Fréttablaðið - 04.05.2022, Side 13

Fréttablaðið - 04.05.2022, Side 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT MIÐVIKUDAGUR 4. maí 2022 Tinna Björt Guðjónsdóttir er sölu- og markaðsstjóri Provision sem býður upp á frábærar vörur gegn frjókornaofnæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Góð ráð við frjókornaofnæmi Þótt flestir landsmanna fagni vorinu er frjókornaofnæmi leiðinlegur fylgifiskur þess. Provision býður upp á góðar vörur gegn frjókornaofnæmi og fyrir góða augnheilsu. 2 Vin og Lin þegar allt lék í lyndi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY oddurfreyr@frettabladid.is Búið er að tilkynna nýjan leik- stjóra fyrir tíundu viðbótina við Fast & Furious kvikmyndaseríuna, Fast X. Loius Leterrier tekur við af Justin Lin, sem hætti nýlega. Ástæðan fyrir brotthvarfi Lin er sögð vera ósætti við Vin Diesel, aðalleikara kvikmyndanna. Samkvæmt The Hollywood Reporter hætti Lin skyndilega vegna þess að hann og Diesel voru ekki sammála um handritið. Lin taldi það frágengið en Diesel og framleiðslufyrirtækið Universal voru víst ekki sammála og 23. apríl á Diesel að hafa mætt í vinnuna með punkta sem leiddu til háværs rifrildis þar sem hurðum var skellt. Dýrt rifrildi Lin verður því aðeins framleiðandi myndarinnar en ekki leikstjóri. Sagt var frá brotthvarfi hans í fréttatilkynningu þar sem hann talaði vel um vinnuna við fimm myndir í seríunni síðustu tíu árin en minntist ekkert á deilur. Eftir að hann hætti var fram- leiðsla á Fast X stöðvuð, sem er talið hafa kostað Universal hundruð þúsunda dollara á hverjum degi. En nú er vinnan hafin á ný og Fast X á að koma út 19. maí 2023. n Nýr leikstjóri fyrir Fast X ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.