Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 42

Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 42
Sunnulækjarskóli á Selfossi auglýsir lausa til umsóknar stöðu aðstoðarskólastjóra Við leitum að öflugum og farsælum leiðtoga til að stýra framsæknum skóla í ört stækkandi sveitarfélagi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. mai 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Í Sunnulækjarskóla eru um 700 nemendur í 1.-10. bekk og innan hans er starfrækt Sérdeild Suðurlands, Setrið. Í Sunnulækjarskóla er starfað eftir hugmyndafræðinni Uppeldi til ábyrgðar. Lögð er áhersla á teymiskennslu í lærdómssamfélagi nemenda og starfsmanna þar sem virðing og traust ríkir. Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila skólans er lykill að árangri. Einkunnarorð skólans eru gleði, vinátta og frelsi. Skólar og fjölskyldusvið sveitarfélagsins vinna að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, öflug tengsl skóla og skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru í anda lærdómssamfélagsins. Nánari upplýsingar um Sunnulækjaskóla má finna á vef skólans, www. sunnulaekjarskoli.is. Meginverkefni: • Staðgengill skólastjóra • Vinnur ásamt samstarfsfólki að stefnumörkun skólans • Veitir faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi • Kemur að skólanámskrárgerð og innra mati • Vinnur ásamt skólastjóra að daglegri stjórnun skólans og skipulagningu skólastarfsins Menntunar- og hæfnikröfur: • Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla í grunnskóla • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræði er mikill kostur • Þekking og reynsla af stjórnun er æskileg • Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði • Þekking á teymiskennslu og sveigjanlegu skólastarfi er mikill kostur • Jákvæðni og góð færni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Vakin er athygli á stefnu Sveitarfélagsins Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Umsóknarfrestur er til 14. mars 2022. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Nánari upplýsingar um störfin eru á ráðningarvef sveitarfélagsins starf.arborg.is og hjá skólastjóra í síma 480-5400 og netfang birgir@sunnulaekjarskoli.is. Sækja þarf um stöðurnar á vef sveitarfélagsins, starf.arborg.is/storf/ Umsóknir gilda í 6 mánuði. Skólastjóri GARÐABÆR ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA SKIPULAGSFRÆÐING gardabaer.is Leitað er að starfsmanni sem hefur umsjón með skipulagsverkefnum sveitarfélagsins í samvinnu við skipulagsstjóra. Helsti verkefni: • Vinna að gerð aðal- og deiliskipulags í samvinnu við skipulagsstjóra og ráðgjafa • Yfirlestur og rýni á skipulagsgögnum frá ráðgjöfum sem lögð eru fyrir skipulagsnefnd • Yfirferð innsendra byggingaráforma með tilliti til gildandi skipulagsskilmála • Skrifa umsagnir, samskipti við lögaðila og stofnanir • Svara almennum fyrirspurnum varðandi skipulagsmál • Vinna grenndarkynningar í samvinnu við verkefnastjóra • Samskipti við íbúa og aðra hagsmunaaðila varðandi fyrirspurnir um skipulagsmál • Samskipti við hönnuði og ráðgjafa vegna skipulagsvinnu • Undirbúningur, gagnaöflun og rýni gagna fyrir fundi skipulagsnefndar Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í samræmi við 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 • Þekking á þeirri lagaumgjörð sem skipulagsfulltrúi starfar eftir • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og starfsumhverfi sveitarfélaga • Skipulagsfærni, nákvæmni og hæfileiki til að starfa sjálfstætt • Góð hæfni í miðlun upplýsinga í ræðu og riti • Góð samskiptahæfni og mikil þjónustulund • Frumkvæði, áræðni og röggsemi til verka • Góð tölvufærni Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 28. febrúar 2022. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar í síma 5258582 eða með því að senda tölvupóst á arinbjorn@gardabaer.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is Umsókn skal fylgja starfsferliskrá og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjanda, menntun og reynslu sem varpað getur ljósi á færni hans til að sinna umræddu starfi. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is intellecta.is RÁÐNINGAR 8 ATVINNUBLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.