Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 24
og fyrsta samfélagsmiðlabylting- in, svokölluð „Beautytips bylting“, á sér stað, að eignast nýjan mann og í ljós kemur að vinur hans er gerand- inn minn.“ Í kjölfar umræðunnar á sam- félagsmiðlum gengst hann við verknaði sínum við vin sinn. „Hann brotnar niður og segist hafa fyrir- litið sjálfan sig í öll þessi ár vegna þessa. Hann sagðist vilja taka skömmina frá mér en vissi ekki hvernig hann færi að því og spurði þessa sameiginlegu vini okkar hvað hann ætti að gera.“ Diljá segir þær fréttir hafa verið meira áfall en hana hefði grunað. „Ég öskurgrét og áttaði mig þá á ábyrgðinni sem ég var alltaf að taka: Ég hlyti að hafa boðið upp á þetta, ég tók hann með mér heim, ég hlyti að hafa sagt eitthvað. Samt var ég búin að fara í mikla sjálfsvinnu.“ Diljá leitaði til Drekaslóðar í framhaldi af fréttunum og það tók hana tíma að átta sig. „Afleiðingar ofbeldisins eru ekki bara það að ég hafi ekki eignast mann og gift mig heldur var ég oft búin að koma illa fram við sjálfa mig. Ég vissi ekki hvar mín mörk lágu. Ég var búin að velja mér öll erfiðustu verkefnin í karlamálum. Það er oft sagt að maður leyfi of beldinu að lifa með sér með því að fara yfir eigin mörk, að maður verði lauslátur til að reyna að fá völdin sem voru tekin af manni eina nótt og geta stýrt ferðinni.“ Fordæmi fyrir aðra gerendur Það að umræðan hafi fengið ger- andann til að axla ábyrgð segir Diljá hafa veitt sér trú á að byltingarnar séu að virka. „Þöggunin er ekkert alltaf besti vinur gerandans. Gerandinn minn á í dag konu og barn og það að hann hafi stigið þetta skref hlýtur að vera heilandi fyrir fólkið í kringum hann.“ Diljá segir að sér hafi staðið til boða að vinna úr þessu á þann hátt sem hún vildi og hún hafi fengið allan þann stuðning sem hún þurfti. En hún valdi ekki að hitta gerand- ann. „Við vissum um Heimilisfrið, sem býður þeim sem beita ofbeldi með- ferð, og við lögðum til að hann færi þangað, sem hann og gerði. Ég finn ekki þörf fyrir að setjast niður með honum en finn hversu mikill friður varð innra með mér við það að hann staðfesti að hann hefði brotið á mér. Ég er ekki að segja þessa sögu til að skila skömminni, ég fékk að gera það fyrir nokkrum árum. Ég er búin að skila henni til hans því hann tók við henni. Mig langar til að segja þessa sögu því kannski gæti hún orðið fordæmi fyrir aðra gerendur, þó alltaf á forsendum þolendanna.“ Vantar úrræði fyrir gerendur „Við verðum líka að búa til f leiri úrræði fyrir gerendur til að taka ábyrgð á verknaði sínum eða glæp og þannig held ég að ofbeldismenn- ingin eigi eftir að dvína. Í leiðinni verðum við að grípa fyrr inn í hjá börnum sem búa við óásættanlegar aðstæður og þannig koma í veg fyrir að þau séu aftengd öðrum og stundi því áhættuhegðun eða ofbeldi. Þetta hangir allt saman en við verðum að fara að forgangsraða þessum „mjúku málum“ sem mér finnst vera hörð- ustu málin, miklu ofar.“ Diljá segir sjálfstraustið og sjálfs- virðinguna hafa vaxið undanfarin ár og það hafi sjálfkrafa gerst með móðurhlutverkinu. „Ég hef fengið áþreifanlega stærri verkefni með Lunu en líka áþreifan- lega miklu stærri gjafir,“ segir hún um ljósið í lífi sínu, litlu dótturina Lunu. „Það er einmitt um þetta leyti fyrir fjórum árum sem ég er nýbúin að komast að því að ég sé ólétt. Kom- andi frá einstæðum mæðrum fannst mér ekkert ólíklegt, alla vega í fyrsta sinn, að ég yrði einstæð móðir og ég óttaðist það ekki neitt,“ segir Diljá sem frá fyrsta degi hefur ein séð um umönnun og uppeldi dótturinnar. Dóttirin fæddist tvær merkur „Það var í 20 vikna sónar um miðjan maí þar sem kemur í ljós að um stelpu sé að ræða, að það sést að hún sé með aðeins styttri útlimi en eðli- legt telst.“ Um er að ræða eitt einkenna fóstra með Downs heilkenni en skoðunin sýndi engin önnur ein- kenni þess. „Mér var þá boðið að fara í f leiri vaxtarsónara til að fylgjast betur með. Ég fagnaði því enda fengi ég þá fleiri myndir,“ segir Diljá og hlær. Það er svo mánuði síðar í vaxtar- sónar að þurrkur í naflastreng og fylgju greinist og ljóst að barnið fær hvorki nægilegt súrefni né næringu. „Mér er þá bara sagt, komin 25 vikur, að hún verði að koma í heim- inn. Ég trúi ekki því sem er verið að segja við mig og spyr hvort þau geti ekkert gert, sprautað mig bara.“ Henni er sagt að ná verði í barnið innan skamms og fjórum dögum síðar, á 26 viku meðgöngu er fæðing sett af stað. „Hún fæðist 22. júní, nokkrum stjörnumerkjum á undan áætlun eða þremur og hálfum mánuði. Hún var aðeins 510 grömm eða tvær merkur og 29 sentímetrar og langsamlega minnsta manneskjan á landinu þá. Hún bjó á vökudeild í fjóra mánuði eða fram í miðjan október 2018. Þar áttum við dásam- lega tíma en líka oft mjög átakan- lega.“ Skellurinn kom aldrei Diljá fékk sálgæslu frá séra Vigfúsi Bjarna Albertssyni og segir að það samtal hafi fylgt henni vel inn í verkefnið fram undan. „Í mínu tilfelli var þetta bara eins og að fá bestu mögulegu fjallgöngu- skóna og nesti á leiðinni upp fjallið. Þarna var ég með litla barnið sem ekki var sjálfgefið að lifði þetta af en upplifði endurstillingu á sál og huga og ég heillaðist af þessu fyrirbæri.“ Þegar Luna var vikugömul kom í ljós að hún er með Downs heil- Ég er ekki að segja þessa sögu til að skila skömm- inni, ég fékk að gera það fyrir nokkrum árum. Afleiðingar ofbeldisins eru ekki bara þær að ég hafi ekki eignast mann og gift mig heldur var ég oft búin að koma illa fram við sjálfa mig. Mæðgurnar Diljá og Luna. „Þegar maður er aðallega að vona að barnið manns lifi af er einn aukalitn- ingur bara mega næs,“ segir Diljá. kennið en Diljá segir það að eiga fatlað barn ekki hafa komið henni sérstaklega á óvart, innsæið hafði sagt henni það lengi. „Fyrstu dag- ana eftir fréttirnar var ég alltaf að bíða eftir skellinum, en hann kom aldrei. Þegar maður er aðallega að vona að barnið manns lifi af er einn aukalitningur bara mega næs,“ segir Diljá. „Svo hef ég komist að því að alla vega á fyrstu árum barna með Downs heilkennið eru móttökur kerfisins þvílíkt góðar og ég upp- lifi oft að við séum á rauðum dregli. Ég veit að það er ekki upplifunin með allar fatlanir en það er mikil- vægt að kerfið standi ekki í vegi fyrir hamingju fjölskyldna fatlaðra barna. Greiningar eru eitt og lífsins verkefni er annað og við fáum þau alltaf upp í hendurnar. Ef viðhorfið er nokkuð jákvætt getum við lifað góðu lífi. Stundum er lífið bara mjög erfitt en það þarf ekki að vera vont.“ Luna hefur upplifað ýmsar áskor- anir á stuttri ævi og segir Diljá vís- indafólkið sjálft, læknana, hafa fengið trú á kraftaverkin sem fylgt hafa þessari litlu stelpu. „Þegar hún er níu vikna fær hún mjög alvarlega bakteríusýkingu í blóðið og við vorum mjög nálægt því að missa hana,“ Diljá sótti styrk í hóp sem hún bjó til á Facebook. „Þar bað ég fólk að senda ljós og styrk með sínu nefi og ég held að þarna hafi kraftaverkafarvegurinn myndast.“ Smáatriðaþakklætið Luna verður fjögurra ára í sumar og er umvafin ást allra í kring um sig. „Hún er að byrja að labba sjálf og ég hugsa oft þegar ég sæki hana í leikskólann, kannski þreytt eftir langan fund: „Þetta er ekkert sjálf- gefið, hún var næstum dáin.“ Það er svo mikil gjöf að vera í svona smá- atriðaþakklæti og mér finnst það mjög stór partur af geðheilsunni í mínu lífi. Þegar þessir litlu hlutir verða f lugeldasýning og lúðra- sveit.“ Þar sem hún fæddist svo langt fyrir tímann er Luna með mjög viðkvæm lungu og hefur nokkrum sinnum þurft að leggjast inn á spít- ala vegna þess og segir Diljá það vera sérstakt álag sem fylgir því að eiga barn á spítala. „Foreldri fer í baráttugír þegar barnið er veikt. Þú finnur ekki fyrir erfiðleikum með adrenalínið í botni. Svo þegar hún er orðin frísk þá krassa ég,“ segir Diljá sem er sífellt að læra betur að þiggja þá aðstoð sem henni býðst. „Hún á tvær stuðningsfjölskyldur og þar fær hún að blómstra inni á öðruvísi heimilum þar sem eru önnur börn og dýr. Það er gjöf í allar áttir: Hún blómstrar, ég fæ frí og fjölskyldurnar græða á að vera með eina litla yndislega inni á heimilinu eina helgi í mánuði.“ Diljá segir Lunu hafa þétt raðirnar í stórfjölskyldunni. „Það hafa allir þurft að kveikja á ljósum í hjartanu þegar brekkurnar eru brattar,“ segir hún einlæg. Diljá hefur verið dugleg að birta fréttir af Lunu á Facebook enda vill hún að fólk heyri jákvæðar upp- lifanir foreldra með fatlað barn. „Markmiðið er að einhver finni þakklæti og tilhlökkun ef það fær Downs greiningu fyrir barnið sitt,“ segir Diljá að lokum. Þakklát. n Fyrsti kossinn. Diljá fékk að halda á Lunu í fyrsta sinn þegar hún var þriggja vikna gömul. MYND/AÐSEND  24 Helgin 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.