Fréttablaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 16
Fyrir
páskana
þarf ekki
að þrífa allt
hátt og lágt
og hvorki
þarf að
finna sér
páskakjól,
né heldur
passa í
hann.
Brönsinn veigamikill
Gísli Marteinn
Baldursson
dagskrárgerðar
maður
Gísli Marteinn er
vanalega fastur í
vinnu um helgar
en þessa helgina
fær hann frí, enda segist hann
sérlega hrifinn af páskunum
þegar um sé að ræða frí án
pressu.
„Páskarnir eru svo stórkostleg
hátíð, því það er gott frí, kyrrð
og ró, en engin pressa á að gera
eitthvað sérstakt. Það er ekki
sami frammi stöðu kvíði og getur
fylgt jólum eða öðrum hátíðum
og ekki jafn svakaleg neysla og er
um jólin. Svo er vorið að koma og
minnir mann á að þetta var auð-
vitað einhvers konar frjósemis-
hátíð hér einu sinni.“
Gísli ætlar bæði að vera í
bænum og í sumarbústað í
Skorradal þessa páskahelgina.
„Ég veit ekki alveg hvernig ég
skipti því en ég er líka að passa
hund, þannig að ég verð í löngum
göngutúrum og við Garpur
munum þefa af vorinu í samein-
ingu og athuga hvort við heyrum
í lóum.“
Spurður um matseldina um
páskana svarar Gísli:
„Ef ég kemst í góðan kræk-
ling þá finnst mér það kjörinn
matur á föstudaginn langa, svo
er helgin sjálf dálítill brönstími
og kannski við gerum okkur
shakshuku eða egg benedict og
svo eitthvað gott um kvöldið
líka. Risotto eða sjávarréttapasta
kannski? Ekki förum við að drepa
blessuð litlu lömbin þótt okkur
langi að gera okkur glaðan dag.“
Páskahelgi matarveislna
og slökunar
Þá er hún upprunnin, upprisuhátíðin,
þessi allra besta hátíð almanaksins.
Páskarnir eru áreynslulaust frí flestra
frá vinnu og daglegu amstri, sem aðra
daga allt gleypir. Fyrir páskana þarf
ekki að þrífa allt hátt og lágt og hvorki þarf að
finna sér páskakjól, né heldur passa í hann.
Óþarfi er að finna ættingjum og vinum páska
gjafir og aldrei hef ég heyrt talað um páskastress.
Samkvæmt Markúsarguðspjalli var það ein
mitt á páskadegi sem Maríurnar tvær: Magda
lena og móðir Jakobs, urðu varar við að Jesús
var ekki lengur í gröf sinni enda hafði hann
risið upp frá dauðum. Samkvæmt sögu þeirri
lifði Jesús því þrátt fyrir að hafa verið tekinn
af lífi á krossinum og í kjölfarið eru páskarnir
mesta hátíð kristinna manna.
En hvort sem þú, lesandi góður, haldir nú sem
kristinn maður upp á upprisu Jesú eða fagnir
einfaldlega fimm daga helgi vona ég að þú
njótir með þínu allra besta fólki, með góðum
mat, jafnvel drykk, óhóflegu súkkulaðiáti og
auðvitað eins og þú virðist vera að gera, við
lestur helgarblaðs Fréttablaðsins.
Gleðilega páska.n
Ekkert páskastress
Grazie Trattoria
Á glænýjum ítölskum veitingastað
ofarlega á Hverfisgötunni er ekki
aðeins tekið á móti gestum af snyrti
legum fullorðnum herramönnum,
enda auglýsti rekstraraðilinn sér
staklega eftir starfsfólki yfir sex
tugu, heldur eru á matseðlinum þær
allra bestu pítsur sem fáanlegar eru í
Reykjavík. Örlítill keimur af Napólí
er kominn alla leið á Hverfisgötuna
og pítsuunnendur bara verða að
prófa.
Aldrei fór ég suður
Tónlistarhátíðin á Ísafirði hefur
fyrir löngu slegið í gegn og er bær
inn ásamt nágrannabæjarfélögum
yfirfullur af aðkomufólki sem og
heimamönnum yfir páskahátíðina.
Þeir sem ekki komust alla leið vestur
þurfa þó ekki að missa af tónlistar
veislunni en bein útsending verður
á RÚV 2 í kvöld klukkan 19.30.
Meðal listamanna sem koma fram
eru Moses Hightower, Mugison,
Flott, Gugusar og Aron Can. n
Við mælum með
BJORK@FRETTABLADID.IS
Á einu síðkvöldi tókst tveimur ráð
herrum Framsóknar að ganga fram
af þjóðinni með rasískri og öfga
fullri framkomu, sem vekur spurn
ingar um hæfi beggja til að gegna
trúnaðarstörfum.
Ekki var eftirleikurinn betri.
Aðstoðarmanni var att á foraðið
með ósannindi og ráðherrarnir
sjálfir reyndu að beita gaslýsingu til
að breiða yfir það sem raunverulega
gerðist þetta kvöld.
Nú hefur komið í ljós að alvarleg
brotalöm var á útboði á hlut ríkisins
til fagfjárfesta í mars. Bankasýsla
ríkisins segir útboðið hafa gengið
að óskum en er ein um þá skoðun.
Hvorki ríkisstjórnin né þing
menn virðast hafa skilið kynningu
Bankasýslunnar á útboðinu.
Viðskiptaráðherra sagðist eftir á
hafa verið á móti þeirri aðferð sem
notuð var við útboðið. Hún virðist
þó hafa samþykkt framkvæmd þess
bæði í ráðherranefnd um efnahags
mál og í ríkisstjórn.
Viðskiptaráðherra sagði f jár
málaráðherra hafa klúðrað, en ekki
Bankasýsluna, sem sá um fram
kvæmdina. Slíkar skeytasendingar
milli ráðherra eru fátíðar.
Sjálf framk væmd útboðsins
var með ólíkindum. Útboðið átti
einungis að vera til fag og stofn
anafjárfesta, en engar kröfur voru
gerðar um lágmarksfjárhæð kaupa.
Gömul saga og ný – eftir höfðinu dansa limirnir
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Banka-
sýslan er
ein um
þá skoð-
un að
vel hafi
tekist til.
Söluaðilar útboðsins keyptu
sjálfir í því og úthlutuðu hlutum til
starfsmanna sinna um leið og þeir
þurftu að skerða verulega úthlutun
til viðskiptavina. Lagalega er þetta
vafasamt og brýtur gegn reglum
um að hagsmunir viðskiptavina séu
ávallt hafðir í fyrirrúmi.
Engan þarf samt að undra slíka
framkomu verðbréfasala þegar
æðsta stjórn ríkisins virðist gegn
sósa af spillingu og agaleysi. n
Páskarnir eru í uppáhaldi hjá ansi mörgum enda hjá f lestum
löng helgi þar sem samvera ásamt góðum mat er í fyrirrúmi.
Við hleruðum nokkra skemmtilega einstaklinga um
páskaplön þeirra.
bjork@frettabladid.is
Eta, drekka og vera glaður
Þorkell Harðarson
alþjóðlegur kvikmynda
framleiðandi
Allra síðustu veiðiferðina, sem
Þorkell Harðarson kvikmynda-
framleiðandi stendur á bak við
ásamt fleirum, má sjá í bíó um
páskahelgina en Þorkell vill nota
páskafríið til góðs.
„Páskarnir eru til að hlaða batteríin og íhuga
stöðu okkar gagnvart meðbræðrum okkar og
-systrum. Bæta stöðuna ef mögulegt er. Annars
að hjakka í sama farinu áfram.“
Áætlanir Þorkels þessa páskana eru bæði há-
leitar og einfaldar. „Um páskahelgina ætla ég að
spila tónlist, eta og drekka og vera glaður.“
Þegar kemur að matseldinni er ekki komið að
tómum kofanum hjá Þorkeli sem er annálaður
matgæðingur.
„Páskamaturinn verður eitthvað óvænt. Senni-
lega eitthvað þjóðlegt með alþjóðlegu ívafi.
Meira kjöt en grænmeti, klárlega.“
Drykkur í garðinum
toppurinn
Anna Þóra
Björnsdóttir
uppistandari og
eigandi verslunar
innar Sjáðu
Anna Þóra ætlar
að blanda saman
vinnu við heimilið
og almennu afslappelsi.
„Páskafríið er bara mesta af-
slappelsi sem ég veit um. Maður
þarf ekki að fara í spariföt heldur
bara elda góðan mat, drekka
mikið af víni og hitta vonandi
einhverja skemmtilega vini. Svo
framarlega að Gylfi, maðurinn
minn, handleggsbrjóti sig ekki, þá
eru þetta toppdagar. Hann gerði
það á föstudaginn langa fyrir
nokkrum árum en reis svo upp á
páskadag.“
Anna verður þó ekki aðeins í
af slöppun þessa páskana enda er
ætlunin að koma heimilinu aftur
í rétt horf. „Mér tókst að koma
fullmörgum iðnaðarmönnum
hingað inn á sama tíma svo það er
bara eins og við höfum verið að
flytja inn.“
Anna segist einnig ætla að
reyna að gefa sér tíma til að lesa
og nefnir í glettni tvær spennandi
bækur: Opinská ævisaga gleði-
konu í London og Hún og hann,
hamingjuríkt hjónaband. „Inni á
heimabarnum liggja alls konar
bókmenntir, en það er spurning
hvort ég eigi að lesa um hóruna í
London eða reyna að laga hjóna-
bandið,“ segir hún og skellir upp
úr.
Á páskadag verður kalkúnn á
borðum hjá Önnu og fjölskyldu.
„Ég er minna orðin fyrir páska-
lambið og kalkúnninn kemur
sterkur inn. Svo er það súkku-
laðiát og ég vona að páskalilj-
urnar sem ég er búin að planta í
garðinum blómstri. Toppurinn
væri svo ef maður gæti fengið
sér drykk úti í garði. Maður hefur
ekkert verið að vinna með áfengi
og garð lengi. Eins og það fer vel
saman.“
Espresso martini í eftirrétt
Aníta Briem
leikkona
Aníta Briem birtist kvikmynda-
gestum í myndinni Skjálfta, sem
er auðvitað tilvalið að sjá um
páskahelgina, en einnig styttist í
aðra frumsýningu leikkonunnar,
kvikmyndina Berdreymi, og ekki
að undra að hún nýti páskana í vinnutörn.
„Páskarnir eru vinnutörn í þetta skiptið fyrst ég
er í þeirri forréttindastöðu að vera í undirbúningi á
sjónvarpsseríu sem ég elska.“
Aníta ætlar þó ekki aðeins að vinna alla páska-
helgina. „Ég ætla samt að gefa mér tíma til að vera
með fjölskyldunni, borða góðan mat og spila.“
Spurð út í hátíðarmatinn á páskadag svarar
hún: „Ég ætla að finna mér tvær spennandi vegan
„steikur“ til að drekkja í Junkyard gravy og bera
fram til dæmis ofnbakaðar kartöflur, hvítlauks-
steiktan aspas og ferskt salat með granateplum.
Það er svo aldrei að vita nema maður hendi í
Espresso martini í eftirrétt.“
16 Helgin 16. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 16. apríl 2022 LAUGARDAGUR