Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Góðu fréttirnar eru þær að þessi snjór er að þjappa fólki saman. Það eru allir orðnir svo mikið „team“ hérna. odduraevar@frettabladid.is „Það voru nokkrar slæmar fréttir sem sátu eftir. Það að lögfræðingar Rauða krossins hafi verið reknir og að blaðamennirnir sem fjölluðu um Samherja hafi lent í skítnum fyrir rannsóknarblaðamennsku. En svo eru góðu fréttirnar þær að þessi snjór er að þjappa fólki saman. Það eru allir að hjálpast að og allir orðnir mikið „team“ hérna.“ Svo voru að koma nýir þættir af Love is Blind. Það eru bestu fréttir ársins myndi ég segja. Þetta er bæði besta og versta sjónvarpsefni sem ég hef séð. Þetta er það vont að maður getur ekki hætt. Rihanna er svo að verða fallegasta ólétta kona heims og setja einhvern glænýjan standard í óléttutísku.“ n Rauði krossinn, Samherji, snjór, blind ást og Rihanna n Frétt vikunnar Kolbrún Birna Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, lögfræðingur og baráttukona. MYND/AÐSEND Dong Qing Guan er eigandi Heilsudrekans í Skeifunni og aðstandandi listmunasýn- ingar sem var opnuð í gær, í tilefni nýs árs tígursins, sem gekk í garð fyrir skemmstu. Qing, sem hefur búið á Íslandi í 30 ár, segir sýninguna segja mörg þúsund ára sögu tækni og vinnsluaðferða kínversks handverks. ninarichter@frettabladid.is Sýning á kínverskum listmunum stendur uppi í tíu daga í Fákafeni 11, og er samstarfsverkefni Dong Qing Guan hjá Heilsudrekanum, Kínversk-íslenska menningarfélags- ins og Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljóss. „Þetta er ekki bara sölusýning heldur erum við líka að sýna kín- verska menningu,“ segir Qing, sem hefur haldið sambærilegar sýningar áður. Sýningarmunum er skipt út daglega og því eru ekki endilega sömu munirnir sýndir tvo daga í röð. „Ég hef ekki getað haldið sýn- ingar í tvö ár út af Covid en núna er komið kínverskt nýtt ár og ég ákvað að nýta tækifærið, segir hún. „Mér fannst alveg um að gera að sýna kín- verska menningu á þennan hátt.“ Listmuni megi lesa eins og bækur Að sögn Qing sýna kínversku mun- irnir mörg þúsund ára sögu. „Þetta er eins og að lesa bækur. Hver hlutur á sína sögu. Þarna er saga tækni og vinnsluaðferða,“ segir hún. Qing hefur búið á Íslandi í þrjátíu ár. „Ég vildi breyta til þegar ég var ung, mig langaði ekki í þetta hefð- bundna, mig langaði að prófa eitt- hvað allt öðruvísi,“ segir hún. „Mig langaði að gera nýja hluti í nýju landi. Og mig langaði að gera kín- verska hluti í útlöndum og segja frá kínverskri menningu.“ Aðspurð hvers vegna Ísland hafi orðið fyrir valinu segist hún hafa fundið löngun til að fara til lands sem var öðruvísi og ekki margir væru að sækja heim. „Þegar ég var búin með háskólann kom þessi hugmynd,“ segir hún, en Qing er menntuð í heilsutengdum fræðum. Lærir alla ævi Í svari Geirs Sigurðssonar heim- spekings og prófessors í kínverskum fræðum, við fyrirspurn á Vísinda- vefnum, segir að hefðbundin kín- versk læknisfræði byggist á fornum tegundum kínverskrar heims- og þekkingarfræði sem greinist nokk- uð frá þeim sem hafa orðið ráðandi í veröldinni eftir vísindabyltinguna í Evrópu og móta grundvöll nútíma- legrar læknisfræði. Qing er eigandi Heilsudrekans í Skeifunni, þar sem lagt er upp úr heilsurækt með kínverskri nálgun. „Ég stofnaði Heilsudrekann 1991 en fram að því hafði ég unnið í átta ár við heilsutengd störf,“ segir Qing. „Þetta er heilsulind, við erum með heilsumeðferðir, eins og nokkrar tegundir af leikfimi. Við vinnum með andlegt og líkamlegt jafnvægi í heilsu,“ útskýrir hún. „Samt er ég enn þá að læra. Kín- verskar lækningar eru þannig að maður þarf að læra á hverjum degi, alla ævi. Þetta er bara þannig. Það er mikil heimspeki á bak við þetta, ekki bara tækni,“ segir Qing. „Við tölum um heildarmyndina. Líkaminn er bara eins og náttúran. Í dag er sól, á morgun er vindur eða snjór. Það er aldrei eins milli daga í hvernig orku líkaminn er og hvernig þér líður. Eins og við klæð- um okkur í föt, í dag langar mig í grænt, á morgun grænt eða svart. Orka líkamans er síbreytileg, svo- lítið eins og íslenska veðrið,“ segir Qing og hlær. n Kínverskir listmunir rekja lifandi sögu þúsunda ára Dong Qing Guan stofnaði Heilsudrekann árið 1991. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hópurinn sem stendur að kínversku list- munasýning- unni að Fákafeni 11. Sýningin var opnuð í gær og stendur í tíu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Sealy PORTLAND heilsurúm með classic botni Sealy HYATT heilsurúm með classic botni Gæði á góðu verði. Portland er með góðum og sterkum poka - gormum og kantstyrkingum. Dýnan er millistíf og með pillow top úr mismunandi stífum svamplögum og trefja lagi. Mýkt á móti stífum og góðum gormum. Fæst í: 120/140/160/200 x 200 cm. Sealy Hyatt heilsudýnan er gerð úr Posturpedic gormakerfi sem Sealy hefur þróað í mörg ár. Til þess að ná hámarks slökun veitir Sealy Hyatt dýnan líkamanum fullkominn stuðning. Það er 6 mismunandi svamplög í dýnunni og þau ásamt náttúrulegum trefjum og þykkum toppi gera það að verkum að þú hvílist fullkomlega og snýrð þér mun minna en í venjulegri gormadýnu. Dýnan er með Oek-Tex vottun um að engin skaðleg efni eru í dýnunni. Fæst í: 140/160/180 x 200 cm. Verðdæmi 120 x 200 cm m/Classic botni og löppum Fullt verð: 160.900 kr. Tilboð: 128.720 kr. Verðdæmi 140 x 200 cm m/Classic botni og löppum Fullt verð: 241.900 kr. Tilboð: 193.520 kr. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði 48 Lífið 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.