Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Góðu fréttirnar eru
þær að þessi snjór er
að þjappa fólki saman.
Það eru allir orðnir svo
mikið „team“ hérna.
odduraevar@frettabladid.is
„Það voru nokkrar slæmar fréttir
sem sátu eftir. Það að lögfræðingar
Rauða krossins hafi verið reknir og
að blaðamennirnir sem fjölluðu um
Samherja hafi lent í skítnum fyrir
rannsóknarblaðamennsku.
En svo eru góðu fréttirnar þær að
þessi snjór er að þjappa fólki saman.
Það eru allir að hjálpast að og allir
orðnir mikið „team“ hérna.“
Svo voru að koma nýir þættir af
Love is Blind. Það eru bestu fréttir
ársins myndi ég segja. Þetta er bæði
besta og versta sjónvarpsefni sem ég
hef séð. Þetta er það vont að maður
getur ekki hætt.
Rihanna er svo að verða fallegasta
ólétta kona heims og setja einhvern
glænýjan standard í óléttutísku.“ n
Rauði krossinn, Samherji, snjór, blind ást og Rihanna
n Frétt vikunnar
Kolbrún Birna
Kolbrún Birna
Hallgrímsdóttir
Bachmann,
lögfræðingur og
baráttukona.
MYND/AÐSEND
Dong Qing Guan er eigandi
Heilsudrekans í Skeifunni og
aðstandandi listmunasýn-
ingar sem var opnuð í gær, í
tilefni nýs árs tígursins, sem
gekk í garð fyrir skemmstu.
Qing, sem hefur búið á Íslandi
í 30 ár, segir sýninguna segja
mörg þúsund ára sögu tækni
og vinnsluaðferða kínversks
handverks.
ninarichter@frettabladid.is
Sýning á kínverskum listmunum
stendur uppi í tíu daga í Fákafeni
11, og er samstarfsverkefni Dong
Qing Guan hjá Heilsudrekanum,
Kínversk-íslenska menningarfélags-
ins og Konfúsíusarstofnunarinnar
Norðurljóss.
„Þetta er ekki bara sölusýning
heldur erum við líka að sýna kín-
verska menningu,“ segir Qing, sem
hefur haldið sambærilegar sýningar
áður. Sýningarmunum er skipt út
daglega og því eru ekki endilega
sömu munirnir sýndir tvo daga í
röð. „Ég hef ekki getað haldið sýn-
ingar í tvö ár út af Covid en núna er
komið kínverskt nýtt ár og ég ákvað
að nýta tækifærið, segir hún. „Mér
fannst alveg um að gera að sýna kín-
verska menningu á þennan hátt.“
Listmuni megi lesa eins og bækur
Að sögn Qing sýna kínversku mun-
irnir mörg þúsund ára sögu. „Þetta
er eins og að lesa bækur. Hver hlutur
á sína sögu. Þarna er saga tækni og
vinnsluaðferða,“ segir hún.
Qing hefur búið á Íslandi í þrjátíu
ár. „Ég vildi breyta til þegar ég var
ung, mig langaði ekki í þetta hefð-
bundna, mig langaði að prófa eitt-
hvað allt öðruvísi,“ segir hún. „Mig
langaði að gera nýja hluti í nýju
landi. Og mig langaði að gera kín-
verska hluti í útlöndum og segja frá
kínverskri menningu.“
Aðspurð hvers vegna Ísland hafi
orðið fyrir valinu segist hún hafa
fundið löngun til að fara til lands
sem var öðruvísi og ekki margir
væru að sækja heim. „Þegar ég var
búin með háskólann kom þessi
hugmynd,“ segir hún, en Qing er
menntuð í heilsutengdum fræðum.
Lærir alla ævi
Í svari Geirs Sigurðssonar heim-
spekings og prófessors í kínverskum
fræðum, við fyrirspurn á Vísinda-
vefnum, segir að hefðbundin kín-
versk læknisfræði byggist á fornum
tegundum kínverskrar heims- og
þekkingarfræði sem greinist nokk-
uð frá þeim sem hafa orðið ráðandi
í veröldinni eftir vísindabyltinguna
í Evrópu og móta grundvöll nútíma-
legrar læknisfræði.
Qing er eigandi Heilsudrekans
í Skeifunni, þar sem lagt er upp úr
heilsurækt með kínverskri nálgun.
„Ég stofnaði Heilsudrekann 1991
en fram að því hafði ég unnið í átta
ár við heilsutengd störf,“ segir Qing.
„Þetta er heilsulind, við erum með
heilsumeðferðir, eins og nokkrar
tegundir af leikfimi. Við vinnum
með andlegt og líkamlegt jafnvægi
í heilsu,“ útskýrir hún.
„Samt er ég enn þá að læra. Kín-
verskar lækningar eru þannig að
maður þarf að læra á hverjum degi,
alla ævi. Þetta er bara þannig. Það
er mikil heimspeki á bak við þetta,
ekki bara tækni,“ segir Qing.
„Við tölum um heildarmyndina.
Líkaminn er bara eins og náttúran.
Í dag er sól, á morgun er vindur
eða snjór. Það er aldrei eins milli
daga í hvernig orku líkaminn er og
hvernig þér líður. Eins og við klæð-
um okkur í föt, í dag langar mig í
grænt, á morgun grænt eða svart.
Orka líkamans er síbreytileg, svo-
lítið eins og íslenska veðrið,“ segir
Qing og hlær. n
Kínverskir listmunir rekja
lifandi sögu þúsunda ára
Dong Qing Guan stofnaði Heilsudrekann árið 1991. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hópurinn sem
stendur að
kínversku list-
munasýning-
unni að Fákafeni
11. Sýningin var
opnuð í gær og
stendur í tíu
daga.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
www.DORMA.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Sealy PORTLAND
heilsurúm með classic botni
Sealy HYATT
heilsurúm með classic botni
Gæði á góðu verði.
Portland er með góðum og sterkum poka -
gormum og kantstyrkingum. Dýnan er millistíf
og með pillow top úr mismunandi stífum svamplögum
og trefja lagi. Mýkt á móti stífum og góðum gormum.
Fæst í: 120/140/160/200 x 200 cm.
Sealy Hyatt heilsudýnan er gerð úr Posturpedic gormakerfi sem
Sealy hefur þróað í mörg ár. Til þess að ná hámarks slökun veitir
Sealy Hyatt dýnan líkamanum fullkominn stuðning.
Það er 6 mismunandi svamplög í dýnunni og þau ásamt
náttúrulegum trefjum og þykkum toppi gera það að verkum að
þú hvílist fullkomlega og snýrð þér mun minna en í venjulegri
gormadýnu. Dýnan er með Oek-Tex vottun um að engin skaðleg
efni eru í dýnunni.
Fæst í: 140/160/180 x 200 cm.
Verðdæmi 120 x 200 cm m/Classic botni og löppum
Fullt verð: 160.900 kr. Tilboð: 128.720 kr.
Verðdæmi 140 x 200 cm m/Classic botni og löppum
Fullt verð: 241.900 kr. Tilboð: 193.520 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
48 Lífið 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ