Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 10
Ég sagði ykkur við lok síðasta tónleikaferða- lags að ég myndi sjá ykkur næst. Að ég myndi koma aftur. Ég er kominn aftur. Paul McCartney Árið 2014 veigraði Ólafur Ragnar, fyrr- verandi forseti, sér við að gagnrýna Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Baldur Þórhalls- son, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ Það er athyglisvert hvað nálgun Guðna og Ólafs Ragnars sem forseta gagnvart framgöngu Rússa í Úkraínu er ólík, segir prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Guðni tali í takt við íslensk stjórnvöld en Ólafur Ragnar hafi farið eigin leiðir. elinhirst@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL „Það er áhugavert að bera orð Guðna Th. Jóhannes- sonar, forseta Íslands, um fram- göngu Rússa í Úkraínu saman við ummæli Ólafs Ragnars Grímsson, fyrirrennara hans, þegar Rússar tóku yfir austurhéruð Úkraínu og Krímskaga 2014,“ segir Baldur Þór- hallsson, prófessor í stjórnmála- fræði. Sem kunnugt er hafa rússnesk yfirvöld lýst yfir vonbrigðum með tíst forseta Íslands um að Ísland sýni fulla samstöðu með banda- mönnum NATO í ákalli til Rússa um að minnka hernaðarleg umsvif og virða lýðræði og landhelgi Úkraínu. „Árið 2014 veigraði Ólafur Ragnar, fyrrverandi forseti, sér við að gagn- rýna Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu til þess, að sögn, að halda góðu talsambandi við Kreml. Ólafur Ragnar gagnrýndi ráðherra í Nor- egi harðlega fyrir að blanda Krím- deilunni inn í málefni norðurslóða. Hann vildi vera sá leiðtogi Norður- landa sem héldi góðu sambandi við Rússa. Guðni tekur aftur á móti allt annan pól í hæðina en fyrirrennari hans. Þetta er algerlega í samræmi við það sem hann hefur sagt um að hann fylgi stefnu íslenskra stjórn- valda í utanríkismálum og sýnir í verki að hann gerir það. Hörð viðbrögð Rússa við ummæl- um forseta Íslands eru kannski ekk- ert óeðlileg miðað við það dipló- matíska stríð sem nú er í gangi. Rússnesk stjórnvöld láta forsetann heyra það. Það sem gerist hins vegar þegar hann stígur inn með þessum hætti, er að Ísland öðlast meiri vigt í bandalagi vestrænna þjóða, en Guðni hefði ekkert þurft að gera þetta. En þetta sýnir vel að það skiptir máli hvað forseti Íslands gerir og segir,“ segir Baldur. Því má bæta við að utanríkisráðu- neytið segir orð forseta Íslands í fullu samræmi við stefnu ríkis- stjórnarinnar. ■ Guðni forseti styrkir stöðu vestrænna þjóða Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ólafur Ragnar skammar norskan ráðherra árið 2014 Í mars 2014 setti Ólafur Ragnar ofan í við Ingvild Næss Stub, að- stoðarutanríkisráðherra Noregs, á ráðstefnu í Bodö í Noregi, fyrir að nota vettvang Norðurskautsráðsins til að gagnrýna athafnir Rússa í Úkraínu. Forseti Íslands taldi ráðstefnuna ekki vera réttan vettvang til að gagnrýna einn af meðlimum ráðsins. Í nóvember 2015 sagði Jonas Gahr Störe, formaður norska Verka- mannaflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, að Norð- menn væru að glata frumkvæði i umræðunni um norðurslóðir til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Ís- lands. Ólafur Ragnar Grímsson ræddi við Pútín Rússlandsforseta í Rússlandi árið 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY gar@frettabladid.is TÓNLIST Bítillinn Paul McCartney tilkynnti í gær um nýtt tónleika- ferðalag. „Ég sagði ykkur við lok síðasta tónleikaferðalags að ég myndi sjá ykkur næst. Að ég myndi koma aftur. Ég er kominn aftur,“ segir Paul á vefsíðu sinni þar sem sagt er frá tíðindunum. Nýja tónleikaferðalagið verður undir yfirskriftinni Got Back sem auðvitað er leikur að titli hins fræga lags Get Back með Bítlunum og heiti nýju þáttanna um hljómsveitina sem sýndir hafa verið á Disney+ efnisveitunni. Got Back tónleikaferðalagið hefst 28. apríl í Spokane í Washing- tonríki. Þeir tónleikar sem að svo komnu máli hafa verið settir á blað eru fjórtán talsins og verða allir í Bandaríkjunum, þeir síðustu 16. júní í Met Life Stadium í New Jersey. Paul McCartney verður áttræður 18. júní, tveimur dögum eftir tón- leikana í New Jersey. ■ McCartney efnir orð sín og snýr aftur Paul McCartney verður áttræður 18. júni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Birna Halldórsdóttir 72 ára fyrrverandi sendifulltrúi hjá Rauða krossinum Allt er fullorðnum fært! Ég tók meirapróf 70 ára og leiðsögumannapróf 65 ár. Námskeið U3A um menningararfleifð nýtist mér verulega vel í leiðsögninni. Og ég er ekki hætt – ég fylgist áfram með öllu því sem er í boði í Vöruhúsi tækifæranna. Tilgangur Vöruhúss tækifæranna er að auðvelda fólki á þriðja æviskeiðinu að gera breytingar á lífi sínu og láta óskir sínar rætast. Vöruhúsið er spennandi nýjung sem svarar kalli sífellt stækkandi hóps fólks sem komið er yfir miðjan aldur og vill feta nýjar slóðir í lífinu á einn eða annan hátt. Líttu inn á vöruhús tækifæranna.is 10 Fréttir 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.