Fréttablaðið - 04.03.2022, Page 13

Fréttablaðið - 04.03.2022, Page 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT FÖSTUDAGUR 4. mars 2022 Súmak er leynikrydd matgæðingsins. Fréttablaðið/Getty jme@frettabladid.is Súmak-krydd er unnið úr þurrk- uðum berjum runna sem vex víðast hvar við Miðjarðarhafið, Afríku, Asíu og í Norður-Ameríku. Það fæst oftast mulið í poka eða krukkum. Bragðinu er oft líkt við nýkreistan sítrónusafa, en súmak sé súrt og skarpt, þá er einnig sæta, blóma- tónar og vottur af reykkeim. Rauð- bleiki liturinn gefur líka fallegan blæ á matinn sem því er dreift yfir. Súmak kjúklingur 1 kg kjúklingalæri og -leggir með skinni og beini 1 stór sítróna 4 msk. ólífuolía 1½ msk. súmak 4 hvítlauksgeirar, kramdir ½ tsk. malað cummin ½ tsk. malað allrahandakrydd ¼ tsk. kanilduft Salt og pipar 1 stór rauðlaukur, skorinn í sneiðar Skerðu rákir í kjúklingabitana. Settu í skál með sítrónusafa, 3 msk. ólífuolíu, 1½ msk. súmak, hvítlauk, cummin, allrahanda, kanil, 1½ tsk. salt og ¼ tsk. pipar og rauðlauk. Nuddaðu blöndunni vel í kjötið og maríneraðu í um 1-3 tíma. Hitaðu ofninn í 190°C. Settu allt á bökunarplötu og eldaðu í um 40 mínútur, eða uns safinn er glær og kjötið eldað í gegn. Leyfðu að hvíl- ast undir loki í nokkrar mínútur. Stráðu súmaki og ólífuolíu yfir og berðu kjúklingurinn fram. n Súrt og sætt Sigurjón Steinsson framkvæmdastjóri segir að aðstaðan hjá Arena henti sérstaklega vel fyrir skemmtun fyrir bæði vinahópa og vinnustaði, óháð aldri og reynslu af tölvuleikjum, en allir geta fengið kennslu og leiðsögn til að hjálpa sér að komast af stað. Fréttablaðið/eyÞÓr Heimsklassa aðstaða fyrir tölvuleikjaunnendur Arena er með 1.100 fermetra af glæsilegri tölvuaðstöðu með öflugustu leikjatölvum sem völ er á og þar geta einstaklingar, vinahópar eða vinnustaðir skemmt sér konunglega í sal eða einkaherbergjum. Þar er einnig frábær veitingastaður og öflugt rafíþróttastarf. 2 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.