Fréttablaðið - 04.05.2022, Page 16
Range Rover Velar
HST verður boðinn
með sex strokka 300
hestafla dísilvél eða 400
hestafla bensínvél.
Samkæmt Reuters
vill Audi kaupa
McLaren-merkið til að
koma inn í Formúlu 1.
Sportbíll þessi mun
vera hannaður í
samstarfi við rapparann
will.i.am.
Nýr Kona verður
eitthvað stærri og
fær líklega sama K-und-
irvagn og önnur kynslóð
Kia Niro.
njall@frettabladid.is
Framkvæmdastjóri Volkswagen,
Herbert Diess, lét hafa það eftir sér
á mánudag að tvö merki bílarisans,
Audi og Porsche, hefðu ákveðið
að taka þátt í Formúlu 1. Talsvert
hefur verið fjallað um möguleika
á þessu að undanförnu en Porsche
mun vera komið lengra í því að
forma þessar áætlanir.
Porsche hefur ekki tekið þátt í
Formúlu 1 áður en hefur starfað
með Red Bull í heimsmeistara-
keppninni í ralli, og er hugmyndin
að gera það sama í Formúlu 1.
Samkvæmt Reuters mun Audi
vera tilbúið að borga 500 milljónir
evra fyrir McLaren-merkið og nota
það til þátttöku, en ekkert hefur
frekar verið tilkynnt um þessar
Audi og Porsche í Formúlu 1
Hugmyndin hjá Porsche er að starfa áfram með Red Bull-liðinu á næstu árum.
MYND/GETTY
njall@frettabladid.is
Önnur kynslóð Hyundai Kona er
í burðarliðnum og nýlega birtust
fyrstu njósnamyndir sem náðst
hafa af bílnum.
Þrátt fyrir mikinn dulbúning
má sjá að bíllinn heldur í margt af
útliti sínu eins og tvískipt aðalljós.
Myndirnar sýna líka að bíllinn er
með púströr sem bendir til þess
að hér sé á ferðinni tvinnútgáfa.
Nýr Kona verður eitthvað stærri
en fyrsta kynslóðin en líklegast
fær bíllinn K-undirvagninn sem
notaður er í annarri kynslóð Niro.
Rafdrifin útgáfa mun einn-
ig koma með stærri rafhlöðu og
meira drægi. Jafnvel má búast við
að bíllinn fái sömu 64,8 kWst raf-
hlöðu og Kia Niro. Bíllinn verður
ekki frumsýndur fyrr en á næsta
ári í fyrsta lagi. n
Fyrstu njósnamyndir
af nýjum Kona
Næsta kynslóð Hyundai Kona kemu ekki fyrr en á næsta ári. MYND/AÐSEND
Breski bílaframleiðandinn
Land Rover hefur kynnt nýja
gerð Ranger Rover Velar,
svokallaða HST-útgáfu sem
Land Rover kynnti fyrst
í kraftmiklum útgáfum
Range Rover Sport og
Evoque.
njall@frettabladid.is
Nú geta viðskiptavinir einnig
fengið Velar í sömu útgáfu sem
Jaguar Land Rover á Íslandi við
Hestháls sérpantar í samræmi við
óskir og val viðskiptavina.
Velar HST markar nýjar áherslur
í hönnun, smíði og efnum en
svart þak og svartir áherslufletir
undirstrika séreinkenni Velar HST.
Einkennisliturinn verður Arroios
Grey, en auk þess verður bíllinn
fáanlegur í öllum grunnlitasam-
setningunum með skyggðum
rúðum og 21 tommu Gloss Black
álteinafelgum.
Velar HST er búinn rafstýrðri
loftfjöðrun með skynvæddri
dempun sem tekur sjálfkrafa mið
af aðstæðum til að skila hámarks-
þægindum og stjórnun fyrir
farþega og ökumann. Að auki er
Velar HST búinn nýjustu útgáfu
akstursaðstoðartækni framleið-
andans og stæðisaðstoðinni sem
styðst við þrívíddar 360 gráðu
myndavél.
Ranger Rover Velar HST er í boði
með nokkrum mismunandi kraft-
miklum sex strokka Ingenium-
vélar, bæði 300 hestafla dísilvél-
um og 400 hestafla bensínvélum,
auk þess sem framleiðandinn
býður Velar í mildri tvinnút-
færslu. n
Ranger Rover Velar nú
fáanlegur í sportútgáfu
Meðal staðalbúnaðar í Velar HST verður opnanlegt þak og loftpúðafjöðrun. MYND/LAND ROVER
ERT ÞÚ EKKI
NÓGU HARÐUR?
Man Power er hannað fyrir karlmenn sem
vilja auka orku og úthald í rúminu.
Man Power inniheldur gingseng ásamt
amínósýrum sem hafa jákvæð áhrif á þessa
þætti.
M
an
P
ow
er
fæ
st
í
Fj
ar
ða
rk
au
p,
H
ag
ka
up
o
g
a
p
ót
ek
um
.
fyrirætlanir af hálfu Volkswagen.
Volkswagen áætlar að setja
Porsche-merkið á markað í lok
ársins sem gæti haft áhrif á þessar
ákvarðanir. n
njall@frettabladid.i
Mercedes-AMG mun frumsýna
nýjan sportbíl á morgun, fimmtu-
dag, sem hannaður hefur verið í
samstarfi við rapparann will.i.am.
Með fréttatilkynningunni fylgdu
myndir sem sýna harla óvenjuleg-
an sportbíl sem virðist sækja hluta
útlits síns til G-línunnar. Ljósin
virðast vera svipuð en stuðarinn er
hluti af heildarmyndinni. Vélar-
hlífin virðist vera mjög kúpulaga
og virðist ná yfir brettin.
Í fréttatilkynningunni segir
að will.i.am hafi búið til bíl fyrir
Mercedes-AMG sem muni styrkja
tækniskóla í stórborgum Banda-
ríkjanna í að hjálpa ungmennum að
takast á við tækni morgundagsins.
Hvað Mercedes-AMG á nákvæm-
lega við með þessum orðum hlýtur
að skýrast á morgun. n
Mercedes-AMG
frumsýnir nýjan sportbíl
Óhætt er að segja að útlitið er sér-
stakt með framenda sem minnir á
G-jeppann og kúpulaga vélarhlíf.
MYND/MERCEDES
2 BÍ L A BL A ÐI Ð 4. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR