Fréttablaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 26
Lausar eru til umsóknar ótímabundnar stöður sérfræðinga í heimilislækningum við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Starfshlutfall getur verið 100% eða minna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní eða eftir nánara samkomulagi.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf í spennandi starfsumhverfi þar sem áhersla er á nýsköpun og framþróun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt
og felst m.a. í almennri læknamóttöku, heilsuvernd,
bráðaþjónustu á daginn ásamt síðdegisvakt.
Viðkomandi er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu
heimilislækninga, kennslu starfsfólks og nema ásamt
þátttöku í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Hæfnikröfur
• Íslenskt lækningaleyfi
• Sérfræðimenntun í heimilislækningum
• Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
• Reynsla af kennslu er æskileg
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir
og þátttöku í teymisvinnu
• Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
• Íslenskukunnátta skilyrði
• Góð enskukunnátta
Til greina kemur að ráða almennan lækni ef ekki tekst að ráða sérfræðing í heimilislækningum til starfa.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2022.
Nánari upplýsingar á starfatorg.is og áheilsugaeslan.is undir laus störf
Sérfræðingar
í heimilislækningum
hagvangur.is
Nánari upplýsingar veitir Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, yrsa@hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl.
iTUB leitar að kraftmiklum starfsmanni til að leiða sölu félagsins
á Íslandi. Viðskipta- og þróunarstjóri mun jafnframt vinna að
viðskiptastefnu og frekari þróun félagsins. Starfsstöð er á
höfuðborgarsvæðinu.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Viðskiptastjóri núverandi viðskiptavina félagsins á Íslandi,
með markmiðið að hámarka virði þeirra og bæta þjónustu
• Sala á þjónustu félagsins, sölusamningar og eftirfylgni
• Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
• Vinna með yfirstjórn að stefnumörkun félagsins
• Þróun verkferla og viðskiptanets félagsins, innanlands og erlendis
• Umsjón með innleiðingu ýmissa verkferla
• Samskipti við viðskiptamenn og þjónustuaðila
• Stuðla að hámörkun leigunýtingarhlutfalls
• Úttekt og þróun á nýjum mörkuðum og vöru/þjónustu
• Ýmis önnur verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Haldbær reynsla af sölumálum og alþjóðaviðskiptum
• Áhugi á sjávarútvegi
• Reynsla af fiskveiðum og/eða vinnslu er kostur
• Greiningarhæfni og þekking/reynsla af markaðsmálum
• Góð almenn tölvufærni
• Samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Viðskipta- og þróunarstjóri
(Business Development Manager)
iTUB sérhæfir sig í leigu á endurnýtanlegum
umbúðum fyrir sjávarútveg í Norður Atlantshafi.
iTUB er með starfsstöðvar í Noregi, Danmörku
og á Íslandi, auk þjónustustöðva á öllum helstu
fiskvinnslusvæðum í norðanverðri Evrópu. iTUB
er leiðandi í þjónustulausnum á kerum fyrir veiðar,
vinnslu og flutning á hráefni. Sjálfbærni er ávallt
höfð að leiðarljósi og býður iTUB eingöngu upp á
fullkomlega endurvinnanleg ker sem framleidd eru
af Sæplasti á Dalvík.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
2 ATVINNUBLAÐIÐ 16. apríl 2022 LAUGARDAGUR