Bændablaðið - 26.08.2021, Side 58

Bændablaðið - 26.08.2021, Side 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 58 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 LESENDAGREINAR Verðmæti eldisleyfa sem eru í eigu útlendinga Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi sem gefin var út 23. ágúst 2017 lagði grunn að eignarhaldi og miklum fjárhagslegum ávinningi erlendra fjárfesta og íslenskra leppa þeirra. Stjórnarformenn Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða voru þátttakendur í starfshópnum sem sömdu leikreglurnar sjálfum sér og sínum til fjárhagslega ávinnings. Málið fór síðan í gegnum alla stjórnsýsluna með litlum breytingum og var samþykkt á Alþingi Íslendinga á árinu 2019. Drifkrafturinn hefur verið að tryggja sér sem mest af eldissvæðum fyrir sjókvíaeldi á laxi, síðan skrá laxeldisfyrirtækin á erlendan markað og ná mikilli hækkun í hafi sem fyrst og fremst liggur í verðmætum eldisleyfa. Eitthvað hefði verið sagt ef þetta hefði verið framgangan varðandi regluverk í kringum íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið. Áhættumat erfðablöndunar er notað til að úthluta framleiðslu­ heimildum til laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila og hefur lítið sem ekkert með umverfisvernd að gera. Höfundur hefur skrifaður fjöldi greina um vankanta áhættumats erfðablöndunar í Bændablaðinu. Byggja grunninn Forráðamenn laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila fóru offari í að ,,helga sér svæði“. Arnarlax með um 70.000 tonn í ferli og Fiskeldi Austfjarða um 55.000 tonn eða um 70% allra eldissvæða um mitt ár 2016. Samkvæmt því sem kom fram í stefnumótunarskýrslunni sem var gefin út á árinu 2017 voru laxeldisfyrirtækin þá komin í meirihlutaeigu erlendra aðila. Hér er um að ræða laxeldisfyrirtækin Arnarlax, Fiskeldi Austfjarða, Laxa fiskeldi og Arctic Fish Farm. Í stefnumótunarskýrslunni voru lagðar fram hagstæðar tillögur og hindranir til að tryggja framgang þessara fyrirtækja. Úthlutun 2017 Áhættumati erfðablöndunar var ætlað að hemja uppbyggingu eldis á frjóum laxi og var á árinu 2017 komið með tillögur um 71.000 tonna framleiðsluheimildir og þar af 50.000 tonn fyrir Patreksfjörð, Tálkna fjörð, Arnarfjörð og Dýra fjörð. Athyglisvert er að Arnar lax fær allar sínar fyrir­ hug uðu framleiðsluheimildir á sunnan verðum Vestfjörðum en stjórnarformaður fyrirtækisins var annar af fulltrúum Landssambands fiskeldisstöðva í stefnumótunarhópnum. Á sama tíma var lokað fyrir allt eldi í Ísafjarðardjúpi þrátt fyrir að reiknilíkan áhættumatsins gæfi möguleika á nokkurra þúsunda tonna eldi og þar með var fyrirhugað laxeldi íslenskra fyrirtækja slegið út af borðinu. Af hverju var ekki farin sú leið að úthluta framleiðsluheimildum á öllum svæðum á Vestfjörðum þannig að öll fyrirtækin fengju einhverjar heimildir? Þetta er sérstaklega athyglisvert m.t.t. hvernig staðið var að úthlutun á árinu 2020 eins og fram kemur hér á eftir. Að þessu var stefnt Í fundargerð stefnumótunar hópsins frá 14.7.2017 kemur vel fram hvert menn voru að fara: „Ákveðið að nefndarmenn fái sendar glærur og áhættumatsskýrslu eftir klukkan 14 þegar hlutabréfamarkaði í Noregi hefur verið lokað.” Að því er virðist var búið að ákveða á þessum tímapunkti, og jafnvel töluvert fyrr, að hækka verðmæti eldisleyfa í hafi með að skrá félögin á erlendan hlutabréfamarkað. Í október 2017 koma áhugaverð frétt í Fréttablaðinu tæpum tveimur mánuðum eftir að stefnumótunarskýrslan var gefin út. Þar kemur fram að Midt­Norsk Havbruk greiði að lágmarki 965 milljónir fyrir ný hlutabréf í Fiskeldi Austfjarða en ef fyrirtækið fær leyfi til aukinnar framleiðslu á næstu árum gæti kaupverðið hækkað í allt að 3,9 milljarða króna. Úthlutun 2020 Það kemur á óvart að strax árið 2020 leggur áhættumat erfðablöndunar til um 20% aukningu framleiðsluheimilda með að leika sér með forsendur, sem eru vafasamar eða beinlínis rangar. Eflaust hefur verið mikill þrýstingur frá íslenskum leppum um að framleiðsluheimildir yrðu auknar enda mikil verðmæti undir í formi eldisleyfa. Niðurstaðan var m.a. að Ísafjarðardjúp var opnað utan við Æðey til eldis á frjóum laxi. Með þessari ákvörðun í skjóli áhættumats erfðablöndunar var aftur barið á íslensku fyrirtæki sem fyrirhugaði eldi innan við Æðey. Þessi ákvörðun er óskiljanleg vegna þess að líkur á að eldislax gangi í veiðiár úr slysasleppingum fyrir miðju Ísafjarðardjúpi, þar sem laxeldisfyrirtæki í meirihlutaeigu erlendra aðila eru staðsett, eru svipaðir og í tilfelli slysaslepping innan við Æðey. Verðmat á eldisleyfum Á árinu 2018 var byrjað að benda á mögulegan ofsagróða af sölu eldisleyfa í nokkrum íslenskum fjölmiðlum. Fram kom að verðmæti eldisleyfa laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila gætu verið frá u.þ.b. 1,5 til 3 milljónir króna á hvert tonn. Um það má deila hvort verðmæti eldisleyfa séu raunverulega þetta mikil. Í því sambandi má nefna að Ísland hefur verið á jaðarsvæði fyrir sjókvíaeldi á laxi en með væntanlegu hækkandi sjávarhita verða eldisleyfin verðmætari. Í greinum mínum í Morgunblaðinu hefur gróflega verið áætlað að verðmæti eldisleyfa Arnarlax væru 1,6 milljónir króna á tonn og í tilfelli Fiskeldis Austfjarða um 1,2 milljón króna á tonn. Höfundur hefur ekki aðgengi að jafn góðum gögnum og forsvarsmenn laxeldisfyrirtækjanna og geta þeir eflaust komið með nákvæmara og réttara verðmat á eldisleyfunum. Verðmæti eldisleyfa Með endurskoðun á áhættumatinu á árinu 2020 var heimilaður hámarks lífmassi af frjóum laxi í sjókvíum aukinn úr 71.000 tonnum í 106.500 tonn. Nú er búið að veita leyfi fyrir eldi á frjóum laxi fyrir um 83.000 tonnum að verðmæti um 110 milljarða og er þá miðað við verðmat upp á 1.3 milljónir króna á hvert tonn. Þrjú fyrirtæki eru komin langt í umhverfis­ og umsóknarferlinu með um 48.000 tonna heimildir og ef það gengur eftir geta heildarverðmæti eldisleyfanna verið um 170 milljarða króna. Gróflega má áætla að um 90% eldisleyfanna séu í eigu erlenda aðila. Eldisleyfi varanleg eign? Það er þekkt hvernig veiðireynsla verður að varanlegum kvóta hér á landi, en sú eign er a.m.k í eigu innlenda aðila og yfirleitt þeirra frumkvöðla sem hófu útgerð eða hafa keypt kvóta á háu verði. Í tilfelli eldisleyfa er búið að skapa mikil verðmæti með því að skrúfa upp verðmat eldissvæðanna með skráningu á erlenda hlutabréfamarkaði. Þegar kemur að endurnýjun á eldisleyfum eftir 16 ár verður þrýstingur á að um varanlega eign sé um að ræða eins og gerst hefur erlendis. Þegar að þessum tímapunkti er komið geta þeir sem fyrst komu að borðinu verið búnir að selja sinn hlut og taka út mikinn ávinning. Það munu hluthafar sem eftir eru, hugsanlega mest íslenskir, benda á og fara fram á að leyfin fáist aftur ódýr og/eða verði að varanlegri eign. Að lokum Sumir íslenskir leppar og erlendir fjárfestar hafa innheimt ávinninginn með sölu hlutabréfa og jafnvel nú þegar fengið allt sitt til baka með að selja hluta bréfanna. Miðað við verðmæti hlutabréfa laxeldisfyrirtækjanna á erlendum mörkuðum þá hafa erlendir fjárfestar lagt laxeldisfyrirtækjunum til tiltöluleg litla fjármuni. Erlendir fjárfestar sem komu að félögunum áður en þau fóru á hlutabréfamarkað geta selt hluta bréfanna til að ná inn öllu því sem lagt hefur verið í félögin en samt áfram verið meirihlutaeigendur. Erlendir fjárfestar hafa nú eignast íslenska firði (eldisleyfin) án þess að greiða neitt fyrir það. Það er ekki hægt að segja annað en þessi flétta íslenskra leppa og erlendra fjárfesta sé hrein snilld og ótrúlegt að slíkt geti gerst á Íslandi. Finnst ráðamönnum þetta í lagi? Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegs- fræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. Tafla 1. Heimilaður hámarks lífmassi af eldislaxi í sjókvíum í tonnum, leyfi sem búið er að úthluta og umsóknir í ferli Frjóir laxar Ófrjóir laxar Í ferli Samtals Arnarlax 25.200 14.500 39.700 Fiskeldi Austfjarða 18.500 2.300 17.000 37.800 Arctic Fish Farm 17.800 14.100 31.900 Laxar fiskeldi 16.000 16.000 Háafell 6.800 6.800 Samtals 84.300 2.300 45.600 132.200 Eldisleyfi Valdimar Ingi Gunnarsson. Laxeldi á Vestfjörðum. TÓNLIST&MENNING Upptökur og útgáfa laga sem legið hafa í leyni um árabil Eftir að hafa legið í leyni í 38 ár gerist sá forvitnilegi atburð- ur í þessari viku að upptökur af lögum tónlistarmannsins og garðyrkjubóndans Guðmundar Óla Ingimundarsonar, við texta ljóðskáldsins og fræðimanns- ins góðkunna, Ragnars Inga Aðalsteinssonar, koma nú loksins út á hljómplötu. Tekin voru upp níu verk og tónlistin fjölbreytt. Ýmsir landskunnir tónlistarmenn koma að plötunni, meðal annars Pálmi Gunnarsson, bassaleikari og söngvari, gítarleikararnir Ólafur „Labbi“ Þórarinsson og Þorsteinn Magnússon, hljómborðsleikarinn ásamt útsetjaranum Jón Kjeld Seljeseth og flautuleikarinn Gísli Helgason úr Vestmannaeyjum. Upptökur fóru upphaflega fram í Stúdíó Glóru árið 1983 undir stjórn Ólafs „Labba“ Þórarinssonar en hljóðjöfnun fyrir stafræna miðla var unninn á þessu ári af syni Labba, Bassa Ólafssyni. Gamall draumur Guðmundur segir að þrátt fyrir að honum finnist lögin og upptökurnar standast tímans tönn hafi hann verið hálf feiminn við að senda efnið frá sér. „Útgáfan er gamall draumur og kominn tími til að gefa efnið út áður en það verður of seint. Ég hef alltaf verið hrifinn af ljóðunum hans Ragnars, samdi lög við nokkur þeirra og hann samdi einnig ljóð við lögin mín þannig að þetta er samvinnuverkefni okkar á milli.“ Garðyrkjubóndi og tónlistarmaður Guðmundur er garðyrkjubóndi á Leyni í Laugardalnum í Bláskógabyggð og hefur rekið bú þar frá árinu 1979. „Upphaflega var ég með hænur og samdi stundum lög fyrir þær. Því næst ræktaði ég steinselju og kál og því næst gúrkur í gróðurhúsi. Í dag er ég eingöngu í útiræktun.“ Úr Leyni, kemur út hjá Zonet útgáfunni, sem sér um dreifingu tónlistarinnar í hljómplötuverslanir, sem jafnframt verður aðgengileg á Spotify. /VH Guðmundur Óli Ingimundarson garðyrkju- og tónlistarmaður.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.