Fréttablaðið - 04.05.2022, Side 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Konur
sem missa
réttinn til
að ráða
örlögum
sínum tapa
mættinum,
verða
ófrjálsar og
hverfa.
Þegar
ráðherra
Sjálfstæðis-
flokksins
fer ekki
að lögum
– þá skal
lögunum
breytt.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur
@frettabladid.is
Þið verðið öll að læra af þessu. Þannig voru skilaboð
Bankasýslunnar og fjármálaráðherra á opnum fundi
með fjárlaganefnd um daginn. Fólk hafi einfaldlega
ekki skilið útboðið.
Almenningur skildi þetta samt alveg enda gamal-
kunnir taktar hér á ferð frá því fyrir hrun. Og kannanir
sýna að fólk hefur þegar dregið sinn lærdóm af banka-
söluhneykslinu og hann er þessi: Sjálfstæðismönnum
er ekki treystandi til að fara með eignir og fjármál
almennings.
Þegar Sjálfstæðismenn stýra för eru reglurnar
sveigðar svo að þær henti útkomunni. Reglur sem
miðast við fáa langtímafjárfesta leiða til þess að margir
skammtímafjárfestar stinga í vasann vænum hagnaði
af bréfum sem þeir fengu að kaupa með afslætti af fimm
sérvöldum söluaðilum, á meðan aðrir „fagfjárfestar“
sátu hjá. Fyrir utan stendur svo almenningur og horfir á
í forundran. Og er svo sagt að hann skilji ekki snilldina.
Margt bendir til þess að lög hafi verið brotin í ferlinu,
enda ráðherrar farnir að tala um að „breyta þurfi
umgjörðinni“. Með öðrum orðum: Þegar ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins fer ekki að lögum – þá skal lögunum
breytt. Nú þegar við göngum senn til kosninga er ágætt
að hafa þennan lærdóm í huga. Og muna að Sjálfstæðis-
menn þurfa ekkert að standa við stjórnvölinn til að
hygla sér og sínum, sveigja reglur og hafa neitunarvald
um raunveruleg velferðarmál. Og stjórna með biðlistum
og afsláttum. Biðlistum fyrir almenning þegar hann
þarf eðlilega og nauðsynlega þjónustu vegna sjúkdóma
eða elli, afsláttum fyrir auðmenn.
Víða um land sjáum við aðra flokka en Sjálfstæðis-
menn taka höndum saman um stjórn sinna sveitar-
félaga með almannahag að leiðarljósi og það gengur
bara býsna vel. Þessir staðir eiga það sammerkt að
Samfylkingin er þar sterk og getur myndað trúverðugan
valkost við Sjálfstæðisflokkinn og vinavelferð hans.
Við þurfum að fjölga þessum stöðum og þar vantar
lítið upp á víða. Þá er Samfylkingin raunhæfur kostur.
Að sjálfsögðu. ■
Þið verðið öll
að læra af þessu
Logi Einarsson
formaður Sam-
fylkingarinnar
PRESSAN
FIMMTUDAGA KL. 20.00
OG AFTUR KL. 22.00
ser@frettabladid.is
Þrýstingur
Líklegt þykir að þrýstingur aukist
á formann Sjálfstæðisflokksins,
fari svo að flokkur hans tapi miklu
fylgi í borgarstjórnarkosningunum
annan laugardag, ofan í Íslands-
bankaraunirnar. Fylgiskannanir
eru hvorki uppörvandi fyrir hann
né nokkurn annan Sjálfstæðis-
mann, enda sýna þær flokkinn
undir tuttugu prósentum sem
myndi merkja að þrír fulltrúar
töpuðust – og að flokkurinn yrði
ekki lengur stærsta stjórnmálaaflið
í borginni. Það mun vera af þessum
sökum sem innanbúðarmenn í
flokknum krunka nú saman og
horfa til mögulegs arftaka Bjarna,
en þar er raunar úr vöndu að ráða …
Arftakinn
Arftakinn er nefnilega ekki augljós.
Einhverjir munu nefna Guðlaug Þór
Þórðarson, en sagan segir að Bjarni
hafi einmitt verið jafn þaulsætinn
og raun ber vitni svo Guðlaugur
komist ekki til frekari metorða
innan flokksins. Þá er varafor-
maðurinn vitaskuld nefndur, en
þar er komið babb í bátinn. Bróðir
Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð
Gylfadóttur, Ásgeir að nafni, hefur
risið til mikilla metorða innan
Skeljar sem merkir að hann vinnur
við að hámarka auðæfi aðaleigand-
ans, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Slíkt er eitur í beinum Davíðsarms-
ins. Krummarnir segja því sem svo
að best sé bara að velja Áslaugu
Örnu. ■
Sjálfsákvörðunarréttur kvenna yfir eigin
líkama hefur um áratugaskeið notið
verndar fjórtánda viðauka stjórnarskrár
Bandaríkjanna. Fjölmiðlar vestanhafs
greina nú frá því að Hæstiréttur lands-
ins muni á næstunni kveða upp dóm sem fellir
þessa vernd úr gildi.
Afleiðingin verður lakari lagavernd fyrir
konur og minna félagslegt öryggi. Fátækar fjöl-
skyldur verða enn fátækari, fólki í minnihluta-
hópum verður ýtt lengra út á jaðarinn.
Mörg stærstu vandamál hvers samfélags
eiga sameiginlegan snertiflöt í ójöfnuði. Hann
er ýmist orsökin eða afleiðingin, nema hvort
tveggja sé. Við erum hins vegar ekki alltaf að
horfa á þessa breytu þegar ákvarðanir eru
teknar, ekki síst þegar ákvarðanir eiga rætur
í siðferðisskoðunum og jafnvel trúarsann-
færingu. Þetta kemur hvergi eins skýrt fram og
í umræðunni um sjálfsákvörðunarrétt kvenna
yfir eigin líkama. Þeim sem efast um bein tengsl
ójöfnuðar í samfélaginu og ófrelsis kvenna er
bent á sögu getnaðarvarnarpillunnar sem kom á
markað um miðja tuttugustu öld.
Það er órjúfanlegur fylgikvilli ójöfnuðar að
manneskjurnar sem fyrir honum verða missa
röddina. Konur sem missa réttinn til að ráða
örlögum sínum verða ófrjálsar og hverfa.
Þótt Ísland standi framarlega á mörgum
sviðum kvenréttinda hefur annað fólk horfið
unnvörpum á Íslandi. Í síðustu viku skilaði
Ríkisendurskoðun skýrslu um stöðu geðheil-
brigðismála í landinu. Skýrslan er svört. Mis-
munun sé innbyggð í geðheilbrigðiskerfið, ekki
sitji allir við sama borð og aðgengi að þjónustu
ráðist gjarnan af efnahag, tegund geðvanda og
búsetu. Ástæður fyrir þessu eru sagðar margar
en meginvandinn kemur í ljós á síðu 81 þar sem
fjallað er um aðgerðir gegn fordómum í garð
fólks með geðraskanir. Þar segir meðal annars:
„Heilbrigðisráðherra skipaði starfshóp í október
2018. Hópurinn vann drög að skýrslu með til-
lögum um aðgerðir til að minnka fordóma í garð
fólks með geðraskanir. Skýrslan er ókláruð.“
Rétt eins og ójöfnuðurinn sem hljótast mun af
þeirri afturför sem Hæstiréttur Bandaríkjanna
boðar nú sínum borgurum munu örlög þeirra
sem við höfum bæði týnt og gleymt í ranghölum
úrræðaleysis, verða lóð á vogarskálar þess mikla
ójöfnuðar í heiminum sem hefur ýmist stuðlað
að eða beinlínis skapað stærstu vandamál
heimsbyggðarinnar í dag. Loftslagsvá, stríð,
fátækt og hungur, skipulögð glæpastarfsemi,
mansal, vímuefna- og lyfjafíkn. Öll þessi vanda-
mál eiga uppruna sinn í ójöfnuði. Við leysum
þau ekki án þess að horfast í augu við það. ■
Ófrelsisvá
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 4. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR