Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 4
Það á að vera mjög gott
veður alla helgina.
Brynjar Helgi Ásgeirsson, for-
stöðumaður Hlíðarfjalls
kristinnhaukur@frettabladid.is
kosningar Þrennar sameiningar-
kosningar fara fram í dag, samtals í
sex sveitarfélögum.
Þetta eru í fyrsta lagi Blönduós-
bær og Húnavatnshreppur, í öðru
lagi Snæfellsbær og Eyja-og Mikla-
holtshreppur og síðan Sveitarfélagið
Skagafjörður og Akrahreppur.
Til að sameining gangi í gegn
þarf hún að vera samþykkt í báðum
sveitarfélögum. Yrði þá kosið til
sameiginlegrar sveitarstjórnar í
vor.
Valdimar Hermannsson, sveitar-
stjóri Blönduósbæjar, segist búast
við ágætri kosningaþátttöku .
Nýlega hafi hópur nafnlausra and-
stæðinga sameiningar sent dreifi-
miða inn um lúgur hjá fólki, þar
sem hann segir snúið út úr vinnu
sameiningarnefndarinnar.
„Þessi dreifimiði hreyfði við
umræðunni og það er gott,“ segir
Valdimar. „Það er mikil spenna um
hvernig þetta fer.“
Í Húnavatnssýslu lýkur kosningu
klukkan 20. Valdimar býst við
niðurstöðum upp úr klukkan 21. ■
Kosið í sex
sveitarfélögum
Valdimar
Hermannsson,
sveitarstjóri
Blönduósbæjar
kristinnhaukur@frettabladid.is
norðurland Nýja stólalyftan
í Hlíðarfjalli á Akureyri verður
tekin í notkun í dag. Brynjar Helgi
Ásgeirsson forstöðumaður segir
þetta mikinn létti. Biðin hefur verið
löng og ýmis vandamál komið upp.
Upprunalega átti ly ftan að
rísa árið 2018 en verkið reyndist
umfangsmeira en búist var við.
Deilur komu upp við verktaka
vegna fjármögnunar verkefnisins.
Nýja stólalyftan í Hlíðarfjalli loksins sett í gang
Búast má við margmenni í Hlíðarfjalli
um helgina. Fréttablaðið/auðunn
Þá kom einnig aukakostnaður vegna
öryggis- og snjóflóðavarna.
„Það á að vera mjög gott veður
alla helgina. Núna eru 1.800 manns
í fjallinu og vetrarfríið að byrja,“
segir Brynjar.
Lyftan verður tekin í notkun
klukkan 13 en formleg vígslu athöfn
verður síðar. Margir þeirra sem ættu
að vera viðstaddir hana eru með
Covid. Brynjar segir að meðan svo
margir séu í fjallinu sé gott að geta
komið lyftunni í gagnið. ■
TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU
BJÓÐUM UPP Á 37”-40”
BREYTINGAPAKKA
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
BÍLL Á MYND: RAM 3500 LARAMIE CREW CAB MEÐ 37” BREYTINGU, KASTARAGRIND OG LJÓSKÖSTURUM
Átök um skipan stjórnar
Brynju, hússjóðs Öryrkja-
bandalags Íslands, snúast
um 30 milljarða sjóði segir
Garðar Sverrisson sem
rekinn var úr stjórn Brynju
ásamt tveimur öðrum. Segir
hann tölvupóst afhjúpa sam-
særi innan Öryrkjabanda-
lagsins.
gar@frettabladid.is
dómsmál Garðar Sverrisson, sem
vikið var frá sem stjórnarmanni í
Brynju, hússjóði Öryrkjabanda-
lags Íslands (ÖBÍ), segir deilur um
skipan í stjórnina ekki snúast um
hann eins og stjórn ÖBÍ haldi fram
heldur um þrjátíu milljarða króna
eignir Brynju.
„Ef þetta snerist um mig, hvers
vegna í ósköpunum er þá gripið
til þess ráðs að reka bæði Ingveldi
Jónsdóttur og Arnþrúði Hörpu
Karlsdóttur, sem báðar njóta gríð-
arlegs trausts á vettvangi Öryrkja-
bandalagsins, og þegja alveg um
það gerræðislega lögbrot?“ spyr
Garðar og vísar þar til ákvörðunar
stjórnar Öryrkjabandalagsins um
að víkja honum ásamt Ingveldi og
Arnþrúði úr stjórn Brynju.
„Nei, auðvitað snýst þetta hvorki
um mig né þær heldur þá 30 millj-
arða sem þessi sjálfseignarstofnun
á, verðmætar lóðir og nærri þúsund
íbúðir um allt land, verðmæti sem
braskarar hafa lengi haft augastað
á en aldrei komist þetta langt í að
plata okkur, troða sér jafnvel inn í
sjálfa stjórnina þar sem nú situr í
hásæti maður sem óvart kom upp
um sig,“ segir Garðar og vitnar þar
í tölvupóst sem Halldór Sævar Guð-
bergsson, nýkjörinn stjórnarfor-
maður Brynju, hafi ætlaði að senda
„samsærisbræðrum sínum“ en hafi
óvart sent á ranga viðtakendur.
„Sælir strákar! Við erum búnir að
vinna þetta stríð og nú látum við
högg fylgja kviði, tökum símafund
og öndum inn í stöðuna. Flóki við
þurfum aðeins að bremsa stríðs-
manninn okkar, grín. Við erum með
þetta í okkar höndum og nú þarf að
klára pappírsvinnuna,“ segir meðal
annars í tölvupósti Halldórs.
Pósturinn er tilfærður í stefnu
með kröfu um að Héraðsdómur
Reykjavíkur ógildi ákvarðanir
stjórnar ÖBÍ um að afturkalla
umboð Garðars, Ing veldar og
Arnþrúðar og kjör nýrra stjórnar-
manna.
„Í hálft ár hafði þessi maður setið
í stjórn sem eftir mjög ítarlegar
umræður hafnaði því eindregið að
kaupa tugi óbyggðra íbúða á land-
fyllingu Ólafs Ólafssonar í Sam-
skipum, íbúðir sem gætu í fyrsta
lagi gagnast öryrkjum eftir fimm
ár,“ rekur Garðar atburðarásina.
„En nú samþykkja þau öll á
sínum fyrsta ólöglega fundi að
kaupa sextíu íbúðir á þessu litla
svæði til að þóknast þessum pen-
ingamönnum sem við fengum ekki
einu sinni að sjá framan í. Áttum
bara að samþykkja og skrifa undir,“
heldur Garðar áfram. Verið sé að
hugsa um eitthvað allt annað en
hagsmuni öryrkja.
„Í raun er þetta orðið eitt alls-
herjar aðstöðubrask og mikilvægt
að stjórnvöld grípi í taumana áður
en þetta fólk verður dæmt fyrir
brot sín, sem formanni ÖBÍ er full-
kunnugt um þó hún láti eins og
bandalagið sjálft sé að harma eitt-
hvað þegar hennar eigin forysta er
farin á taugum vegna yfirvofandi
málaferla,“ segir Garðar Sverrisson.
Stjórn Öryrkjabandalagsins vísaði
í gær á bug orðum Garðars í Morgun-
blaðinu um alvarlega spillingu í
Brynju. Honum hafi verið vikið úr
stjórn Brynju með einróma ákvörð-
un nítján manna stjórnar því hann
hafi brotið gróflega gegn skyldum
sínum og brugðist trausti. ■
Burtrekinn stjórnarmaður segir póst
sýna samsæri í Öryrkjabandalaginu
Nú samþykkja þau öll
á sínum fyrsta ólöglega
fundi að kaupa sextíu
íbúðir á þessu litla
svæði til að þóknast
þessum peninga-
mönnum.
Garðar
Sverrisson,
fyrrverandi
stjórnarmaður í
Brynju
Blikur eru á lofti
og málaferli
fram undan
vegna brott-
vikningar
þriggja stjórnar-
manna úr
Brynju, hússjóði
ÖBÍ.
Fréttablaðið/
Valli
mhj@frettabladid.is
Úkraína Samkvæmt upplýsingum
Bandaríkjahers eru nú um 190.000
rússneskir hermenn við landamæri
Úkraínu sem mun vera stærsta til-
færsla heraf la frá seinni heims-
styrjöldinni. Á einum mánuði hefur
rússneskum hermönnum við landa-
mærin fjölgað um 90.000.
Rússneska varnarmálaráðuneyt-
ið segir hins vegar einungis 149.000
hermenn vera við landamærin.
Antony Blinken, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, varaði við því í
gær að Rússar myndu beita „falskri
ögrun“ til að gera innrás og kenna
þannig Úkraínumönnum um. ■
Stærsta tilfærsla
herafla frá seinni
heimsstyrjöldinni
4 Fréttir 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið