orkídea – samstarfsverkefni
Fyrir rétt rúmu ári síðan var
formlega stofnað til samstarfs-
verkefnisins Orkídeu á vegum
Landbúnaðarháskóla Íslands,
Landsvirkjunar, Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga og sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra.
Megin markmið Orkídeu er að efla
nýsköp un og uppbyggingu orku-
tengdra tækifæra, sérlega á sviði
matvælaframleiðslu og líftækni.
Íslendingar eiga mikil tækifæri til
aukinnar verðmætasköpunar með
nýtingu hreinnar orku og annarra
náttúruauðlinda með sjálfbærni að
leiðarljósi. Verkefnið hefur farið
vel af stað undir stjórn Sveins
Aðalsteinssonar framkvæmdastjóra
og Helgu Gunnlaugsdóttur, rann-
sókna- og þróunarstjóra, m.a. með
viðskiptahraðlinum Startup Orkídea
í samstarfi við Icelandic Startups
sem fram fór í vor þar sem
einstakur vettvangur gafst
fyrir þróun viðskiptahug-
mynda og nýsköpunar-
verkefna á sviði hátækni-
matvælaframleiðslu og
líftækni.
Efling nýsköpunar
og fræðslu
Landbúnaðarháskól i
Íslands hefur á undan-
förnum mánuðum unnið
að nýju samstarfsverkefni á
Vesturlandi ásamt Háskólanum á
Bifröst og fleiri hagaðilum sem snýr
að eflingu nýsköpunar, rannsókna
og fræðslu á landsbyggðinni. Stefnt
er að því að efla samstarf milli há-
skólanna tveggja í Borgarfirði enn
frekar og skapa umhverfi fyrir aukna
samvinnu á sviði landbúnaðar,
matvælaframleiðslu, sjálfbærni og
loftslagsmála, sem og frumkvöðla-
starf á landsbyggðinni almennt
svo sem í ferðaþjónustu, nýtingu
náttúrugæða og menn ingartengdri
starfsemi. Áhersla verður lögð á að
stuðla að öflugu samstarfi hagaðila
innanlands og erlendis og fræðsla
verður efld til að mæta þörfum
bænda, frumkvöðla og atvinnulífs
á landsbyggðinni.
Björt framtíð
Tillaga að nýrri Landbúnaðarstefnu
fyrir Ísland hefur nú verið kynnt
um allt land og hefur hlotið góðan
hljómgrunn og í undirbúningi er
vinna við nýja fæðuöryggisstefnu.
Mikil gróska er í frumkvöðla-
starfsemi víða um land og ástæða
til að fyllast bjartsýni nú þegar
skólinn fyllist af framsýnum og
áhugasömum nemendum. Með öfl-
ugum hópi starfsfólks og farsælu
samstarfi við fjölmörg fyrirtæki og
stofnanir innanlands og erlendis
eru sóknartækifærin fjölmörg og
spennandi tímar framundan í starf-
semi skólans.
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir,
rektor Landbúnaðarháskóla
Íslands.
LÍF&STARF
LESENDAGSRÝNI
Molbúar eða
matarkistufólkið?
Landbúnaðarháskóli
Íslands í sókn
Jarðræktartilraunir við Landbúnaðarháskóla Íslands. Mynd / Rósa Björk Jónsdóttir.
Aukning í nemendafjölda við Landbúnaðarháskóla Íslands 2016-2021
Hrafndís Bára Einarsdóttir.
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Jarðrækt til framtíðar rædd á Hvanneyri í maí
2021.