Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 26
Þú átt að
lesa það
sem þig
langar til
að lesa, svo
lengi sem
þú ert að
lesa eitt-
hvað.
Punktur.
Foreldrahlutverkið, þáttagerð
og útgáfa fjölda barnabóka, er
meðal þess sem drifið hefur
á daga Ævars Þórs Benedikts-
sonar leikara síðan hann stóð
síðast á leiksviði fyrir sex
árum síðan. Hann segist hafa
fundið jörðina í sjálfum sér
og segir sviðsleikinn kitla, og
kallar eftir auknum stuðningi
við barnabókahöfunda.
Ég er að leika í Blóðugu
kanínunni eftir Elísa-
betu Jökulsdóttur sem var
frumsýnd í síðustu viku í
Tjarnarbíói. Ég er nýkom-
inn heim frá Berlín þar sem Svörtu
sandar voru heimsfrumsýndir á
Berlinale-hátíðinni. Ég meira að
segja náði því á sama sólarhringnum
að sýna frumsýningu í Reykjavík og
vera viðstaddur heimsfrumsýningu í
Berlín,“ segir Ævar. „Það voru áhuga-
verðir 24 tímar.“
Það er nóg að gera hjá Ævari. Auk
vinnu við Blóðugu kanínuna vinnur
hann að undirbúningi barnaleikrits
sem sýnt verður í Norræna húsinu í
mars. Verkið heitir Forspil að fram-
tíð og Ævar vinnur að verkinu ásamt
tengdaföður sínum, Kjartani Ólafs-
syni tónskáldi.
Gervigreind og ísbjarnakór
„Við erum að taka ævintýri frá
nokkrum Norðurlöndum og Kjartan
hefur forritað gervigreind sem býr
til hljóðheim verksins og mun nota
hana til að skapa tónlist upp úr ævin-
týrunum,“ segir Ævar. „Hugmyndin
að verkinu kemur upphaflega frá
Kjartani og eftir nokkur matarboð í
röð þar sem verkið var rætt kýldum
við á að þróa hugmyndina og úr varð
þetta skemmtilega verkefni.“
Hann segir gervigreindina sem
notuð er í verkinu hafa fengið
nafnið CALMUS, sem getur búið til
alls konar tónlist. „Til dæmis veit ég
að núna er hann að vinna í að búa
til ísbjarnakór úr hljóðum ísbjarna,
þannig að við erum að leika okkur
með hljóð úr náttúrunni,“ segir
Ævar. „Þetta verður í grunninn
þægileg og skemmtileg sögustund
fyrir fjögurra til átta ára og svo auð-
vitað alla fjölskylduna.“
Falin slóð í Blóðugu kanínunni
Blóðugu kanínunni hefur verið lýst
sem krefjandi verki, sem er ólíkt
barnaleikriti um þjóðsögur með
ísbjarnahljóðum.
„Já. Blóðuga kanínan er vissu-
lega þungt og krefjandi verk, en líka
rosalega fallegt og einlægt.“ Hann
lýsir texta verksins sem rosalega
ljóðrænum og margslungnum. „Við
fyrstu sýn virðist hann koma úr
öllum áttum en um leið og maður er
byrjaður að kafa í hann og læra hann
utan að, sér maður falda slóð í gegn-
um hann sem Elísabet Jökuls er búin
að koma þarna fyrir,“ segir Ævar.
Fetar falda slóð og finnur
jörðina í sjálfum sér
Ævar kallar eftir umbótum varðandi úthlutun listamannalauna fyrir barnabókahöfunda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
einn daginn bækur fyrir eldri aldurs-
hóp.
Mikið hefur verið rætt um stöðu
lesturs meðal ungra Íslendinga
og þótti PISA-könnun á lesskiln-
ingi íslenskra barna frá 2019 gefa
ástæðu til aðgerða. Bent hefur verið
á samkeppni yndislesturs við skjá-
notkun barna í því samhengi.
„Við sem hvetjum til lestrar erum
alltaf að ýta steininum upp fjallið.
Hann verður bara stærri og þyngri
eftir því sem tæknin verður meira
og meira spennandi. Ég skil rosa-
lega vel að krakkarnir sæki meira í
tölvuleiki eða símann sinn heldur
en bækur, af því að það er það sem
maður hefði sjálfur gert ef þetta
hefði verið í boði yfirhöfuð þegar
maður var yngri,“ segir Ævar og
bætir við að í stað þess að líta á
tæknina sem óvin bókarinnar ætti
frekar að leita leiða til að láta þessa
tvo hluti tala saman.
Kallar eftir umbótum
„En á móti megum við höfundarnir
vera duglegri í að prófa að leika
okkur með formið, skrifa alls konar
sögur. En þá kannski þarf líka að
styðja betur við bakið á barna- og
unglingabókahöfundum,“ segir
Ævar og kallar eftir umbótum varð-
andi úthlutun listamannalauna
fyrir þennan bókmenntaflokk.
„Það er enginn að lifa af því að
vera barnabókahöfundur. Það
eru sárafáir sem gera það. Þess
þá heldur þarf að styðja betur við
barna- og unglingabókahöfunda
þannig að það geti verið alls konar
bækur um alls konar hluti, um alls
konar fólk,“ segir hann. „Líka þann-
ig að bækur séu ekki bara að koma
út fyrir jólin, heldur í hverjum
einasta mánuði. Lestrarhestarnir
vilja finna eitthvað nýtt, en þau eru
búin með allt sem þau hafa áhuga
á í janúar og þá er heilt ár eftir þar
sem ekkert nýtt kemur út. En ef þau
nenna að lesa á ensku þá er alltaf
eitthvað til, og þá hætta þau að lesa
á íslensku,“ segir Ævar.
Kemur Andrésblöðum til varnar
Ævar segir að umræðan skipti líka
máli. „Ef krakkar heyra aldrei annað
en: Þið nennið aldrei að lesa, þá
náttúrulega er það bara, ókei. Við
greinilega lesum ekki. Förum þá að
gera eitthvað annað.“
Hann nefnir einnig fordóma
gagnvart ákveðnum bókum. „Að
teiknimyndasögur og Andrésblöð
teljist ekki sem gildar bækur, er bara
bull. Þú átt að lesa það sem þig lang-
ar til að lesa, svo lengi sem þú ert að
lesa eitthvað. Punktur. Það skiptir
ekki máli hvort að það er Syrpa eða
símaskráin. Fullorðnir mega lesa
það sem þá langar til. Hvers vegna
gildir ekki það sama um yngri les-
endur? Það er ekki pláss fyrir snobb
þegar kemur að barna- og unglinga-
bókum.“ n
Hefur fundið jörðina í sjálfum sér
Þetta er í fyrsta sinn í sex ár sem
Ævar stendur á leiksviði. Aðspurður
hvort að hér sé sami leikarinn á ferð,
svarar Ævar:
„Nei, engan veginn. Það er gaman
að finna það. Það er margt búið að
gerast á þessum árum. Ég er búinn
að eignast barn og því fylgir auðvit-
að ákveðinn þroski og fjölmargar og
mikilvægar lexíur. Þá er ég búinn að
búa til ótalmarga heima í bókunum
mínum þar sem ég ber ábyrgð á öllu
í staðinn fyrir að geta fókuserað á
eina persónu eins og maður gerir
í leikritum. Mér finnst ég finna
meiri jörð í sjálfum mér, þó að ég sé
enn úti um allt, eins og alltaf,“ segir
Ævar. „Það er gaman að geta notað
þessa jörð, ef persónan kallar á það.“
Ævar segir leiklistina hafa farið
í pásu vegna annarra verkefna á
borð við ritstörf og þáttagerð. „En
síðustu tvö árin er maður búinn
að leika svolítið í sjónvarpi, og svo
er þetta að koma núna. Ég finn að
þetta kitlar og það er gaman að gera
þetta aftur.“
Bíómynd í félagi við bróður
„Ég er með ótal hugmyndir að
bókum sem mig langar til að
skrifa. Nokkrar þeirra munu koma
á næstu fimm árum. Eitthvað allt
annað en Þín eigin-bækurnar sem
ég er búinn að vera að skrifa núna
síðustu árin.“ Ævar segist ætla að
halda áfram að finna nýjar leiðir
til að leika sér með formið. „Mér
finnst pínu gaman að vera gæinn
sem skrifar skrýtnu bækurnar. Þín
eigin-bækurnar eru þannig að þú
ræður hvað gerist. Ég er með aðra
hugmynd að því hvernig er hægt
að leika sér með konseptið bók. Og
hvað er bók, hvernig virkar bók,“
útskýrir Ævar. „Ég er með hugmynd
sem mig langar að prófa en ég ætla
ekki að kjafta frá alveg strax. Hug-
mynd sem mig langar að að setja í
bókarform, en ég veit að ég þarf að
gera fyrr en seinna af því að eins og
Andri Snær sagði: hugmyndir liggja
í loftinu og það getur vel verið að
einhver annar sé með nákvæmlega
sömu hugmynd. Þess vegna verð ég
að vera fyrri til,“ segir hann.
Tæknin ekki óvinur bókarinnar
Ævar segist aðspurður ætla að halda
áfram að skrifa fyrir unga lesendur.
„Mér finnst langskemmtilegast að
skrifa fyrir börn og unglinga,“ segir
hann og útilokar þó ekki að skrifa
Nína
Richter
ninarichter
@frettabladid.is
Mikið úrval til af
gólfteppum á lager
Kíktu við og saman finnum
við draumateppið á stigann þinn.
Helstu eiginleikar gólfteppanna
okkar eru mýkt, hlýleiki og
mikil gæði.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi | 595 0570Finndu okkur á Facebook!
facebook.com/Parki.interiors
26 Helgin 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ