Fréttablaðið - 16.04.2022, Blaðsíða 2
Maður hefur alltaf
áhyggjur af sviðsetn-
ingunni. Bretar eru
sérfræðingar í að
klúðra henni.
Flosi Jón Ófeigs-
son, Eurovision-
sérfræðingur
Létu rödd sína heyrast á skírdegi
Hópur fólks kom saman á Austurvelli í gær til að lýsa yfir óánægju sinni með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka sem mikið hefur verið rætt um undanfarna
daga. Lögreglan áætlaði að um fimm hundruð hefðu verið viðstödd þegar mest var en nokkrar ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna komu meðal annars
að skipulagningu mótmælanna. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, ávarpaði fólkið sem vildi spillinguna burt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er ótrúlegt en satt að Eng-
lendingum er spáð góðu gengi
í Eurovision. Fyrrverandi for-
maður FÁSES segir þó líklegt
að þeir muni klúðra svið-
setningunni.
benediktboas@frettabladid.is
EUROVISION „Mér finnst eins og
stóru fimm löndin séu að spýta í
lófana. Frakkar hafa verið að senda
fín lög eins og Ítalía. Spánn sendir
fínustu lög en fær því miður ekki
kosningu. Þetta er það besta sem
Bretar hafa sent í mörg ár,“ segir
Flosi Jón Ófeigsson, fyrrverandi
formaður FÁSES, sem hefur fylgst
vel með aðdraganda Eurovision.
Nú þegar stutt er í að tónlistar-
fólkið stígi á svið í Tórínó fékk
Fréttablaðið Flosa til að skoða hvað
sé að gerast úti í hinni stóru Evrópu.
Flestir veðbankar spá Úkraínu sigri
en Flosi segist ekki vera viss að þetta
verði auðveldur sigur. „Þeir verða í
topp fimm.“
England hefur yfirleitt sent frekar
slakt atriði en nú virðist meðbyr
með Sam Ryder sem syngur lagið
Space man. Hann er virkur á sam-
félagsmiðlum og teymið á bak við
atriðið virðist vera að gera eitthvað
rétt. „Maður hefur alltaf áhyggjur
af sviðsetningunni. Bretar eru sér-
fræðingar í að klúðra henni.“
Töluverð pressa er á Svíum þetta
árið en Cornelia Jakobs syngur lagið
Hold me closer. Flosi bendir einnig
á að Christer Björkman sé farinn til
Ameríku til að koma á fót systur-
keppni Eurovision: American Song
Contest, og horfinn úr teyminu.
„Þetta er fyrsta árið þeirra án hans.
Þasð eina sem ég hef áhyggjur af eru
tilfinningarnar á sviðinu. Þetta er
þannig lag og það gæti gerst eins og
gerðist fyrir Frakka í fyrra,“ segir
hann.
„Tilfinningarnar tóku þar yfir og
flutningurinn litaðist af því. Það varð
á tímabili falskt. En hún er frábær
flytjandi og það sást í undankeppn-
inni að hún hefur allt til að bera til að
gera vel,“ segir Flosi.
Hann segir að Svíarnir séu lík-
legastir af frændþjóðum okkar til að
ná langt í keppninni í ár, en þó hefur
hann trú á góðu gengi Norðmanna.
Finnar senda þekkta hljómsveit
en Danir eru ólíklegir til árangurs.
Danir eru með okkur Íslendingum
í dauðariðlinum svokallaða. Flestir
Eurovision-sérfræðingar eru sam-
mála um að kvöldið sem þær systur
stíga á svið sé mun betra.
Flosi segir Eurovision-aðdáendur
marga sammála um að framlag
Íslands sé vel gert, söngurinn og
annað. Hann hefur þó áhyggjur af
að lagið geti gleymst. „Það skiptir
öllu máli að þær mjólki mynda-
vélarnar og að það sé búið að þjálfa
þær í því.
Svo gæti vel verið að einfaldleik-
inn og einlægnin slái í gegn. Að Evr-
ópa sé að leita eftir því og þá erum
við í góðum málum,“ segir Flosi. ■
Stóru þjóðirnar farnar að
spýta í Eurovision-lófana
Þær systur Sigga, Beta og Elín eru í dauðariðlinum í Eurovision. MYND/AÐSEND
Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn
fimmtudaginn 19. maí kl. 17:00.
Dagskrá er samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Auk kjörinna fulltrúa eiga allir sjóðfélagar rétt til setu á
ársfundinum og/eða hafa aðgang að streymi fundarins.
Ársfundur 2022
Kjörfundur fulltrúa launamanna í Birtu lífeyrissjóði,
vegna stjórnarkjörs í lífeyrissjóðnum verður haldinn
fimmtudaginn 5. maí kl. 17:30.
Til fulltrúaráðs launamanna
Upplýsingar um fundina má finna á vefnum birta.is
kristinnpall@frettabladid.is
REYKJAVÍK Forvitnum Íslendingum
gefst kostur á að skoða bandaríska
herskipið USS Arlington, sem liggur
við Sundahöfn, í dag þegar almenn-
ingi er boðið að fara um borð í
skipið milli klukkan 9 og 16. Ekkert
aðgangsgjald verður tekið af gestum
sem gera sér ferð um borð en skipið
hefur verið við strendur Íslands
undanfarna daga eftir að hafa tekið
þátt í hernaðaræfingu Atlantshafs-
bandalagsins hér við land fyrr í
þessum mánuði. ■
Bjóða fólki um
borð í herskipið
Von er á talsverðum gestagangi í
Sundahöfn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
birnadrofn@frettabladid.is
FJÖLMIÐLAR Nýir hlaðvarpsþættir,
Lífið er lag, hefja göngu sína á hlað-
varpshlekk Fréttablaðsins í dag.
Þættirnir voru í sjónvarpi á Hring-
braut á árunum 2018-2021 og nutu
mikilla vinsælda.
Sigurður K. Kolbeinsson, stjórn-
andi sjónvarpsþáttanna, ræðir við
ýmsa þekkta og óþekkta Íslendinga
um lífið og tilveruna í hlaðvarpinu.
Sagðar verða skemmtilegar sögur og
frásagnir frá því á árum áður sem
mörgum kunna að þykja skemmti-
legar.
Þættirnir eru 40-50 mínútur að
lengd og verða sendir út vikulega,
allt árið og birtast á laugardögum. ■
Lífið er lag verður
hlaðvarpsþáttur
birnadrofn@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Annar t veg g ja
manna sem handteknir voru í
gær vegna hnífstungu fyrir utan
skemmtistaðinn Prikið í Ingólfs-
stræti var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald seinnipartinn í gær. Þetta stað-
festir Grímur Grímsson, yfirmaður
miðlægrar deildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, í samtali við
Fréttablaðið.
Mennirnir tveir voru hand-
teknir á fimmta tímanum aðfara-
nótt föstudags eftir að hafa stungið
mann með eggvopni.
Maðurinn sem varð fyrir árás-
inni var fluttur á sjúkrahús þar sem
hann undirgekkst aðgerð, hann
var enn á sjúkrahúsi í gær. Áverkar
mannsins voru að sögn lögreglu
alvarlegir. ■
Einn úrskurðaður
í gæsluvarðhald
Árásin átti sér stað fyrir utan
skemmtistaðinn Prikið í Reykjavík.
2 Fréttir 16. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ