Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 28
Fyrir tveimur árum benti vinkona
hennar á að ÍSAM væri að leita að
þátttakendum til að prufa nýjan
hárkúr. Hún sló til og að tveimur
árum liðnum er hún komin með
sítt og mikið hár og laus við óeðli-
legt hárlos. „Fyrir um tuttugu
árum síðan byrjaði ég að finna
fyrir miklu hárlosi og hárþynn-
ingu. Á sama tíma greindist ég
með vanvirkan skjaldkirtil. Alla
tíð síðan hefur hárið verið þunnt
og lélegt og hreinlega vonlaust að
reyna að safna síðu hári. Hárlosið
var svakalegt, það hreinlega datt
af mér hvert sem ég fór. Ég „fór úr
hárum“ eins og persneskur köttur,“
segir Auður.
Hafði engu að tapa
Prófunin byrjaði í ágúst 2020
og Auður byrjaði með einni
töflu tvisvar á dag, einni töflu í
hádeginu og þeirri seinni fyrir
svefn. „Ég hafði fyrir fram engar
sérstakar væntingar um árangur,
enda búin að prufa alls konar
hárkúra sem höfðu ekkert virkað.
Þar af leiðandi var ég búin að gefast
upp á að finna nokkra lausn við
mínum hárvanda. Ég hafði engu að
tapa þegar ég ákvað að vera með í
Nourkrin-prófunum, sem byrjuðu
með myndatöku. Þær myndir
sýndu að hárið var í mun verra
ástandi en ég hafði talið. Það var
kominn skallablettur á hvirfilinn
sem margir höfðu víst tekið eftir.
Ég er með náttúrulega krullað hár
sem hefur hjálpað við að fela hár-
þynninguna, en tókst ekki að fela
skallablettinn sem var byrjaður
að myndast á hvirflinum. Hár-
þynningin hefði verið mun meira
áberandi ef hárið hefði verið slétt.“
Skallabletturinn hvarf
„Ég ákvað strax að taka Nourkrin
mjög samviskusamlega samkvæmt
leiðbeiningum, tvisvar á dag, svo
úr yrði marktæk prófun. Ég vildi
vita hvort Nourkrin virkaði fyrir
mig. Eftir aðeins mánaðarprófun
fann ég mikinn mun. Hárlosið sem
hafði verið aðalvandamálið var
hætt. Þessi jákvæða svörun kom
mér skemmtilega á óvart. Ég hafði
aldrei búist við því að hárlosið
myndi hætta eftir aðeins mánaðar-
inntöku á Nourkrin.
Ég ákvað því að halda áfram að
taka Nourkrin tvisvar á dag, en
með því næst keðjuverkun yfir
allan sólarhringinn. Um leið og
sleppt er úr degi slitnar keðjuverk-
unin sem verður að lokum til þess
að fólk fær enga virkni af Nourkrin.
Þetta fann ég vel þegar ég hafði
ekki verið samviskusöm í inn-
töku Nourkrin einn mánuðinn og
misst út dag og nokkra hálfa daga.
Þennan mánuð stóð ég hreinlega
í stað. Ég lét þetta ekki koma fyrir
aftur og tók Nourkrin-töflurnar
samviskusamlega tvisvar á dag.
Árangurinn skilaði sér fljótt. Á
nokkrum mánuðum var skalla-
bletturinn nánast horfinn, hár-
losið gleymt og grafið, hárið orðið
sterkara og þykkara og ekki lengur
matt, heldur glansandi.“
Algengt vandamál
„Ég veit að hárlos og þunnt hár
er algengt vandamál sem hrjáir
margar konur og karla líka. Heilsu-
farsleg vandamál hafa yfirleitt
mikil áhrif á bæði hár og neglur,
sérstaklega þegar um langvinn
veikindi er að ræða. Í mínu tilfelli
var það vanvirkur skjaldkirtill.
Hjá öðrum geta aðrir sjúkdómar
eða þættir haft langvarandi áhrif
á heilsu fólks, sem kemur yfirleitt
fram í lélegu hári. Þrátt fyrir að
hárvandamál séu mjög algeng eru
þau viðkvæmnismál hjá báðum
kynjum og lítið rædd. Fólk segir
ekki frá prófunum á vöru gegn
hárlosi og þaðan af síður ef varan
virkar síðan ekki. Ýmsar vörur eru
í boði með alls kyns fullyrðingum
um góða virkni og erfitt að velja á
milli þegar einu upplýsingarnar
koma frá framleiðendum varanna.
Þess vegna hef ég valið að segja
frá minni reynslu og mæla með
Nourkrin, einfaldlega vegna þess
að Nourkrin virkar.“
Tekur tvöfaldan skammt
Í júní síðastliðnum ákvað Auður
að gera aðra tilraun á sjálfri sér.
„Ég er með vanvirkan skjaldkirtil
og því almennt með lélega upp-
töku á bæti- og næringarefnum.
Því datt mér í hug að athuga hvort
ég myndi fá meiri virkni með
því að tvöfalda skammtinn af
Nourkrin. Ég hugsaði að í versta
falli myndi engin breyting verða
eða ég fengi einhverja meiri
virkni.
Tvöfaldi Nourkrin-skammtur-
inn var á sama hátt og áður, en
nú tvær töflur í hádeginu og tvær
töflur fyrir svefn. Þegar ég byrjaði
þennan skammt í júní þá var ég
með axlarsítt hár en í nóvember
var ég komin með sítt hár niður
á bak. Það er hársídd sem ég hef
ekki náð í 20 ár! Vá, þvílík virkni
og breyting. Hárið varð mun
þéttara (skallabletturinn gjör-
samlega horfinn), hárið varð mun
sterkara og meiri vöxtur og enn
meira glansandi. Breytingin var
svo mikil að ég hafði samband við
ÍSAM og teknar voru myndirnar
sem hér eru sýndar. Gamla „Holly-
wood“ hárið mitt er komið aftur!“
Engin áhrif á annan hárvöxt
„Ég hef fengið margar spurningar
varðandi hárið því breytingin hefur
ekki farið fram hjá neinum sem
þekkir mig. Og ég hef sagt mörgum
frá Nourkrin og tvöfalda skammt-
inum mínum. Þá hef ég stundum
fengið spurningar um hvort ég
hafi nokkuð fengið „óæskilegan“
hárvöxt. Nei, ég hef ekki orðið vör
við neinn skeggvöxt, ef það hefði
gerst þá hefði ég snarlega farið aftur
í einfaldan skammt! Það byrjar
ekki hárvöxtur á líkamssvæðum
þar sem ekki var hárvöxtur áður.
Augnahárin tóku hins vegar við sér,
en þau voru orðin mjög döpur. Það
er eini viðbótar hárvöxturinn sem
ég hef orðið vör við og er að sjálf-
sögðu hæstánægð með.
Þetta sýnir bara hvað það er góð
virkni í þessu bætiefni. Sumum
þykir þetta dýrt, en í dag er þetta
jafn ómissandi hluti og að taka lýsi
fyrir mig. Ég vel að taka Nourkrin
því hárið skiptir mig meira máli en
neglur eða augnháralengingar og
vegna þess að það svínvirkar fyrir
mig. Ég veit það líka að ef ég myndi
hætta að taka þetta inn þá dytti
verkunin niður og ég fengi gamla
lélega og þunna hárið aftur, og ég
hef engan áhuga á að fá það hár
aftur!“
Nourkrin virkar vel gegn hárlosi
Rannsóknir sýna að Nourkrin
bætiefnið vinnur gegn hárlosi og
stuðlar að eðlilegum hárvaxtar-
hring. Hárlos getur haft ýmsar
orsakir en Nourkrin nærir hár-
sekkina svo þeir geti viðhaldið
eðlilegum hárvaxtarhring.
Hár er mikilvægur partur af útliti
okkar og sjálfstrausti. Þetta kemur
enn frekar fram þegar upp koma
hárvandamál eða hármissir og
þá gera sérstaklega konur sér enn
frekar grein fyrir mikilvægi hársins.
Hárvandamál eru algeng en talað
er um að allt að 60 prósent kvenna
upplifi óeðlilega mikið hárlos ein-
hvern tímann á lífsleiðinni. Oft er
þetta mikið feimnismál og því lítið
rætt og reynt að láta sem minnst á
því bera. Það er því gaman að geta
sagt frá Nourkrin hárbætiefninu,
sem hægt er að sýna með klínískum
rannsóknum að virki.
Byltingarkennt bætiefni
Eðlileg hringrás hárvaxtar
líkamans kallast hárvaxtarhringur.
Í eðlilegum hárvaxtarhring eru
85-90% háranna á vaxtarstigi á
meðan 10-15% þeirra eru á hvíldar-
stigi eftir að hafa náð fullum vexti.
Þegar hárlos á sér stað brenglast
hinn hefðbundni hárvaxtarhringur
vegna þess að hársekkirnir fá
ekki réttu næringarefnin. Helstu
ástæður hárloss eru meðal annars
stress, veikindi, sykursýki, lyf,
reykingar, meðganga, fæðing, hár-
meðhöndlun og fleira.
Nourkrin hárbætiefni fyrir
konur og karlmenn hefur verið selt
á Íslandi síðan 2018, en verið til á
heimsvísu síðan 1986 og er marg-
verðlaunað hárbætiefni, það vin-
sælasta í Bretlandi. Nourkrin hár-
bætiefnið er 100% lyfjalaust og eina
hárbætiefnið sem byggir á fjölda
klínískra rannsókna sem birtar
hafa verið í ritrýndum vísindatíma-
ritum. Nourkrin inniheldur hið
byltingarkennda Marilex bæti-
efni sem er einkaleyfisvarið efni,
unnið úr þykkni úr fiskbeinum og
inniheldur rétt hlutfall af svoköll-
uðum próteóglýkönum, sem næra
hársekkina svo þeir geti viðhaldið
eðlilegum hárvaxtarhring.
Nourkrin er algjörlega öruggt
og allir mega nota það, nema
þeir sem hafa ofnæmi fyrir fiski
og skelfiski, þar á meðal ófrískar
konur og konur með barn á brjósti.
Hefðbundin meðferð er tvær töflur
daglega í sex mánuði. Ástæðan
fyrir lengd meðferðarinnar er sú að
það tekur hárvaxtarhringinn sex
mánuði að ná jafnvægi. Hársekk-
irnir geta verið á misjöfnum stað í
sínum hring þegar meðferð hefst og
því tekur þetta þennan tíma.
Góður árangur í prófun
Árið 2020 var farið af stað með
fyrsta prófanahópinn á Íslandi fyrir
Nourkrin. Sextán einstaklingar á
aldrinum 26-75 ára, fimmtán konur
og einn karlmaður, voru valin
til að prófa vöruna í sex mánuði.
Meðalaldur þátttakenda var 50 ár.
Ástæður hárloss hjá þátttakendum
voru misjafnar en flest höfðu glímt
við hárlos í töluverðan tíma og
prófað margt til að minnka það.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru
mjög ánægjulegar og sýndu að allir
þátttakendur fundu mun á hárinu
eftir að hafa tekið inn Nourkrin.
Helstu ástæður hárloss þátttak-
enda í rannsókninni voru:
n Vanvirkur skjaldkirtill
n Sjálfsofnæmi (Alopecia)
n Legslímuflakk
n Sykursýki 2
n Skortur á B12
n Psoriasis, psoriasis gigt
n Lyf
n Álag, stress í kjölfar veikinda,
dauðsfalla eða annarra per-
sónulegra ástæðna
Einnig hafa nýleg gögn sýnt fram á
að Nourkrin virkar mjög vel á fólk
sem hefur lent í hárlosi í kjölfar
Covid-19.
Nýr prófanahópur
OJK-ÍSAM er að fara af stað með
nýjan prófanahóp fyrir Nourkrin.
Ef þú ert með hárvandamál eða
þekkir einhvern með þannig
vandamál, endilega sendið póst á
joninab@ojk-isam.is. n
Nourkrin fæst í öllum helstu
apótekum. Nánari upplýsingar á
isam. is/nourkrin
Fyrir Nourkrin
Auður var með skallablett á kollinum eftir mikið hárlos.
Eftir Nourkrin
Eftir nokkurra mánaða inntöku á Nourkrin var skallabletturinn horfinn.
Nourkrin hárbætiefnið er 100% lyfjalaust og eina hárbætiefnið sem byggir á
fjölda klínískra rannsókna sem birtar hafa verið í ritrýndum vísindatímaritum.
2 kynningarblað A L LT 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR