Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 74
Herbergið var raun- verulegra í kvikmynd- inni, en herbergið sem var búið til fyrir heim- ildamyndina náði að fanga andrúmsloftið og tilfinningar mínar þar. Fólk skilur það ekki, en það var mjög mikil- vægt að eiga eitthvað. Af því að þetta er mín saga. Natascha Kampusch var tíu ára gömul þegar Wolf- gang Přiklopil rændi henni snemma morguns 2. mars 1998. Saga Natöschu er efni nýrra heimildaþátta sem varpa ljósi á þolendaskömm og mikla gerendameðvirkni sem Natascha upplifði eftir flóttann. Það var snemma morguns 2. mars sem Wolfgang Přiklopil tók Natösc- hu þegar hún var á leið í skólann. Það var ekki fyrr en átta og hálfu ári síðar sem hún flúði heimili hans, en á meðan hann hélt henni beitti hann hana of beldi nær daglega og svelti. Þann 23. ágúst 2006 nýtti Natascha tækifærið á meðan hann var í símanum og flúði. Saga Natösc- hu er efni nýrra heimildaþátta sem verða teknir til sýninga á Viaplay í næstu viku. Þættirnir fjalla um það hvernig Přiklopil kom fram við Kampusch en hann beitti hana ofbeldi og svelti hana nærri daglega, en umfjöllunar- efnið er einnig hvernig almenn- ingur, lögreglan og fjölmiðlar tóku á móti henni þegar henni tókst loks að f lýja þær hræðilegu aðstæður sem hann bjó henni, þar sem hann beitti hana líkamlegu of beldi nær daglega og nauðgaði henni. Hann svelti hana og þegar hún losnaði úr prísundinni var hún jafn þung og þegar hann handsamaði hana, 42 kíló. Hann lét hana raka af sér allt hárið svo það væri ekki hægt að finna hár heima hjá honum og lét hana elda fyrir sig og þrífa. Þegar hann fékk heimsóknir læsti hann hana niðri í kjallaranum, stundum dögum saman. Eftir að hún flúði var hún sökuð um að hafa viljað vera hjá honum, fordæmd fyrir að líða illa yfir and- láti hans, sökuð um að hafa eignast barn og gefið í skyn að hún hefði drepið það auk þess sem fjölskylda hennar, og sérstaklega móðir henn- ar, var sökuð um að hafa átt þátt í hvarfinu með því að selja hana í barnaníðshring. Mikilvægt í sögulegum skilningi Kampusch hefur sjálf gefið út þrjár bækur um mannránið, ofbeldið og afleiðingar þess, en tekur nú þátt í þessum heimildaþáttum og segir sjónarhorn þáttanna henni mikil- vægt, en líka í sögulegu tilliti. Spurð hvers vegna hún ákvað að vera með segir Kampusch að í gegnum tíðina hafi hún margoft verið beðin að vera með í slíkum þáttum en að áhersla framleiðand- ans hafi vakið athygli hennar í þessu tilviki, þar sem mikið er fjallað um þolendaskömm. „Ég hef svo oft verið beðin um að taka þátt í svona verkefnum með ólíkum hópum í annað hvort kvik- myndum, verkefnum eða heimilda- myndum eða -þáttum en í þetta sinn fannst mér hugmyndin áhugaverð. Að breyta sjónarhorninu og ramm- anum og mér fannst mikilvægt að þetta yrði til í sögulegu samhengi,“ segir Natascha og bætir við: „Ég vildi vera með til að búa til nýtt sjónarhorn og til að ná utan um málið aftur, ekki fyrir mig, heldur fyrir áhorfendur. Sagan hefur alltaf verið sögð af blaðamönnum og með þeirra sniði, greinum eða þáttum. En sagan er ein heild og það er það sem þættirnir eru.“ Fönguðu tilfinninguna vel Í þáttunum er herbergið sem Přiklo- pil bjó til í kjallaranum heima hjá sér endurgert á þremur ólíkum tímum í lífi Natöschu. Herbergið var staðsett í kjallara undir bílskúrnum heima hjá honum og hann varði um fjórum árum í að búa það til, áður en hann rændi henni. Herbergið var um fimm fer- metrar, gluggalaust og algerlega hljóðeinangrað. Þegar hún kom fyrst var nánast ekkert inni í því. Það liðu nokkrir Natascha Kampusch segir að það sé henni mikivægt að saga hennar sé sögð sem ein heild og tók þess vegna þátt í þáttunum. MYND/VIAPLAY NENT GROUP Ég sé styrk minn þegar ég sé hverju ég hef sigrast á dagar þar til hún fékk dýnu til að liggja á en smám saman færði hann henni meira til að hafa hjá sér eins og dót og föt. Eftir að henni var rænt var Natascha samfleytt sex mánuði ofan í kjallaranum áður en hún fékk loks að fara upp í íbúðina til að fara í sturtu. Fyrstu árin varði hún mest- um sínum tíma í kjallaraherberginu en eftir því sem á leið leyfði Přiklopil henni að dvelja fleiri stundum í hús- inu. Undir lokin var hún svo neydd til þess að sofa með honum í rúmi en hann hlekkjaði hana fasta við rúmið. Hvernig leið þér þegar herbergið í kjallaranum var endurgert fyrir myndina, á ólíkum tímum lífs þíns? „Það var skrítin tilfinning en hún var ekki endilega ný, vegna þess að það er ekki langt síðan það var gerð kvikmynd um það sem gerðist. Ekki það sem gerðist nákvæmlega, en það var gerð mynd og ég fór í stúd- íóið. Herbergið var raunverulegra í kvikmyndinni, en herbergið sem var búið til fyrir heimildamyndina náði að fanga andrúmsloftið og til- finningar mínar þar. Það var allt í einum lit en þau náðu samt að fanga andrúmsloftið,“ segir Natascha. Natascha á enn mikið af því dóti sem hún eignaðist á meðan Přiklo- pil hélt henni gegn vilja hennar og í þáttunum er farið yfir það hversu mikið fólk hneykslaðist á því að hún vildi geyma þessa hluti og gerir enn. „Fólk skilur það ekki, en það var mjög mikilvægt að eiga eitthvað. Af því að þetta er mín saga. Ég get ekki skorið á þarna og sagt að þetta sé bara fortíðin og að 12 ára, 14 ára og 15 ára hafi ég verið alter-ego sem er ekki til. Ég var lifandi á þessum tíma. Ég bjó til listaverk og hélt dag- bók. Þetta var líf mitt.“ Meðal þess sem Natascha hefur geymt er kjóllinn sem hún var í þegar Přiklopil rændi henni, en á meðan hún dvaldi hjá honum þurfti hún að taka hann í sundur því hún passaði ekki lengur í hann. Núna hefur hún saumað hann aftur saman og geymir hann til minn- ingar. Lovísa Arnardóttir lovisaa @frettabladid.is 23. ágúst dagur frelsis Spurð um dagsetningarnar, það er daginn sem hann tók hana og dag- inn sem hún flúði, segir Natascha að dagurinn sem hún náði að flýja sé henni sérstakur. „Dagarnir eru stundum sérstakir, en stundum eru blaðamenn að reyna að gera þá sérstaka, en fyrir mér er dagsetningin í ágúst miklu merkilegri.“ Það sést í viðtölum við Natöschu og í undirbúningi þessa viðtals að hún er mjög varkár um það sem hún segir og það sem hún vill að fólk viti um hennar sögu. Spurð hvort það tengist því hvernig fjölmiðlar tóku á móti henni þegar hún varð aftur frjáls, játar hún því og segir að enn í dag eigi hún oft erfitt með að treysta. „Áður fyrr passaði ég mjög vel upp á sjálfa mig og hélt góðri fjar- lægð frá þeim sem ég taldi hafa nei- kvæð áhrif og hugsanir. Nú er það ekki eins erfitt og það var. Það er auðveldara að takast á við það.“ Lögreglan hrædd Stuttu eftir að Natascha flúði birti lögreglan myndir úr kjallaranum og fór í viðtöl þar sem hún lýsti því sem hún hafði sagt við hana. Spurð hvað lögreglan gæti gert öðruvísi, eða fjölmiðlar, segir Natascha að hún geri mikinn greinarmun á lög- reglunni og fjölmiðlum og þeirra viðbrögðum á þessum tíma. „Ég geri mikinn greinarmun á lög- reglunni og fjölmiðlum vegna þess að í fjölmiðlum var sagt frá málinu á blaðamannafundi lögreglunnar. En kannski hefðu þau ekki átt að taka öllu sem gefnu sem kom þar fram og ekki átt að vera sátt við þær upp- Herbergið í kjallaranum var endurgert. Það er um fimm fermetrar. Á neðstu myndinni eru hlutirnir hennar Natöschu. MYND/VIAPLAY/ NENT GROUP  30 Helgin 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.