Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Gufuá er landnámsjörð Rauða-
Björns, sem kom til landsins með
Skallagrími Kveldúlfssyni sem
nam land í Borgarfirði í upp-
hafi landnáms. Jörðin var nefnd
Rauðabjarnarstaðir eftir honum
en hefur í gegnum tíðina skipt
nokkrum sinnum um nöfn en
heitir nú eftir ánni sem rennur í
gegnum landið. Nokkrum sinn-
um hefur hún verið í eyði og nú
síðustu hálfa öld hafði ekki verið
stundaður búskapur þar.
Ábúendurnir Sigríður Ævars
dóttir og Benedikt Líndal ákváðu
að kaupa hana fyrir þremur árum,
setjast að og hefja búskap. Að Gufuá
var áður stundaður hefðbundinn
blandaður búskapur með kýr, kindur
og hross og hér var rjómabú í upp
hafi 20. aldarinnar.
Býli: Gufuá.
Staðsett í sveit: Gufuá er staðsett
í Borgarfirði, stutt fyrir norðan
Borgarnes.
Ábúendur: Ábúendur eru hjónin
Sigríður Ævarsdóttir jarðarmóðir
og Benedikt Líndal, reiðkennari og
tamningameistari, ásamt Sigurjóni
Líndal, 17 ára myndlistarnema,
yngsta barni okkar af fjórum, Hin
eru Ævar Þór, leikari og rithöfundur,
Guðni Líndal, leikstjóri og handrits
höfundur og Ingibjörg Ólöf, nátt
úru og umhverfisfræðingur. Einn
hundur er á bænum, tveir kettir og
nokkrar hænur auk framantalins
bústofns.
Stærð jarðar? Landstærð er um
280 ha allt óræktað land því þau
tún sem eitt sinn voru á jörðinni
eru löngu orðin eins og hver annar
úthagi. Hluta jarðarinnar höfum við
tekið undir skógrækt og annar hluti
er nýttur í verkefnið Landbúnaður
og náttúruvernd í samvinnu við
RML. Restin nýtist okkur til beitar.
Gerð bús? Við búum með hross
og stundum tamningar og þjálfun
ásamt ý.k. þjónustu við hestafólk,
s.s. reiðtygjaframleiðslu. Einnig
eru á bænum geitur og forystu
fé, sem nýtist fyrst og fremst í
afþreyingarferðaþjónustu sem rekin
er á bænum, þar sem boðið er upp
á upplifanir í anda hæglætis. Þar er
um að ræða göngutúra með geit
um, heimsókn í forystufjárhús og
vörðugöngur með sagnaþul og hægt
að skoða betur á www.gufua.com.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það er allt búið að vera mjög óhefð
bundið hjá okkur síðan við flutt
um að Gufuá og ekkert sem heitir
hefðbundinn vinnudagur. Síðan
við fluttum höfum við verið á fullu
við að koma okkur hér fyrir, jafn
framt því að skapa okkur lifibrauð
og það eru alls konar verkefni sem
þarf að leysa. Hér var ekkert þegar
við komum svo það er drjúgur tími
búinn að fara í ýmislegt sem fólki
finnst eðlilegt að sé til staðar þegar
það flytur í sveit.
Yfirleitt er farið á fætur milli 7 og
8 og það eru endalaus verkefni. Tek
bara daginn í dag sem dæmi: Hrossin
tekin og sett á beit í 1 klst. Geiturnar
fóru út á beit líka og geitaaðstað
an var þrifin á meðan. Kl.11 komu
gestir í geitalabb. Benni hélt áfram
að innrétta hnakkageymslu á meðan
hrossin voru á beit. Svo voru þau
rekin að aftur og hann fór að þjálfa
þau. E.h. þurfti að fara í Borgarnes í
útréttingar og eftir það fórum við í að
stækka bílaplan fyrir vörðugöngurn
ar okkar svo þar kæmust fyrir rútur
og stærri bílar. Country walkers
hópur á vegum Iceland Encounter
kemur í vörðugöngu á morgun og
þá er þetta klárt. Elsti sonurinn kom
í heimsókn með sína fjölskyldu í
kvöldmat og eftir það var gengið
frá skepnum fyrir nóttina.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Yfirleitt finnst okkur
allt sem snýr að vinnunni okkar
skemmtilegt og erfitt að taka þar
eitt fram yfir annað. Það er ánægju
legt að sjá árangur af því sem verið
er að vinna að, hvort sem það heitir
að rækta hross, temja hesta, græða
upp land, planta skógi, varðveita
vistgerðir eða annað. Leiðinlegast
er ef skepnur misfarast, veikjast
eða slasast.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Við sjáum fyrir okkur að við
munum áfram vera í því sem við
þegar erum að gera, þ.e. þjálfa
hross, þjónusta hestafólk, búa til
kennsluefni og stunda afþreyingar
þjónustu, en að hugsanlega verði
eitthvað af börnunum komið inn í
það með okkur eftir fimm ár.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í framleiðslu íslenskra búvara?
Við teljum tækifærin raunverulega
vera alls staðar hvað varðar alla
búvöruframleiðslu á Íslandi. Við
erum með svo hreinar vörur m.v. aðra
framleiðendur og eigum að gera út á
þá sérstöðu, hvort sem er kjöt, mjólk,
grænmeti eða ávextir. Við teljum að
það séu mikil ónýtt sóknarfæri í garð
yrkju og ylrækt á Íslandi.
Það er hægt að rækta nánast allt
sem okkur dettur í hug hér – ekki
bara gúrkur, tómata og paprikur í
gróðurhúsum. Það þarf að fara að
skoða þau mál vel og athuga hvað
er hægt að gera varðandi samrækt
með fiskeldi á landi.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Ostur, heimatilbúin kindakæfa,
ABmjólk, lýsi og mjólk er alltaf
í ísskápnum.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Vinsælasti maturinn er
lambalæri steikt að hætti hússins.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?Eftirminnilegasta atvik
ið var þegar við fluttum íbúðarhús
ið hingað að Gufuá, eftir að vera
búin að gera veg að bæjarstæðinu
og gerðumst landnemar 2017 hér á
þessari eyðijörð mitt í blómlegum
Borgarfirðinum.
Sumarlegur grillréttur og súkkulaði-fondue
Chutney er upprunnið úr
indversku matargerðinni og er
oft borið fram sem meðlæti við
kryddaða rétti. Chutney er oft
búið til úr forsoðnum ávöxtum,
sykri og kryddi. Þessi uppskrift
af chutney inniheldur ekki
soðna ávexti, heldur margar
ljúffengar og bragðgóðar ferskar
kryddjurtir. Chutney er auðvelt
að búa til og má bera fram sem
meðlæti með krydduðum réttum
eða sem dressingu fyrir salöt.
Chutney með kóríander og
myntulaufum úr garðinum
› 2 búnt af ferskum kóríander
› 1 búnt af ferskum myntulaufum
› 1 tsk. cumin
› 2 tsk. grænt chili
› 2 hvítlauksrif
› 3 cm engifer
› 2 msk. af lime-safa
› 1 tsk. salt
› 1 tsk. flórsykur
› 1 msk. af vatni
Aðferð
Fjarlægið stilkana af ferskri myntu
og kóríander.
Blandið kóríander, myntulaufum,
muldu kúmeni, hvítlauk, limesafa,
flórsykri, engifer og salti saman.
Bætið smá vatni út í. Chutney ætti
að vera þykkt, svo ekki bæta við of
miklu vatni.
Kryddið chutneyið með smá
auka salti og sykri. Best að nota
matvinnsluvél eða mortel.
Ef þú þarft innblástur fyrir bragðgóða
hversdagsrétti geturðu prófað að
breyta kryddjurtum og nota það sem
er í garðinum.
Tyrknesk lambaspjót á grillið
Grillkjötið er gott með grísku jógúrti,
sætu tómatmauki og ilmandi íslenskri
papriku.
Viðkvæmasti hluti lambakjötsins
– lundin – maríneruð í jógúrt og
tómatmauki, framreidd með papriku
og salati og jafnvel grilluðu flatbrauði
eða vefjum.
Þú getur keypt þennan mjúka vöðva
í mörgum matvöruverslunum. Hægt
er að útbúa þennan rétt líka með
lambakótelettum, lambalæri eða
jafnvel lambafile (hryggvöðva) með
sama hætti. Til að ná sem bestum
árangri skaltu nota gríska jógúrt –
sem er þykkari – og gott tómatmauk.
› 3 matskeiðar grísk jógúrt
› 2 msk. tómatmauk
› 1 matskeið ferskur sítrónusafi
› 3 hvítlauksrif, marin með hlið hnífs
› 2 tsk. sterkur chili-pipar, eða 1 tsk.
rauðar þurrkaðar piparflögur (má
sleppa)
› 1 tsk. þurrkað oregano
› ½ tsk. nýmalaður svartur pipar
› 1/3 bolli jómfrúar ólífuolía
› 1½ pund lambalund eða bógur
(beinlaus)
› Sætt eða heitt paprikuduft, helst
tyrkneskt ef fólk er á ferðalögum eða
fer í framandi kryddbúðir
› flögusalt
Aðferð
Setjið jógúrt, tómatmauk, sítrónusafa,
hvítlauk, chilipipar, oreganó og
svartan pipar í stóra blöndunarskál
og blandið saman. Þeytið ólífuolíunni
smám saman út í.
Ef þið notið lambalund, skerið
hana þversum í 3 cm bita. Ef þið
notið frampart, skerið hann í jafna
bita. Bætið lambinu í skálina með
marineringunni og látið marínerast í
kæli, lokað í 4 klukkustundir eða yfir
nótt; því lengur sem það marínerast,
því ríkara verður bragðið.
Takið lambakjötið úr marineringunni
og hendið henni. Þræðið síðan lamba
kjötið upp á spjót, þversum ef þið
notið lambalund. Stráið mjög ríku
lega með papriku og salti á spjótin á
allar hliðar. Kjötið ætti að vera
þakið kryddi.
Þegar þið eruð tilbúin til að
elda, penslið og smyrjið vel ef
þið notið grillrist. Raðið spjót
unum á heitt grillið og grillið
þar til lambið er fallega brúnt
og eldað í gegn, í 4 til 6 mínútur
á hlið, 8 til 12 mínútur samtals,
fyrir miðlungs steikt kjöt.
Flytjið grillaða lambakjötið
á fat eða diska, framreiðið
lambakjötið með bökuðum
lauk og steinselju og grilluðu
flatbrauði til að pakka þessu
öllu saman.
S’MORES ávaxta-
og súkkulaði-fondue
› 1 pakki Graham-kex
› 1 súkkulaðikex
› 1 poki sykurpúðar
› 1 krukka hnetusmjör (valfrjálst)
Fondue-dýfa
› 1 poki mjólkursúkkulaðibitar
› Eða af hvítum súkkulaðibitum
› 6-8 msk. mjólk
Kruðerí:
› 12 súkkulaðikökur, muldar
› 1 ½ bolli nammi að eigin vali
› 1 bolli rifinn kókos, (mjöl)
› 3/4 bolli ávextir
Aðferð
Búið til fat með ýmsum kextegund
um og sykurpúðum.
Skerið ávexti og íslensk jarðarber og
setjið á disk. Geymið í kæli þar til það
er tilbúið til að bera fram.
Í örbylgjuofni í skál (eða yfir eldi í
steypujárni), blandið saman mjólk
ursúkkulaðispæni með þremur
matskeiðum af mjólk. Örbylgjuofn
í 6090 sekúndur þar til súkkulaði
byrjar að bráðna. Hrærið þar til það
er alveg slétt. Ef súkkulaðið er enn
of þykkt til að dýfa, haldið áfram að
bæta við mjólk, eina matskeið í einu
þar til það er þynnra.
Setjið 12 súkkulaðikökur í lokaðan
plastpoka. Myljið smákökur með
kökukefli eða tréskeið. Berið fram
skál til að auðvelda dýfingu.
Útbúið nammibar og skerið í passlega
bita, á stærð við krónu. Berið fram í
skál til að auðvelda dýfingu.
Mælið út einn bolla af kókos í skál.
Setjið svo á spjót og látið gesti dýfa
ávöxtum og sykurpúðum í fondue
sósu og dýft aftur í nammi, kex og
kruðerí. Eða grillið sykurpúðana og
gerið frægu sykurpúðasamlokurnar
með Gramkexinu.
Athugið: Ef boðið er upp á
súkkulaðisósu í steypujárnspönnu,
vinsamlegast farið varlega þar sem
pannan verður mjög heit. Ég legg
til að flytja yfir í annað ílát ef börn
eru til staðar.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
bjarnigk@gmail.com
Gufuá
Benedikt Líndal og Sigríður
Ævarsdóttir.