Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 22
Drykkjan varnarháttur Þegar amma Diljár lá banaleguna undir lok síðasta árs reyndu þær mæðgur að fá eitthvað upp úr henni varðandi hennar uppvaxtarár fyrir vestan en án árangurs. „Hún fékk svo að fara eins og hún þráði og þar sem við sátum yfir henni ásamt bestu vinkonu hennar og systur spurðum við þær út í það sama. Þá fengum við þessar sögur; af sundlaugarverðinum í grunn- skólanum á Ísafirði sem var greini- lega alltaf að gefa henni pening og fyrstu viðbrögð sem hún fékk var að hætta að þiggja þennan pening, hún var bara sjö ára en var gerð ábyrg. Á sumrin fór hún svo í sveit í Súgandafirði til bónda sem var frægur predator. Skólastjórinn í gagnfræðaskólanum var svo alltaf að leyfa stelpunum að fara í handa- vinnustofuna á kvöldin en amma var alla tíð mikil handavinnukona. Hann mætti svo sjálfur til þeirra og stuttu eftir eina heimsóknina klippir amma flétturnar af sér. Ég hafði oft heyrt þá sögu en átta mig bara á því nú í seinni tíð hvað þetta þýðir,“ segir hún. „Amma f lytur svo ung í bæinn og er þá orðin mjög drykkfelld sem hefur verið hennar varnarháttur til að lifa þetta af. Hún drekkur svo illa svo oft og það eru margir menn sem misnota þessa drukknu konu.“ Diljá bendir á að hugsunarháttur- inn þurfi að breytast. „Við þurfum að fara að hætta að segja: Hvað er að þessari konu? Af hverju er hún svona full og lauslát? Við eigum frekar að spyrja: Hvað kom fyrir? Ég er ekkert að segja að þetta eigi bara við konur heldur alla. Það var eitthvað sem kom fyrir. Það er mjög líklegt að það hafi einhver verið vondur við fullu kon- una á barnum sem er að detta eða reyna að fara í sleik við einhvern. Það felst mikið meiri mannvirðing og gæska í því að hugsa þetta þann- ig. Við þurfum að hjálpa kennurum og leikskólastarfsfólki að hætta að horfa bara ofan í námsárangur og hegðun og skoða frekar hvað ami að, hvers vegna þessi eða hinn sé ekki að lesa sér til gagns. Eigum við að skoða þetta út frá þeim þætti eða eigum við að halda áfram að senda bara einhverjar niðurstöður til Písa?“ Saga ótal kvenna Diljá segir sögu ömmu sinnar langt frá því að vera einstaka. „Hún er saga ótal kvenna af henn- ar kynslóð þar sem skilaboðin voru að þetta væri þeirra skömm. Þær hefðu látið þetta yfir sig ganga. Það særði mig virkilega að horfa nýlega upp á þessa meingölluðu hegðun formanns SÁÁ. Við verðum að fara að hanna meðferðarkerfi hér á landi sem er ekki aðeins reaktívt heldur vinnur í orsökinni og er áfallamiðað eins og Rótin hefur verið að benda á. Það er ekki agalegt að vera afskiptasamur. Það er hægt að gera það af umhyggju og ég held að við verðum að umbylta kerfinu hvað þetta varðar. Það er magnað að átta sig á því að ég lifi við afleiðingar of beldis sem átti sér stað í kringum 1940. Minn persónuleiki hefur mótast af því, bæði mín viðkvæmni og líka mín seigla. Það er talað um að áföll erf- ist og þau séu í DNA-uppbyggingu okkar en ég held að skakka fjöl- skyldukerfið og samskiptamynstrin hafi enn meiri áhrif.“ Diljá fór að búa ein 17 ára, leigði í Miðbænum og gekk í Kvenna- skólann. „Á fyrsta ári í Kvennó sótti ég um menntastyrk til Reykjavíkurborg- ar,“ segir Diljá sem vann með skól- anum en segir álagið á köflum hafa verið of mikið en á þessum tíma var móðir hennar í námi í Hollandi. „Þá var Guðrún Ögmundsdóttir heitin formaður félagsmálanefndar en hún hafði passað pabba þegar hann var lítill og alla tíð veitt mér verndandi væng.“ Umsókninni var synjað enda styrkurinn aðallega hugsaður fyrir nemendur utan af landi. Diljá ákvað að hætta í skóla og fara að vinna í Kjörgarði. „Þá hringir Guðrún í mig og seg- ist hafa breytt reglunum til þess að fleiri nemendur eigi rétt á honum. Hún sagði svo við mig: „Sýndu mér það, elsku Diljá mín, að það verði eitthvað úr þér, með allan þennan kraft sem þú hefur.“ Ég heyrði eftir á að margir í mínu umhverfi, börn einstæðra mæðra í Þingholtunum sem var náttúrlega bara gettó á þessum árum, hefðu fengið styrk og getað klárað fram- haldsskóla og farið í háskólanám. Þegar Guðrún lést fór ég að rifja þetta upp, hvernig vilji manneskju með hjartað á réttum stað getur haft drastísk áhrif á líf annarra og þar af leiðandi af komenda þeirra. Von- andi get ég orðið sú manneskja í lífi einhverra með mínum störfum.“ Nauðgað eftir jólaball Diljá bendir á að þeir sem upplifi áföll í æsku séu jafnvel útsettari fyrir frekari áföllum eða skökkum samskiptum, en annan í jólum árið 1999 varð Diljá fyrir áfalli sem hefur haft gríðarleg áhrif á líf hennar og persónu en hún hefur aldrei fyrr sagt frá opinberlega. Það var eftir jólaball á skemmti- staðnum Ingólfscafé að kunningi Diljár fylgir henni heim. „Eftir ballið var enga leigubíla að fá svo ég leyfi honum að koma með mér heim til að hringja á leigu- bíl þaðan enda fáir með gemsa á þessum tíma og ég bjó í Skólavörðu- holtinu. Þegar við komum heim var ég orðin pínu full og sofna en vakna við það að hann er, ég get varla sagt setninguna, að nauðga mér. Ég fraus algjörlega,“ segir hún og það leynir sér ekki að það tekur á að rifja upp þennan atburð sem átti sér stað fyrir 22 árum. Þetta var lokaárið í Kvennó og desembermyrkrið alltumlykjandi. „Ég lokaði mig algjörlega af í tvær til þrjár vikur og vakti allar nætur í einhvers konar taugaáfalli. Ég var að reyna að finna leið til að lifa þennan sársauka af með því að afneita því að þetta hefði gerst. Þá kemst ég að því að ég er ólétt.“ Við þær fréttir byggði hún upp kjark til að segja einni vinkonu frá því sem hafði gerst. „Hún hvatti mig til að segja mömmu sem ég gerði og líka pabba mínum og stjúpu.“ Ráðlagt að gleyma þessu Diljá fór í þungunarrof og í kjölfarið sagði hún nánustu vinkonum sínum frá og fékk pláss í stuðningshópi í Stígamótum sem hún hitti fram á vorið. „Með mér í hópnum er ein vin- kona mín og þolandinn í Húsa- víkurmálinu,“ segir Diljá og vitnar þar í það þegar 113 manns skrifuðu undir undirskriftalista til stuðnings dæmdum nauðgara á Húsavík árið 2000. „Umfjöllun um það mál var allt annað en þolendavæn og fór svo að hún flúði bæjarfélagið og ég man hversu mikil áhrif þetta hafði á okkur í hópnum.“ Ofbeldismál hafa lengi verið Diljá hugðarefni og hefur hún látið til sín taka í umræðu um þau. „En aldrei hef ég getað sagt frá því að mér hafi líka verið nauðgað. Ég áttaði mig nýlega á því hvers vegna. Ég var með það inni í kvikunni minni að ég fengi allt samfélagið upp á móti mér,“ segir hún og tengir það við téð Húsavíkurmál og frá- sögn þolandans. „Þegar þú ert svona mikið í kringum einhvern í áfalli þá verður það að einhverju leyti þitt.“ Diljá kærði nauðgunina ekki. Eftir að hafa leitað til lögfræðings, sem eftir stutt samtal sagði henni að gleyma þessu, missti hún kjarkinn. „Það er svo mikil skömm sem felst í því að það vildi ekki einu sinni óháður aðili staðfesta að á mér hefði verið brotið því ég held að innst inni sé það, það sem við þráum, að það sé staðfest. Ég er löskuð eftir þetta, ég er sterk að mörgu leyti, ég er mjög sterk félagslega og á mikið af vinum og er vel tengd, líka sjálfri mér og mínu fólki og ég legg mikið upp úr því. en hef ég getað leyft einhverjum að elska mig? Nei. Ég er alltaf með þennan olíublett á bringunni og hrædd um að fólk sjái hvað ég er skítug.“ Nauðgarinn tók ábyrgð „Mín saga er ekki einstök og ekki verri né betri en annarra. Þetta eru allt agalegar sögur enda ofbeldi svo skaðlegt mein. En það er eitt við mína sögu sem ég held að sé því miður sjaldgæfara,“ segir Diljá og á þá við að árið 2015 axlaði gerandinn ábyrgð á nauðguninni. „Í þessu litla sjávarþorpi sem við búum í er vinkona mín á sama tíma Það er magnað að átta sig á því að ég lifi við afleiðingar ofbeldis sem átti sér stað í kringum 1940. Við þurfum að fara að hætta að segja: Hvað er að þessari konu? Af hverju er hún svona full og lauslát? Mamma stofnaði árið 1987 skemmti- staðinn 22 og við bjuggum um tíma í einu her- bergja staðarins. Diljá segir afleiðingar nauðgunar sem hún varð fyrir tvítug hafa verið miklar en einnig hafi það haft jákvæð áhrif að gerandinn tók 15 árum síðar ábyrgð á verknaðinum.  22 Helgin 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.