Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 38
Yfirhafnarvörður Fjallabyggð óskar eftir að ráða yfirhafnarvörð. Um er að ræða 100% starf og er upphaf starfs samkomulagsatriði en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Vegna eðli starfsins er mikilvægt að viðkomandi búi á starfssvæði hafnanna. Umsóknarfrestur er til og með 7. mars 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. • Þjónusta við viðskiptavini hafnar • Viðhald, hreinsun og umhirða hafnarbakka og annarra hafnarmannvirkja • Eftirlit og umsjón með skipakomum, vöruflutningum og öðru því sem um höfnina fer, skráning þeirra og afla í aflaskráningarkerfi Fiskistofu • Aðgangsstýring að hafnarsvæðinu í samræmi við lög og reglur • Þátttaka í teymisvinnu til bættrar þjónustu og skilvirkni starfseminnar • Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum og ákvörðun yfirmanns Helstu verkefni og ábyrgð: • Menntun sem nýtist í starfi • Æskilegt að viðkomandi hafi löggildingu vigtarmanns • Hreint sakavottorð er skilyrði • Skipstjórnarréttindi er kostur • Staðgóð þekking á höfnum Fjallabyggðar er kostur • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og ákveðni • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg • Gott vald á ensku, önnur tungumálakunnátta kostur Menntunar- og hæfniskröfur: Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225 og Elías Pétursson (fjallabyggd@fjallabyggd.is), hafnarstjóri, í síma 464 9100. Fjallabyggð er nyrst á Tröllaskaga. Í sveitarfélaginu, sem telur rúmlega 2.000 íbúa, eru tveir þéttbýliskjarnar, bæirnir Ólafsfjörður og Siglufjörður. Bæirnir byggja afkomu sína að mestu á sjávarútvegi og vinnslu fiskafurða. Í seinni tíð hefur fjölbreytnin í atvinnu- lífinu aukist og mikill vaxtarbroddur er í ferðaiðnaði og ýmis konar fjar- vinnslu fyrir fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu. Fjallabyggð er fjölskylduvænt sveitar- félag og þar eru tveir leikskólar, grunnskóli, framhaldsskóli og tónskóli. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar. Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð og margar góðar gönguleiðir liggja um sveitarfélagið. Í Fjallabyggð eru landsþekkt söfn og menningarlífið blómstrar. Nánari upplýsingar má finna á www.fjallabyggd.is. Drífandi fjármálastjóri Endurvinnslan hf. óskar eftir að ráða drífandi og sveigjanlegan fjármálastjóra til starfa. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem snerta rekstur fyrirtækisins, hvort sem þau snúa að fjármálum, starfsmannamálum, markaðsmálum eða símsvörun. Leitað er að einstaklingi sem hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri. Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. • Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, uppgjöri og reikningshaldi • Ábyrgð á gerð greininga ásamt gerð fjárhags- og rekstraráætlana • Innkaup og samningagerð • Þar sem að yfirstjórn er lítil þarf aðili að koma að margvíslegum málum í rekstri fyrirtækisins eins og mannauðsmálum, markaðsmálum og utanumhaldi á sérhæfðum hugbúnaði • Önnur tilfallandi verkefni Helstu verkefni og ábyrgð: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af bókhaldi, áætlanagerð og uppgjörum skilyrði • Góð greiningarhæfni, framsetning og miðlun fjárhagsupplýsinga • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Drifkraftur, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð hugsun • Mjög góð tölvukunnátta og þekking á dk • Færni í íslensku og ensku í ræðu og riti Menntunar- og hæfniskröfur: Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. Endurvinnslan hf. var stofnuð árið 1989 og rekur skilakerfi fyrir drykkjarumbúðir. Ástæða stofnunar fyrirtækisins var náttúru- og umhverfisvernd þó vonir stæðu til að hægt yrði að endurvinna umbúðirnar sem smám saman varð að veruleika. Endurvinnslan sér um móttöku, ásamt umboðsmönnum sínum, allra einnota drykkjarvöruumbúða hérlendis, greiðir út skilagjald, undirbýr til útflutnings og selur til endurvinnslu u.þ.b. 1200 tonn af áli á ári og 1.400 tonn af plasti. Hjá Endurvinnslunni starfa 30 starfsmenn. Nánari upplýsingar má finna á: www.endurvinnslan.is. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.