Fréttablaðið - 04.03.2022, Blaðsíða 26
Hópefli, veitingar og skemmtun fyrir þinn hóp
Bókaðu þína upplifun á www.smarabio.is
HÓPASKEMMTUN
Í SMÁRABÍÓ
12 kynningarblað 4. mars 2022 FÖSTUDAGURkvikmyndir mánaðarins
Gaman getur verið að grúska
og finna skemmtilegan fróð-
leik um það sem gerist bak
við tjöldin við tökur kvik-
mynda og hvað stendur að
baka frægra atriða og skota
í myndum. Stundum verða
atriði allt öðru vísi en leik-
stjórar og handritshöfundar
höfðu séð fyrir sér.
n Grænu kóðarnir með svarta bak-
grunninum sem fossuðu niður
skjáinn í kvikmyndinni THE MAT-
RIX (1999), sem systurnar Lilly
og Lana Wachowski skrifuðu og
leikstýrðu, eru svo sannarlega
eftirminnilegir og einkennandi
fyrir myndina. Það var Simon
Whiteley, framleiðsluhönnuður
hjá Animal Logic í Ástralíu, sem
átti heiðurinn af sköpun grænu
kóðanna. En hvað eru þessir
kóðar? Jú, þetta eru uppskriftir
að sushi á japönsku, en þær eru
skráðar lóðréttar svo það er ekki
mælt með því að fara eftir þeim.
n Suður-kóreska kvikmyndin
PARASITE var fyrsta erlenda
kvikmyndin í sögu Óskarsverð-
launanna til að vinna verðlaun
sem besta myndin.
n Kvikmyndin PULP FICTION var
fyrst frumsýnd í Suður-Kóreu
(10.9.’94), svo Japan (8.10.’94) og
Slóvakíu (13.10.’94) áður en hún
var loks frumsýnd Bandaríkj-
unum (14.10.’94).
n Við tökur á kvikmyndinni
ROCKY IV gaf Sylvester Stallone
mótleikara sínum, Svíanum
Dolph Lundgren sem lék erki-
óvin Rockys Ivan Drago, þau
fyrirmæli að reyna að kýla hann
kaldan í boxbardaganum. Svíinn
fylgdi fyrirmælunum og högg
lenti á bringu Stallones sem
gerði það að verkum að Stallone
þjáðist af hjartaáverka og þurfti
hann að vera á gjörgæslu í fimm
daga. Slíka tegund af áverka er
oftast að finna hjá þeim sem
hafa lent í bílslysum.
n Kvikmyndin BLADERUNNER
(1982) er lauslega byggð á bók
vísindarithöfundarins Philip K.
Dicks Do Androids Dream of
Electric Sheep? Ridley Scott,
leikstjóri myndarinnar, las ekki
bókina áður en vinna hófst við
kvikmyndina.
n Í lokaatriði vísindakvikmyndar-
innar BLADERUNNER flytur
stórleikarinn Rutger Hauer eina
mögnuðustu einræðu kvik-
myndasögunnar, en ræðan
heitir „Tears in Rain“ (einn-
ig þekkt sem „The C-Beams
Speech). En kvöldið fyrir tökur
á atriðinu tók Hauer ræðuna
sem var í handritinu, samdi nýja
og flutti í töku án þess að láta
Ridley Scott leikstjóra myndar-
innar fá vitneskju um það fyrir
fram. Mikill fögnuður brast á við
lok töku á þessu snilldaratriði.
skemmtilegur fróðleikur um kvikmyndir
Pizza Planet pallbíllinn, sem fyrst sást í Toy Story 1995, hefur verið í hverri
einustu Pixar-teiknimynd síðan, nema The Incredibles.
A113 kemur
með ein-
hverjum hætti
fyrir í næstum
öllum teikni-
myndum frá
Pixar og Disney.
Vísar númerið til
skólastofunnar í
California Insti-
tute of the Arts
þar sem kennd
er teiknimynda-
gerð og grafísk
hönnun.
Rutger Hauer
samdi sjálfur
ræðuna í lokaat-
riði Bladerunner
án þess að láta
neinn vita. Leik-
stjórinn heyrði
ræðuna fyrst í
töku á atriðinu.
n Páskaegg (dulin skilaboð) eru
algeng í teiknimyndum frá Pixar
og Disney. Til að mynda kemur
númerið A113 fyrir í flestum
þeirra en það er númerið á skóla-
stofunni í California Institute of
the Arts þar sem kennd er teikni-
myndagerð og grafísk hönnun
og margir sem vinna við gerð
myndanna hafa lært þar list sína.
n Annað páskaegg (dulin skilaboð)
í teiknimyndum frá Pixar er Pizza
Planet pallbíllinn. Hann er í hverri
einustu Pixar-mynd, nema THE
INCREDIBLES. Honum sást fyrst
bregða fyrir í TOY STORY (1995),
þegar leikföngin fara á vísinda-
pitsustað og þar keyrir Pizza
Planet pallbíllinn út pitsurnar.
Að auki má nefna að hann sést í
myndunum TOY STORY 4, THE
GOOD DINOSAUR og BRAVE.
Pizza Planet pallbíllinn er af
gerðinni Gyoza Mark VII Lite
Hauler árgerð 1978. n
Pulp Fiction var
ekki frumsýnd í
Bandaríkjunum
heldur í Suður-
Kóreu. Áður en
hún var frum-
sýnd vestra
fór hún á hvíta
tjaldið í Japan
og Slóvakíu.
Við tökur á myndinni Rocky IV sendi
Dolph Lundgren Sylvester Stallone á
gjörgæsludeild með bylmingshöggi.
Parasite var fyrsta erlenda myndin
til að vinna Óskarinn sem besta
mynd. Í ár er japanska myndin Drive
My Car tilnefnd sem besta mynd.