Fréttablaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 60
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Vefsíðan minningar.is heldur utan um minningar um látna ástvini Íslendinga. Þjónustan er öllum opin og notendum að kostnaðarlausu, og efnið aðgengilegt öllum notendum eftir skráningu með Íslykli. ninarichter@frettabladid.is Minningar.is er ný vefsíða sem gerir notendum kleift að setja upp minn­ ingarsíðu í nafni látinna ástvina á opinberum vettvangi, án endur­ gjalds. Þar má deila minningarorð­ um, ljósmyndum og myndböndum sem tengjast hinum látna. Á skírdag hófst viðtalsröð á vefsvæðinu þar sem Sirrý Arnar­ dóttir, sem jafnframt er talsmaður verkefnisins, tekur myndbands­ viðtöl við þjóðþekkta Íslendinga um látna ástvini. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir er fyrsti viðmælandinn í röðinni og rifjar upp minningar um föður sinn séra Bolla Þóri Gúst­ avsson. Lokaverkefni við HR Aðspurð um tildrög verkefnisins svarar Sirrý: „Þetta byrjar þannig að þrír ungir menn, þar á meðal Kjartan Örn Bogason, voru í HR í hugbúnaðarverkfræði. Þessi hug­ mynd hafði verið í fjölskyldunni hjá Kjartani í nokkurn tíma,“ segir hún. „Þeir sömdu við HR um að þetta yrði lokaverkefnið þeirra, að gera þessa síðu. Svo útskrifuðust þeir með BS í hugbúnaðargerð og fóru að vinna að þessu.“ Næst hafi þríeykið fengið engla­ fjárfesta til liðs við sig til að fjár­ magna uppsetningu síðunnar, sem Sirrý segir umfangsmikla. „Þetta er of boðslega mikil forritunarvinna og margt sem þarf að huga að. Eðli málsins samkvæmt þarf þetta að vera of boðslega traust og vandað.“ Einfalt viðmót lykillinn Hún segir að síða af þessu tagi þurfi að vera mjög einföld. „Sumir eru bara í áfalli þegar þeir eru að til­ kynna andlát þannig að það má ekki vera neitt f lækjustig þarna,“ segir hún. Minningar.is fékk íslensku vef­ verðlaunin í f lokknum efnis­ og fréttaveita ársins. „Við opnuðum þetta við hátíðlega athöfn á Bessa­ stöðum rétt fyrir síðustu jól og síðunni hefur verið gríðarlega vel tekið,“ segir Sirrý. „Það er aragrúi af fólki sem fer þarna inn og les minningargreinar og stofnar síður um látna ástvini, bæði fólk sem er löngu dáið eða nýfallið frá.“ Þá segir hún að fólk nýti sér í auknum mæli að setja inn ljósmyndir frá ýmsum tímabilum í lífi hins látna. „Þú getur stofnað minningarsíðu og síðan áttu hana sjálfur, en ekki Facebook eða annað stórfyrirtæki,“ segir Sirrý. Gögnin á minningar.is eru geymd á Firebase, sem er þjón­ usta á vegum Google. Efnið háð höfundarrétti Nokkur umræða hefur skapast í kringum fréttamiðla sem birt hafa veffréttir upp úr minningargreinum í óþökk aðstandenda. Á vefsíðunni segir að minningar.is sé háð höf­ undarrétti, og höfundar aðsends efnis eigi höfundarrétt að sínu efni á vefnum. Öðrum notendum sé aðeins heimilt að afrita efni vefsins til persónulegra nota og því sé öll dreifing og frekari afritun óheimil. Sem stendur er ekki hægt að læsa minningarsíðunum til þess að halda vefsvæðinu eingöngu innan hóps á borð við fjölskyldu, en Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkvæmda­ stjóri minningar.is, segir að í áfram­ haldandi þróun vefjarins sé svo­ kallað fjölskyldusvæði í skoðun, sem hægt yrði að læsa. n Viðtalsröð um látna ástvini ninarichter@frettabladid.is „Frétt þessarar nokkuð stuttu viku er þetta ríjúníón Rannsóknar­ skýrslu Alþingis sem þeir buðu upp á, Bankasýslan og verðbréfasviðin, í armslengd frá fjármálaráðherra,“ segir Helgi. „Það að Ríkisendur­ skoðun hafi svo verið sett í hurðina var líka góður díteill. Verbúðin setti standard fyrir svona períódur,“ segir hann. Hér vísar Helgi Seljan til eftir­ mála bankahrunsins og dregur upp samlíkingu við nýlega sölu á stórum hluta af eign ríkisins í Íslandsbanka, sem sætt hefur harðri gagnrýni. Ríkisendurskoðun hefur nú hafið rannsókn á umgjörð sölu hluta­ bréfanna í Íslandsbanka og er niður­ stöðu að vænta í júní. Stjórnarandstaðan á Alþingi vildi hins vegar að skipuð yrði sérstök rannsóknarnefnd þingsins til að fara í gegnum söluferlið, en stjórnar­ flokkarnir felldu þá tillögu. n Verbúðin setti standardinn n Frétt vikunnar Helgi Seljan Helgi Seljan, blaðamaður á Stundinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Það að Ríkisendur- skoðun hafi svo verið sett í hurðina var líka góður díteill. Eðli málsins sam- kvæmt þarf þetta að vera ofboðslega traust og vandað. Sirrý Arnardóttir, talsmaður Minninga www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Nú 135.920 kr. LICATA 3ja sæta sófi 3ja sæta sófi í Kentucky koníak, Stone Bonded leðri eða River dökkgrátt áklæði. Stærð: 199 x 94 x 82 cm. Verð: 169.900 kr. Skannaðu QR kóðann og skoðaðu páskatilboðin Afgreiðslutími páskar 16. apríl - 11-17 17. apríl - Lokað 18. apríl - Lokað 19. apríl - 11-18 www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN PÁSKA TILBOÐ Nú 215.920 kr. LICATA hornsófi Nettur og fallegur sófi. River 66 dökkgrátt áklæði. Stærð: 262 x 226 x 82 cm. Sófann er einnig hægt að fá í Kentucky koníak bonded leðri með horni til hægri eða vinstri. Fullt verð: 269.900 kr. ELEGANCE heilsurúm með Classic botni 180x200 cm Fullt verð: 209.900 kr. Nú 167.920 kr. 120x200 cm Fullt verð: 155.900 kr. Nú 128.820 kr. Frábær heilsudýna sem hefur verið vinsæl hjá þeim sem velja gæði. Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Viðtalsröðin hófst inni á vefsvæðinu minningar.is á síðasta fimmtudag, skírdag. MYND/AÐSEND 36 Lífið 16. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.