Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 39

Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 39
Ert þú drífandi leiðtogi? Menntunar- og hæfniskröfur: Ítarlegri upplýsingar um störfin og Húnaþing vestra má finna á www.intellecta.is og www.hunathing.is. Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225. • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og mannauðsmálum sviðsins. • Yfirstjórn þeirra málaflokka sem falla undir sviðið. • Ábyrgð á rekstri stofnana sem heyra undir sviðið. • Gerð fjárhagsáætlana og eftirlit með fjárreiðum sviðsins ásamt ráðgjöf í starfsmannamálum. • Situr fundi framkvæmdaráðs. • Samstarf með fræðslu-, félags- og öldungaráði sveitarfélagsins. • Ábyrgð á samræmingu og samhæfingu félagsþjónustu, skóla- og íþróttastarfs. • Ábyrgð á stefnumörkun í málaflokkum sem falla undir sviðið. • Tryggir heildstæða samhæfða þjónustu við fjölskyldur. • Leiðir ytra og innra samstarf og samþættingu starfsemi sviðsins þvert á málaflokka. • Ábyrgð á veitingu sérfræðiþjónustu innan sviðsins og tryggja tengingu hennar þvert á málaflokka. • Frumkvæði að samskiptum og aðgerðum til að styrkja samfélagið. Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör taka mið af kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Samkvæmt samþykktum um stjórn sveitarfélagsins ræður sveitarstjórn sviðsstjóra. Samkvæmt jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Einnig eru lausar til umsóknar störf skrifstofumanns á skrifstofu Húnaþings vestra og starfsmanns veitna í þjónustumiðstöð. Upplýsingar er að finna á heimasíðu Húnaþings vestra www.hunathing.is/is/laus-storf. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur. • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu. • Þekking og reynsla af fræðslu- og/eða félagsþjónustu sveitarfélaga. • Haldgóð þekking og reynsla af rekstri, teymisvinnu, stjórnun og stefnumótun. • Leiðtogahæfni, jákvæðni, þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. • Sjálfstæð vinnubrögð, fumkvæði og skipulagshæfni. • Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana. • Þekking á helstu upplýsingakerfum. • Þekking á undirbúningi og stjórnun funda. • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs Leikskólastjóri óskast í leikskólann Ásgarð Húnaþing vestra auglýsir laus til umsóknar áhugaverð störf í ört vaxandi sveitarfélagi. Menntunar- og hæfniskröfur: • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi leikskólans. • Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. • Ábyrgð á að leikskólinn starfi samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu sveitarfélagsins. • Ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar. • Umsjón með ráðningum starfsfólks, skipulagi vinnutíma og vinnutilhögun. • Þátttaka í stefnumörkun á sviði málaflokksins og innleiðing stefnu. • Þátttaka í samstarfi við aðila í skólasamfélagi sveitarfélagsins. Helstu verkefni og ábyrgð: • Leyfisbréf sem kennari. • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar- og/eða menntunarfræða er æskileg. • Kennslureynsla á leikskólastigi. • Leiðtoga- og stjórnunarhæfni, reynsla af stjórnun er æskileg. • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót. • Þekking á rekstri og áætlanagerð. • Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur. • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi, skýr framtíðarsýn og faglegur metnaður. • Góð tölvufærni og þekking á nauðsynlegum kerfum. • Hreint sakavottorð. Óskað er eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri er yfirmaður fjölskyldusviðs og ber stjórnunarlega ábyrgð á málaflokkum sviðsins, þ.e. félagsþjónustu, fræðslumálum ásamt íþrótta- og tómstundamálum. Um er að ræða 100% starf í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem heyrir undir sveitarstjóra. Sviðsstjóri ber ábyrgð gagnvart sveitarstjóra og sveitarstjórn í öllum störfum sínum og ákvörðunum. Leitað er að dugmiklum einstaklingi með mikinn áhuga og reynslu af stjórnun og teymisstarfi ásamt þekkingu í að minnsta kosti einum af málaflokkum sviðsins. Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni til að skipuleggja og virkja samstarfsmenn til samráðs og samvinnu um málefni fjölskyldunnar. Óskað er eftir að ráða öflugan leiðtoga í stöðu leikskólastjóra við leikskólann Ásgarð. Ráðið er í stöðuna frá 1. júní 2022 eða eftir samkomulagi. Leikskólastjóri ber ábyrgð á rekstri og og starfsemi leikskólans. Leitað er að drífandi, umbótadrifnum og skipulögðum einstaklingi sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum og metnað fyrir að ná árangri í starfi. Leikskólinn Ásgarður er þriggja deilda leikskóli. Í leikskólanum eru um 60 börn á aldrinum eins til fimm ára og starfa 17 starfsmenn hjá skólanum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.